Morgunblaðið - 07.08.1999, Page 2
2 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Minnisvarði
afhjúpaður
í Hákonar-
lundi
GUÐRÚN Bjarnason, ekkja
Hákonar Bjarnasonar, fyrrver-
andi skógræktarsljóra, og
Böðvar Guðmundsson, skógar-
vörður á Suðurlandi, afhjúp-
uðu í gær minnisvarða um Há-
kon Bjarnason í skógarlundi
sem kenndur hefur verið við
hann og nefndur Hákonarlund-
ur í landi Skógræktar ríkisins í
Haukadal. Sigurður Blöndal,
fyrrverandi skógræktarstjóri,
minntist Hákonar við athöfn af
því tilefni og sagði að hann
hefði með eigin hendi sáð fræj-
um birkiskógar sem myndar
lundinn og tuttugu árum síðar
hefði sitka-greni verið gróður-
sett í lundinum.
„Mér er óhætt að segja að af
öllum þeim tijátegundum sem
Hákon flutti til landsins hafí
sitka-grenið staðið hjarta hans
næst,“ sagði Sigurður. „Hvergi
á Islandi veit ég það mikilfeng-
legra en í þessum lundi. Hon-
um þótti líka vænt um íslensku
björkina og enginn hefur sýnt
Islendingum í dýrara máli en
hann hvers virði björkin er ís-
lensku gróðurríki og hvílíkur
skjöldur hún er íslenska
fokjarðveginum.“
■ Tímabært/l 1
Morgunblaðið/KG
Lögum ekki
breytt í snarhasti
FINNUR Ingólfsson iðnaðar- og við-
sldptaráðherra segir að í gildi séu ný
lög um kauphallir og menn hlaupi ekki
til og breyti þeim í snarhasti. „Það er
með þessi lög eins og mörg önnur að
það kemur ýmislegt upp þegar reynir
á þau í framkvæmdinni. Við munum
innan einhvers tíma taka það til nán-
ari skoðunar," segir Finnur.
Hann segir að enginn eðlismunur
hafi orðið í jafnvægi innan Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins þótt 22,1%
hlutur Scandinavian Holding hafi
verið seldur Orca S.A. og síðartalda
félagið jafnframt eignast aðra hluti í
bankanum þannig að eignarhluti
þess sé nú orðinn 26,5%. „I báðum
tilfellum er um að ræða félög skráð
erlendis."
Hann segir að stjómvöld hafi gert
sér grein íyrir því í upphafi þegar
ákveðið var að selja 49% hlut ríkisins
í FBA að þar með væri ríkið að af-
sala sér ákveðnu valdi sem það hafði
yfir íyrirtækinu. „Þess vegna kemur
það mjög skýrt fram í útboðslýsing-
unni að ríkið ætlar að selja allt fyrir-
tækið á árinu 1999 og þá með hvaða
hætti við ætlum að selja, þ.e. í
dreifðri sölu til þess að tryggja sjálf-
stæði bankans áfram á samkeppnis-
markaði," segir Finnur.
Hann segir óákveðið hvenær á ár-
inu hlutur ríkisms verði boðinn út en
unnið sé að undirbúningi þess í ráðu-
neytinu.
■ Gkki bein/10
Verðandi brúður
slasaðist töluvert
TUTTUGU og fjögurra ára gömul
stúlka slasaðist talsvert mikið á sjö-
unda tímanum í gærkvöldi, þegar ek-
ið var á hliðarvagn mótorhjóls sem
hún var farþegi í. Stúlkan ætlar að
gifta sig bráðlega og var aksturinn á
hjólinu hluti af svo kölluðu „gæsa-
partíi“, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu í Reykjavík. Ökumaður
hjólsins, tæplega fertugur karlmað-
ur, fótbrotnaði í slysinu.
Mótorhjólinu með hliðarvagninum
var ekið vestur Bústaðaveg um
klukkan 18.15 og ætlaði ökumaður
þess að flytja stúlkuna niður í Naut-
hólsvík. Talið er að bifreið sem ók
samhliða hjólinu í sömu aksturs-
stefnu hafi rekist á hliðarvagninn
með fyrrgreindum afleiðingum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur var stúlkan
talsvert slösuð en ekki talin í lífs-
hættu. Meðal annars hlaut hún bein-
brot á fæti og upphandlegg, auk þess
sem grunur lék á, að hún hefði
mjaðmagrindarbrotnað. Hún gekkst
undir rannsókn á sjúkrahúsinu í
gærkvöldi.
Ferð sögufrægrar flugvélar heim á leið tefst
Stélhjól brotnaði í flugtaki
STÉLHJÓL Douglas DC-2 „Uiver“
flugvélar frá fjórða áratugnum, sem
hefur haft viðdvöl hérlendis síðan á
þriðjudag, brotnaði í gærmorgun
þegar vélin ætlaði að hefja sig til
flugs. Slökkviliðið á Keflavíkurflug-
velli var kallað til en engin hætta
var á ferðum að sögn Karenar Sell-
ers, hjá upplýsingaskrifstofu varn-
arliðsins. Brottför vélarinnar, sem
fljúga átti til Skotlands og þaðan til
Hollands, tefst hins vegar, senni-
lega fram yfir helgi.
„Hjólið brotnaði í flugtaki með
þeim afleiðingum að öruggast þótti
að lenda vélinni samstundis. Það
var gert án teljandi erfiðleika og er
ekki talið að áhöfnin eða farþegarn-
ir, sem eru að gera heimildarmynd
um för vélarinnar, hafi verið í
hættu. Nú hefur verið haft samband
við aðila víðs vegar um heim í leit að
varahlutum til að hægt sé að gera
við vélina og halda ferðinni áfram,“
segir Karen.
Kostar um 53 milljónir
Hollenska flugminjasafnið, sem
staðsett er á Schiphol-flugvelli við
Amsterdam, hefur vélina á leigu og
hefur jafnframt samið um að geta
eignast hana, náist að safna nægum
fjármunum fyrir lok októbermánað-
ar. Vélin er í eigu bandarísks aðila,
Colgate Darden, sem er fús til að
selja hana fyrir 1,5 milljónir hol-
lenskra gyllina, eða um 53 milljónir
íslenskra króna.
Douglas DC-2 „Uiver“ flugvélin
er fræg í flugsögunni. Hún ávann
sér frægð árið 1934 þegar vél af
þessari tegund flaug langflug frá
Amsterdam til hollensku Austur-
Indía. Tíu árum eftir fyrsta lang-
flugið frá Amsterdam til Batavia,
sem nú kallast Jakarta í Indónesíu,
skráði KLM-flugfélagið sig í
MacRobertson-flugkeppnina, sem
var á milli London og Melbourne í
Ástralíu, og notaðist við fyrstu Dou-
glas DC-2 vélina í Evrópu, en hún
var kölluð „Uiver“. Vélin bar sigur-
orð af keppinautum sínum, þar á
meðal breskum vélum, DH-88
Comets, sem smíðaðar voru sér-
staklega fyrir kappflug, og tryggði
sér þannig frægðarorð sem hún hef-
ur borið síðan.
Undanfarin ár hefur Hollenska
flugminjasafnið leitað víðs vegar um
heiminn að flugvél af þessari teg-
und, til að bæta í safn sitt. Fyrsta
„Uiver“ vélin brotlenti í eyðimörk í
Sýrlandi í desember 1934, meðan á
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
STARFSMENN Keflavíkurflugvallar
huga að skemmdum stélhjóls Douglas
DC-2 „Uiver“ flugvélarinnar síðdegis í
gær.
öðru langflugi hennar til
hollensku Austur-Indía
stóð, og varð því að finna
aðra vél.
Eina flughæfa
vélin
í ljós kom að aðeins ein
vél var til í heiminum í
flughæfu ástandi og þegar
haft var samband við eig-
andann til að semja um
leigu á henni, kom í ljós að
hann var reiðubúinn að
selja vélina fyrir áður-
nefnda upphæð.
Safnið hyggst sýna vél-
ina á viðamikilli flugsýn-
ingu sem nefnist Hollend-
ingurinn fljúgandi í 90 ár,
og efna til mikils söfnunar-
átaks til að geta fest kaup
á henni þegar vélin kemst
til Hollands. Átakið, „Uiv-
er heim aftur“, á að ná há-
marki fyrir 80 ára afmæli
konunglega hollenska flug-
félagsins, KLM, í október,
en þá rennur einnig út
fresturinn sem seljandinn
hefur veitt safninu til að
ganga frá kaupunum.
Víkurvegi
lokað í
13 daga
FRÁ og með mánudeginum 9.
ágúst til sunnudagsins 22.
ágúst, eða í 13 daga, verður
Víkurvegur í Grafarvogi lok-
aður við hringveg nr. 1 (Vest-
urlandsveg) við Keldnaholt.
Við það lokast akstursleiðir
í og úr Grafarvogi um Víkur-
veg. Vegfarendum er bent á
að aka um Höfðabakka og
Gullinbrú á meðan, segir í
fréttatilkynningu frá gatna-
málastjóra.
Lést í Kaup-
mannahöfn
MAÐURINN sem lést í Kaup-
mannahöfn þegar hann féll af hjóli
og varð undir strætisvagni hét Jör-
undur Finnbogi Guðjónsson, 51 árs
gamall.
Hann lætur eftir sig eiginkonu
og fjögur uppkomin börn. Jörund-
ur hafði verið búsettur í Kaup-
mannahöfn um tveggja ára skeið
en áður starfaði hann um árabil
sem sviðsstjóri hjá Leikfélagi
Reykjavíkur.
I
Sérblöð í dag
leSÍDUR
ÁLAUGARDÖGUM
W FOTIi^T/
LTjöDOiv
Vallarmet hjá Erni Ævari
á Hvaleyri / B1
Fylkir rak af sér
slyðruorðið / B8
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
t
I