Morgunblaðið - 07.08.1999, Page 60
60 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Hundalíf
Smáfólk
Eg lærði utanað Bíblíu-
versið sem við áttum að
læra fyrir sunnudaginn..
Hvaða Ég veit ekki..
vers? nú léstu mig
gleyma því...
Kannski var það eitthvað sem
Móses sagði, eða eitthvað
úr Opinberunarbókinni...
slæmt að gleyma..
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Fyrrverandi þing-
manni færðar þakkir
Frá Auðuni Braga Sveinssyni:
ÉG FYLGDIST með síðustu Al-
þingiskosningum, og veitti ýmsu
athygli í sambandi við þær. Margir
þingmenn gáfu af ýmsum ástæðum
ekki kost á sér áfram, og skulu
þeim þökkuð ágæt störf í þágu
lands og þjóðar. Margir héldu
áfram, voru sem sagt endurkjörnir
til næstu fjögurra ára. Þeir hafa
tryggt sér fast starf þennan tíma,
og væntanlega sæmilega borgað.
En eftir fjögur ár þurfa þeir að
leita til þjóðarinnar um endurkjör,
og getur þá brugðið til beggja
vona. Þannig er þingmennskan.
Stöðug barátta og varðstaða. Fleiri
og fleiri leita úr þessu starfi í önn-
ur, sem teljast mega tryggari. Þau
þurfa ekki að leita eftir endurkjöri
að fjórum árum liðnum eins og
þingmennirnir. Eru sum kannske
æviráðin. Einn af þeim sem gáfu
kost á sér til frekari þingmennsku,
en voru ekki endurkjömir, kemur
mér sérstaklega í hug, og varð það
mál raunar til þess, að ég ritaði
þetta bréf til Morgunblaðsins.
Maðurinn er Ágúst Einarsson, ætt-
aður úr Vestmannaeyjum, sonur
Einars Sigurðssonar útgerðar-
manns og Svövu Ágústsdóttur,
konu hans. Hann var kjörinn á
þing í Alþingiskosningunum 1995
íyrir Alþýðuflokkinn. Áður hafði
hann setið á Alþingi 1978-1979 fyr-
ir sama flokk og skamman tíma
1980 sem varamaður. Hann var því
vel kunnugur þingstörfum áður en
hann var kjörinn á þing fyrir fjór-
um árum.
Ég hef ekki verið pólitískur
stuðningsmaður Ágústs Einarsson-
ar eða Alþýðuflokksins, en ég hlýt
þó að harma fráhvarf hans úr söl-
um Alþingis. Hann var einn
fremsti baráttumaður þar fyrir
bættum kjörum eldri borgara.
Hann flutti frumvörp um þau efni
og sendi þau stjórnarmönnum Fé-
lags eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni, einnig greinargerðir
með. I janúar sl. sendi hann mér
síðasta bréf sitt um málefni aldr-
aðra, þar sem hann gerði grein fyr-
ir frumvarpi sínu. Mér finnst rétt,
að innihald bréfsins komi hér fram,
því að það sýnir hvaða hug Ágúst
ber til eldra fólks og hagsmuna-
mála þess. „Kæri Auðunn. Ég
sendi þér hjálagt frumvarp til laga
um að eldri borgarar og öryrkjar
fái beina aðild að tryggingarráði
Tryggingastofnunar ríkisins. Ég
lagði þetta frumvarp fram á AI-
þingi í vor, og er það nú endurflutt.
Málefni aldraðra eru einn mikil-
vægasti málaflokkurinn í stjórn-
málum nútímans. Ég óskaði m.a.
eftir því að gerð yrði skýrsla um
stöðu eldri borgara hérlendis og
erlendis. Það var gert, og sú
skýrsla er viðamesta úttekt, sem
gerð hefur verið hér á landi um
þessi mál og er mikilvægur grunn-
ur í umræðu.
Ég hef ítrekað lagt fram tillögur
um að greiðslur úr almannatrygg-
ingakerfinu hækki eins og laun,
tekjutenging minnki og meira sam-
ráð verði haft við eldri borgara.
Það hefur náðst að hluta til fram,
m.a. með stofnun samráðsvett-
vangs ríkisstjómarinnar og sam-
taka aldraðra. Ég vona, að þér þyki
meðfylgjandi frumvarp áhugavert,
og hvet þit til að hafa samband, ef
spurningar vakna í tengslum við
þetta þingmál eða önnur mál.
Bestu kveðjur, Ágúst Einarsson al-
þingismaður.“
Eg leyfi mér að færa Ágústi Ein-
arssyni persónulegar þakkir fyrir
framgöngu hans á Alþingi í málefn-
um aldraðra. Vonandi gefur hann
kost á sér til þingsetu að fjórum ár-
um liðnum, og nær þá kjöri, til að
vinna enn frekar að málefnum
hinna eldri borgara.
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON,
Hjarðarhaga 28, Reykjavík.
Bréf til
Morgunblaðsins
Frá Mörtu Ragnarsdóttur:
KÆRI Moggi.
Það ber fyrst fyrir að þakka þér
fyrir allt gott á liðnum árum. Það
eru um 45 ár síðan okkar kynni
hófust með því að ég byrjaði að lesa
hjá þér teiknimyndasöguna um
Markús. Síðan þá held ég að varla
hafi komið út það tölublað að ég hafi
ekki lesið það. Ég hef leitað þig
uppi á bókasöfnum þegar ég hef
verið búsett í útlöndum, slokrað þig
í mig í flugvélum á heimleið úr
ferðalögum og eytt klukkustundum
í að fara í gegnum bunkann eftir
sumarfríin. Oft hefur þú verið mér
hvatning til að drífa mig fram úr
rúminu á dimmum vetrarmorgnum.
Mikið hafa þetta verið sælar stundir
og haf þú þökk fyrir.
En Moggi. Hvernig er það með
þig? Hvenær ætlar þú að verða fuli-
orðinn? Þú ert orðinn 86 ára,
hvenær ætlarðu að fara að axla al-
vöru ábyrgð og koma út á hverjum
degi, hætta að haga þér eins og
smábæjarblað og taka þér frí í tíma
og ótíma? I apríl eru 30 dagar.
Síðastliðinn aprílmánuð reiknast
mér til að þú hafir komið til mín
tuttugu og einu sinni. Nú er kominn
tími til að þú takir þig saman í and-
litinu og sýnir af þér snerpu og
áræði, beitir þig aga og komir út á
hverjum degi.
Kveðja.
MARTA RAGNARSDÓTTIR,
móttökustjóri,
Bergstaðastræti 7, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.