Morgunblaðið - 29.07.1999, Blaðsíða 62
62 FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Blóðgjafar
og sumarfrí!
BÍLSLYS hafa krafist mikilla
fórna í mannslífum á ári hverju, en
með aðstoð íslenskra blóðgjafa er
hægt áð bjarga mörgum árlega.
Þrátt fyrir miklar forvarnir verða
alltof mörg bílslys hér á landi. í
mörgum þessara slysa eru áverk-
arnir þess eðlis að þörf er á blóði
og blóðhlutum til að bjarga lífi
sjúklingsins bæði í tengslum við
aðgerðir eða aðra meðferð. Bjarga
lífi segi ég, vegna þess að ekki væri
mögulegt að veita nútíma heil-
brigðisþjónustu án blóðgjafa.
Við bílslys eða önnur slys getur
mjög oft verið þörf mikilla blóð-
hluta. í sumum tilvikum getur
þurft blóð frá 1-200 blóðgjöfum
fyrir eitt fórnarlamb bílslyss! Það
er ótrúlegt en satt. I dag vitum við
ekki samanlagða tölu blóðhluta
sem ei-u notaðir við bflslys á Is-
landi, en það má varlega áætla að
það skipti hundruðum eininga, en
miklu líklegar meira
en þúsund einingar á
ári hverju.
Blóðgjafar - Iietjur
nútímans
En blóð er ekki bara
notað vegna slysa. Við
hverja blóðgjöf eru
blóðgjafar að gefa blóð
án nokkurra skilyrða,
gjöf öðrum til bjargar.
Þeir vita að það getur
komið að notum við
aðgerð á mjöðm mið-
aldra einstaklings sem
með því móti getur
orðið fullgildur þátt-
takandi í nútímaþjóð-
félagi eftir langa örorku. Það getur
verið sjúklingur með hjartasjúk-
dóm sem nær bata eftir hjartaað-
Sveinn
Guðmundsson
gerð. Það getur verið
lítill nýburi eða fyrir-
buri á Vökudeild sem
ekki nær heilsu nema
með blóðgjöf. Það get-
ur verið krabbameins-
sjúklingur í erfiðri
langtímameðferð. I
öllum tilvikum er blóð-
gjafinn að hjálpa öðr-
um að ná heilsu og í
mjög mörgum tilvik-
um að BJARGA
MANNSLÍFI.
Þú og þínir þurfa
kannski blóð!
Fyrir mikla ferða-
helgi eins og verslun-
armannahelgina er mikilvægt að til
séu birgðir blóðs til að svara mikilli
notkun. En mikilvægast er að allir
'S' VEÐURGLU6GINN©
oMgj
í veðurglugganum á www.esso.is getur þú skoðað veðrið
eins og það er einmitt þessa stundina á sex stöðum
á landinu: á Hvolsvelli, Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum,
Akureyri, ísafirði og í Reykjavík.
Þar er unnt að sjá hitastig, vindhraða og skýjafar á hálftíma
fresti síðustu 12 klukkustundirnar.
Nýjar Ijósmyndir
og nýjar tölur birtast á
hálftímafresti.
Renndu við á næstu þjónustustöð ESSO áður en þú
leggur í’ann. Þar færðu flest til ferðalagsins.
Olíufélagið hf
www.esso.is
hafi í huga afdrifaríkar afleiðingar
bflslysa, að allt sé gert til að fyrir-
byggja slysin. En þegar slysin
verða er óhugsandi að veita fórnar-
lömbunum nauðsynlega meðferð
nema með hjálp blóðs. Það telst því
til fyrirbyggjandi aðgerða að
áminna þjóðina að gefa blóð á
sumrin, en þá er almennt mjög
erfitt að fá nægilegan fjölda blóð-
gjafa.
Byrjið fríið á blóðgjöf
Við hvetjum landsmenn til að
gerast blóðgjafar, leggja sitt á vog-
arskálina svo að fómarlömb
bflslysa og aðrir sjúklingar fái
nauðsynlega meðferð. Á vissum
árstímum er mjög erfítt að ná til
landsmanna að koma og gefa blóð.
Við viljum hvetja landsmenn að
gefa blóð vikuna áður en þeir fara í
frí, gera það að sjáfsögðum undir-
búningi sumarleyfisins, eins og að
láta smyrja bflinn og telja saman
tjaldhælana! Eða taka fram sólar-
olíuna! Með því móti eru þeir að
hjálpa þeim sem liggja á sjúkra-
Lífgjöf
Við viljum hvetja lands-
menn, segir Sveinn
Guðmundsson, að gefa
blóð vikuna áður en
þeir fara í frí.
húsi og heyja baráttu fyrir lífi sínu
vegna sjúkdóma eða slysa. Getum
við þakkað betur fyrir heilbrigði
okkar en með því að leyfa öðrum
að njóta þess?
Við hvetjum ennfremur þá sem
koma úthvfldir úr sumarfríi og þrá
það helst að bretta upp ermarnar
og komast aftur í vinnuna, að koma
við í Blóðbankanum og gefa blóð.
Kaffið er alltaf á könnunni, nýlagað
og gott. Svo mætir ykkur glaðlynt
og gott starfslið okkar sem lætur
ykkur finna fyrir þakklæti. Þakk-
læti fyrir hönd sjúklinganna sem
þú bjargar.
Blóðgjöf er lífgjöf!
Gætið varúðar í umferðinni;
keyrið varlega og spennið beltin.
Taktu ábyrgð á sjálfum(ri) þér og
öðrum og keyrðu vai-lega. Gefðu
blóð. Gefðu líf. Taktu ábyrgð á
sjálfum(ri) þér og öðrum og vertu
blóðgjafi. Bjargaðu mannslífum!
Höfundur er yfirlæknir
Blóðbankans
MUNUM!
Barn má aldrei vera í framsæti
bíls með öryggispúða, hvorki í
barnabílstól né í sætlnu.
ÖNDUNARSÝNAMÆLAR
ný tæki lögreglu gegn ölvunarakstri
Eftir einn ei aki neinn!
MUNUM EFTIR
L( MYb Hámar eru mlflaði o o >
3GGÆSLU- IDAVÉLUNUM kshraðareglur ir vlð bestu aðstæður. |f XERÐAB