Morgunblaðið - 25.07.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
166. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
AP
KONA heldur myntubúnti á lofti, sem er tákn friðar og konungstign-
ar, er fjöldi fólks syrgði andlát Hassans, er sést á innfelldu myndinni.
Lýst yfir íjörutíu
daga þjóðarsorg
Rabat, Jcrúsalem, Dubai. Reuters, AFP, AP.
FJÖRUTIU daga þjóðarsorg hefur
verið lýst yfir í Marokkó vegna
andiáts Hassans konungs, sem lést
á fostudag af völdum hjartaáfalls.
Ráðgert er að útförin fari fram í
dag að viðstöddum fjölda þjóðar-
leiðtoga, sem lofað hafa Hassan,
ekki síst fyrir framlag hans til frið-
arumleitana í Miðausturlöndum.
Elsti sonur Hassans, hinn 36 ára
gamli Mohamed Bin Hassan, tók
við konungssæti föður síns
nokkrum klukkustundum eftir and-
lát Hassans, sem ríkt hefur í 38 ár.
Ríkissjónvarpið í Marokkó sýndi
frá því er háttsettir embættismenn
og herforingjar skrifuðu undir holl-
ustuyfirlýsingu við nýja konunginn
og kysstu hendur hans eða axlir því
til staðfestingar.
Yfirvöld tilkynntu að Hassan
yrði borinn til grafar í dag í Rabat,
en útförinni var seinkað um nokkr-
ar klukkustundir vegna komu er-
lendra þjóðhöfðingja, sem viðstadd-
ir verða útförina.
Samúðarkveðjur stjómmálaleið-
toga um allan heim hafa borist
þjóðinni. Bill Clinton, forseti
Stjórnmálaleið-
togar hvaðanæva
úr heiminum við-
staddir útför
Hassans
Bandaríkjanna, sagði andlát Hass-
ans vera mildnn missi hvað friðar-
umleitanir í Miðausturlöndum
varðaði, en hann mun verða við-
staddur útförina.
Þjóðarsorg lýst yfir
í öðrum ríkjum
Borís Jeltsín Rússlandsforseti og
Saddam Hussein, forseti íraks,
sendu arftaka Hassans samúðar-
kveðjur og tilkynntu að þeir
myndu senda embættismenn til að
vera viðstadda útförina. Jacques
Chirac, forseti Frakklands, verður
einnig meðal viðstaddra og nýskip-
aður forseti Alsír, Abdelaziz Bou-
teflika, lýsti yfir þriggja daga þjóð-
arsorg vegna missis á „bróður, vini
og félaga". Ráðgert hafði verið að
Bouteflika og Hassan hittust eftir
nokkrar vikur til að reyna að leysa
langvarandi deilur þjóðanna í milli.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, og Yasser Arafat, leiðtogi
Palestínumanna, lýstu einnig yfir
þriggja daga þjóðarsorg, líkt og
leiðtogar Túnis, Sýrlands og
Jórdaníu gerðu. Þá lýstu Samein-
uðu arabísku furstadæmin yfir 40
daga þjóðarsorg og opinberum
stofnunum verður lokað í þrjá daga
í ríkjunum vegna andláts Hassans,
sem ríkin sögðu, í sameiginlegri yf-
irlýsingu, vera mikinn missi fyrir
hinn arabíska og íslamska heim.
Þá verður Ezer Weizman, forseti
ísraels, viðstaddur útför Hassans,
en talsmaður Ehuds Barak, for-
sætisráðherra Israels, sagði óvíst
hvort Barak yrði við útförina. Ráð-
gert hafði verið að Barak fundaði
með Arafat í gær og Mubarak í dag
í tengslum við friðarumleitanir í
Miðausturlöndum, en viðræðum
hefur verið frestað um óákveðinn
tíma vegna andláts Hassans.
Ofbeldisverkum fjölgar í Kosovo-héraði og Serbar óttast um öryggi sitt
Fjórtán Serbar
acko. Pristína. AFP. AP. Reuters.
FJÓRTÁN Serbar voru skotnir til bana í Gracko,
um 15 km frá Pristína, héraðshöfuðborg Kosovo, í
fyrradag. Svo virðist sem um hafi verið að ræða
skipulagða aftöku að því er talsmenn KFOR, frið-
argæslusveita undir stjóm Atlantshafsbandalags-
ins (NATO), sögðu í gær. Er þetta eitt mesta
voðaverkið sem framið hefur verið í héraðinu frá
því að friðargæslusveitir komu til Kosovo 10. júní
sl.
Breskir friðargæsluliðar komu á vettvang um
klukkan átta á föstudagskvöld eftir að hafa borist
beiðni frá íbúum þorpsins um að kanna aðstæður
þar sem skothvellir hefðu heyrst skammt frá
heimilum þeirra. Þrettán lík fundust á sveitavegi,
einum og hálfum km frá þorpinu, og lágu þau í
hring. Fjórtánda líkið fannst svo skammt frá á
dráttarvél. Fómarlömbin vom karlmenn á aldrin-
um tuttugu til þrjátíu ára og voru sum líkin illa
leikin. Talið er að þeir hafi verið skotnir af stuttu
færi með sjálfvirkum byssum.
í yfirlýsingu frá NATO sagði að KFOR for-
dæmdi voðaverkið og var hvatt til þess að allir
leiðtogar um gervallt héraðið gerðu slíkt hið sama.
Sagði Jan Joosten, herforingi og talsmaður
KFOR, að Sameinuðu þjóðimar (SÞ) og KFOR
myndu gera allt sem i þeirra valdi stæði til að hafa
Reutcrs
SERBNESKAR konur sem búsettar eru í
Gracko syrgja andlát fjórtán karlmanna sem
myrtir voru á akri skammt frá þorpinu.
hendur i hári morðingjanna og koma yfir þá lög-
um.
I heimsókn sinni til Kosovo á föstudag hafði
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, lagt á það
áherslu í máli sínu til íbúa héraðsins að mikilvægt
væri að Serbar og Albanar byggju þar saman í
friði. Tugir þúsunda Serba hafa flúið Kosovo und-
myrtir
an árásum Kosovo-AIbana sl. vikur, sem leitað
hafa hefnda vegna eyðileggingar á heimilum þeirra
og ástvinamissis í kjölfar þjóðemishreinsana
serbneskra hersveita í héraðinu.
Serbar sýndu reiði sína í kjölfar atburðarins í
gær er þeir gengu um götur Gracko og skutu úr
byssum sínum upp í loft. Serbar hafa kvartað sár-
an yfir því að þeir séu ekki óhultir undir vemd
KFOR fyrir árásum Albana. Sögðust íbúar Gracko
hafa beðið friðargæsluliða fýrir viku að gæta
þorpsins af ótta við árásir liðsmanna Frelsishers
Kosovo (KLA), en þeir era sagðir halda til í þorp-
inu Bujance, skammt frá.
Leiðtogar KLA gáfu hins vegar út yfirlýsingu í
gær þar sem þeir fordæmdu verknaðinn og sögð-
ust ekki trúa því að liðsmenn þeirra hefðu staðið að
baki honum.
Ian Seraph, herforingi og talsmaður bresku frið-
argæslusveitarinnar á svæðinu, sagði það hafa ver-
ið „ómögulegt" að uppfylla fyrmefndar kröfur
þorpsbúa vegna skorts á hermönnum. Óttast er að
fleiri Serbar leggi leið sína frá Kosovo í Igölfar at-
burðarins. Bemard Kouchner, yfirmaður SÞ í
Kosovo, sagði grimmdarverkin „ómanneskjuleg og
tilgangslaus“ og hvatti til hugarfarsbreytingar
meðal íbúa héraðsins.
Ný tíska í París
Snætt í
myrkri
París. The Daily Telegraph.
FALLEGA fólkið í París virðist
ekki lengur vilja snæða mat við
kertaljós á hefðbundnum veit-
ingahúsum og hefur fengið sig
fullsatt á vafstrinu sem fylgir því
að ná athygli þjónanna. Þeir sem
tolla í tískunni vilja nú snæða í
myrkri á veitingahúsinu Le Gout
du Noir í miðborg Parísar.
Gestimir sjá hvorki matinn
né diskinn og þjónninn hefur
fullgilda ástæðu til að hunsa þá.
Hann er blindur. Fyrir utan
skvaldrið verður gesturinn ekki
var við annað fólk fyrr en það
rekst á hann, oft með þeim af-
leiðingum að vín skvettist á fötin
og maturinn dreifist út um allt.
Gestunum er því ráðlagt að
klæðast gömlum fötum þar sem
þeir komast ekki hjá því að sóða
út. Parísarbúar setja þó ekki
sóðaskapinn fyrir sig og eftir-
spurnin er svo mikil að
eigandinn hyggst færa út kví-
amar.
Frá föstudegi
til sunnudags