Morgunblaðið - 15.07.1999, Síða 33

Morgunblaðið - 15.07.1999, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚLÍ 1999 33 Tónleikar í Stykkis- hólmi og Reykholti TRÍÓ-tónleikar verða haldnir í Stykkishólmskirkju laugardaginn 17. júlí kl. 17 og í Reykholtskirkju sunnudaginn 18. júlí kl. 16. Flytj- endur eru Eydís Franzdóttir óbó- leikari, Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari og Unnur Vilhelms- dóttir píanóleikari. Efnisskrá tónleikanna er í anda sumars, létt og skemmtileg. Leik- in verða þrjú tríó frá þremur mis- munandi löndum. Frá Englandi verður leikið tríó eftir ensku kon- una Madeleine Dring, frumflutt verður verk eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson sem er sérstak- lega samið fyrir þær Eydísi, Kristínu og Únni og tríó eftir franska tónskáldið Jean Francaix. Tónleikunum lýkur svo á íslensk- um söngperlum eftir Sigfús Hall- dórsson, Sigvalda Kaldalóns og fleiri. Tríóið var stofnað í október 1997 og hefur komið fram við ýmis tækifæri, m.a. á Poulenc-hátíð í Reykjavík í janúar sl. Eydís Franzdóttir lauk burtfar- arprófi í óbóleik frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík 1987 og stund- aði framhaldsnám í London. Kristín Mjöll Jakobsdóttir lærði fagottleik í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Árið 1987 fór hún til náms við Yale School of Music í Bandaríkjunum og lauk þaðan meistaraprófi vorið 1989. Hún stundaði áframhaldandi nám við Sweelinck Couservatorium í Am- sterdam en hélt svo aftur til Bandaríkjanna til náms í Cincinnati. Hún hefur starfað sem lausráðinn fagottleikari með ýms- um hljómsveitum og kammerhóp- um auk kennslu m.a. við Hong Kong Academy of Performing Arts. Unnur Vilhjálmsdóttir nam pí- anóleik í Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Halldóri Haralds- syni. Hún lauk píanókennaraprófi 1990 og einleikaraprófi ári síðar. Árið 1991 hóf Unnur framhalds- nám í Cincinnati í Bandaríkjunum og lauk þaðan doktorsprófi í pí- anóleik árið 1997. Hún starfar nú sem píanóleikari í Reykjavík og kennir við Tónlistarskóla Kópa- vogs. --------------- Málverkasýning á Reyðarfírði MYNDLISTARMAÐURINN Steingrímur St. Th. heldur 97. sýn- ingu sína á Hótel Norðurljósi, Raufarhöfn, dagana 15.-19. júlí. Steingrímur sýnir 20 nýjar myndir auk þess að mála skyndi- myndir á staðnum. itarog® ^ Negro Skólavörðustig 101 Reykjavík. Sími/fax 552 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf.is v®' ALLTAH mbl.is GITTHXSAÐ A/ÝT7 LISTIR Terhi vatnabátar Eigum til afgreiðslu nokkrar gerðir af Terhi vatnabátum. Allir Terhi bátar eru tvöfaldir og ósökkvanlegir. Yfir 20 ára reynsla. G«, báta, á gbðu ™*. =ff= Vé|a|. & Taekj ehf_ TRYGGVAGÖTU18 BOX 397 121 REYKJAVfK SlMAR: 552 1286 - 552 1460 Dilbert á Netinu /§> mbl.is ALLTA/= G/TTH\SA£) A/ÝTl Ef þér leiðist farðu þá þangað sem veðrii hentar fötunum Stuttbuxur, stuttermaskyrtur, bolir, regn- og öndunarfatnaður, buxur, tæknilegur fatnaður, gönguskór, sandalar, bakpokar og margt fleira. Nýtt kortatímabil! Opið í dag til kl. <&> Columbia “ Sportswear Companyi -fötin ífríið 22.00 HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL — Skeifunni 19 - S. 568 1717- Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.