Morgunblaðið - 08.07.1999, Side 1

Morgunblaðið - 08.07.1999, Side 1
151. TBL. 87. ÁRG. FIMMTUDAGUR 8. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters HILLARY Clinton forsetafrú ásamt stuðningsfólki sínu. Hillary Clinton ætlar fram West Davenport. AP. HILLARY Clinton forsetafrú Bandaríkjanna tilkynnti í gær í fyrsta sinn að hún ætlaði að bjóða sig fram til setu í öldunga- deild Bandaríkjanna fyrir New York-ríki í næstu þingkosning- um. Hét Hillary Clinton því að verða „sterkur og áhrifaríkur fulltrúi íbúa ríkisins," í ræðu er hún hélt á búgarði Patricks Moynihan, núverandi öldunga- deildarþingmanns Demókrata- flokksins í New York. Sagði forsetafrúin að málefni New York-ríkis stæðu sér afar nærri og að hún hefði að undan- förnu verið að kynna sér hvað þar ber hæst. Sagðist hún í ræðu sinni ætla að einbeita sér að því að skapa fleiri atvinnutækifæri um gervallt ríkið, koma á öflugu heilbrigðiskerfí og efna til átaks í menntamálum. Mun forsetafrú- in eyða næstu dögum í New York-ríki og hlusta á íbúa þess og það sem þeir hafa fram að færa. Líklegt er talið að Rudolph Gi- uliani, borgarstjóri New York, verði andstæðingur Hillary Clint- on í kosningaslagnum og sýna nýjar skoðanakannanir að þau hafi svipað fylgi meðal kjósenda. Almenningur krefst afsagn- ar Milosevics Reuters SERBAR í borginni Nis í suðurhluta Serbíu rituðu í gær nafn sitt á undirskriftarlista þar sem farið er fram á afsögn Slobodans Milosevics . Belgrad, Leskovac. Reuters, AFP, AP. MIKILL mannfjöldi safnaðist sam- an í borginni Leskovac í suðurhluta Serbíu í gærkvöld og krafðist af- sagnar Slobodans Milosevic Júgó- slavíuforseta. Aðgerðirnar í gær mörkuðu þriðja dag mótmæla í borginni, sem og víðar um landið, og hafa stjómarandstæðingar boð- að áframhald á aðgerðum sínum. Virðist sem tekið hafi að halla mikið undan fæti hjá Milosevic síðustu daga. Þá ritaði fjöldi borgarbúa í Nis í gær nafn sitt á undirskriftarlista sem kvað á um að Slobodan Milos- evic Júgóslavíuforseti hyrfi úr valdastóli hið allra fyrsta. Að mati Zoran Zivkovic, borgarstjóra í Nis, skrifuðu um þrjú þúsund manns undir listann í gær, fyrsta dag und- irskriftarsöfnunarinnar sem skipu- lögð var af Breytingabandalaginu, regnhlífasamtökum leiðandi stjóm- málaafla er vilja breytingar á ríkis- stjóm Milosevics. Alls er talið að um 100.000 manns, víðs vegar um Ser- bíu, hafi ritað nöfn sín á listann. Serbneska þjóðin stígur skrefið til fulls Goran Svilanovic, leiðtogi stjóm- arandstöðuflokksins Borgarabanda- lagsins, sagði í gær að Serbar hefðu nú loks „stigið skrefið“ og væm óhræddir við að mótmæla Milosevic allt uns hann stigi úr valdastóli. „Mikil reiði hefur safnast upp í fólki, brostnar vonir og erfitt líf,“ sagði Svilanovic. Zoran Djindjic, annar stjórnarandstæðingur, sagð- ist í viðtali við CNN í gær halda að nú mun brátt stundin renna upp þegar Serbar ættu að leggja niður störf í nokkrar vikur í mótmæla- skyni við stjórnvöld. Talsmaður Bandaríkjastjómar sagði í gær að dagar Milosevics væm senn taidir og líkti mótmæla- aðgerðum almennings í Serbíu við fjöldahreyfingamar er knúðu Ferdinand Marcos, forseta Filipps- eyja, til að láta af völdum og komu á almennum borgararéttindum í Bandaríkjunum. „Dagar Milosevics era taldir. Það er ómögulegt að segja til um hve margir dagar era í þeirri tölu,“ sagði James Foley, talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins í gær. Rannsókn á loftárásunum William Cohen, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, fyrirskipaði í gær umfangsmikla rannsókn á loft- árásum Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Júgóslavíu með það að markmiði að reynsla stríðsins gæti nýst tO frambúðar, að því er kom fram í bandaríska dagblaðinu Was- hington Times í gær. Taldi blaðið að rannsóknin myndi að mestu beinast að þeim herfræðOegu mistökum er gerð vora, í stað vopnabúnaðarins sjálfs. ■ Kröfur um afsögn/26 Friðarsamkomulaff í Sierra Leone Atta ára borg- arastríði lokið Lóme í,Tógó. AP. STRÍÐANDI fylkingar í Vestur-Afríkuríkinu Sierra Leone komust í gær að samkomulagi sem bindur enda á átta ára borgarastríð í landinu. Náð- ust samningar eftir að hreyfing uppreisnarmanna gaf eftir helstu kröfur sínar, að sögn talsmanna hreyfingarinnar og Sameinuðu þjóðanna. Samkomulagið var undirritað af forseta landsins, Ahmed Tejan Kabbah, og leiðtoga Sameinuðu bylt- ingarfylkingarinnar, Foday Sankoh. Fór undirritunin fram á ráðstefnu leiðtoga Vestur-Aí'rflíuríkja í Lóme, höfuðborg Tógö. Styrjöldin í Sierra Leone hefur verið eitthvert blóðug- asta stríð sem háð hefur verið í heiminum. Samkvæmt samkomulag- inu fá uppreisnarmenn að deila völd- um með stjórn Kabbahs, og fá í sinn hlut fjögur ráðherraembætti. Þeir höfðu krafist þess að fá sex til átta ráðherrastóla, en alþjóðlegir sátta- fulltrúar og bandamenn uppreisnar- fylkingarinnar, þ.á m. Charles Tay- lor, forseti Líberíu, fengu þá til að falla frá þeirri kröfu. í friðarsamkomulaginu er ákvæði um að þeir byltingarliðar, sem sekir hafa gerst um stríðsglæpi, verði ekki sóttir til saka. Þá er ákvæði um að gæsluliðar undir forystu Nígeríu- manna verði áfram í landinu, en liðið átti þátt í að binda enda á borgara- stríðið í Líberíu fyrir þremur árum. Reuters Líffæragjöf „til hvítra“ veldur deilum í Bretlandi Kynþáttafordómar inn- an heilbrigðisstofnana London. The Daily Telegraph. BRESKI heilbrigðisráðherrann Frank Dobson sagði í gær að ekki væri hægt að líða kynþáttafordóma í heilbrigðisstofnunum og hét því að efna til rannsóknar á hvers vegna sjúkrahús í Sheffield samþykkti ný- lega að taka við líffæragjöf sem háð var því skilyrði að líffærin yrðu ekki flutt í þeldökkt fólk. Það var í júlí á síðasta ári sem nokkur líffæri vora numin á brott úr einstaklingi sem setti það skil- yi’ði að viðtakandi líffæranna yrði hvítur maður. Ekki er ljóst hver samþykkti líffæragjöfina með þess- um skilyrðum, sjúkrahúsið sjálft eða sérstök stofnun sem hefur milli- göngu um líffæragjafir. „Eg var yfir mig hneykslaður þegar ég heyrði í dag um þetta mál,“ sagði Dobson. „Eg skipaði að- stoðarmanni mínum þegar að efna til rannsóknar á því hvernig þetta gerðist svo koma mætti í veg fyrir að það gerðist aftur.“ Kvaðst hann ekki hafa verið andstæðingur að- skilnaðarstefnu hvítra manna í S- Afríku allt sitt líf til þess eins að sjá hana svo birtast í nýrri mynd í bresku heilbrigðiskerfi. í yfirlýsingu heilbrigðisráðuneyt- isins kom fram að ráðuneytið væri „algerlega mótfallið" því að nokkur skilyrði væru samþykkt þegar líf- færi eru gefin, og fjöldi lækna lýsti einnig undrun sinni á þessu máli en það mun vera viðtekin venja að samþykkja ekki skilmála um það hver njóti góðs af líffæragjöfum. Hitabylgjan í rénum MIKILLI hitabylgju á austur- strönd Bandaríkjanna slotaði síð- degis í gær. Hafði þá frést af a.m.k. 44 dauðsföllum sem rekja mátti til hitans. Var svo komið að fólki var ráðlagt að halda sig inn- andyra í loftkældu umhverfi sem oft á tíðum reyndist örðugt þar eð rafmagnið fór af í þéttbýlis- kjörnum, t.a.m. New York, vegna mikils álags. Þeir sem hættu sér út undir bert loft leituðu skjóls í loftkældum matvöruverslunum eða kældu sig ineð vatni úr brunahönum líkt og þessi dreng- ur gerði í Washington. Veður- fræðingar höfðu spáð því að hita- bylgjunni myndi senn slota með köldu lofti sem bærist frá norður- ríkjum Bandaríkjanna. Bæjarstjóri myrtur Bogota. Reuters. LIÐSMENN úr röðum skæraliða- samtaka marxista í Kólumbíu eru taldir hafa myrt bæjarstjóra Canas- gordas, smábæjar í norðausturhluta landsins, í gær. Er hann sjöundi bæjarstjórinn í Kólumbíu er fellur fyrir hendi skæruliða það sem af er þessu ári og er atburðurinn talinn undirstrika vantrú almennings á sáttaumleitunum Pastranos forseta við skæruliðahópa. í gær átti að hefjast næsta lota í friðarferli því sem Pastrano hleypti af stokkunum í janúar sl., en henni var frestað á síðustu stundu þar til 20. júlí nk. Er ástæðan sögð vera að leyfa eigi alþjóðlegum eftirlitsaðilum að kanna aðstæður og leiðtogum skæraliðahópa að safnast saman. ■ Ný bylgja mannrána/29

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.