Morgunblaðið - 06.07.1999, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 06.07.1999, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚLÍ 1999 45 + Helena Bojkow Clausen fæddist í Vindinge Sogn í Svendborg-amti í Danmörku 27. apríl 1922. Hún andaðist á Hjúkrunarheimil- inu Sunnuhlíð 22. júní si'ðastliðinn. Foreldrar hennar voru Dimitri Bojkow verkamað- ur, f. 25. nóvember 1893, d. 1970, og Le- ontina Torba hús- móðir, f. 17. febrúar 1898, d. 1948. Hel- ena ólst upp í klausturbarna- heimili í Hederslev á Jótlandi til 16 ára aldurs. Hún lauk hjúkr- unarnámi við By- og Amt-Sy- gehuset, Fredericia í apríl 1948 og framhaldsnámi í hjúkrun á fæðingar- og kvensjúkdóma- deild við Sct. Josephshospital í Kaupmannahöfn í ágúst sama ár og geðhjúkrun í febrúar 1949. Hún var hjúkrunarfræð- ingur við Blegdamshospital í Kaupmannahöfn á árunum 1949 Sagt er að uppvaxtarár hvers manns móti viðhorf hans og skoð- anir og jafnvel persónuleika. A uppvaxtarárum mínum átti ég því láni að fagna að næstu nágrannar okkar í Vesturbænum í Kópavogi voru móðurbróðir minn Atreboe, Helena, kona hans, og synir þeirra tveir, Andri og Michael. Samgang- ur var mikill og alltaf auðvelt að fara yfir til Helenu. Ég og Mikki lékum okkur mikið saman á þess- um bemskuárum okkar, enda á svipuðum aldri. Helena var einstök kona, alltaf tilbúin að hlusta á okk- ur krakkana og tala við okkur eins og jafningja. Ræða málin, lífið og tilveruna, og miðla okkur af reynslu sinni. Hún var hrein og bein, kom til dyranna eins og hún var klædd og hafði þann sjaldgæfa eiginleika að sjá ávallt það já- kvæða í fari hvers manns. Örlögin höguðu því þannig að við frændi minn, gamli leikfélagi og sonur Helenu, Michael, höfum á síðustu árum búið ásamt fjölskyld- um okkar norður á Akureyri. Þau Arreboe og Helena hafa tíðum komið hingað norður að heim- sækja Mikka og Ellu og börn þeirra, þau Snorra, Birnu og Ivar. Og eins og á uppvaxtarárunum nýt ég þeirrar aðstöðu að vera skammt undan og geta notið þess að hitta þau Helenu og Arreboe. Þessar heimsóknir þeirra hafa verið ein- staklega ánægjulegar og gjöfular fyrir mig. Anægjulegast hefur mér þótt hve gleði og ánægja Helenu hefur verið mikil og ósvikin þrátt fyrir þau veikindi og mótlæti sem hún hefur þurft að búa við. Á undanförnum árum hefur Helena átt við mikil veikindi og heilsubrest að stríða og andlát hennar ætti því ekki að koma manni á óvart. Hins vegar bar það brátt að og slík frétt er ávallt áfall. Við slíkar aðstæður hrannast minningarnar upp í huga manns. I hennar anda er bjart yfir þeim minningum. Fjöruferðirnar út á Álftanes, allar sögurnar sem hún las fyiir okkur krakkana og ótal- margt fleira. Hún var alltaf stolt af uppruna sínum og hafði mikið dá- læti á ævintýrum landa síns H.C. Andersens. Þessi ævintýri las hún og skýrði og túlkaði boðskap þein-a fyrir okkur krökkunum. Á þessari stundu minnist ég sérstak- lega ævintýrisins um Litlu stúlk- una með eldspýturnar. Ég man hvað við grétum yfir örlögum stúlkunnar. Örlögin færðu henni hins vegar betri tilveru. Helena hafði dálæti á blómum og er mér sérstaklega minnisstætt mikið dá- læti hennar á hádegisblómum, sem hafa þann sérstæða eiginleika að til 1951, starfaði á Landspítalanum sumarið 1951, Sól- vangi í Hafnarfirði 1960 til 1967, og Borgarspítalanum 1968 þar til hún lét af störfum vegna heilsubrests. Hinn 3. nóvember 1953 giftist Helena Hans Arreboe Clausen, málara- meistara, f. 10. ágúst 1918. Börn þeirra eru: Andri Órn Clausen, leikari og sálfræðingur, f. 25. febrúar 1954, maki Elva Ósk Ólafsdótt- ir, leikkona, börn þeirra Agnes og Benedikt. Michael Valur Clausen, barnalæknir, f. 25. maí 1958, maki Elínborg Ragnars- dóttir, kennari, börn þeirra Snorri Örn, Birna Helena og Iv- ar Örn. Útför Helenu verður gerð frá Kristskirkju í Landakoti í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. opna sig á móti birtu sólar. Það er trú mín að nú sé hún umvafin æðri sól og birtu og hádegisblómum í fullum skrúða. Um leið og ég kveð sómakonu og kollega, Helenu Bojkow, með söknuði, virðingu og þökk og trú á að leiðir liggi áfram saman, bið ég góðan Guð að styrkja þau Arrboe, Mikka, Ellu, Andra, Elfu og börn þeirra. Missir þeirra allra er mikill og ekki síst bamabamanna, sem ég veit að hún hefði haft svo miklu meira að gefa bara ef aldur og heilsa hefðu leyft. Með þökk fyrir allt og allt. Anna Maria Þórðardóttir. Góð vinkona mín Helena Bojkow Clausen er látin. Á bjartasta tíma ársins, tímanum sem hún elskaði, kvaddi hún þennan heim. Við deildum húsi, en einnig gleði og sorgum í meira en tuttugu ár. Þegar við fluttumst hingað á Kárs- nesbrautina vom bömin mín þriggja, átta og tólf ára gömul en synir þeirra Hans Arreboes nær uppkomnir. Eins og að líkum læt- ur býst maður varla við hnökra- lausu sambýli við slíkar kringum- stæður. En þar sem hreinskilnin og sanngimin ræður ríkjum er gott að búa. Helena reyndist ein- staklega barngóð sem og maður hennar. Hún var skapstór, en jafn- framt hjartahlý, glaðsinna og skemmtileg. Þótt bakgmnnur okkar væri ólíkur og aldursmunur tveir ára- tugir náðum við ákaflega vel sam- an. Marga vornóttina röltum við um í blíðunni og nutum náttúrann- ar. Bæði þá og yfir kaffibolla í eld- húsinu var ýmislegt rætt, en ég minnist þess ekki að ávirðingar ná- ungans hafi verið þar á dagskrá nokkra sinni. Framan af vera okkar hér var Helena enn starfandi hjúkranar- fræðingur og fór það ekld milli mála hversu vænt henni þótti um skjólstæðinga sína, en trúnaðar gagnvart þeim gætti hún ávallt. Lífið var henni sjálfri ekki alltaf létt, en einmitt í veikindastríði hennar kom styrkur hennar greinilegast í ljós, hjartans fágun og^gott uppeldi. I huga mér er þakklæti fyrir að hafa fengið að verða samferða og læra af Helenu. Ég mun sakna hennar, en ég veit að synir mínir taka fagnandi á móti henni hinum megin. Við Freysteinn og Ragn- hildur sendum okkar góða granna, Arreboe, sonum hans og þeirra fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur. Ingibjörg Sveinsdóttir. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞORGEIRSDÓTTIR, Bjarkargötu 4, Reykjavík, sem lést á Sjúkrahúsi Reykjavikur föstudaginn 25. júní verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 6. júlí, kl. 13.30. Jódís Dagný Vilhjálmsdóttir, Jón Pétursson, Sigurður Þórðarson, Guðrún Hrund Sigurðardóttir, Vilhjálmur Jónsson, Arnar Þór Sigurðsson, Benedikt Jónsson, Andri Vilhjálmur Sigurðsson, Pétur Gauti Jónsson og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR ÁSGEIR HJALTASON gullsmiður og listmálari, Hverfisgötu 30, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Kristskirkju í Landakoti á morgun, miðvikudaginn 7. júlí, kl. 13.30. Blóm vinsamlega afþökkuð en þeir, sem vilja minnast hans, eru beðnir um að láta líknarstofnanir njóta þess. Jóna Kristín Ámundadóttir, Hjalti Gunnarsson, Ámundi Gunnarsson, Anna K. Sæmundsdóttir, Sigurjón Gunnarsson, Helga Vilhjálmsdóttir, Kristbjörg Gunnarsdóttir, Guttormur Páll Sölvason, Ásgeir Gunnarsson, Sólveig Gunnarsdóttir, Hafsteinn Sigurjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. HELENA BOJKOW CLA USEN + Ástkær dóttir okkar, systir og barnabarn, ÁGÚSTA SIF HÓLMSTEINSDÓTTIR, sem lést laugardaginn 3. júlí, verður jarðsungin frá Seljakirkju fimmtudaginn 8. júlí kl. 13.30. Hólmsteinn Eiríksson, Elín Oddrún Jónsdóttir, Eiríkur Jón Hólmsteinsson, Sæbjörg Erla Friðgeirsdóttir, Jóhanna Pálsdóttir, Eiríkur Hólmsteinsson, Jón Sigurðsson, Hólmsteinn Jóhannsson, Helgi Páll Jónsson, Smári Tómasson og fjölskyldur þeirra. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA FINNBOGADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 3. júlí sl. Svanur Þór Vilhjálmsson, Rosina Vilhjálmsdóttir, Hlöðver Örn Vilhjálmsson, Hrafnhildur Ásgeirsdóttir, Erla Vilhjálmsdóttir, Skúli Jóhannesson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Anna J. Johnsen, Rósa Stefánsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN STEINASON, hæstaréttarlögmaður, Grenimel 46, Reykjavík, andaðist í hjúkrunarheimilinu Skógarbæ aðfaranótt 5. júlí. Jarðarförin nánar augiýst síðar. María Finsen, Karl F. Jóhannsson, Bergtjót Aradóttir, Steini B. Jóhannsson, GunnarJóhannsson, Anna G. Jóhannsdóttir, Steinunn Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og bróðir, EYJÓLFUR SVERRISSON, Hraunbæ 168, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 3. júlí. Margrét Jóhannsdóttir, Ellen Klara Eyjólfsdóttir, Jónas Gunnarsson, Jóhanna Lára Eyjólfsdóttir, Garðar Jónsson, Sverrir Eyjólfsson, Ólöf María Jóhannsdóttir, Guðrún S. Sverrisdóttir og fjölskyldur. + Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS GUÐRÚN KJARTANSDÓTTIR, Hrísmóum 1, Garðabæ, áður til heimilis á Heiðarbrún 12, Hveragerði, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 8. júlí kl. 15. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. 5 Valgarð Runólfsson, Vera Ósk Valgarðsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Kjartan V. Valgarðsson, Nína Helgadóttir, Bolli R. Valgarðsson, Hrafnhildur Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.