Morgunblaðið - 07.08.1999, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
JÓHANN R. Skúlason á Feng frá íbishóli þykir vera kominn með aðra höndina á tölthornið eftir góða
frammistöðu í forkeppninni og hefur hann gott forskot á Walter Feldmann sem er í öðru sæti.
Fjögur gull í augsýn
og fímmta mögulegt
FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, heiðraði heims-
meistaramótið með nærveru sinni í gær og er hann hér ásamt dr. Hans
Wagner, sýslumanni Amberg Sulzbach-sýslu, lengst til vinstri, og
Wolfgang Berg, formanni þýska Islandshestasambandsins. Ólafí á
vinstri hönd eru Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og EUert B.
Schram, forseti ISI.
BRÚNIN er farin að lyftast á land-
anum eftir góðan dag á heimsmeist-
aramótinu í Kreuth í Þýskalandi. Jó-
hann R. Skúlason á Feng frá íbishóli
er kominn með afar góða stöðu í tölt-
inu, er með gott forskot á Walter
Féldmann, Þýskalandi, sem keppir á
Bjarka frá Áldenghoor og er í öðru
sæti. Heimsmeistarinn Vignir Sig-
geirsson á Þyrli frá Vatnsleysu var
ekki með sannfærandi sýningu en
hlaut þó ágætar einkunnir og má
segja að dómararnir hafi farið mjúk-
um höndum um þá félaga. Þeir höfn-
uðu í fjórða sæti og því verða í það
minnsta tveir Islendingar í A-úrslit-
um.
Olil Amble er á næstu grösum
með Kjarkinn sinn, í sjötta sæti, að-
eins 0,03 frá A-úrslitum og með
ágætt forskot á næstu keppendur
sem eru Ásgeir Svan Herbertsson
með Farsæl frá Arnarhóli og Irene
Reber, Þýskalandi, á Kappa frá
Álftagerði með 6,83. Er því óhætt að
veðja á þrjá íslendinga í A-úrslitum
á sunnudag. Áfram halda hrakfarir
Jolly Schrenk og Ófeigs en þau urðu
í ellefta sæti eins og í fjórgangi og
má segja að veldi Ófeigs sé nú hrun-
ið og líklega erfitt að byggja það upp
aftur en þau hafa átt góða daga sam-
an og unnið marga glæsta sigra.
Hollensk stúlka á Gróttu frá Litlu-
Tungu kom verulega á óvart í gær
þegar hún reið sig inn í A-úrslitin í
töltinu og er líklega ár og dagur síð-
an Hollendingur hefur komist svo
langt. Þá endurtók Reinhardt Loidl,
Austuríki, leik sinn frá síðasta móti
og tryggði sér sæti í A-úrslitum á
hryssunm Auði frá Eystra-Fíflholti.
Staða Islendinga hefur vænkast
verulega á heimsmeistaramótinu í
Kreuth eftir gærdaginn. Brúnin er
farin að lyftast á landanum því nú
þegar er farið að glitta í gullverð-
launin og sagði Sigurður einvaldur
að þau yrðu fímm talsins, nokkuð
trygg í fjórgangi og tölti, að heita
mætti pottþétt í samanlögðu og
skeiðinu. Þrátt fyrir að núverandi
heimsmeistari í fimmgangi, Karly
Zingsheim, sé efstur eins og stendur
velkist Sigurður ekki í vafa um að
þar muni Auðunn tryggja gullið á
Baldri frá Bakka.
SIGURBJÖRN og Gordon á hinum ótrúlega metspretti í gær þar sem
þeir fóru einir síns liðs því Logi Laxdal og Freymóður fóru á kýrstökki
og drógust verulega aftur úr.
UNGU mennimir voru atkvæðamiklir í fagnaðarlátunum sem seint
ætlaði að linna.
Sigurbjörn og Gordon í góðri uppsveiflu
Ötrúlegt heimsmet
í 250 metrunum
SVEIFLURNAR hjá íslenska liðinu
eru ótrúlegar, gærdagurinn var
hreint ótrúlegur þegar Sigurbjöm
setti nýtt heimsmet í 250 metra skeiði
á Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, tíminn
hreint ótrúlegur, 21,12 sekúndur.
Þeir félagar voru með langbesta tím-
ann eftir fyrri umferð, 21,7 sek., svo
líklegt þótti að gamli refurinn Sigur-
bjöm myndi heldur bæta við en sigl-
ingin á þeim í fyrri sprettinum var
ógurleg, svo rnikil að menn héldu að
hann stykki upp í næsta skrefi.
En það var Logi sem gaf tóninn í
fyrsta spretti skeiðsins þar sem hann
og Freymóður fóm sóló á 22,4 sek.
Vakti þessi sprettur góðar vonir og
fóm einir fjórir hestar á tímum undir
23 sekúndum en enginn náði Loga og
Freymóði fyrr en Sigurbjörn og Gor-
don í síðasta spretti fyrri umferðar.
Það þýddi að þeir félagar Logi og
Sigurbjöm færa saman síðasta
sprett annarrar umferðar. Sigur-
bjöm var að berjast við Aðalstein
Aðalsteinsson og Höskuld Aðal-
steinsson um samanlagðan sigurveg-
ara mótsins. Spennan var mikil fyrir
sprettinn og þegar ræst var komu
Sigurbjörn og Gordon út úr boxinu á
ofsahraða á góðu stökki. Þrjú stökk
og svo small hann niður, sagði Sigur-
bjöm, en Freymóður fór á kýrstökki
svo Logi var í vandræðum og dróst
aftur úr. Fóra Sigurbjörn og Gordon
því keppnislaust brautina en þrátt
fyrir það á þessum mikla hraða.
Þessi sprettur sýnir best hversu mik-
ilvægt er að ná góðri ræsingu ef ríða
á til afreka en ætla má að tíminn
hefði orðið enn betri ef þeir hefðu
fengið einhverja keppni.
Um áreiðanleika tímatökunnar
þarf vart að efast, rafræn tímataka
og handræn. En þessi stórglæsilegi
árangur Sigurbjörns lyftir móralnum
verulega upp enda svo sannarlega
þörf fyrir það. Ekki leið þó dagurinn
án áfalla því Logi Laxdal var dæmd-
ur úr leik vegna of þungra hófhlífa.
Staðgengill páfa
í fríi á íslandi
BERNARDIN Gantin
kardínáli, yfirmaður
kardinálasamkund-
unnar í Róm og stað-
gengill páfa, er vænt-
anlegur til íslands á
morgun. Gantin mun
dvelja hér í þrjár vik-
ur í friói, en líklegt er
að hann muni messa í
Landakotskirkju.
Gantin, sem er 77
ára að aldri, er fædd-
ur og uppalinn i
Benín í Vestur-Af-
ríku. Þar gegndi
hann um skeið stöðu
erkibiskups, en hélt
síðan til Rómar þar sem hann
hefur verið í um þrjátíu ár. Árið
1977 varð hann kardínáli,
gegndi eftir það ýmsum trúnað-
arstörfum og var árið 1993
kjörinn yfirmaður kardínála-
samkundunnar. Því starfi fylgir
að hann er staðgengill páfa.
Gantin kom til íslands í heim-
sókn árið 1996 og
skipaði þá formlega
Jóhann Gisjen í
embætti Reykjavík-
urbiskups. Séra
Ágúst Georg, prest-
ur í Landakots-
kirkju, segir að
honum hafi líkað
dvölin svo vel að
hann hafi ákveðið
að eyða fríinu sínu
hér á landi.
Séra Georg segir
að ekki sé Ijóst
hvort Bantin muni
ferðast um landið,
en líklegt er að
hann messi í Landakotskirkju.
Að öllum líkindum mun hann
aðallega dvelja hjá St. Jósefs-
systrum í Stykkishólmi. „Bróðir
hans vann með systrum úr sömu
reglu í Kongó í Afríku og þess
vegna hefur hann haft mikið
samband við þær,“ segir séra
Georg.
BERNARDIN Gant-
in kardi'náli.
Samanburður á iðgjöldum ábyrgðartryggingar algengs fólksbfls
Forsendur: Toyota Corolla 1997 með algengustu vélarstærð (milliflokkur). Ökumaður 25 ára og eldri. Innifalið er ábyrgðartrygging,
slysatrygging ökumanns og framrúðutrygging. Tryggingataki hefur ekki önnur viðskipti við tryggingafélagið. Tryggingamiðstöðin,
VIS og Sjóvá-Almennar bjóða þeim viðskiptavinum afslátt sem einnig hafa aðrar tryggingar hjá félögunum.
Reykjavík
lægsta iðgjald
(70-75% bónus)
39.991 41.016 42.118
Reykjavík
30% bónus
92.380
94.937
97.357
Egilsstaðir
lægsta iðgjald
(70-75% bónus)
52.826
28.310
0
32.062 32.800 33.824
22.838
-
Egilsstaðir
30% bónus
71.699
73.596
m ð 'fr®
a
Samanburður á iðgjöldum leiðréttur
NOKKRAR villur vora í samanburði
á iðgjöldum bifreiðatrygginga sem
birtust í blaðinu í gær. Upplýsingar
sem bárust frá Tryggingamiðstöðinni
vora byggðar á röngum forsendum.
Þar var reiknað með 8% afslætti sem
fæst ef keyptar era fleiri tryggingar,
en í samanburðinum er gert ráð fyrir
að bíleigandinn eigi ekki í öðram við-
skiptum við tryggingafélagið.
Ósamræmi var milli efri og neðri
töflunnar vegna þess að láðst hafði að
breyta upphæðum í neðri töflunni í
samræmi við verðbreytingar síðustu
vikna.
Beðist er velvirðingar á þeim mis-
tökum sem urðu við vinnslu töflunn-
pnpr