Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.07.1999, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Fullorðinsfræðsla Menntasmiðja kvenna á Akureyri fékk styrk til að vinna með öðrum á Norðurlöndunum, í Eystrasaltslöndunum og Rússlandi að verkefnum í fullorðinsfræðslu fyrir konur. Hafliði Helgason hitti konur sem skipulögðu námskeiðið Freyja í Nordens folkliga akademi í Gautaborg og ræddi við nemendur. Styrkur, nytsemd og sköpun Markmiðið er alltaf að auka lífsleikni nemenda Sjálfstraustið efiist gagnvart göllum samfélagsins Morgunblaðið/Hafliði Helgason NÁMSKEIÐIÐ er fyrir kennara og þjálfara í óformlegri menntun fyr- ir konur,“ segir Valgerður t.v. Ragnhildur Vigfúsdóttir t.h. UNDANFARIN fimm ár hefur verið rekinn daglýð- háskóli íýrir konur á Akureyri að norrænni fýr- irmynd. Hefð og aðstæður fýrir slíka starfsemi eru þó um margt ólíkar því sem gerist á Norðurlöndum. Menntasmiðja kvenna á Akureyri, en svo heitir skólinn, hefur úr litlu að spila en hefur þó tekist að halda úti öflugri starfsemi. Sú staðreynd vakti s athygli Norrænu ráðherranefndar- innar sem veitti Menntasmiðjunni styrk til að vinna með stofnunum á Norðurlöndum, í Eystrasaltslöndun- um og í Rússlandi að verkefnum í fullorðinsfræðslu fyrir konur. Val- gerður H. Bjarnadóttir, verkefnis- freyja Menntasmiðjunnar, og Ragn- hildur Vigfúsdóttir, íslenskur lektor við Nordens folkliga akademi í Gautaborg, skipulögðu námskeið sem ber heitið Freyja og var haldið í húsakynnum Nordens folkliga aka- demi í Gautaborg í júní síðastliðnum. „Hugmyndin varð til hér á NFA í fyrra haust,“ segir Ragnhildur. „Hér var í gangi námskeið fyrir kennara í fullorðinsfræðslu frá Eystrasalts- löndunum. Þegar við vorum að kynna okkur tók ég eftir því að þrjár konur af þessum þrjátíu þátttakend- um, sem voru af báðum kynjum, voru að vinna með konum í heima- löndum sínum. Ég bað þær því um að hitta mig og sagði þeim frá Menntasmiðju kvenna á Akureyri og því sem verið væri að gera þar. Eng- in þeirra hafði verið að fást við heild- stæða hugmyndafræði í menntun kvenna, heldur verið með ýmiss kon- ar námskeið. Þær sýndu því strax mikinn áhuga sem verið var að gera á Akureyri. Ég setti mig síðan í sam- band við Valgerði og Lilian Hultén hjá Kvennalýðháskólanum í Gauta- borg og kannaði áhuga þeirra á þvi að þessar þrjár stofnanir sæktu um styrk ásamt þremur stofnunum í Eystrasaltslöndunum og Rússlandi til að þjálfa kennara í fullorðins- fræðslu. Það varð úr og Mennta- smiðjan, sem er í forsvari fyrir verk- efninu, fékk einnar og hálfrar millj- ónar króna styrk frá Norrænu ráð- herranefndinni til verkefnisins. Sú upphæð var einn þriðji af því sem við höfðum gert ráð fyrir og urðum við því að stytta námskeiðið og sníða það að því sem við höfðum milli hand- anna.“ „Námskeiðið er fyrir kennara og þjálfara í óformlegri menntun fyrir konur og byggist á hugmyndafræði kvennalýðháskólanna á Norðurlönd- um,“ segir Valgerður. „I þessu tilviki göngum við út frá þeim hugmyndum sem notaðar hafa verið til grundvall- ar starfsemi Menntasmiðjunnar." ,Á^tæða þess að við horfum á starfsemi Menntasmiðjunnar," bætir Ragnhildur við, „og möguleika þess að beita aðferðum hennar í Rúss- landi og í Eystrasaltslöndunum er sú að í Skandinavíu er rík hefð fyrir slíkri menntun, mikill skilningur á nams henni og þó riokkru fjármagni varið til hennar. A Akureyri hefur hug- myndafræðin verið aðlöguð íslensk- um veruleika og þeim fjármunum sem fást þar til slíkra verkefna. Þessi lönd geta engan veginn varið sambærilegum upphæðum til þess- arar menntunar við til dæmis Svía, en hafa alla möguleika til að nýta sér reynslu Menntasmiðju kvenna á Akureyri." Valgerður segir að takmarkað fé til starfseminnar hafi ýtt undir að nýta það sem hver kennari hafi upp á að bjóða. „Dýrar bækur og kennsluefni verða því að víkja fýrir hæfileikum fræðarans til að miðla til nemend- anna. Við spyrjum gjaman kennar- ana í Menntasmiðjunni; hvað finnst þér skemmtilegast að gera og hvern- ig er skemmtilegast að gera það? Markmiðið er alltaf að auka lífsleikni nemendanna. I Skandinavíu er rík hefð fýrir þessum kennsluaðferðum, mikilli þátttöku nemenda, lýðræði og ekki tekin próf. Þessi hefð er varla til á Islandi og við höfum því þurft að að- laga okkur þeim hugsunarhætti. Þess vegna erum við kannski betur til þess fallnar að miðla hugmyndum til þeirra sem búa við svipað ástand hvað þetta varðar. Þær konur sem sækja í þetta nám hafa margar hvekkst í skólakerfinu eða langt er síðan þær voru í námi, þannig að þær eru hikandi við að takast á við form- legt nám. Styrkur þessarar menntun- ar er sá að hún nær til hóps sem ann- ars myndi ekki sækja sér menntun. Námið er þríþætt með megináherslu á skapandi nám, sjálfstyrkjandi nám og hagnýtt nám og samþættingu þessara þátta. Sá hópur sem hefur verið mest áberandi í Menntasmiðjunni eru kon- ur um miðjan aldur. Konur sem hafa þörf fyrir að lífga upp á þekkingu sína og standa á einhvers konar tímamót- um og þurfa að finna nýja stefnu í líf- inu. Annars er aldursdreifingin frá sautján ára og upp í sjötugt. í Eystrasaltslöndunum er mikið atr vinnuleysi meðal kvenna, en þó er það hvergi jafn mikið og í Rússlandi, þar sem á sumum svæðum eru 90% kvenna atvinnulaus og meðaltalið er 60%. Þá kemur þetta nám sér vel, þar sem það er góður undirbúningur fyrir lífið, hvort heldur er á vinnumarkaði eða utan hans. Það er náttúrlega bor- in von í landi, þar sem atvinnuleysi meðal kvenna er milli 60 og 90 pró- sent, að allar þær konur sem fara í gegnum svona nám fái vinnu í fram- haldinu. Hitt er svo annað mál að reynsla okkar er sú að konur sem hafa farið í gegnum námið hafa flest- ar fengið vinnu að því loknu.“ Ragnhildur bætir því við að þörfin fýrir slíkt nám í Eystrasaltslöndun- um og í Rússlandi sé gríðarleg. „Kennsluaðferðirnar í þessum lönd- um hafa verið ákaflega hefðbundnar og áhuginn mikill fýrir því að hrista upp í þeim á þessari norrænu full- orðinsfræðslu. Það er mikill áhugi hjá þeim konum, sem hér voru á námskeiðinu, bæði þeim íslensku og hinum að móta svona heildstætt nám eins og er í Menntasmiðjunni, í stað þess að vera með einstök námskeið. Maður fann hins vegar fyrir ákveðnu kynslóðabili á námskeiðinu. Þær eldri voru fastari í því að fá handbók upp í hendurnar, en þær yngri voru opnari fýrir þessari hugmynda- fræði.“ Þær fengu framhaldsstyrk frá Norrænu ráðherranefndinni til að halda þessu samstarfi áfram og segja upphaflegu hugmyndina hafa verið þá að halda fimm námskeið í mismunandi löndum, en styrkurinn dugi ekki til slíks. Að loknu nám- skeiðinu í Gautaborg er meiningin að halda áfram starfi á Netinu, þar sem áhersla verður lögð á þrjú megin- efni: sjálfstyrkingu, atvinnuleit og stofnun og rekstur eigin fýrirtækis. „Meiningin var líka að fá grænlensk- ar, færeyskar og samískar konur á þetta námskeið. Það tókst ekki að þessu sinni, en við erum ákveðnar í að þær komi næst. Astæðan hversu miklu betur gekk að fá þátttakendur frá Eystrasaltslöndunum, Rússlandi og Islandi, er sú að Nfa hefur bein tengsl við lykilmanneskjur í þessum löndum, en á þessum stutta tíma náðum við ekki að hitta á rétt fólk í hinum löndunum," segir Ragnhildur. „Það sýnir best mikilvægi per- sónulegra tengsla og þess að fólk hittist," bætir Valgerður við. „Það er miklu auðveldara að ná að kveikja í fólki sem maður hittir, en að senda bréf úr tölvunni sem verður bara eitt af mörgum bréfum sem það fær þann daginn." „Atvinnuleysið hefur andlit konu“ Morgunblaðið/Hafliði KONAN (í Rússlandi) er heimavinnandi og ekki til þess ætlast að hún hafi skoðanir eða meiningar um nokkurn skapaðan hlut,“ segir Irina Lotova frá Pétursborg. Frá vinstri: Solvita, Kristiina, Liuda og Irina. ÞEGAR borið er að garði í húsa- kynnum Nordens folkliga akademi í Gautaborg eru smáir hópar í hrókasamræðum á víð og dreif fyr- ir framan húsið. Sólin skín og mávamir garga yfír haffletinum. Konumar tala saman á ensku með hljómfalli ólikra tungumála og konumar frá Rússlandi og Eystra- saltslöndunum bregða fyrir sig rússneskunni þegar eitthvað þarfn- ast nánari útskýringar. Þeim er ? mikið niðri fyrir og eitt og annað sem þarf að ræða áður en sólin sest á þessum Iöngu sumardögum. „Það er mikilvægt að komast í samband við konur í öðmm löndum sem em að fást við svipuð verkefni og mikilvægt að skiptast á reynslu og upplýsingum um það sem við er- um að fást við og skipuleggja sam- starf í framtíðinni," segir Solvita Freiberga, einn þátttakendanna frá Lettlandi. „Það er mikilvægt að vinna að fullorðinsfræðslu í Lett- landi, sérstaklega fyrir konur. -Konur þurfa að átta sig á því að T>ær þurfa ekki endilega að vera vinnuafl, heldur geta þær tekið fmmkvæði og stofnað eigin fyrir- tæki. Eitt höfuðvandamál lett- neskra kvenna er að samræma ábyrgð heimilis og þátttöku á vinnumarkaði. Þær konur sem hafa verið utan vinnumarkaðar í ein- jþvem tíma eiga erfítt með að kom- ast inn á hann aftur. Margt hefur breyst í miilitíðinni. Tölvuvæðing og breyting á regluumhverfi gera það að verkum að vinnuumhverfið er gjörbreytt frá því að þær hurfu þaðan." í sama streng tekur Kristiina Luht frá Eistlandi. „Sfmenntun og fullorðinsfræðsla er geysilega raik- ilvæg til að opna fólki nýja mögu- leika. Menntun úreldist líka hratt og margir Eistar sem luku háskóla- prófi eyddu miklu púðri f að lesa sögu Kommúnistafiokksins. Þekk- ing sem kemur að litlu gagni nú, án þess að ég vi(ji gera lítið úr mik- ilvægi þess að fólk þekki til sögu sinnar. Nú er til dæmis afar mikil- vægt að fólk kunni á tölvur og þótt í fUótu bragði virðist einfalt að verða sér úti um þá þekkingu er okkar raunvemleiki sá að tölvu- námskeið em dýr og á fárra færi að sækja þau. Það er því fjöldi fólks sem ekki fær aðgang að upp- lýsingasamfélaginu.“ Liuda Mecajeva hefur leiðbeint háskólamenntuðum konum f að sækja fram á vinnumarkaði og seg- ir það vandamál kvenna að þær kunni ekki að bjóða sig fram sem hámenntaður, hæfur vinnukraftur. Hún hefur mikla reynslu af sam- vinnu við Norðurlöndin. „Við emm Norðurlöndunum afar þakklát fyr- ir það samstarf og hjálp sem við höfum þegið af þeim. Við stöndum þessum þjóðum nær en mörgum öðrum og það er rökrétt að þróa samfélag okkar f átt að þeim sam- félögum. Svona samstarf er liður í slíkri uppbyggingu." Irina Lotova, sem er frá Péturs- borg, segir atvinnuleysi kvenna í Rússlandi gífurlegt vandamál. „At- vinnuleysið hefur andlit konu. Staða kvenna í Rússlandi er afar slæm. Konur fá ekki aðgang að störfum þar sem ákvarðanir eru teknar og eitthvað er upp úr að hafa. Heimilisofbeldi er landlægt og réttindi kvenna ipjög takmörk- uð. Þar fyrir utan eru konur illa upplýstar um þau réttindi sem þær þó hafa. Sú mynd sem hægt er að draga upp af veiyulegu heimili í Rússlandi er á þann veg að karlinn er fyrirvinnan og tekur allar ákvarðanir á heimilinu. Konan er heimavinnandi og ekki til þess ætl- ast að hún hafi skoðanir eða mein- ingar um nokkurn skapaðan hlut. Þess vegna er svona námskeið gríðarlega mikilvægt fyrir okkur. Við sjáum möguleika í því sem gert hefur verið í fullorðinsfræðslu á fs- landi, að byggja konur upp. Kenna þeim að taka frumkvæði, stofna eigin fyrirtæki og sækja út á vinnumarkaðinn. Það sem ég vil gjarnan taka heim með mér af þessu námskeiði er að kenna konum að ijúfa þenn- an vítahring. Byggja upp sjálfs- traust þeirra og kenna þeim að láta ekki samfélagið eða aðra misbjóða sér. Hjálpa þeim að stíga yfirþrösk- uld fátæktar og sækja fram. A fs- landi er rík hefð fyrir kvenréttinda- baráttu og starfi með konum, og við getum nýtt okkur mjög margt úr því starfi. Það er hins vegar mjög erfitt að gera breytingar í Rúss- _ landi vegna stærðar landsins. Á fs- landi er hægt að breyta hlutum á einni nóttu sem tæki áratugi í Rúss- landi. Við verðum að byija upp- byggingarstarfið í stórborgunum og þaðan liggur leiðin út um land- ið.“ Islensku konurnar á námskeið- inu telja sig líka margt geta lært af konum frá Eystrasaltslöndunum og Rússlandi. „Það að kynnast sjónar- miðum og aðstæðum annarra landa er alltaf mikilvægt og þegar ég kynnist konunum á námskeiðinu sé ég betur kostina og gallana við það sem ég er að gera,“ segir Bjarn- heiður Jóhannsdóttir, jafnréttisfull- trúi á Norðurlandi vestra. „Það sem er svo merkilegt er að enda þótt ástandið hjá þeim sé ólíkt, ástandinu hjá okkur erum við í grunninn að glíma við það sama,“ segir Inga Sigurðardóttir, sérkenn- ari á Akranesi. „Vandamál lands- byggðarinnar, þar sem unga mennt- aða fólkið flytur burt og aldur- spýramídinn skekkist, eru sambæri- leg við byggðaþróun á íslandi. Staða langtímaatvinnulausra kvenna er sú sama, hvar sem er í heiminum. Þótt atvinnulaus kona á Akranesi hafi það jafnvel betra en kona með atvinnu í Rússlandi, þá er staða hennar í sínu samfélagi jafn slæm og konu í sömu stöðu annars staðar. Við verðum að gera kröfur út frá samfélaginu sem við búum í. Þær fá ekki aðgöngumiðann að þvi samfélagi sem þær búa í og þann aðgöngumiða þurfum við að hjálpa þeim að verða sér úti um“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.