Morgunblaðið - 07.08.1999, Side 64

Morgunblaðið - 07.08.1999, Side 64
64 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ m BORGARLEIKHÚSIÐ Á SÍÐUSTU STUNDU: Síðustu klukkustund fyrir sýningu eru miðar seldir á háifvirði. Stóra svið kl. 20.00: Litla kujtluujíltöfo eftir Howard Ashman, tónlist eftir Alan Menken. I kvöld lau. 07/8 laus sæti lau. 07/8 nokkur sæti laus fös. 13/8 laus sæti lau. 14/8 nokkur sæti laus fös. 20/8 laus sæti lau. 21/8 nokkur sæti laus fös. 27/8 Laus sæti lau. 28/8 laus sæti. Ósóttar pantanir seldar daglega. Enrn byrjuð að taka niður pantanir fyrir ágústmánuð. Miðasalan er opin virka daga frá kl. 12—18, frá kl. 13 laugardaga og sunnudaga og fram að sýn- ingu sýningardaga. Símapantanir virka daga frá kl. 10. Greiðslukortaþjónusta. Sími 568 8000, fax 568 0383. ' 1 5 30 30 30 Mðasala opin tra 12-18 og ft*am að syrngu «ýiiW<aBa. HB ft’á 11 lyrt1 hádeadeWiBB *e; HÁDEGISLEIKHÚS - kl. 1200 Mið. 11/8 nokkur laus sæti. Fim. 12/8 uppselt. Fös. 13/8 nokkur laus sæti Mið. 18/8, fim. 19/8, fös. 20/8. SNYRAFTUR Fös 13/8 kl. 23.00, nokkur sæti laus. Fös 20/8 kl. 23.00. Ath! Aðeins þessar sýningar TONLEIKAFIOÐ ©NO kl. 20/30. Atonal Future flytur ný (slensk tónverk, þri. 10/8. TILBOÐ TIL LEIKHUSGESTA! 20% afsláttur af rnat fyrir lákhúsgesti í Iðnó. Borðapantanir í síma 562 9700. S.O.S. Kabarett í leikstjórn Sigga Sigurjónss. Frumsýning lau. 7/8 kl. 20.30 uppselt 2. sýn. fös. 13/8 kl. 20.30. 3. sýn. lau. 14/8 kl. 20.30. 4. sýn. lau. 21/8 miðnætursýning á menningamótt Reykjavíkur. HIRÐFÍFL HENNAR HÁTIGNAR Næstu sýn. sun. 8/8 og sun. 15/8. Miðasala í s. 552 3000. Opið virka daga kl. 10 —18 og fram að sýningu sýningardaga. Miðapantanir allan sólarhringinn. HAFIÐ LJÓÐLEIKHÚS í NORRÆNA HÚSINU Ljóð og sögur frá Álandseyjum, Færeyjum, Grænlandi og Islandi Mánudaginn 9. ágúst kl. 20.00 í fundarsal Norræna hússins. Flytjendur leikararnir Borgar Garö- arsson, Rune Sandlund, Hans Tórgarð og Varste M. Berndtsson. Vladimir Shafranov leikur á píanó. Leikstjórn: Eyöun Johannessen frá Færeyjum. Aðgangur kr. 1.000. Norræna stofnunin á Álandseyjum i samvinnu við Norræna húsið, Norðurlandahúsið i Færeyjum og Norrænu stofnunina á Grænlandi. www.landsbanki.is Tilboð til Vörðufélaga Landsbankans Varðan Vörðufélögum býðst nú ferð með Samvinnuferðum Landsýn til paradísareyjunnar Aruba í Karíbahafinu ó verði sem er engu líkt. • Vikuferð (22.— 28. nóvember) með flugi og gistingu í sex nætur fyrir aðeins 73.900 kr. ó mann.* • Aruba tilheyrir hollensku Antillaeyjum og er ein af syðstu eyjum Karíbahufsins. Vörðufélagar geta valið é milli tveggja fjögurro stjörnu hótela: Sonesta Resorts í hjarta höfuðstaðarins Orjanstad eða Wyndham Resorts við eina bestu strönd eyjarinnar. (minni fontur)* Innifnlið er flug, gisting, akslur til og fró flugvelli erlendis, forarstjórn og íslenskir flugvolloskottor. Ekki er innifolið erlent brottforargjald $20 og forfollogjold, kr. 1.800. Ýmis önnur tilboð og ofslættir bjóðnsf klúbbfélögum Londsbanko Islonds hf. sem finnn mn ó heimosiðu bankans, www.londsbnnki.is L Landsbankinn | Opið frá 9 til 19 ÍSLENSKA ÓPERAN __I—Jiiu | r\Ll Ú JlJl) J JjJ iJ Gamanleikrit í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar Næstu sýningar auglýstar sunnudaginn 8. ágúst Ósóttar pantanir seldar daglega Símapantanir í síma 551 1475 frá ki. 12 Miðasala opin frá kl. 13—19 alla daga nema sunnudaga cm Hallgrímskirkj a Orgeltónleikar czilihh/iii,^ Sunnudagur 8. ágúst kl. 20.30 LISTAHÁTÍÐ Ungverski organistinn Szabolcs Szamosi leikur verk eftir Koloss, Vivaldi, Bach, Liszt og Widor. 1999 Miðasala í Hallgrímskirkju alla daga frá kl. 15 til 18 og við innganginn. — Miðasala á H—moll messuna, sem verður flutt 15. ágúst kl. 20.30, er hafin. r y&turgatinn “| Smiðjuvefli 14, Xópavojji, sími 587 6080 í kvöld leikur hið frábæra Þotuliðið frá Borgarnesi Opið frá kl. 22—3 U Næturgalinn — alltaf lifandi tónlist FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Bíóhöllin hefur tekið til sýninga spennumyndina Upprisuna eða The Resurrection með Christopher Lambert í aðalhlutverki. A hælum raðmorðingja Frumsýning LÖGREGLUMAÐURINN John Prudhomme (Christopher Lambert) kyssir konu sína bless og fer út í kaldan morgun Chicago-borgar. Hann er á leiðinni á morðstað þar sem óhugnanlegt morð hefur verið framið. Fórnarlambið liggur í blóð- polli, handleggurinn hefur verið tek- inn af og skrifað stendur á glugga „Hann er að koma...“ Pnidhomme segir félögum sínum að hann hafi það á tilfínningunni að þetta morð sé aðeins hið fyrsta hjá raðmorðingja sem muni merkja slóð sína með bibl- íutilvitnunum. Þegar Prudhomme fer heim úr vinnunni þennan dag er honum þungt í sinni og hann rifjar upp þá tíma þegar sonur hans var enn á lífí og hjónaband hans ham- ingjuríkt. Daginn eftir sekkur Prudhomme sér í rannsóknina og þegar lík fóm- arlambsins er rannsakað kemur í ljós að rómverskar tölur hafa verið ristar á líkama þess og mót af lykli hefur verið þrykkt á háls fórnar- lambsins. Þegar lykill hefur verið búinn til eftir mótinu og í ljós kemur að hann gengur að einum skáp á lög- reglustöðinni flækist málið. Ekki síður þegar skápurinn er opnaður og í honum er sjaldgæft blóm sem þrífst hvergi í Chicago-borg nema í grasagarðinum. Þegar lögreglan kannar grasagarðinn fínnst annað lík álfka útleikið og hið fyrra og kenning Prudhomme um raðmorð- ingjann er staðfest. En hvemig er hægt að ná morðingjanum? Hinn franski Christopher Lam- bert hefur leikið í fjölda mynda og er hann eflaust þekktastur fyrir túlkun sína á Hálendingnum í þrem- PRUDHOMME er á hælunum á raðmorðingja sem varðar slóð sína til- vitnunum í ritninguna. ur samnefndum myndum. Það var einmitt þar sem hann kynntist leik- stjóranum Russell Mulcahy sem leik- stýrir Upprisunni, en Mulcahy á að baki auk fyrstu tveggja Hálendinga- myndanna myndir eins og Razorback, The Real McCoy, The Shadow og Ricochet. Handritshöfundur Upprisunnar er Brad Mirman en eft- CHRISTOPHER Lambert fer með hlutverk ir hann liggja meðal rannsóknarlögreglumannsins Johns Prud- annars handrit homme. myndanna Knight Moves þar sem Lambert fór með að- sem Willem Dafoe og söngkonan alhlutverk og Body of Evidence þar Madonna fóru með aðalhlutverkin. Svefnfriður í Þorlákshöfn FRÉTTIR ljósvakamiðla nú um verslunarmannahelgina báru merki þess að fólk hafi ætlað að skemmta sér til óbóta. Af því varð þó ekki í stórum mæli, en heldur suddalegt var um að litast á skemmtisvæðum, þar sem eitt- hvað hafði rignt að ráði. íslend- ingar eru því vanir og sem betur fer er til fjölbreytilegur og lit- skrúðugur varnarklæðnaður. Það er því minnsta mál að verja hátíð- arskapið fyrir rigningu. Ymsu öðru verður síður varist, svo sem að fá á lúðurinn, sem er mikO tíska hjá skemmt- anaþjóðinni, beita konur valdi og ganga í skrokk á eyrum viðstaddra með óbærilegum músikhávaða. Aðeins tvær hátíðir vekja at- hygli í fréttum á landsvísu. Það er Halló Akureyri og Eyjahátíðin. Hinar eru allar háðar guði til dýrðar að einhverju eða öllu leyti og hafa á sér siðsemdarbrag, eins og honum er lýst í biblíunni. Langþreyttir drykkjumenn þamba mjólk í Dölum vestur, föndrað er við að reyna að smygla áfengi á bindindismót í Galtalæk og á Norðfírði fer hátíð fram með lúðrablæstri og söng. Á Skaga- strönd er kántrí og þar stunda menn þrifnað. Frá þessu öllu er sagt í fréttum og margir stór- kóngar í útlöndum, sem ráða ör- lögum heimsins, eru látnir halda kjafti á meðan. Á svona stórhátíðisdögum fer síðan fjölmargt fram, sem hvergi er getið og kemst aldrei í dóma- bækur, því mikil lifandis ósköp eru nú samþykkt. Fólk sem hefur keypt sér fasteign hið næsta mið- bæ Akureyrar vissi ekki hvaða nautum hafði verið sleppt lausum þegai’ Hallóið hófst skyndilega með öll hljómlistartæki stillt á ýtrasta þanþol í miðbænum. Fólk sem uggði ekki að sér hélt fyrst að kominn væri jarðskjálfti, kannski við Grímsey, því húsið bókstaflega skalf. Þá gerðist það, sem ekki hefur gerst síðan í Skaftáreldum, að hjónin þustu út í bfl sinn og linntu ekki ferðinni fyrr en í Þoriákshöfn. Þar áttu þau rólega helgi. Eins má segja að rólegt hafí verið á Isafirði, þótt líklegt sé að þar hefði verið hægt að reka upp hæsta poppöskrið um helgina. Sýslu- maðurinn fór í sitt púss og er um að konum á elliheim- ilium hafi vöknað um augu. Sjálf- ur Mike Jagger var kominn á staðinn, mesti foli norðan og sunnan Alpafjalla, goð tryllingsins og svo heimsfrægur að Isafjörður gat varla rúmað hann þótt hann ferðaðist um á snekkju vinar síns og reiðhjóli. Þetta sem sagt gerð- ist árið 1999 þegar verslunarmenn kvöddu öldina. Mest allur söngur var horfínn úr þjóðlífmu, enda voru kaupmenn og verslunar- menn löngu hættir að ríða hestum inn að Árbæ á þessum hvíldar- degi. I fréttum var hins vegar býsnast yfir því hvað fólk skemmti sér með minna móti við dóp og kvennafar, sem varðar við lög hafi einhver ekki vitað það. Það er varla að nokkur maður líti við sjónvarpsdagskrám þegar viðrar sæmilega um verslunar- mannahelgi. Þó buðu þær upp á þætti, sem hægt var að horfa á, eins og Þórsmörk í umsjón Ara Trausta Guðmundssonar, sem var á ríkisrásinni. Það er nefnilega eins og aldrei fáist nóg af Islandi. Þá sýndi Stöð 2 mynd um Harry S. Truman Bandaríkjaforseta, kaupmann frá Missouri, sem sagði að ýmislegt hefði dottið á hann þegai’ hann varð að taka við af Roosewelt forvera sínum, sem andaðist fyrir stríðslok. Hinn vestræni heimur var lánsamur að fá Truman sem forseta yfir jafn voldugu ríki og Bandaríkjunum. Stríð var á móti samvisku hans, en það varð að heyja til enda. Atómsprengjan var á móti sam- visku hans, en hana varð hann að nota til að koma í veg fyrir mikið mannfall. Þannig reyndust tím- amir honum erfiðir, en hann komst í gegnum þá af fullum hefl- indum. Annar Ameríkani, sem ör- lögin léku þannig ungan, að hann beið þess ekki bætur, varð síðar þjóðhetja á þeim dögum, þegar menn voru í óða önn að nema „vestrið“. Þessi maður var Wyatt Earp. Mynd um hann var sýnd á ríkisrásinni, en Kevin Costner lék aðal hlutverkið. Frægastur varð ferill hans í Arisona, nánar tiltek- ið í þorpinu Tombstone. Því er haldið við í dag handa túristum og þar er tilbúinn grafreitur á mel- hól með helstu bandíttum villta vestursins. Sumum þeirra kom Wyatt Earp í gröfina. Sjálfur varð hann strádauða í Kaliforníu aldraður maður. Við, sem þekkj- um nokkuð til ævintýra vesturs- ins á dögum Earp, finnst alltaf synd að ekki skuli búnar til kvik- myndasögur úr þjóðveldisöldinni meir en orðið er. Þar var margur Earpinn. I síðasta þætti misritaðist að þátturinn Orðspor með Kitchener hefði verið sýndur á ríkisrásinni. Hann var sýndur á Stöð 2. Indriði G. Þorsteinsson SJONVARP A r LAUGARDEGI dæmi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.