Morgunblaðið - 06.07.1999, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 45
+ Helena Bojkow
Clausen fæddist
í Vindinge Sogn í
Svendborg-amti í
Danmörku 27. apríl
1922. Hún andaðist
á Hjúkrunarheimil-
inu Sunnuhlíð 22.
júní si'ðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Dimitri
Bojkow verkamað-
ur, f. 25. nóvember
1893, d. 1970, og Le-
ontina Torba hús-
móðir, f. 17. febrúar
1898, d. 1948. Hel-
ena ólst upp í klausturbarna-
heimili í Hederslev á Jótlandi til
16 ára aldurs. Hún lauk hjúkr-
unarnámi við By- og Amt-Sy-
gehuset, Fredericia í apríl 1948
og framhaldsnámi í hjúkrun á
fæðingar- og kvensjúkdóma-
deild við Sct. Josephshospital í
Kaupmannahöfn í ágúst sama
ár og geðhjúkrun í febrúar
1949. Hún var hjúkrunarfræð-
ingur við Blegdamshospital í
Kaupmannahöfn á árunum 1949
Sagt er að uppvaxtarár hvers
manns móti viðhorf hans og skoð-
anir og jafnvel persónuleika. A
uppvaxtarárum mínum átti ég því
láni að fagna að næstu nágrannar
okkar í Vesturbænum í Kópavogi
voru móðurbróðir minn Atreboe,
Helena, kona hans, og synir þeirra
tveir, Andri og Michael. Samgang-
ur var mikill og alltaf auðvelt að
fara yfir til Helenu. Ég og Mikki
lékum okkur mikið saman á þess-
um bemskuárum okkar, enda á
svipuðum aldri. Helena var einstök
kona, alltaf tilbúin að hlusta á okk-
ur krakkana og tala við okkur eins
og jafningja. Ræða málin, lífið og
tilveruna, og miðla okkur af
reynslu sinni. Hún var hrein og
bein, kom til dyranna eins og hún
var klædd og hafði þann sjaldgæfa
eiginleika að sjá ávallt það já-
kvæða í fari hvers manns.
Örlögin höguðu því þannig að
við frændi minn, gamli leikfélagi
og sonur Helenu, Michael, höfum á
síðustu árum búið ásamt fjölskyld-
um okkar norður á Akureyri. Þau
Arreboe og Helena hafa tíðum
komið hingað norður að heim-
sækja Mikka og Ellu og börn
þeirra, þau Snorra, Birnu og Ivar.
Og eins og á uppvaxtarárunum nýt
ég þeirrar aðstöðu að vera skammt
undan og geta notið þess að hitta
þau Helenu og Arreboe. Þessar
heimsóknir þeirra hafa verið ein-
staklega ánægjulegar og gjöfular
fyrir mig. Anægjulegast hefur mér
þótt hve gleði og ánægja Helenu
hefur verið mikil og ósvikin þrátt
fyrir þau veikindi og mótlæti sem
hún hefur þurft að búa við.
Á undanförnum árum hefur
Helena átt við mikil veikindi og
heilsubrest að stríða og andlát
hennar ætti því ekki að koma
manni á óvart. Hins vegar bar það
brátt að og slík frétt er ávallt áfall.
Við slíkar aðstæður hrannast
minningarnar upp í huga manns. I
hennar anda er bjart yfir þeim
minningum. Fjöruferðirnar út á
Álftanes, allar sögurnar sem hún
las fyiir okkur krakkana og ótal-
margt fleira. Hún var alltaf stolt af
uppruna sínum og hafði mikið dá-
læti á ævintýrum landa síns H.C.
Andersens. Þessi ævintýri las hún
og skýrði og túlkaði boðskap
þein-a fyrir okkur krökkunum. Á
þessari stundu minnist ég sérstak-
lega ævintýrisins um Litlu stúlk-
una með eldspýturnar. Ég man
hvað við grétum yfir örlögum
stúlkunnar. Örlögin færðu henni
hins vegar betri tilveru. Helena
hafði dálæti á blómum og er mér
sérstaklega minnisstætt mikið dá-
læti hennar á hádegisblómum, sem
hafa þann sérstæða eiginleika að
til 1951, starfaði á
Landspítalanum
sumarið 1951, Sól-
vangi í Hafnarfirði
1960 til 1967, og
Borgarspítalanum
1968 þar til hún lét
af störfum vegna
heilsubrests.
Hinn 3. nóvember
1953 giftist Helena
Hans Arreboe
Clausen, málara-
meistara, f. 10.
ágúst 1918. Börn
þeirra eru: Andri
Órn Clausen, leikari
og sálfræðingur, f. 25. febrúar
1954, maki Elva Ósk Ólafsdótt-
ir, leikkona, börn þeirra Agnes
og Benedikt. Michael Valur
Clausen, barnalæknir, f. 25. maí
1958, maki Elínborg Ragnars-
dóttir, kennari, börn þeirra
Snorri Örn, Birna Helena og Iv-
ar Örn.
Útför Helenu verður gerð frá
Kristskirkju í Landakoti í dag
og hefst athöfnin klukkan
13.30.
opna sig á móti birtu sólar. Það er
trú mín að nú sé hún umvafin æðri
sól og birtu og hádegisblómum í
fullum skrúða.
Um leið og ég kveð sómakonu
og kollega, Helenu Bojkow, með
söknuði, virðingu og þökk og trú á
að leiðir liggi áfram saman, bið ég
góðan Guð að styrkja þau Arrboe,
Mikka, Ellu, Andra, Elfu og börn
þeirra. Missir þeirra allra er mikill
og ekki síst bamabamanna, sem
ég veit að hún hefði haft svo miklu
meira að gefa bara ef aldur og
heilsa hefðu leyft. Með þökk fyrir
allt og allt.
Anna Maria Þórðardóttir.
Góð vinkona mín Helena
Bojkow Clausen er látin. Á
bjartasta tíma ársins, tímanum
sem hún elskaði, kvaddi hún
þennan heim.
Við deildum húsi, en einnig gleði
og sorgum í meira en tuttugu ár.
Þegar við fluttumst hingað á Kárs-
nesbrautina vom bömin mín
þriggja, átta og tólf ára gömul en
synir þeirra Hans Arreboes nær
uppkomnir. Eins og að líkum læt-
ur býst maður varla við hnökra-
lausu sambýli við slíkar kringum-
stæður. En þar sem hreinskilnin
og sanngimin ræður ríkjum er
gott að búa. Helena reyndist ein-
staklega barngóð sem og maður
hennar. Hún var skapstór, en jafn-
framt hjartahlý, glaðsinna og
skemmtileg.
Þótt bakgmnnur okkar væri
ólíkur og aldursmunur tveir ára-
tugir náðum við ákaflega vel sam-
an. Marga vornóttina röltum við
um í blíðunni og nutum náttúrann-
ar. Bæði þá og yfir kaffibolla í eld-
húsinu var ýmislegt rætt, en ég
minnist þess ekki að ávirðingar ná-
ungans hafi verið þar á dagskrá
nokkra sinni.
Framan af vera okkar hér var
Helena enn starfandi hjúkranar-
fræðingur og fór það ekld milli
mála hversu vænt henni þótti um
skjólstæðinga sína, en trúnaðar
gagnvart þeim gætti hún ávallt.
Lífið var henni sjálfri ekki alltaf
létt, en einmitt í veikindastríði
hennar kom styrkur hennar
greinilegast í ljós, hjartans fágun
og^gott uppeldi.
I huga mér er þakklæti fyrir að
hafa fengið að verða samferða og
læra af Helenu. Ég mun sakna
hennar, en ég veit að synir mínir
taka fagnandi á móti henni hinum
megin. Við Freysteinn og Ragn-
hildur sendum okkar góða granna,
Arreboe, sonum hans og þeirra
fjölskyldum innilegar samúðar-
kveðjur.
Ingibjörg Sveinsdóttir.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR,
Bjarkargötu 4,
Reykjavík,
sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavikur föstudaginn
25. júní verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag, þriðjudaginn 6. júlí, kl. 13.30.
Jódís Dagný Vilhjálmsdóttir, Jón Pétursson,
Sigurður Þórðarson,
Guðrún Hrund Sigurðardóttir,
Vilhjálmur Jónsson,
Arnar Þór Sigurðsson,
Benedikt Jónsson,
Andri Vilhjálmur Sigurðsson,
Pétur Gauti Jónsson
og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÁSGEIR HJALTASON
gullsmiður og listmálari,
Hverfisgötu 30,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Kristskirkju í Landakoti á
morgun, miðvikudaginn 7. júlí, kl. 13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð en þeir, sem vilja
minnast hans, eru beðnir um að láta líknarstofnanir njóta þess.
Jóna Kristín Ámundadóttir,
Hjalti Gunnarsson,
Ámundi Gunnarsson, Anna K. Sæmundsdóttir,
Sigurjón Gunnarsson, Helga Vilhjálmsdóttir,
Kristbjörg Gunnarsdóttir, Guttormur Páll Sölvason,
Ásgeir Gunnarsson, Sólveig Gunnarsdóttir,
Hafsteinn Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
HELENA BOJKOW
CLA USEN
+
Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn,
ÁGÚSTA SIF HÓLMSTEINSDÓTTIR,
sem lést laugardaginn 3. júlí, verður
jarðsungin frá Seljakirkju fimmtudaginn 8. júlí
kl. 13.30.
Hólmsteinn Eiríksson, Elín Oddrún Jónsdóttir,
Eiríkur Jón Hólmsteinsson,
Sæbjörg Erla Friðgeirsdóttir, Jóhanna Pálsdóttir,
Eiríkur Hólmsteinsson, Jón Sigurðsson,
Hólmsteinn Jóhannsson, Helgi Páll Jónsson,
Smári Tómasson
og fjölskyldur þeirra.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HELGA FINNBOGADÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
3. júlí sl.
Svanur Þór Vilhjálmsson, Rosina Vilhjálmsdóttir,
Hlöðver Örn Vilhjálmsson, Hrafnhildur Ásgeirsdóttir,
Erla Vilhjálmsdóttir, Skúli Jóhannesson,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Anna J. Johnsen,
Rósa Stefánsdóttir,
Jóhanna Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN STEINASON,
hæstaréttarlögmaður,
Grenimel 46,
Reykjavík,
andaðist í hjúkrunarheimilinu Skógarbæ aðfaranótt 5. júlí.
Jarðarförin nánar augiýst síðar.
María Finsen,
Karl F. Jóhannsson, Bergtjót Aradóttir,
Steini B. Jóhannsson,
GunnarJóhannsson,
Anna G. Jóhannsdóttir,
Steinunn Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og bróðir,
EYJÓLFUR SVERRISSON,
Hraunbæ 168,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum laugardaginn 3. júlí.
Margrét Jóhannsdóttir,
Ellen Klara Eyjólfsdóttir, Jónas Gunnarsson,
Jóhanna Lára Eyjólfsdóttir, Garðar Jónsson,
Sverrir Eyjólfsson, Ólöf María Jóhannsdóttir,
Guðrún S. Sverrisdóttir
og fjölskyldur.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSDÍS GUÐRÚN KJARTANSDÓTTIR,
Hrísmóum 1,
Garðabæ,
áður til heimilis á Heiðarbrún 12,
Hveragerði,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu-
daginn 8. júlí kl. 15. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.
5
Valgarð Runólfsson,
Vera Ósk Valgarðsdóttir, Guðjón Sigurðsson,
Kjartan V. Valgarðsson, Nína Helgadóttir,
Bolli R. Valgarðsson, Hrafnhildur Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.