Morgunblaðið - 07.08.1999, Síða 1
175. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogi þjóðernissinna í Serbíu varar Svartfellinga við aðskilnaði
Reykjarkóf yfir
Suðaustur-Asíu
Segir að her-
valdi kunni
að verða beitt
Belgrad. Reuters.
VOJISLAV Seselj, leiðtogi róttækra
þjóðemissinna í Serbíu, brást í gær
reiður við tillögu Svartfellinga um að
júgóslavneska sambandsríkið yrði
leyst upp og stofnað yrði laustengt
ríkjasamband Serbíu og Svartfjalla-
lands. Nokkrir stjórnmálamenn í
Svartfjallalandi hafa lýst tillögunni
sem fyrsta skrefínu í átt að sjálf-
stæði landsins en Seselj sagði að
júgóslavneska hernum yrði beitt ef
Svartfellingar reyndu aðskilnað.
Stjórn Svartfjallalands kynnti til-
löguna í fyrradag og samkvæmt
henni á laustengt ríkjasamband,
Samveldi Svartfjallalands og Serbíu,
að taka við af júgóslavneska sam-
bandsríkinu. Ennfremur er lagt til
að Svartfjallaland fái eigið vamar-
málaráðuneyti, utanríkisráðuneyti
og eigin gjaldmiðil.
Leiðtogi eins af svartfellsku
stjómarflokkunum, Zarko Rakcevic,
lýsti tillögunni sem „risastóra skrefi
í átt að sjálfstæði Svartfjallalands".
Filip Vujanovic, forsætisráðherra
Svartfjailaiands, sagði hins vegar að
nýja ríkjasambandið myndi ekki
jafngilda aðskilnaði frá Júgóslavíu.
Milo Djukanovic, forseti Svart-
fjallalands, hefur hótað að efna til
þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði
landsins ef stjómvöld í Belgrad sam-
þykkja ekki tillöguna innan sex
vikna. Júgóslavneskir ráðamenn
hafa ekki svarað tillögunni en talið
er nánast ömggt að Slobodan Milo-
sevic, forseti Júgóslavíu, hafni henni.
Vojislav Seselj, leiðtogi Róttæka
flokksins, sem hyggst ganga í stjórn-
ir Serbíu og Júgóslavíu, lýsti tillög-
unni sem „bulli og vitleysu". „Sam-
kvæmt stjórnarskrá Júgóslavíu hef-
ur hvorugt lýðveldanna rétt til að-
skilnaðar. Ef einhverjir reyna að-
skilnað með valdi ættu þeir að vita
hvað bíður þeirra,“ sagði Seselj.
Hann bætti við að stjórnvöld í
Belgrad myndu beita öllum tiltækum
ráðum, m.a. hervaldi, til að koma í
veg fyrir að júgóslavneska sam-
bandsríkið yrði leyst upp.
Hópflug
loftbelgja
IJM fímmtíu loftbelgir, fylltir
heitu lofti, tóku á loft frá
Bristol á Englandi þegar al-
þjóðleg loftbelgjahátíð var
sett þar í gærmorgun. Tugir
loftbelgja af öllum stærðum
og gerðum, meðal annars
„Veröld“ BBC og eftir-
líkingar af leikföngum, taka
þátt í hátíðinni sem stendur
í Qóra daga.
Yfirvöld í
Indónesíu
fyrir dóm?
Jakarta, Kuala Lumpur. Reuters. AP. AFP.
REYKJARKÓF liggur nú yfir stór-
um hluta Suðaustur-Asíu vegna
skógarelda í Indónesíu. Umhverfis-
vemdarsamtök hafa hvatt stjóm-
völd í nágrannaríkjunum, Malasíu,
Singapúr og Brúnei, til að draga yf-
irvöld í Indónesíu fyrir alþjóðadóm
vegna þessa, enda er slík reyk-
mengun orðin að kalla árviss við-
burður. Stjómvöld í Malasíu hafa
hætt að veita upplýsingar um
mengunina til að skelfa ekki er-
lenda ferðamenn.
Reykjarþoka liggur yfir stómm
hluta Indónesíu og hefur borist til
nágrannaríkjanna Malasíu, Singa-
púr og Brúnei. í Riau-héraði á
eynni Súmötm í Indónesíu, þar sem
ástandið er hvað verst, mælist loft-
mengun langt yfir hættumörkum.
Ibúamir þurfa að ganga með grím-
ur til að veijast reyknum og eru
hvattir til að halda sig innanhúss. I
Brúnei, sem deilir eynni Bomeó
með Indónesíu og Malasíu, er óttast
að reykmengunin muni spilla fyrir
Suðaustur-Asíuleikunum sem hefj-
ast eiga í dag.
Indónesíustjórn harðlega
gagnrýnd fyrir aðgerðaleysi
Reykurinn stafar af því að
bændur og skógarhöggsfyrirtæki,
einkum á Súmötm og í indónesíska
hluta Borneó, hafa lagt eld að
skógum til að vinna land til rækt-
unar og ábúðar. Indónesíustjóm
hefur verið harðlega gagnrýnd fyr-
ir að grípa ekki til nauðsynlegra
aðgerða til að sporna við þessu.
Reykjarkóf lagðist einnig yfir Suð-
austur-Asíu árin 1997 og 1998 af
þessum sökum. Reykurinn olli þá
mikilli mengun, hamlaði skyggni
og olli ferðaþjónustu í ríkjunum í
kring miklum skaða. Fjöldi fólks
þurfti að leita til læknis vegna ým-
issa kvilla, einkum óþæginda í önd-
unarfærum.
Reykjarmökkurinn hefur valdið
töfum á flugi síðustu daga. Sjó-
ferðayfirvöld hafa einnig varað við
hættu á slysum vegna lélegs
skyggnis á sundunum á þessu
svæði, einkum á hinu þrönga
Malakka-sundi milli Súmötm og
meginlands Malasíu.
Sérfræðingar spá því að eldamir
geti logað fram í október, eða þar til
þurrkatímabilið er á enda.
Eldgos í Níkaragva
YFIRVÖLD í Níkaragva Iýstu í
gær yfir hættuástandi í bæjum
og þorpum í grennd við eldfjallið
Cerro Negro eftir að það tók að
spúa eldi og eimyiju. Nokkrum
klukkustundum áður hófst hrina
jarðskjálfta sem mældust allt að
4,7 stig á Richters-kvarða.
Ekkert Iát var á skjálftunum i
gær og eldfjallið gaus ösku yfir
allt að 8 km langt svæði. Um
1.860 nianns höfðu verið fluttir
af svæðinu í gær og yfirvöld
töldu að rúmlega 4 000 manns til
viðbótar yrðu að fara þaðan ef
gosið færðist í aukana. Fjöl-
skylda er hér flutt úr þorpi um
10 km frá eldfjallinu.
Eldgosið hefúr ekki valdið
mannskaða eða tjóni. Cerro
Negro er virkasta cldfjall Ník-
aragva og er um 64 km norðvcst-
an við höfuðborgina, Managua.
Það spjó ösku yfir 240 ferkm
svæði árið 1992 og olli mörgum
bændum þungum búsiQum. Tjón-
ið var metið á andvirði 1,5 millj-
arða króna.
Reuters
SLOBODAN Milosevic Júgóslavíuforseti með 200 Serbum sem búa er-
lendis og eru í Belgrad í boði júgóslavnesku stjórnarinnar. Milosevic
falaðist í gær eftir aðstoð þeirra við enduruppbygginguna í Serbíu eft-
ir ellefu vikna loftárásir NATO og kvaðst ekki ætla að verða við kröfu
stjórnarandstöðunnar um að hann segði af sér.
Innanríkisráðherrann
hótar að beita valdi
Einn af leiðtogum serbnesku
stjórnarandstöðunnar, Zoran Djind-
jic, sagði í gær að ekki væri tíma-
bært að ræða tillögu Svartfellinga
fyrr en Milosevic léti af embætti.
Hann kvaðst hafa áhyggjur af því að
tillagan gæti spillt fyrir tilraunum
stjómarandstöðunnar til að steypa
Milosevic af stóli.
Vlajko Stojiljkovic, innanríkisráð-
herra Serbíu, varaði serbneska
stjórnarandstæðinga við því að hann
kynni að fyrirskipa lögreglunni að
beita valdi til að kveða niður mót-
mæli þeirra ef þeir reyndu að grafa
undan stjóm Milosevic.
Júgóslavneski forsetinn tjáði sig í
gær í fyrsta sinn opinberlega um þá
kröfu stjórnarandstöðunnar að hann
segði af sér og kvaðst ekki ætla að
láta undan þrýstingi hennar. Hann
sagði að kröfur stjómarandstöðunn-
ar væm runnar undan rifjum NATO,
sem hefði fengið spillta stjórnmála-
menn og flokka í Serbíu til liðs við
sig til að ná þeim markmiðum sem
ekki hefðu náðst með því að varpa
„22.000 tonnum af sprengjum“ á
landið.
Reuters
Ottast veik-
indi verði
hann ekki
í framboði
London. The Daily Telegraph.
KEN Livingstone, sem berst
fyrir því að verða tilnefndur
frambjóðandi Verkamanna-
flokksins fyrir borgarstjóra-
kosningarnar í London á næsta
ári, segir að mikið þung-
lyndiskast muni ríða yfir hann
standi Tony Blair forsætisráð-
herra í vegi fyrir tilnefningu
hans.
Óvenjuleg beiðni Livingston-
es, um að honum verði leyft að
bjóða sig fram á grundvelli
heilbrigðissjónarmiða, kemur í
kjölfar frétta um að Blair hygg-
ist gera allt sem í hans valdi
stendur til að koma í veg fyrir
tilnefningu Livingstones, sem
kemur úr vinstri armi Verka-
mannaflokksins.
Livingstone segir í viðtali við
vikuritið The New Statesman
að verði lagður steinn í götu
hans sé hætta á að hann fái
slæmt kast af húðsjúkdómnum
psoriasis. Greinir hann jafn-
framt frá því að hann hafi
fengið mikil þunglyndisköst
þegar á móti hafi blásið í
stjórnmálunum.
Livingstone, sem setið hefur á
þingi í tólf ár, fullyrti hins vegar
að yrði komið í veg fyrir fram-
boð hans á vegum Verkamanna-
flokksins myndi hann ekki bjóða
sig fram sem óháður. Kvaðst
hann vilja sitja í ríkisstjóm og
hann myndi sýna Blair fulla
hollustu byði forsætisráðherr-
ann honum ráðherrastól.