Morgunblaðið - 16.07.1999, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Framtíð friðarumleitana
á Norður-Irlandi í óvissu
OSCAR Ramirez Durand, leið-
togi Skínandi stígs, einnar af
herskáustu uppreisnarhreyf-
ingum Suður-Ameríku, var
handtekinn í fi-umskógi í Perú
í fyrradag. 1.500 hermenn
höfðu leitað hans í skóginum
með aðstoð orrustuþotna og
þyrlna. Nítján ára skæruhern-
aður hreyfíngarinnar hefur
kostað um 30.000 manns lífið.
Marklaust
samkomulag?
STJÓRNVÖLD í Eþíópíu og
Erítreu samþykktu í fyrradag
friðaráætlun Einingarsamtaka
Afríku (OAU) sem miðar að
því að binda enda á
landamæraátök ríkjanna. Ólík-
legt þykir þó að friðaráætlun-
inni verði komið í framkvæmd
því tæpum sólarhring síðar
tóku ríldn strax að deila um
hvað þau hefðu samþykkt og
saka hvort annað um óheilindi.
Leki olli elds-
voða í ferju
ELDURINN í vélarrými
norsku ferjunnar Prinsesse
Ragnhild í vikunni sem leið or-
sakaðist að öllum líkindum af
leka í eldsneytisröri, að sögn
eigenda ferjunnar í gær. 1.300
manns var bjargað frá borði
þegar eldurinn kom upp.
Vill ekki emb-
ætti Solana
GERHARD Schröder, kansl-
ari Þýskalands, sagði í fyrra-
dag að Rudolf Scharping,
varnarmálaráðherra landsins,
vildi ekki taka við embætti
framkvæmdastjóra NATO af
Javier Solana og þýska stjórn-
in vildi halda honum. Embætt-
ismenn NATO höfðu lýst yfír
eindregnum vilja til að Scharp-
ing tæki við af Solana.
Saksóknari
sviptir sig lífí
HUBERT Massa, belgískur
saksóknari sem rannsakaði mál
bamaníðingsins Marcs
Dutroux, sem varð fjórum ung-
um stúlkum að bana, hefur
svipt sig lífi. Massa rannsakaði
einnig morðið á Andre Cools,
leiðtoga Sósíalistaflokksins, en
sú rannsókn varð til þess upp
komst um mútuþægni belgískra
stjórnmálamanna. Spillingar-
málið varð til þess að Willy Cla-
es, fyrrverandi aðstoðarforsæt-
isráðherra Belgíu, sagði af sér
sem framkvæmdastjóri NATO.
Stríðsglæpa-
dómur þyngdur
STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓL
L Sameinuðu þjóðanna í Haag
hafnaði í gær áfrýjun Bosníu-
Serbans Dusans Tadic, sem
var dæmdur í tuttugu ára
fangelsi fyrir rúmum þremur
árum fyrir stríðsglæpi, m.a.
tvö morð, í Bosníu árið 1992.
Dómstóllinn dæmdi hann
einnig sekan um fimm önnur
morð, sem bætt var við
ákæruna í gagnáfrýjun sak-
sóknaranna.
Engin heimastjórn tók
við á Norður-írlandi í
gær, eins og stefnt
hafði verið að, og ljóst
er að friðarsamkomu-
lagið frá því í fyrra
hangir á biáþræði. Dav-
íð Logi Sigurðsson
segir í grein sinni að
enginn viti í raun hvað
næstu vikur og mánuð-
ir beri í skauti sér og
erfítt sé að sjá hvernig
bresk og írsk stjórn-
völd hyggjast knýja
friðarumleitanir
áfram í héraðinu.
Leiðtogi
Skínandi
stígs hand-
tekinn
AP
DAVID Trimble, leiðtogi Sambandsflokks Ulsters (UUP), og John Taylor, varaleiðtogi UUP, greina blaða-
mönnum frá því í gær hvers vegna þeir ætluðu ekki að tilnefna fulltrúa í heimastjórn á N-írlandi.
ÓHÆTT er að segja að friðarum-
leitanir á Norður-Irlandi séu í al-
geru uppnámi. I stað þess að í gær
væri sett á laggirnar heimastjórn
með aðild bæði kaþólikka og mót-
mælenda varð uppi fótur og fit,
sambandssinnar neituðu að til-
nefna sína fulltrúa í stjórnina og í
kjölfarið varpaði Seamus Mallon,
varaleiðtogi flokks hófsamra kaþ-
ólikka (SDLP), sprengju þegar
hann sagði af sér aðstoðarforsætis-
ráðherraembættinu sem hann var
valinn til fyrir tæpu ári. Lét Mallon
ekki þar við sitja heldur hvatti for-
sætisráðheiTann David Trimble,
leiðtoga Sambandsflokks Ulsters
(UUP), til að gera slíkt hið sama.
Heimastjórnarþingið í Belfast,
sem íbúar Norður-írlands kusu
fulltrúa sína á fyrir rúmu ári, kom
saman fyrir hádegi í gær en þá lá
reyndar fyrir að Trimble myndi
ekki tilnefna fulltrúa fyrir hönd
UUP í heimastjórnina. Þetta hafði
orðið ljóst kvöldið áður þegar
Trimble lýsti því yfir að UUP teldi
sig ekki hafa fengið nægflegar
tryggingar fyrir því að Irski lýð-
veldisherinn (IRA) myndi byrja af-
vopnun innan skamms og því væri
afstaða flokksins sú sem hún hefði
alltaf verið, að sambandssinnar
gætu ekki sest í heimastjórn með
fulltrúum Sinn Féin, stjómmála-
arms IRA.
Trimble og félagar mættu
ekki til fundar
Trimble og félagar gerðu hins
vegar enn betur. Þeir mættu ekki
einu sinni til þingfundarins sem
hafði verið boðað til og í staðinn
skýrði Trimble frá því fyrir framan
höfuðstöðvar UUP að flokkurinn
myndi ekki tilnefna sína fulltrúa í
stjórnina. í þinghúsinu við Stor-
mont-kastala stóðu því auðir 28
stólar þingflokks UUP og enginn
varð til svara þegar Ald-
erdice lávarður, þingfor-
seti heimastjórnarþings-
ins, bað UUP að tUnefna
sína fulltrúa.
Alderdice bað þá John
Hume, leiðtoga SDLP, að tilnefna
sína fulltrúa í stjórn og það gerði
hann og Gerry Adams, leiðtogi
Sinn Féin, fylgdi í kjölfarið og út-
nefndi m.a. Martin McGuinness,
sem sagður er sitja í herráði IRA,
til að fara með landbúnaðarmál í
stjóminni. A því augnabliki er Ian
Paisley, leiðtogi Lýðræðislega
sambandsflokksins (DUP), neitaði
hins vegar að tilnefna sína fulltrúa
í stjórn varð opinbert það sem allir
vissu íyrir; að heimastjórnin yrði
ekki sett á laggirnar - enda þarf
hún að innihalda fulltrúa bæði
sambandsflokkanna og kaþólikka -
og að friðarsamkomulagið sem
kennt er við föstudaginn langa
væri rannið út í sandinn.
Efnt til endurskoðunar
á friðarsamkomulaginu
Framtíð friðaramleitana á N-ír-
landi er í raun óráðin eftir þessi
tíðindi. Bresk stjórnvöld viður-
kenndu að atburðir gærdagsins
væra þeim áfall. Mo Mowlam N-ír-
landsmálaráðherra sagði að það
væri „kjánalegt" að neita því að
þetta væri áfall en það væri einnig
„kjánalegt" að gefa í skyn að þetta
markaði endalok friðaramleitana;
mikill árangur hefði náðst á undan-
förnum áram og að áfram yrði
haldið í leit að þeirri sátt á N-ír-
landi sem íbúar héraðsins þrá.
Tony Blair forsætisráðherra tók
í sama streng og sagði grátlegt að
leiðtogar stríðandi fylkinga skyldu
ekki hafa getað byggt upp það
trúnaðartraust sem á vantaði til að
tryggja stoðir friðar á N-írlandi.
Hann kvaðst ekki vUja kenna nein-
um um hvemig fór heldur lagði
hart að leiðtogum að byggja nú
grunn að trausti sín á milli þannig
að þoka mætti málum áfram í
næstu lotu.
Bresk stjórnvöld hafa nú boðað
tU endurskoðunar á friðarsam-
komulaginu og að þráðurinn í frið-
arumleitununum verði tekinn upp í
haust. í þessari endurskoðun verð-
ur ekki hróflað við friðarsamkomu-
laginu sjálfu heldur farið yfir hvaða
ákvæði samkomulagsins hafa þeg-
ar komist til fram-
kvæmda og eins hin
sem enn strandar á.
Þetta er að mörgu
leyti sú „mjúka“ lend-
ing sem David Trimble
hefur um langa hríð talið nauðsyn-
lega, í ljósi þess að ekki hefur tek-
ist að leysa deilur um afvopnun
öfgahópa og myndun heimastjórn-
arinnar. Kaþólikkar eru hins veg-
ar allt annað en ánægðir með
þessa þróun og telja að enn sé ver-
ið að leyfa sambandssinnum að
bei_ta neitunarvaldi á framþróun á
N-írlandi í ljósi meirihlutastöðu
sinnar. Reiði Gerrys Adams, leið-
toga Sinn Féin, í gær er til marks
um þetta, sem og afsögn Seamus
Mallons.
Aukinheldur benda margir á að
fyrst ekki náðist saman núna séu
engar líkur á að það gerist í haust.
Þvert á móti sé verið að bjóða
hættunni heim því öfgamenn báð-
um megin víglínunnar gætu tekið
þann kost að fylla upp í tómarúmið
með ódæðisverkum.
Mallon harðorður
í garð Trimble
Afsögn Mallons kom nokkuð á
óvart en hann sagði í ræðu sinni að
það væri skylda sín að láta af emb-
ætti í ljósi þess að búið væri að
hindra frekari framgang ákvæða
friðarsamkomulagsins. Hann gagn-
rýndi Trimble harðlega og sakaði
UUP um að reyna að „mjólka" írek-
ari tilslakanir úr breskum og írskum
stjórnvöldum. „UUP stendur við
fyrri kröfur um að afvopnun skuli
fara frarn áður en heimastjóm er
mynduð, skilyrði sem er hvergi að
finna í friðarsamkomulaginu, skil-
yrði sem er alls ekki í anda grand-
vallaratriða þess,“ sagði Mallon.
Mallon hvatti David Trimble til
að fylgja fordæmi sínu og segja af
sér, enda gæti hann ekki tekið þátt
í því endurskoðunarferli sem nú
hæfist sem forsætisráðherra, slíkt
yrði hann að gera einungis sem
leiðtogi UUP. Virtist Mallon vera
að gefa í skyn að frekari tilraunir
til að ná sáttum á milli kaþólskra
og mótmælenda á grandvelli frið-
arsamkomulagsins væru tilgangs-
lausar.
Paisley ánægður með
atburði dagsins
Ekki vora allir jafn
óánægðir með atburði
gærdagsins. Ian Paisley
lýsti því yfir að lýðræði
hefði borið sigur úr být-
um og sagði að fall hins
„hræðilega" friðarsamkomulags
væri góð tíðindi, komið hefði verið í
veg fyrir að „morðingjar“ kæmust
að kjötkötlunum. Virtist sem Pa-
isley hefði unnið sigur í kappleik og
kannski var það ekki svo fjarri lagi,
enda hefur klerkurinn alla tíð verið
á móti friðarsamkomulaginu og
ætíð neitað að setjast við sama
borð og Sinn Féin.
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Féin,
óskaði Paisley enda til hamingju á
fréttamannafundi sem hann hélt.
Sagði hann „nei“-mennina enn hafa
borið sigur úr býtum, sambands-
sinnar hefðu enn fengið að komast
upp með að neita kaþólskum um
jafnrétti og sanngjarnt samfélag á
N-Irlandi. Adams var einnig harð-
orður í garð Trimbles og sagði að
Tony Blair bæri að reka hann úr
embætti.
Adams hét því hins vegar að
starfa áfram að friðsamlegri lausn
deilnanna á N-írlandi og sumir
fréttaskýrenda meta stöðuna
þannig að staða Sinn Féin sé að
mörgu leyti sterk. Flokkurinn geti
kennt sambandssinnum um hvern-
ig fór, þeir hafi verið hinir óbil-
gjörnu en lýðveldissinnar viljað ná
árangri.
Leitað leiða til að höggva
á hnútinn
Á hinn bóginn liggur auðvitað
ljóst fyrir að David Trimble átti af-
ar óhægt um vik. Fréttaskýrend-
um ber saman um að Trimble hafi
raunveralega viljað setja heima-
stjómina á laggimar en liðsmenn
UUP fylgdust vel með að leiðtog-
inn gengi ekki of langt í samkomu-
lagsátt við Sinn Féin. Hefði
Trimble látið slag standa hefði
flokkurinn sennilega verið búinn að
velta leiðtoga sínum úr sessi innan
nokkurra daga og þá hefði niður-
staðan orðið sú sama hvort eð var.
En þótt atburðir gærdagsins séu
mikið áfall fyrir friðaramleitanir á
N-írlandi er Ijóst að ekki er hægt
að hætta leitinni að varanlegum
friði í héraðinu. Vekur það nokkrar
vonir að þrátt fyrir að ásakanir
gengju á víxl í gær hétu allir
flokkar því að starfa
áfram í þágu friðar.
Hvað gerist er hins veg-
ar með öllu óljóst. Fer
klofningshópum úr IRA
að leiðast þófið; og
fremji einn öfgahópanna á N-
írlandi fylgja þá allir hinir í
kjölfarið?
Þessum spurningum er ósvarað
en í gær lýsti leiðarahöfundur síð-
degisblaðsins The Belfast Tel-
egraph þeirri von, sem flestir geta
líklega tekið undir, að reynt yrði að
koma í veg fyrir að vargöld brysti á
að nýju á N-írlandi á meðan leitað
væri nýrra leiða til að höggva á
hnútinn.
Afsögn
Mallons kom
á óvart
Fylla öfga-
menn tóma-
rúmið?