Morgunblaðið - 06.07.1999, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 06.07.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 MINNINGAR HJÖRDÍS KAREN GUÐMUNDSDÓTTIR + Hjördís Karen Guðmundsdóttir fæddist á Borg í Ög- urhreppi, N-Isa- fjarðarsýslu, 11. desember 1943. Hún lést á Landspít- alanum 29. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Snjólaug Magnea Long Bjarnadóttir, húsfreyja, f. 31.7. 1913, og Guðmund- ur Magnús Magnús- son, skipstjóri og bóndi á Borg í Og- urhreppi, f. 27.6. 1897, d. 23.11. 1969. Systkini Hjördísar eru: 1) Magnús Kristinn, f. 24.8. 1934. 2) Bjarni Ragnar, f. 14.9. 1936, d. 7.9. 1944. 3) Gyða Ólöf, f. 7.11. 1940. 4) Bjarni Ragnar, f. 16.7. 1945. 5) Ragnheiður, f. 22.11. 1946. 6) Sveinn Halldór, f. 5.9. 1948. 7) Hildur Rebekka, f. 23.10. 1952. Hálfsystir, sam- feðra Hjördísi er Munda Krist- björg, f. 27.9. 1926. Hjördís Karen giftist 24. júlí 1965 Hauki Kjartanssyni bif- vélavirkja, f. 20.8. 1941, d. 2.12. 1986. Foreldrar Hauks voru hjónin Kjartan Filippusson bif- vélavirki, f. 20.9. 1907, d. 8.8. 1973, og Ásta Ágústsdóttir hús- freyja, f. 31.10. 1911, d. 1.12. 1976. Hjördis Karen og Haukur eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Matthildur Asta garðyrkjufræð- ingur, f. 24.3. 1965, maki Ingólfur Jó- hannsson garð- yrkjufræðingur, f. Börn: Karen Arna, Jó- hann Axel og Katrín Þöll. 2) Gunnar Örn llug- maður, f. 27.7.1966, maki Lilja Dóra Harðardóttir kenn- ari, f. 30.9. 1969. Börn: Haukur Örn og Birna Borg. 3) Ægir Valur húsa- smíðanemi, f. 9.12. 1975. Hjördís Karen ólst upp á Borg í Skötufirði fram að ung- lingsárum og gekk í Héraðs- skólann í Reykjanesi. Á ung- lingsárum var hún í vist í Vatns- fírði við Isafjarðardjúp og að Haugum í Borgarfírði. Hún fór í húsmæðraskóla að Varma- landi í Borgarfírði. Eftir hús- mæðraskóla fluttist hún til Reykjavíkur og bjuggu þau hjón lengst af í Breiðholtinu. Arið 1979 fluttust þau í Mos- fellsbæ. Þar vann Hjördís Karen hjá Pósti og síma og síð- ar Álafossi. Árið 1991 hóf hún nám í nuddfræði og að því loknu vann hún við sitt fag ásamt vinnu á dvalarheimili aldraðra í Mosfellsbæ. Hjördís Karen verður jarð- sungin frá Lágafellskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13:30. Hún Hjördís amma er dáin langt um aldur fram. Eg vil þakka henni fyrir allar þær stundir sem við átt- um saman. Amma var alltaf svo góð við mig og alveg einstaklega þolin- móð. Eg veit að ég mun aldrei gleyma fríinu sem við áttum saman í Skötufírðinum síðastliðið sumar. Á hverjum degi löbbuðum við upp í á og veiddum silung. Við amma beitt- um bæði maðki og sátum tímunum saman á bakkanum og spjölluðum saman. Amma sagði mér hvað hinir og þessir staðir í ánni hétu og fjöllin og fossamir í kring. Alltaf þegar við komum í skúrinn hennar eftir veiði- ferðimar bökuðum við saman ástar- punga og færðum mömmu og pabba. Það verður skrítið að fara aftur í Skötufjörðinn og vita til þess að amma á ekki eftir að koma þang- að aftur í skúrinn sinn. Elsku amma, þakka þér fyrir all- ar samvemstundimar. Þú hefur gefið mér svo margt, í hjarta mínu mun ég alltaf geyma minninguna um þig. Haukur Orn. „Þótt liggi héðan vegir þínir langt en ekki skammt og lönd þú kannir bak við Atlantshaf. Þú verður alla daga þína Vestfirðingur samt ef vaxin ertu hrjóstrum þessum af.“ Þetta vísubrot eftir Guðmund Inga Kristjánsson kemur upp í hug- ann þegar Hjördísar Karenai- er minnst. Svo vestfirsk var hún, sterk og stæðileg eins og vestfirsku fjöll- in. Það gustaði af henni, alltaf frísk og full af orku og hreysti, kraftmikil og lífleg. Engin lognmolla, heldur hressandi andblær, sem hafði lag á að hrífa aðra með sér. Hún var upp- rana sínum trú, átti athvarf í sinni vestfirsku byggð, sem hún sótti í með sínum nánustu. Þó hafði hún eins og segir í ljóðinu kannað önnur lönd og gert sér ferðir yfir Atlants- hafið til að ganga fjöll í öðram lönd- um. Hún réðst til starfa hér í íbúðum aldraðra í Mosfellsbæ árið 1994 og vann hér æ síðan, en var þó búin að vera frá vegna veikinda í nokkra mánuði. Vol og víl vora henni víðsfjarri, svo engum datt í hug að hverju dró. Ævinlega var hún hress í bragði þegar hringt var í hana og enginn vafi á að hún kæmi aftur til vinnu. En það sannaðist hér eins og oft áð- ur að vegir guðs era órannsakanleg- ir fyrst Hjördís var burtkölluð svo fljótt. Hún var í raun og vera í blóma lífsins og lifði svo heilbrigðu lífi, algjör reglumanneskja, mikil útivistarkona, gekk á fjöll, stundaði sund og hafði yndi af að dansa. Við sem höfum starfað með henni hér ájþessum áram söknum hennar sárt. Ibúum hér í Hlaðhömram 2 er einnig harmur í huga. Oll biðjum við henni fararheilla og guðsblessunar, nú þegar hún hefur kvatt þetta jarðlíf. Bömum hennar og öðrum ástvin- um sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Núverandi og fyrrverandi samstarfskonur Ibúðum aldraðra Mosfellsbæ. Látin er kær samstarfskona og langar mig að minnast hennar með fáeinum orðum. Eg kynntist Hjördísi fyrir fimm áram, er hún hóf störf hjá mér við heimilisþjónustu í Mosfellsbæ. Sá ég fljótlega að þama fór dugmikil, já- kvæð og ekki síður einlæg kona, en það var hún bæði gagnvart aðstoðar- þegum sínum og samstarfsfólki. Aldrei brást að hún mætti hress í vinnu og fylgdi henni jafnan ferskur andblær, er lífgaði upp allt í kringum hana. Nú ert þú farin kæra vina, og ég veit, að vel verður tekið á móti þér. Að eilífðar ljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri, en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Ben.) Ég bið algóðan Guð að gefa böm- um hennar og öðram aðstandendum styrk á þessari sorgarstundu. Guð blessi verk þín og minningu alla. Ásdís Hauksdóttir. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLADIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjóm blaðsins í Kr- inglunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið grein- ina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Um hvem látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar era beðnir að hafa skímamöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar era birtar aftnælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Flug og bfll frá kr. 25.700 m/v hjón með tvö börn 2-11 ára í viku. Innifalið: Flug, bílalagubíll í B flokki, ótakmarkaðuf akstur tryggingar og ska 26.920, Flogið 3-4 í viku frá 1 0/6 - 1 2/9 Flugsæti frá kr. 26.920 Mikið úrval sumarhúsa í , Þýskalandi, Ítalíu og víðar Frakkland París Helgartilboð 27.800,- Flogið frá 2. júnf til_22. sept. Helgartilboð til Parlsar I ágúst Fararstjóri á staðnum Flugsæti frá kr. 27.800 Munchen fJLÍHIr Flogið 2svar í viku frá 25/7 - 1 2/9 Flugsæti frá kr. 28.920 LTU er annað stærsta flugfélag Þýskalands og er þekkt fyrir gæði og góða þjónustu |T(J Upplýsingar og bókanir hjá I LTU á íslandi í síma 587 1919 Þyskgæöi og þjonusta Gulf of Gaeta Undur Ítalíu •j m«oo,- Hópférö um Ítalíu 6.-20. ágúst Fararstjóri: Guðbjörn Guðbjörnsson óperusöngvari Verð kr. 109.900 á mann I 2ja manna herbergi. Innifalið I verði: Flug, flugvallarskattur, fslenskur fararstjóri, ferðir til og frá hóteli, þriggja stjörnu hótel með morgunverði, skoðunarferðir, akstur á ftall illu o.fl. o.fl... íbúðir og hótel á ströndinni I Baia Domizia. Verð frá kr. 69.900 á mann I tvær vikur m/v hjón með 2 börn 2-16 ára. Innif.: Flug, skattur, Ibúð með 2 svefnh. akstur til og frá flugvelli. Flugsæti Gott úrval hótela og sumarhúsa á ströndinni og víðsvegar á italfu. > 0) u. Ferðamiðstöð Austurlands • Ferðaskrifstofa Stangarhyl 3a • 110 Reykjavík Simar: 587 1919 og 567 8545 • Fax: 587 0036 Slate Slide Kr. 6.990 Lava Sport Sandal Kr. 6.990 \-r' Opsidian Sandal Kr. 7.990 Gravel Crusher Kr. 8.900 Snake River Trainer Kr. 7.990 Woodpath boot Kr. 12.900 HREYSTI ÆFINGAR - ÚHVIST - BÓMULL --Skeifúnni 19 - S. 568 1717- Opið mánud.-föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-16.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.