Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 23
Samningur
um ís~
lensku
ánægju-
vogina
GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ís-
lands, Samtök iðnaðarins og
Gallup hafa gert með sér sam-
starfssamning um mælingar á
svonefndri evrópskri ánægjuvog,
en íslenski hluti verkefnisins
nefnist Islenska ánægjuvogin.
Evrópska ánægjuvogin er sam-
ræmd mæling á ánægju við-
skiptavina fyrirtækja í fjölmörg-
um greinum atvinnuiífs tólf Evr-
ópuþjóða sem standa að verkefn-
inu. Samstarfsverkefnið er m.a.
styrkt af ESB og samtökum
nokkurra rannsóknarháskóla í
Evrópu.
Aðalviðskiptavinir stærstu fyr-
irtíckja í hverri atvinnugrein eru
spurðir margvíslegra spurninga
um ánægju þeirra með vörur og
þjónustu fyrirtækjanna. Svör við-
skiptavina eru sett á svokallaða
ánægjuvog, sem er samræmdur
mælikvarði á milli fyrirtækja, at-
vinnugreina og landa. Ánægjan
er metin á kvarðanum 0-100 og
með ánægjuvoginni má bera
saman ánægju viðskiptavina, at-
vinnugreinar og þjóðir.
Hliðstæðar samræmdar mæl-
ingar á ánægju viðskiptavina
hafa verið gerðar í Svíþjóð frá
árinu 1989 og í Bandaríkjunum
frá árinu 1994 og ná þær nú til
meirihluta hagkerfis þessara
þjóða.
Um þessar mundir er verið að
mæla ánægju viðskiptavina
stærstu fyrirtækja á fslandi í
nokkrum atvinnugreinum. Þær
eru starfsemi banka og spari-
sjóða, tryggingafélaga, farsíma-
fyrirlækja og framleiðenda gos-
drykkja og kjötáleggs.
---------------
Reglum breytt
vegna Hæsta-
réttardóms
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
breytt reglum um útreikning stimp-
ilgjalds af endurútgefnum og skil-
málabreyttum skuldabréfum, í til-
efni af dómi Hæstaréttar í máli nr.
63/1999, frá 10. júní 1999. Breyting-
arnar eru sem hér segir, samkvæmt
því sem segir í tilkynningu frá fjár-
málar áðuneytinu:
„Endurútgefið bréf: Þegar skuld
er endumýjuð með nýju skuldabréfi
skal taka hálft stimpilgjald af höfuð-
stól nýja bréfsins, án tillits til þess
hvort hann er vegna gjaldfallinna
eða ógjaldfallinna eftirstöðva, vaxta,
dráttarvaxta eða annars kostnaðar.
Skilmálabreyting: Þegar skilmál-
um skuldabréfs er breytt skal taka
fullt stimpilgjald af mismuni upp-
haflegs höfuðstóls bréfsins og þess
höfuðstóls sem er á bréfinu skil-
málabreyttu.
Þeir aðilar sem hafa greitt hærra
stimpilgjald en leiðir af þessum
reglum, eiga rétt á endurgreiðslu á
mismuni þess sem þeir greiddu og
þess sem greiða skal samkvæmt
framangreindum reglum. Það skal
tekið fram að krafa um endurkröfu
fyrnist á fjórum árum frá greiðslu
gjaldsins.
Þeim sem eiga rétt á • endur-
greiðslu er bent á að snúa sér til
viðkomandi sýslumanns. Beiðni um
endurgreiðslu skal fylgja frumrit
endurútgefna eða skilmálabreytta
skuldabréfsins og kvittun þar sem
fram kemur hver greiddi stimpil-
gjaldið eða yfirlýsing lánastofnun-
ar þar um,“ að því er fram kemur í
tilkynningu frá fjármálaráðuneyt-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Haraldur Á. Hjaltason, formaður Gæðasljórnunarfélagsins, og Sveinn
Hannesson, framkvæmdasljóri Sanitaka iðnaðarins, undirrita samn-
inginn. Fyrir aftan stendur stjórn íslensku ánægjuvogarinnar: Andrea
Þ. Rafnar, frá Gæðastjórnunarfélaginu, Þorlákur Karlsson, frá Gallup,
og Davíð Lúðvíksson, frá Samtökum iðnaðarins.
m © ©
FJÖLPOST
íí r
O I
PÓSTURINN
www.postur.is/fjolpostur
Nýr stoöur furir
irl
notoöo bflo
Bílaland B&L er ein stærsta bílasala landsins með notaða bíla af öllum stærðum og
gerðum. Bílaland er í nýja B&L húsinu við Grjótháls 1 (rétt ofan við Select við
Vesturlandsveg) og þú gengur inn frá Fosshálsi.
iiTi GMC Jimmy SLS, árg.
96, 4300, ssk., 5 d.,
rauóur, ek. 46 þ. km.
Renault Megané RN
Berline, árg. 98, 1400, 5 g.
5 d., silfurgr., ek. 6 þ. km.
Honda CR-V,
árg. 98, 2000.
ssk., 5 d.,
svartur,
ek. 24 þ. km.
Hyundai Sonata GLSi.
árg. 97, 3000, V6,
ssk., 4 d., silfurgr.,
ek. 31 þ. km. ^
BMW 523iA, árg. 98,
2300, ssk., 4 d., svartur,
ek. 16 þ. km, mikið af
aukahlutum. já
Renault Megané RT
Berline, árg. 97, 1600,
5 g., 5 d., grænn,
ek. 32 þ. km. i
veró 1.660 þús.
Hyundai Coupe, árg.
98, 1600, ssk., 2d., *
rauður, ek. 15 þ.
Land Rover Freelander, árg.
98, 1800, 5 g., 5 d., d-
grænn, ek. 14 þ. km,
ýmsir aukahlutir.
BMW 520iA, árg.
96, 2000, ssk.,
4 d., svartur,
ek. 71 þ. krrw^gg!
Hyundai Elantra, árg. 98,
1600, ssk., 5 d., blár,
ek. 20 þ. km.
VWGolfCL, árg. 96,
1400, 5 g., 3 d., rauðun
ek. 60 þ. km.
Hyundai Atos, árg. 98,
1200, 5 g., 5 d., grænn.
ek. 22 þ. km.
Fiat Brava ELX, árg.
97, 1800, 5 g., 4 d.
Ij.-grænn, dm
ek. 55 þ. km. .
Hyundai Accent GLSi, árg.
97, 1500, ssk., 4 d.,
rauður, ek. 22 þ. km.
Grjóthálsi 1, sími 575 1230
notaóir bi'lar