Morgunblaðið - 07.08.1999, Síða 16

Morgunblaðið - 07.08.1999, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Olafur bæjarstjóri hljóðritar djass í félagsheimilinu Morgunblaðið/Gunnar Hallsson HRÓLFUR Vagnsson situr við hliðina á Ólafi Krisljánssyni, fyrir aftan stendur Bjarni Sveinbjörnsson og Pétur Gretarsson. Bolungarvík - Hrólfur Vagnsson, tónlistarmaður og hijóðtæknimað- ur í Hannover í Þýskalandi, hefur undanfarna daga unnið að því að hljóðrita djassplötu með Ólafi Kri- stjánssyni, bæjarstjóra í Bolung- arvík, þar sem Ólafur leikur 14 djasslög ásamt þeim Pétri Gretar- syni, sem Ieikur á trommur, og Bjarna Sveinbjörnssyni, sem leik- ur á bassa, en einnig syngur dótt- ir hans, Edda Borg, með þeim fé- lögum í tveimur Iögum. Upptakan fór fram í félagsheimilinu Víkur- bæ hér í Bolungarvík. Hrólfur Vagnsson, sem er Bol- víkingur, hefur búið í Þýskalandi í mörg ár eða allt frá því að hann fór ungur til náms í harmonikku- leik eftir að hafa stundað nám við Tónlistarskóla Bolungarvíkur þar sem Ólafur Kristjánsson var þá skólastjóri og kennari hans. Að loknu einleikaraprófi frá Tónlistarháskóla í Hannover hóf Hrólfur að fást við hljóðupptökur og stofnaði eigið stúdíó, Tón- studio Vagnsson fyrir tíu árum og fyrir um þremur árum stofn- aði hann síðan útgáfufyrirtækið Cordaría. Ólafur Kristjánsson er tón- menntakennari að mennt og var um árabil skólastjóri Tónlistar- skóla Bolungarvíkur eða þar til hann tók við starfi bæjarstjóra Bolungarvíkur árið 1986. Olafur er ekki með öllu óþekktur djass- isti þó að ekki hafi hann haft sig mikið í frammi á því sviði. Um aðdraganda þess að hljóð- rita djassplötu með Ólafi sagði Hrólfur að þótt það væru sannar- lega margir sem vissu að Ólafur væri frábær djasspianisti þá væri ástæða til að vekja frekar athygli á því, en hugmyndin um að gefa út plötu með Ólafi hafi kviknað er hann var staddur í heimsókn hjá móður sinni í Bolungarvík í fyrra þá hafi hún nefnt það við sig að það mætti bara ekki ger- ast að tónlistarmaður á borð við Ólaf hyrfi héðan án þess að náðst hefði að varðveita tónlist hans á hljómdiski. _ Hrólfur ræddi hugmyndina við Ólaf sem tók treglega í málið en ákvað þó um síðir að slá til, meira sér til gamans. Hrólfur sagði að þótt segja mætti að hann hefði fengið Ólaf í þetta þá væri hann síður en svo að hefna sín á honum fyrir alla spilatimana sem hann sat í hjá honum áður fyrr og langað oft til að gera eitthvað annað. Reyndar ætlaði hann einu sinni að hætta í harmonikkunáminu hjá Ólafi og skilaði honum ölium nótnabókun- um með þeim orðum að hann kæmi aldrei aftur í spilatima. Stuttu seinna barst honum sendi- bréf frá Ólafi sem var slík hvatnig að hann var mættur í næsta spilatíma. Það er mér hins vegar mikil ánægja að fá að hljóiðrita og gefa út hljómplötu með Ólafi Krist- jánssyni. Ákveðið var að Hrólfur kæmi með upptökubúnað heim til Bol- ungarvíkur og upptakan færi fram í Víkurbæ en þar er afar góður Steinway-flygill. Hrólfur sagði að aðstaðan í Víkurbæ væri ekki mjög góð til hljóðupptöku, en með smátilfæringum mátti við það una en á móti kom að þar var Ólafur svo sannalega á heimavelli enda tóku upptökurn- ar mun styttri tíma en ætlað var. Það er útgáfufyrirtæki Hrólfs, Cordaria, sem gefur hljómdiskinn út, ekki hefur verið ákveðið hvað hann verður látinn heita. Stefnt er að því að hann verði kominn á markað fyrir lok október. Valgerður Gunnars- dóttir ráðin skólameistari á Laugum Laxamýri - Valgerður Gunnarsdótt- ir, deildai-stjóri við Framhaldsskól- ann á Húsavík, hefur verið ráðin skólameistari Framhaldsskól- ans á Laugum. Valgerður er uppalin á Dalvík, en hefur búið á Húsavík frá ár- inu 1982 og starfað sem ís- lenskukennari við framhalds- skólann frá 1987. Hún er með BA-próf í íslenskum fræðum og almennum bókmenntum auk þess sem hún útskrifaðist í kennslu- og uppeldisfræðum frá Háskólanum á Ákureyri 1996. Valgerður sat í bæjarstjóm Húsavíkur 1986-1998 og var forseti bæjarstjómar 1994-1996. Þá hefur hún setið í ýmsum nefndum á veg- um bæjarins, sérstaklega í fræðslu- og menningarmálum. Eiginmaður hennar er Örlygur Hnefill Jónsson lögfræðingur og eiga þau þrjú böm, eina dóttur og tvo syni. Valgerður Gunnarsdóttir Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason SVEINN Ingi Lýðsson sölustjóri og Siguijón Jónsson, framkvæmda- stjóri Rækjuness, fyrir framan nýja frystibílinn sem mun dreifa nýju flýtiréttunum sem hafin er framleiðsla á hjá fyrirtækinu. Framleiðsla hafín á „Fljótt og létt“ í Stykkishólmi Stykkishólmi - Rækjunes hf. í Stykkishólmi hefur fært út kvíarn- ar í starfsemi sinni og hafið fram- leiðslu á tilbúnum réttum, frosnu grænmeti og frönskum kartöflum undir vörumerkinu „Fljótt og létt“. Þessi framleiðsla fór fram áður á Reyðarfirði og var allur útbúnaður keyptur þaðan. Sveinn Ingi Lýðs- son, fyrrverandi lögreglumaður í Stykkishólmi, hefur verið ráðinn sölu- og markaðsstjóri. Hjá Rækjunesi hf. er unnin skel. Vandamál fyrirtækisins er að sú vinnsla er ekki starfrækt nema hluta ársins. I viðtali við fréttaritara sagði Sveinn að tilgangurinn með að fara út í þessa framleiðslu væri að auka verkefni hjá fyrirtækinu sem verð- ur kærkomin viðbót við skelina. „Með framleiðslu á tilbúnum réttum getum við nýtt betur mannskapinn, þekkingu og reynslu og húsnæðið er fyrir hendi. Starfsöryggi starfs- fólks verður tryggara," sagði Sveinn. Hann sagði að hráefnið kæmi frá virtum aðilum í Belgíu og Hollandi. Allur vélbúnaður hefur verið settur upp og framleiðsla haf- in. Sveinn sagði að verið væri að hanna nýjar umbúðir. Fram að þessu er aðalmarkaðurinn á Aust- fjörðum og í Reykjavík. „Við mun- um strax leggja áherslu á að auka og stækka markaðssvæðið og fjölga viðskiptavinum og styrkja okkur í sessi,“ sagði Sveinn. Flýtiréttir er betra nafn en skyndiréttir „Það er meining í þessum orðum, fljótt og létt. Það er fljótlegt og auð- velt að matreiða réttina, þar sem hollusta og gæði eru ríkjandi. Við viljum ekki kalla þetta skyr.dirétti, því það hefur á sér neikvæða merk- ingu í hugum margra. Við kjósum að kalla framleiðsluna ílýtirétti," sagði Sveinn Ingi. „Farið verður í öflugt kynningar- starf á næstunni. Áhersla verður lögð á að þjónusta viðskiptavini eins vel og hægt er og til þess hefur verið keyptur nýr frystibíll sem mun þjóna Vesturlandinu. Þannig er hægt að tryggja að viðskiptavin- urinn fái vöruna í eins góðu ástandi og kostur er,“ sagði Sveinn Ingi að lokum. Málað í Mjóafírði Morgunblaðið/Ágúst Blöndal VILHJÁLMUR Hjálniarsson að störfum. Neskaupstað - Nýlega þegar fréttaritari átti leið um Mjóaijörð í einstaklega góðu veðri kom hann að þar sem fyrrverandi al- þingismaður og ráðherra, Vil- hjálmur Hjálmarsson, var að mála fiskverkunarhús þeirra Brekkumanna. Húsið hefur gegnt ýmsum hlutverkum í gegnum tíðina, m.a. var þar sláturhús og þar voru mannfagnaðir haldnir þegar þeir voru of fjölmennir fyrir skóla- húsið í Brekkuþorpi. Húsið hefur einnig gegnt hlutverki líkhúss ef slysfarir urðu hér á árum áður, þar hefur verið söltuð sfld á sfld- arárunum og nú er þar saltfisk- verkun og aðstaða til bflavið- gerða. Trúlega hefur ýmis önnur starfsemi farið fram í húsinu en þessi sem hér er getið og kom fram í stuttu spjalli fréttaritara við Vilhjálm. Morgunblaðið/Ingimundur BRIMRÚN, skip Eyjaferða í Stykkishólmi, kom við í Borgarnesi fyrir skömmu, en þar hefur skip ekki lagst að bryggju í rúman áratug. Skipakoma í Borgarnesi Borgarnesi - Fyrir skömmu lagðist Brimrún, skip Eyjaferða í Stykkis- hólmi, að bryggju í Borgamesi. Inn- anborðs var fólk frá Norræna fjár- festingabankanum með Jón Sig- urðsson fyrrverandi iðnarráðherra í broddi fvlkingar. Siglt hafði verið um Breiðafjörð og Faxaflóa en gest- ina fýsti að koma við í Borgarnesi. Skipakoma í Borgarnesi telst til tíðinda. Að sögn kunnugra er liðið nokkuð á annan áratug síðan síð- asta skipið sigldi inn Borgarfjörð og lagðist að bryggju í Borgamesi. Eftir að Borgarfjarðarbrúin var byggð breyttust straumar í höfninni og hefur hún grynnkað mjög. Eitt af síðustu skipunum sem komu til Borgarness fyrir u.þ.b. 15 árum strandaði raunar við bryggjuna á útfallinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.