Morgunblaðið - 07.08.1999, Page 66
66 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
M
FÓLK í FRÉTTUM
.. Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
SETNINGARATHOFNIN á ólympíuleikvanginum í Stokkhólmi var áhrifamikil. Myndin var tekin þegar Karl Gústaf
Svíakonungur ók inn á leikvanginn á gömlum slökkviliðsbíl.
islendingar í fyrsta skipti með á Heimsleikum lögreglu- og slökkviliðsmanna
TVEIR Islendingar komust á verð-
launapall, Gunnlaugur Jónsson í
pílukasti og Herbert Eyjólfsson í
sjómanni.
Farinn að huga að íþrótt
til að geta verið með næst
þeim. Það tókst með góðum stuðn-
ingi ýmissa aðila, meðal annars
Landssímans, Besta og fleiri fyrir-
tækja.“
Tveir á verðlaunapall
Liðlega 60 þjóðir sendu samtals
um átta þúsund keppendur í þær
65 íþróttagreinar sem keppt var í.
Islensku slökkviliðsmennirnir
kepptu í knattspyrnu, frjálsum
íþróttum, pílukasti, sjómanni,
sundi og lyftingum. „Svona upp og
ofan,“ segir Benedikt spurður um
árangurinn. Tveir komust á verð-
launapall. Gunnlaugur Jónsson úr
Slökkviliði Reykjavíkur vann td
silfurverðlauna í sínum flokki í
pílukasti og Herbert Eyjólfsson frá
Brunavörnum Suðurnesja fékk
bronsverðlaun í sjómanni í sínum
aldursflokki. Knattspymumennirn-
ir léku í annarri deild í sex liða riðli
á móti slökkviliðsmönnum frá Ka-
talóníu á Spáni, Israel, Richmond í
Kanada og Tampere í Finnlandi og
liði lögreglunnar í Hessen í Þýska-
landi. Þeir léku fimm leiki á jafn
mörgum dögum á gervigrasvelli,
töpuðu fjórum og unnu einn. „Það
var of erfitt að spila svona stíft og á
gervigrasi, því við vorum ekki með
nógu marga skiptimenn. En þrátt
fyrir það áttum við möguleika í
tveimur til þremur leikjum til við-
bótar þeim sem við unnum,“ segir
Benedikt.
BENEDIKT Jóhannsson, varaslökkviliðsstjóri á Eskifirði,
var hrifínn af tækjunum sem sænskir starfsbræður hans
hafa yfir að ráða.
98'AloeVera
ÉÖLv 5UPER
„SETNINGARATHÖFNIN var
eftirminnilegust. Hóparnir gengu
inn eins og á ólympíuleikum og voru
kynntir uppi á stórum palli á miðj-
um leikvanginum. Það hafði mikil
áhrif á mann þegar ísland var
kynnt og áhorfendumir klöppuðu,“
segir Benedikt Jóhannsson, vara-
slökkviliðsstjóri á Eskifirði og
markmaður í úrvalsliði slökkviliðs-
manna í knattspymu, þegar hann
lýsir þátttöku í Heimsleikum lög-
reglu- og slökkviliðsmanna sem
fram fór í Stokkhólmi fyrir
skömmu.
Tuttugu manna hópur frá Lands-
sambandi slökkviliðsmanna tók þátt
í leikunum og er það í íyrsta sldpti
sem íslendingar eru með. Leikamir
em haldnir annað hvert ár og er
mótið í Svíþjóð það áttunda í röð-
inni. „Það gerði nálægðin," segir
Benedikt spurður hvers vegna
slökkviliðsmenn hefðu verið með
nú. „Heimsleikamir hafa oftast ver-
ið í Bandaríkjunum en einnig í
Kanada og Ástralíu. Þeir vom nú í
fyrsta skipti í Evrópu og þess vegna
vildu menn reyna að taka þátt í
Auk þátttöku í keppni gafst
slökkviliðsmönnunum kostur á að
kynna sér starfsemi slökkviliða og
slökkviliðsmannaskóla en þeir gistu
einmitt í skóla fyrir slökkviliðsmenn
Arlanda-flugvallar. „Það var afar
athyglisvert að skoða aðstöðuna.
Skólinn hafði til dæmis yfir að ráða
7 eða 8 slökkviliðsbílum og öllum
hugsanlegum tækjum þótt þeir
þurfi aldrei að slökkva eld nema á
æfingum."
Næst til
Indianapolis
Næstu Heimsleikar lögreglu- og
slökkviliðsmanna verða í Indiana-
polis í Indiana í Bandaríkjunum eft-
ir tvö ár, síðan í Barcelona á Spáni
og loks eftir sex ár í Québec í
Kanada. „Ég tel að slökkviliðs- og
lögreglumenn ættu endilega að vera
með á næstu mótum. Ég er þegar
farinn að huga að íþrótt til að geta
verið með áfram, þótt ég kæmist
ekki með sem markmaður. Annars
voru markmennimir í liðunum
þama á öllum aldri,“ sagði Benedikt
Jóhannsson.
MYNDBÖND
Sannleik-
urinn býr
í rappinu
Bulworth________
Gamanmynd
★ ★★1A
Leikstjóri: Warren Beatty. Aðalhlut-
verk: Warren Beatty og Halle Berry.
(104 mín.) Bandaríkin. Skífan, júlí
1999. Bönnuð innan 12 ára. Þegar
stjórnmálamaður hefur glatað trúnni
á lífið, getur hann tekið upp á alls'
konar vitleysu, eins og til dæmis að
segja sannleikann. Þingmaðurinn Jay
Bulworth bregst einmitt við tilvistar-
kreppu sinni með því að Ijóstra upp
um alls konar óskrifaðar reglur
stjórnmálanna, og rappar allt saman
í þokkabót.
Leikarinn Warren Beatty
stendur að mestu leyti á bak við
þessa kvikmynd, sem er sérlega
beinskeytt og
opinská pólitísk
ádeila, sett
fram í gaman-
myndaformi.
Það sem gerir
myndina svo
einstaka er
tjáningarformið
sem notað er til
að koma ádeil-
unni á framfæri, þ.e. rappið, sem
á uppruna sinn í svartri minni-
hlutamenningu. Hrein snilld er
þar á ferð og hinar sprenghlægi-
legu og baneitruðu rappsendur
eru hápunktar myndarinnar.
Sögufléttan er reyndar stundum
dálítið klaufaleg, en húmorinn
bregst aldrei og leikur Beattys er
frábær. Bulworth er fyrst og
fremst bráðfyndin kvikmynd sem
gengur með eindæmum langt í að
gagnrýna byggingu og stjórnkerfi
bandarísks samfélags.
Heiða Jóhannsdóttir
Síðasta
sort
Strokufangarnir
(Point Blank)____________
Spcnnumynd
Leikstjóri: Matt Earl Beesley. Aðal-
hlutverk: Mickey Rourke og Danny
Trejo. (90 mín) Bandaríkin. Skífan,
júlí 1999. Bönnuð innan 16 ára.
BEST mætti lýsa söguþræði
þessarar ömurlegu hasarmyndar
sem útjaskaðri „Die Hard“-eftir-
hermu með
sterkum „Con
Air“-áhrifum.
Lélegheit
myndarinnar
koma svo sem
ekki á óvart,
enda verður
slæmum hasar-
myndum seint
takmörk sett.
Það sem hins vegar vekur furðu
er útgangurinn á Mickey Rourke
sem leikur hetju myndarinnar,
hinn ólseiga fyrrverandi lögreglu-
mann Rudy Ray. Rourke kemur
hér fyrir vöðvastæltur mjög að
hætti hasarhetja, svo jaðrar við
afskræmingu og fær maður á til-
finninguna að hormónin hafi ekki
verið spöruð, gott ef ekki sílikonið
heldur. Það er ljóst að töffarinn
úr „Angel Heart" og 9Vz viku má
muna sinn fífil fegurri. Með leik
sínum í þessari mynd hefur hann
svo sannarlega náð botninum.
Heiða Jóhannsdóttir