Morgunblaðið - 23.07.1999, Side 1

Morgunblaðið - 23.07.1999, Side 1
164. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Útför Johns F. Kennedys yngra, eiginkonu og mágkonu • • Osku þremenninganna dreift nærri slysstað Falmouth og Woods Hole í Massachusetts. AP, Reuters. SSsJJ Reuters AÐSTANDENDUR Johns F. Kennedys yngra, Carolyn Bessette-Kenn- edy og Lauren Bessette á leið með ösku þeirra út í herskipið USS Briscoe, þaðan sem öskunni var dreift í hafíð í gær. ÚTFÖR Johns F. Kennedys yngra, eiginkonu hans og mágkonu fór fram í gær á USS Briscoe, tundur- spilli bandaríska flotans. Ösku hinna látnu var varpað í vota gröf um 5 km frá þeim stað þar sem ævi þeirra endaði er einkaflugvél Kenn- edys hrapaði aðfaranótt laugardags, skammt undan strönd eyjarinnar Martha’s Vineyard. Um það bil fimmtán meðlimir nafntoguðustu stjómmálaættar Bandaríkjanna, þar á meðal Caroline Kennedy-Schlossberg, systir hins látna, og öldungadeildar- þingmaðurinn Edward Kennedy, vora ásamt prestum viðstaddir ein- falda athöfn um borð í hinu 170 m langa herskipi, þar sem ösku þeirra Kennedys, Carolyn Bessette-Kenn- edy og Lauren Bessette, var dreift í hafið. Nánir aðstandendur Bess- ette-systra vora einnig viðstaddir, þar á meðal Lisa Ann Bessette, tví- burasystir Lauren. Skipið hafði um 40 mínútna við- dvöl á staðnum þar sem öskunni var dreift. Fyrr um daginn höfðu líkin verið brennd eftir að krufning hafði farið fram, í samræmi við lög Massachusetts-ríkis. Réttarlæknir úrskurðaði að þau hefðu öll þrjú lát- izt samstundis af áverkum sem þau hlutu er flugvélin skall í hafið. Dálæti á hafínu Kennedy-fjölskyldan er þekkt fyrir mikið dálæti á hafinu og sjó- mennsku, og því þykir það ekki koma á óvart að hún skyldi hafa val- ið að láta útförina fara fram á sjó. John F. Kennedy eldri, forseti Bandaríkjanna 1961-1963, gegndi á sínum tíma herþjónustu í flotanum. Minningarathöfn fyrir valda boðsgesti verður haldin í kaþólsku St. Thomas More-kirkjunni i New York í dag, og verða forsetahjónin Bill og Hiilary Clinton viðstödd, en í gærkvöldi að staðartíma átti al- menningi að gefast kostur á að hlýða á minningarguðsþjónustu um hin látnu í St. Patricks-dómkirkj- unni á Manhattan. Árásin á kínverska sendiráðið í Belgrad Eina skot- markið sem CIA valdi Washington. Reuters, AP. EINA skotmarkið, sem bandaríska leyniþjónustan CIA valdi fyrir Atl- antshafsbandalagið í ellefii vikna loftherför þess gegn Júgóslavíu, var það sem leiddi til þess að bandarísk- ar herflugvélar vörpuðu sprengju á kínverska sendiráðið í Belgrad. George Tenet, yfirmaður CIA, viðurkenndi þetta í gær er hann gaf þingnefnd fulltrúadeildar Banda- ríkjaþings skýrslu um þá atburða- rás sem leiddi til þess að sprengja lenti á kínverska sendiráðinu hinn 7. maí sL, sem varð þremur mönn- um að bana og slasaði 20. „Arásin var mistök,“ sagði Tenet og lagði mikla áherzlu á að enginn hefði með ráðnum hug gert kín- verska sendiráðið að skotmarki. Byggingin sem ætlunin var að hæfa var um 300 metra frá sendiráðinu og hýsti höfuðstöðvar júgóslav- neskrar ríkisstofnunar sem stýrði birgðaútvegun og útboðum, aðal- lega fyrir herinn. Kinastjórn reynir að bæla götumótmæli Jose Maria Aznar í Miðausturlandaferð Barak færð „sérstök skila- boð“ frá Assad Jerúsalem. Reuters. JOSE Maria Aznar, forsætisráð- herra Spánar, færði í gær Ehud Barak, forsætisráðherra Israels, skilaboð frá Hafez al-Assad Sýr- landsforseta og kvaðst vongóður um að ríkin tvö næðu friðarsamkomu- lagi. Spænski forsætisráðherrann ræddi við Assad á mánudag og sagði sýrlenska forsetann hafa beðið sig að færa Barak „sérstök skilaboð". Aznar vildi ekki greina frá því hvaða skiiaboð þetta væru en kvaðst telja að Assad væri mjög umhugað um að ná samkomulagi við Israela. Aznar sagði að Barak hefði beðið sig að ræða ýmis mál við Assad og Yasser Arafat, leiðtoga Palestúiu- manna, og kvaðst ætla að gera það á næstu dögum. ísraelar og Sýrlendingar hafa gefið til kynna að þeir viiji hefja frið- arviðræður sem fyrst síðan Barak tók við forsætisráðherraembættinu af Benjamin Netanyahu fyrr í mán- uðinum. Israelskir embættismenn og ríkisútvarpið í Sýrlandi hafa spáð því að viðræðumar hefjist innan nokkurra vikna, en nokkuð dró úr bjartsýninni í gær þegar ríkin tóku að deila um skilmála viðræðnanna. Dagblaðið Al-Baath, málgagn stjómarflokksins í Sýrlandi, gagn- rýndi Barak fyrir að hunsa þá kröfu Sýrlendinga að ríkin tækju upp þráðinn þar sem frá var horfið árið 1996 þegar friðarviðræðum ríkjanna var slitið. Sýriendingar segja að Israelar hafi þá lofað að afsala sér öllum Gólan-hæðunum. Barak hefur sagt að Israelar verði að afsala sér landsvæðum til að tryggja varanlegan frið við Sýrlend- inga en ekki tilgreint hversu stóran hluta Gólan-hæðanna hann sé tilbú- inn að láta af hendi. ísraelar her- tóku hæðimar árið 1967. Hamas hótar fleiri árásum Palestínskir skæraliðar í ísl- ömsku samtökunum Hamas hafa hótað að hefja á ný hermdarverk í Israel ef marka má yfirlýsingu sem send var fréttastofunni Reuters í gær. Skæruliðamir sögðu að ísrael- ar, Bandaríkjamenn og palestínska heimastjómin hefðu lagt á ráðin um að myrða leiðtoga Hamas og hótuðu að ráðast á „síoníska og bandaríska hagsmunahópa út um allan heim“ ef samsærinu yrði komið í fram- kvæmd. Beðið eftir byr SEGLSKIP hvaðanæva úr Evr- ópu streymdu til hafnarinnar í St. Malo í Frakklandi í gær. Þar búa skipverjar sig undir siglinga- keppni sem mun hefjast á morg- un, en siglt verður til Skotlands og Danmerkur. Reuters I Áhrif loftárásanna/24 Vinsæl dulspeki- hreyfíng bönnuð Peking. Reuters. STJORNVÖLD í Kína bönnuðu í gær starfsemi vinsællar dulspekihreyfing- ar, sem efndi til mótmæla víða um landið fyrr í vikunni. Hreyfingin var sökuð um að féfletta fólk og skapa hættu á glundroða í samfélaginu. Kínverska rík- issjónvarpið tiikynnti að hreyfingin Falun Gong væri ólögleg, henni væri ekki heimilt að starfa opinberlega og bannað væri að breiða út kenningar hennar. Þeir sem virtu bannið að vettugi yrðu handteknir og félagar í kommúnista- flokknum, sem neituðu að segja sig úr hreyfingunni, yrðu reknir úr honum. „[Falun Gong] hefur stundað ólög- lega starfsemi, rekið áróður fyrir hindurvitnum, breitt út rökvillur, prettað fólk ... og stefnt samfélags- legum stöðugleika í hættu,“ hafði sjónvarpið eftir talsmanni stjórnar- innar. Þúsundir manna handsamaðar Kínverska lögreglan heíúr hand- samað þúsundir fylgismanna Falun Gong frá því á þriðjudag þegar þeir reyndu að mótmæla herferð yfirvalda gegn hreyfingunni. Nokkrir af helstu forystumönnum hreyfingarinnar hafa verið fangelsaðir í herferðinni. Falun Gong er blanda af andlegri íhugun, kínverskri dulspeki og forn- um samfélagskenningum. Hreyfingin hefur haldið því fram að meðlimir hennar séu 100 milljónir en margir hafa dregið þá tölu í efa. Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins sagði í gær að tvær milljónir Kínverja hefðu gengið í hreyfinguna. Hvort sem sú tala er rétt eða ekki er hreyf- ingin nógu ijölmenn til að valda kommúnistaflokknum miklum áhyggjum. Um 30.000 fylgismenn Falun Gong sátu um opinberar byggingar í 30 borgum í fyrradag til að mótmæla meintum ofsóknum yfirvalda. Hreyf- ingin hefur einnig efnt til fámennra mótmæla í Hong Kong en starfsemi hennar hefur ekki verið bönnuð þar. Skattalækk- unartillaga samþykkt Washington. Reuters. TILLAGA repúblikana í full- trúadeild Bandaríkjaþings um að lækka skatta á einstaklinga og fyrirtæki um sem svarar hátt í 60.000 milljörðum króna á næstu tíu áram var samþykkt í atkvæðagreiðslu í þinginu í gær, með 223 atkvæðum gegn 208, þrátt fyrir að vitað sé að hið umfangsmikla frumvarp verði aldrei að lögum. Bill Clinton forseti hefur lýst yfir að hann muni beita neitun- arvaldi, ef þurfa þykir, en hann og samherjar hans í Demókra- taflokknum vilja frekar verja nýtilkomnum tekjuafgangi rík- issjóðs til að greiða niður skuldir ríkisins. Forysta Rep- úblikanaflokksins lagði fram- varpið fram í von um að gera skattalækkun að kosningamáli í forsetakosningunum haustið 2000. ■ Repúblikanar/24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.