Morgunblaðið - 07.08.1999, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ VIKU LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 29
lll U LM
klettaveggjum á flesta vegu. Eru
þær að líkindum ævaforn gígvötn,
sem fróðlegt og gaman er að skoða.
Undrin á Baulárvöilum
Suðvestan við Baulárvallavatn
stóð bærinn Baulárvellir, þar sem
búið var langt fram á síðustu öld. Af-
skekkt hefur það kot verið, minnst
tveggja stunda gangur til næsta
bæjar og vetrarríki mikið uppi á há-
heiði. Þar gerðust þau miklu undur á
jólaföstu, líklega árið 1838, að
skrímslið, sem talið var hafa aðsetur
í vatninu, braut niður á einni nóttu
næstum öll bæjarhúsin og muldi þau
mélinu smærra. Þá var Kristín hús-
freyja Þórðardóttir ein heima með
dóttur sinni, Kristjönu, 8 ára, en
húsbóndinn, Jón sundmann Sigurðs-
son, var á ferðalagi. Má geta nærri
hve skelfileg angist þeirra mæðgna
hefur verið þegar ósköpin dundu yf-
ir, að vita sig einar lengst uppi á
fjöllum ' ói’aíjarri allri mannlegri
hjálp. í þá daga trúði fólk ekki öðru
en þarna væri að verki stórháskaleg
forynja, sem engu eirði, hvorki
mönnum né skepnum.
Þótt nútímafólk trúi ekki tiiveru
skrímsla og finni þá skýringu helsta
á atburðum þessum, að þeir hafi ver-
ið af mannavöldum, þá var sú hugs-
un áreiðanlega víðs fjarri þeim
mæðgum. Hefur líklega sjaldan eða
aldrei verið beðið jafn heitt og inni-
lega um náð og miskunn Guðs, sér
og sínum til handa, en af þessari um-
komulausu konu í lágreista moldar-
bænum á miðri Vatnaheiði þessa
löngu og hræðilegu vetrarnótt. Trú-
arstyrkur hennar og hugrekki varð
móður og barni til bjargar á hættu-
stund og bænin var heyrð. Þegar
ólátunum loks linnti undir morgun,
stóð ekkert uppi af bæjarhúsunum
nema baðstofan ein, þar sem þær
höfðust við. Nú þegar kristnihátíðar-
ár fer í hönd mætti vel minnast
þessa einstæða atburðar með því að
gera sér ferð á staðinn. í þessum
fornu rústum, þar sem kjarkur og
kristin trúarvissa sigraði á undra-
verðan hátt djöfulskap ægilegrar
ófreskju hlýtur ennþá að ríkja góður
andi þótt liðið sé hátt á aðra öld.
En ekki voru tröll og forynjur
alltaf til jafn mikilla vandræða á
Vatnaheiði og hér hefur verið lýst.
Það hafði ekki verið búið lengi á
Baulárvöllum í upphafi, þegar vanda
A Vatnaheiði
irnarhafnar
Berserkja
hraun /
Kerlingarfjall
Grímsfjall
' HornV >
Hraunfjarðar-
vatn
• ' Vatnafell
Baulárvalla- ' f '
vatn Z
Tröllatindar
Elliöatindar
IJTSÝNI af fjallinu Homi til norðausturs. Selvallavatn, Berserkjahraun
og Grákúla á miðri mynd. Nýi vegurinn mun liggja niður af Vatnaheiði
um hliðina til hægri á myndinni.
ÚTSÝNI af fjallinu Horni til suðurs yfir Vatnaheiði, HraunsQarðarvatn,
Baulárvallavatn (Ijær) og Vatnafell á eiðinu á milli þeirra. Til hægri á
myndinni sér til Baulárvalla þar sem undrin gerðust, en neðst sér í
gjána, sem Steinboginn er á. Nýi vegurinn mun liggja upp skarðið til
vinstri og skammt austan við Baulárvallavatn.
bar að höndum. Það vantaði dags-
mörkin eða eyktarmörkin eins og þá
var sagt. í þá daga voru ekki stunda-
klukkur á bæjum til að mæla tímann,
heldur var gangur sólar notaður sem
klukka og fjöll og kennileiti mörkuðu
stundirnar eða eyktirnar eins og
sagt var. Aður nokkurn varði var
leyst úr þessum vanda, þegar tröll-
kona heyrðist kveða hátt, svo að
undirtók í fjöllunum:
Dagmálin á Dofrahnúk,
hádegi á Stakki,
miðdegi á Möðruhnúk,
en nón er úti-á Klakki,
mióaftan á Breiðuborg á Baulárvöllum,
náttmálin á Nípufplum.
Nú er sagt frá eyktum öllum.
Höfundur er fjdrmálastjóri hjá
Vegagerðinni og Snæfeliingur að
ætt og uppruna.
Austurlönd
fyrir sælkera
Stöðugt verður auðveldara að nálgast
hráefni fyrir framandi matargerð hér
á landi og í raun fátt eftir sem aftrað
gæti mönnum frá því að taka fram
wok-pönnuna og hrísgrjónasjóðarann
____annað en skortur á frumkvæði._
Steingrímur Sigurgeirsson leit við í
nýrri sælkerabúð við Suðurlandsbraut.
RÍKI Asíu eru framandi í okk-
ar augum. Siðir og menning
þjóða Asíu er ólík og frá-
brugðin því sem við þekkjum. Það á
ekki síður við um matarmenningu
Asíu en aðra þætti. Oft hættir okkur
til að alhæfa og steypa öllu „asísku“
saman í eitt mót og jafnvel heyrist
stundum talað um „kínamat“ sem
samheiti yfir asíska
matargerð. Fjölbreyti-
leiki þessarar heimsálfu
hvað matargerð varðar er hins veg-
ar síst minni en Evrópu og hvernig
þætti mönnum ef öll matargerð okk-
ar heimaálfu yrði skilgreind sem t.d.
„Frakkamatur“? Líklega þætti t.d.
ítölum það vart við hæfi.
Þeir sem kynnst hafa undrum Asíu
eiga flestir erfitt með að rjúfa
tengslin. Og það eru líka orðin mörg
ár síðan skortur á hráefnum gat
komið í veg fyrir að íslendingar
tækju til við að elda asískan mat.
Sérverslanir á borð við Kryddkof-
ann og Heilsuhúsið hafa lengi boðið
upp á gott úrval krydda, olía og ann-
arra hráefna sem nauðsynleg eru í
t.d. indverskri, kínverskri og tæ-
lenskri matargerð og nú er svo kom-
ið að jafnvel í venjulegum stórmörk-
uðum er úrval hráefna
orðið stórgott.
En það er ekki þar
með sagt að ekki sé hægt að ganga
lengra og bjóða upp á ennþá betri
þjónustu. Nú nýverið var opnuð ný
verslun við Suðurlandsbraut, sem
einfaldlega heitir Sælkerabúðin og
sérhæfir sig í asískum hráefnum.
Bjarni Óskarsson, eigandi búðarinn-
ar, rekur einnig veitingastaðinn
Nings við hlið búðarinnar, auk þess
sem hann tók fyrir skömmu yfir
Morgunblaðið/Steingrímur
ASISK matargerð heillar marga þótt framandi sé.
rekstur Asks, sem einnig er á næstu
grösum. Bjarni segir að með opnun
verslunarinnar hafi gamal draumur
ræst, sem hann hafi haft allt frá því
að hann var verslunarstjóri í verslun
Sláturfélagsins við Skólavörðustíg
fyrir um tveimur áratugum. Hann
hafi á þeim árum reynt að efla sæl-
keraþáttinn í úrvali verslunarinnai-
og m.a. byrjað að bjóða upp á
smokkfisk. Það þótti mjög óvenju-
legt á þeim tíma enda var smokk-
fisknum yfirleitt hent. Segist Bjarni
hafa tekið saman upplýsingar um
það hversu mikilvægu hlutverki
smokkfiskurinn gegndi í matargerð
annarra ríkja og dreift í nærliggj-
andi hverfi til að reyna að efla áhuga
landans.
í nýju versluninni er aðaláhersl-
an hins vegar á Asíu þótt einnig sé
boðið upp á ýmislegt annað að sögn
Bjarna. M.a. hafi verslunin á dög-
unum fengið umboð fyrir mest
seldu ólívur Spánar. Bjarni telur að
verslun af þessu tagi mæti sívax-
andi þörf enda hafi fólki af asískum
uppruna fjölgað hratt hér á landi
auk þess sem áhugi íslendinga á
matargerð framandi ríkja vaxi
stöðugt.
Þótt verslunin sé ekki stór er
auðvelt að gleyma sér þegar skoðað
er í hillurnar og ekki síst vekur at-
hygli hið mikla úrval af framandi
fersku grænmeti og ávöxtum, í
flestum tilvikum tegundir sem vart
hafa sést áður hér á landi. „Við
flytjum vikulega inn ferskt græn-
meti með flugi og teljum okkur geta
boðið það á mjög góðu verði,“ segir
Bjarni. Hann segir hins vegar að
það sem helst haldi uppi verði á
fersku grænmeti hér á landi sé hið
opinbera. Þegar grænmeti sé flutt
inn sé fyrst lagt á 400 króna kíló-
gjald og síðan 30% tollur er bætist
við innkaupsverð, flutningskostnað
og annað. Flest grænmeti sé flokk-
að sem „kál“ og meðan íslenskt kál
sé á markaðnum leggist þessi
verndargjöld á. Skipti þá engu máli
þótt grænmetið sé í raun ekki ,kál“
og verði vafalítið aldrei ræktað hér
á landi. „Þetta viðgengst síðan á
sama tíma og verið er að hvetja
þjóðina til að borða meira af græn-
meti,“ segir Bjarni.
Þegar skoðað er í kælihillurnar er
enda fátt um tegundir, sem fáanleg-
ar hafa verið hér á landi, hvað þá
ræktaðar. Lemongrass, Havanero
Chili (sá allra sterkasti sem til er),
Bittermelon, Ampalay, Paksoy,
Okra, Kang Kong, tælenskur kórí-
ander og ýmislegt annað blasir við
og ekki er laust við að maður fái
vatn í munninn. Grænmetið kemur
með flugi á miðvikudögum og er yf-
irleitt komið í verslunina á fimmtu-
dögum eða föstudögum. Segir
Bjarni stefnuna vera að bjóða upp á
það sem fólk vilji og hafi menn
áhuga á einhverju sem ekki sé til þá
stundina sé yfirleitt hægt að sér-
panta það með næstu sendingu.
Ning, sem lengi hefur verið við-
loðandi asíska matargerð á íslandi,
er verslunarstjóri í Sælkerabúðinni
og segir hann asíska grænmetið
hafa mikla yfirburði yfir hið evr-
ópska. „Hér er ekta eggaldin, miklu
safaríkara en þetta venjulega," segir
Ning og er greinilega stoltur af úr-
valinu. Ning segir alla Asíu endur-
speglast í versluninni, Kína, Tæland,
Malasíu, Filippseyjar, Indland og
ekki síst Japan. Þannig sé til dæmis
boðið upp á allt sem þurfi til sushi-
gerðar. Einnig er hægt að fá frosin
tilbúin Dim Sum og fiska sem sjald-
an sjást hér, s.s. mjólkurfisk og
Talapia að ekki sé nú minnst á hrís-
grjón og núðlur.