Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ1999 29 ERLENT Skaut sig í höfuðið AP LÖGREGLUMENN ieita að skothylkjum fyrir utan kóresku meþódistakirkjuna í Bloom- inglon á sunnudag. Hér að ofan eru myndir af Smith, sem lög- reglan dreifði á sunnudag. hafa „haft Smith á radarskjánum" í talsverðan tíma. Háskólayfiivöld í Indiana veittu því athygli í fyrra að Smith var að dreifa kynþáttahatursritum á svæði skólans, og voru ritin merkt Heims- kirkju skaparans. I þeim var saga Bandaríkjanna rakin flausturslega og því haldið fram að Bandaríkin hefðu verið stofnuð af hetjum sem hefðu verið hvítar á hörund. Þar sagði meðal annars: „Okkar fólk, hinn mikli hvíti kynstofn, er þrælar svikulla stjórnvalda, miðstýrðra fjöl- miðla og sjálfsmorðstrúarbragða.“ Dæmigerður nemandi Töluvert uppnám varð vegna dreifiritanna og ræddi rektor við skólans við Smith um þau. „Hann var mjög dæmigerður nemandi, ekk- ert óvenjulegt eða ógnandi við hann þá,“ sagði rektorinn við AP á sunnu- dag. „Hvorki klæðaburður né útlit, nema kynþáttahatur hans, sem var hryllilegt." Rektorinn sagði Smith ekki hafa ógnað sér á nokkurn hátt heldur bara sagst vera að dreifa bæklingum og hefði bætt við: „Við erum í Bandaríkjunum.“ Byssumaðurinn skaut á blökku- menn og fólk af asísku bergi brotið í tveim öðrum borgum í Illinois á laug- ai-dag og á sunnudag, 4. júlí, þjóðhá- tíðardag Bandaríkjanna, skaut hann kóreskan mann til bana fyrir utan kirkju í Bloomington í Indiana. Maðurinn rændi síðan bifreið og reyndi að komast undan lögreglu- mönnum. Að sögn lögreglu í Chicago skaut maðurinn sig í höfuðið á flótt- anum. Skömmu síðar lést hann á sjúkrahúsi í Salem. „Það er útlit fyrir að þetta sé okk- ar maður,“ sagði talsmaður Chicago- lögreglunnar. Hann bætti því við, að FBI yrði að athuga fmgraför á líkinu og bera saman við flngraför Smiths til að ganga úr skugga um að um væri að ræða réttan mann. Tvær byssur fundust í fónim Smiths og eru þær í samræmi við vopnin sem notuð voru við árásirnar. Smith hafði verið meðlimur í Heimskirkju skaparans, sem er sam- tök hvítra kynþáttahatara, og þegar hann var við nám í Indianaháskóla dreifði hann ritum sem beindust gegn minnihlutahópum og gyðing- um. Kirkjan hefur bækistöðvar í East Peoria í Illinois, og sagði leið- togi hennar, Matt Hale, að Smith hefði verið meðlimur frá því í júní fyrra og þar til í maí sl. FBI hafði haft Smith undir smásjá undanfarna daga, en lögmaður Sam- taka gegn rógburði sagði samtökin Kynþáttahatari myrti tvo og svipti sig lífí Salem, Bloomington. AP. HVÍTUR kynþáttahatari í Banda- ríkjunum, sem varð tveim að bana, særði sex og skaut á enn fleiri á föstudag, laugardag og sunnudag, svipti á endanum sjálfan sig lífi, að þvi er bandaríska alríkislögreglan, FBI, greindi frá í gær. Maðurinn hét Benjamin Nathaniel Smith og var 21 árs. Hann skaut sig þegar hann var á flótta undan lög- reglu í Indianaríki. Yfirvöld telja að Smith hafi verið að verki og byrjað árásir sínar á fólk úr minnihlutahóp- um á föstudag í Chicago þegar svart- ur körfuboltaþjálfari var skotinn til bana og sex bókstafstrúargyðingar særðir í skotárás. BBC sökuð um aðstoð við barna- morðingja The Daily Telegraph. TALSMENN bresku sjón- varpsstöðvarinnar BBC hafa vísað því á bug að starfsmenn stöðvarinnar hafl aðstoðað mann við að hafa uppi á tveim- ur börnum sínum sem hann síðan myrti í Israel. Maðurinn, Ai-az Tivoni, hellti bensíni yfir börnin og kveikti í þeim er hann heimsótti þau í fjölskylduathvarf í Israel. Ekki er hins vegar ljóst hvernig á því stóð að félagsráðgjafi, sem átti að fylgjast með heimsókn- inni, lét hann einan með börn- unum. Þáttagerðarmenn BBC ákváðu að vinna heimildar- mynd um Tivoni, eftir að hann gaf sig fram við lögreglu og kvaðst vera minnislaus, þar sem þeir töldu að áhugavert gæti verið að fylgjast með leit hans að fjölskyldu sinni. Stöðin greiddi fargjald Tivonis til Israels, en þangað hafði fyrr- verandi eiginkona hans flúið með börnin. Þá sá stöðin um að greiða kostnað hans, þar til vinnu við þáttagerðina lauk tveimur vikum fyrir morðin. Talsmenn sjónvarpsstöðvar- innar segjast ekki hafa haft hugmynd um að Tivoni hefði beitt fjölskyldu sína ofbeldi. Þá hafi þeir staðið í þeirri trú að fargjaldið yrði endurgreitt af breskum félagsmálayfirvöld- um. r Eakreyttir caukdhlufum! Nú er tími til að gleðjastþvíítilefni af 50 ára afmælisári Honda bjóðum við Honda Civic 3ja og 4ja dyra á sérstöku afmælistilboði. Komdu og skoðaðu ípakkana. Hondca Clvlcz =3 dyrc3 frá f .377.000 fcr. Vindskeið ^ { Álfelgur ^ -[Svunta að framan ^ { Geislaspilari og hátalarar ^ ^Svunta að aftan )-o - betri bíll Vatnagörðum 24 ■ Sími 520 1100 ■ www.honda.is V Akranes: Bílver sf., sími 431 1985. Akureyri: Höldur hf., sími 461 3000. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf., sími 471 2011. Keflavík: BG Bílakringlan ehf., sími 421 1200. Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn, sími 481 1535. J
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.