Morgunblaðið - 30.07.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.07.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 170. TBL. 87. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Leiðtogafundur í Sarajevo um stöðugleika á Balkanskaga Morgunblaðið/Jim Smart Blíðviðri á landinu Rík áhersla lögð á einangrun Serbíu Sar^jevo. Reuters. VEÐRIÐ hefur leikið við lands- menn að undanförnu og hafa fbúar höfuðborgarsvæðisins notið þess sérstaklega vel, þar sem sdlar- stundirnar hafa verið frekar fáar þar það sem af er sumri. Oft hefur því verið haldið fram að sólskinið hafi áhrif á sálarh'f landans og KÍNVERSK yfirvöld hafa gefið út handtökuskipun á hendur leið- toga Falun Gong, andlegrar hreyfingar sem hefur verið bönn- uð í Kína, og beðið alþjóðalögregl- una Interpol að aðstoða við hand- töku hans svo hægt verði að sækja hann til saka. Öryggismálaráðuneytið i Peking gaf út dreifibréf þar sem lýst er eftir Li Hongzhi, sem býr í New York, vegna meintra lögbrota hans. „Li skipulagði samkomur, mótmæli og aðrar aðgerðir til að bendir æði margt til þess að sú kenning eigi við rök að styðjast, a.m.k. verkuðu sólargeislarnir sem vítamínsprauta á krakkana sem léku sér í Laugardalslauginni í fyrradag, en þar hefúr verið margt um manninn síðustu daga og oft mikill ærslagangur. grafa undan lögum og reglu án þess að óska eftir heimildum eins og lög kveða á um,“ sagði í dreifi- bréfínu. Skrifstofa Falun Gong í New BANDARIKIN og Evrópusam- bandið kváðu í gær ríkt á um að Serbía yrði útilokuð frá áætlun, sem á að stuðla að friði og hagsæld á Balkanskaga, á meðan Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti væri þar við völd. Leiðtogar ríkja Evrópusam- bandsins ræddu við fulltrúa Balkanríkjanna í Sarajevo í gær og lögðu áherslu á að þau yrðu að leysa deilumál sín og hefja sam- starf sín á milli ef þau vildu ganga í Evrópusambandið. Leiðtogar um 40 ríkja - þeirra á meðal Bill Clint- on Bandaríkjaforseti og Sergej Stepashín, forsætisráðherra Rúss- lands - koma síðan saman í borg- inni í dag til að ræða stöðugleika- York gaf út yfirlýsingu þar sem handtökuskipunin var sögð „byggj- ast á fölsuðum sönnunargögnum". Bandaríska stjórnin var ennfremur hvött til að vemda Li og hvetja sáttmála, sem miðar að því að efla lýðræði, öryggi og efnahag ríkj- anna á Balkanskaga. Stjórnarandstæðingi boðið á fundinn í stað Milosevic Martti Ahtisaari Finnlandsfor- seti, sem stjómai- leiðtogafundinum fyrir hönd Evrópusambandsins, sagði að ékki hefði verið hægt að bjóða Milosevic á fundinn. „Þetta er vandamál fyrir serbnesku þjóð- ina,“ bætti hann við. Ahtisaari bauð hins vegar Drago- slav Avramovic, hugsanlegu forsæt- isráðherraefni serbnesku stjórnar- andstöðunnar, að sitja fundinn. Milo Djukanovic, forseti Svartfjallalands, sem er í júgóslavneska sambands- Kínverja til að leysa deiluna frið- samlega með viðræðum við leið- toga hreyfingarinnar. Bandarísk yfirvöld hafa sagt að þau hafi ekki í hyggju að framselja Li til Kína. Bandaríska dómsmála- ráðuneytið kvaðst í gær hafa feng- ið tilkynningu frá Interpol um beiðni Kínverja en tók fram að enginn framsalssamningur hefði verið gerður milli ríkjanna og Bandaríkjastjórn hefði hvatt Kín- verja til að refsa ekki fólki fyrir „friðsamlegar samkomur". ríkinu með Serbíu, verður einnig á fúndinum. Evrópusambandið deildi í gær við Rússa um hvernig fjalla ætti um Júgóslavíu í lokayfirlýsingu fundar- ins. Stjórnarerindrekar sögðu að ESB vildi að í yfirlýsingunni kæmi fram að Milosevic ætti sök á því að honum var ekki boðið á fundinn en Rússar hefðu hafnað því. Þeir töldu þó ekki að deilan stefndi stöðug- leikasáttmálanum í hættu. Ahtisaari hefur sagt að besta leiðin til að losna við Milosevic sé að veita Serbum mannúðaraðstoð eins og öðrum þjóðum á Balkanskaga. Bill Clinton Bandaríkjaforseti kvaðst í bréfi til forsætisráðs Bosníu hlakka til að eiga samstarf við nýju lýðræðisríkin á Balkan- skaga með það að markmiði að stuðla að lýðræðislegum breyting- um í Serbíu. „Mikilvægt er að leið- togafundurinn sýni fram á einangr- un Serbíu undir stjórn Milosevic en gefi fyrirheit um skjótar sættir þegar hann fer. Brýnt er að við sendum þau skilaboð að pólitískar umbætur í Belgrad treysti undir- stöður stöðugleika á öllu svæðinu.“ Ráðgert er að fundurinn í dag standi í tæpar þrjár klukkustundir og á meðal umræðuefnanna eru ráðstafanir til að auðvelda Balkan- ríkjunum að auka útflutning sinn. ■ 155 milljörðum/24 Herferð kínverskra stjórnvalda gegn hreyfíngunni Falun Gong Fyrirskipa hand- töku leiðtogans Blóðsúthellingar í Atlanta í Bandarfkjunum Byssumaður varð 12 manns að bana AP FÓLK hleypur frá skrifstofubyggingu í Atlanta og lögreglumenn grúfa sig niður við bíl eftir að byssumaður hdf skothríð í byggingunni. Þrjú lík fundust í úthverfinu Stockbridge eftir skotárásina í skrifstofubyggingunni. „Talið er að það séu eiginkona og tvö böm Bartons, en þær upplýsingar hafa ekki verið staðfestar," sagði Camp- bell. Lögreglan sagði að fjölskylda mannsins hefði flutt í íbúð í Stock- bridge nýlega. Talið er að konan og bömin hafi verið myrt fyrir nokkr- um dögum. Campbell sagði að Barton hefði orðið níu manns að bana í skrifstof- um tveggja verðbréfafyrirtækja en ekki væri ljóst hvers vegna hann hefði hafið skothríðina. Barton hafði stundað dagleg verðbréfavið- skipti hjá fyrirtækjunum í þrjá mánuði og að sögn Campbells mun hann hafa haft áhyggjur af því að hann hefði tapað á fjárfestingum sínum. „Vona að þetta eyðileggi ekki fyrir ykkur viðskiptin“ John Cabre, skrifstofumaður í byggingunni, sagði að árásarmaður- inn hefði gengið inn í eina skrifstof- una og sagt við starfsmennina áður en hann hóf skothríðina: „Eg vona að þetta eyðileggi ekki fyrir ykkur viðskiptin í dag.“ Cabre kvaðst hafa farið inn í skrifstofuna og séð þijá látna menn og fjóra særða. „Ég stumraði yfir einum þeirra en áttaði mig á því að hann var látinn. Ég fór því til ann- ars manns sem var með meðvitund og hringdi í konuna hans fyrir hann.“ Atlanta. Reuters. BYSSUMAÐUR hóf skothríð í skrifstofubyggingu í Atlanta í Bandaríkjunum í gærkvöldi og varð níu manns að bana og særði að minnsta kosti tólf til viðbótar, að sögn Bills Campbells, borgar- stjóra Atlanta. Þrjú lík fundust einnig í einu af úthverfum Atlanta síðar um kvöldið og að sögn Camp- bells var talið að það væru lík eig- inkonu mannsins og tveggja barna þeirra. Campbell sagði að árásarmaður- inn, 44 ára karlmaður, Mark Barton að nafni, hefði svipt sig lífí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.