Morgunblaðið - 07.08.1999, Síða 72

Morgunblaðið - 07.08.1999, Síða 72
Er búiö aö leysa málið? Er lausnin föst í lœrfinu? Þad cr dýrt að láta starfsfólkið biða! MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Orca S.A. ekki á - skrá í Lúxemborg Lúxemborg. Morgunblaðið. EKKERT fyrirtæki með nafninu Orca S.A. er enn skráð í Lúxem- borg, eftir því sem athuganir blaða- manns Morgunblaðsins í Lúxem- borg gefa til kynna. Félagið virðist nýstofnað og skráning því ekki full- frágengin, en nokkrir dagar eða vikur þurfa að h'ða áður en gögn um fyrirtæki eru gerð opinber. Samkvæmt upplýsingum frá hlutafélagaskrá í Lúxemborg gætu gögn um skráningu fyrirtækisins Orca S.A. hinsvegar legið iyrir í næstu viku. Þá munu upplýsingar n stjóm fyrirtækisins og hlutafé gerðar opinberar. Aðumefndar upplýsingar um skráð fyrirtæki fara til dómstóla í Lúxemborg þar sem þær era að- gengilegar almenningi. Við leit fundust þar tvö fyrirtæki, annað stofnað undir nafninu Orca S.A. árið 1993 en árið 1994 var nafni þess breytt í Groupe Intemational d’administration et de consultation S.A. Hitt fyrirtækið ber nafnið Orca Overseas Holding S.A., stofnað árið 1991. Stjómarmaður í fyrirtækinu segir íslendinga ekki eiga aðild að Orca Overseas Holding S.A. Þagnarskylda ríkjandi Fjármálayfirvöld í Lúxemborg búa yfir öllum upplýsingum um skráð fyrirtæki en þagnarskylda er ríkjandi. Þar koma nöfn hluthafa fram en hjá dómstólunum þar sem almenningur hefur aðgang að upp- lýsingum koma aðeins fram nöfn stjómarmanna sem oft era lögfræð- ingar eða aðrir talsmenn hluthafa. Því má gera ráð fyrir að stjómar- menn í Orca S.A. séu skráðir lög- fræðingar eða aðrir talsmenn fyrir- tækisins í Lúxemborg, að því er heimildir Morgunblaðsins herma. Flaga hf. selur fyrir 200 milljónir króna FLAGA hf. og samstarfsaðili þess, Resmed Corp., hafa undirritað sölu- samning við The Cardio-Pulmonary Continuum (CPC) í Manhasset í New York-fylki í Bandaríkjunum, um sölu á 80 Emblu-svefngreining- arkerfum. Með kerfunum fylgir gagnagrannur og nettengikerfi til að samhæfa deildir CPC víðsvegar um Bandaríkin. Upphæð samningsins er um 200 milljónir króna og er hann sá stærsti til þessa en næststærsti samningurinn var 12 kerfí. Helgi Kristbjarnarson, forstjóri Flögu, segir að fyrirtækið CPC starfi fyrir mörg af stærstu trygg- ingafélögum Bandaríkjanna og sé mikils metið á sínu sviði. „Fyrirtækið hefur mikið sinnt hjarta- og lungnasjúklingum en er nú að setja af stað geysilegt átak í þjónustu við sjúklinga með kæfisvefnsvandamál,“ segir Helgi. Hann segist búast við að stóram samningum muni fara fjölgandi í framtíðinni og séu nokkur stór fyrir- tæki að íhuga kaup á svefnrann- sóknakerfum frá Flögu hf. ■ Sölusamningur/18 ----------------- FBA fær hús Rauð- hamars FJÁRFESTINGARBANKI at- vinnulífsins leysti til sín á nauðung- aruppboði í gær frystihúsið á Tálknafirði, sem var í eigu Rauð- hamars, eins fyrirtækis Rauða hers- ins á Vestfjörðum. Húsið var áður Hraðfrystihús Tálknafjarðar en ekki hefur verið vinnsla í því á þriðja ár og hefur Rauði herinn aðallega notað frysti- klefann, sem mun vera annar stærsti frystiklefi á Vestfjörðum. Að undan- fornu hafa hins vegar staðið yfir end- urbætur á húsinu í því skyni að hefja þar vinnslu að nýju. Kröfur FBA í þrotabú Rauðham- ars námu 35 milljónum króna. Á nauðungaruppboðinu bauð Guðjón Indriðason, framkvæmdastjóri Þórs- bergs á Tálknafirði, 15 milljónir króna í húsið, en FBA hreppti það á 17 milljónir. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson ------------ Útreiðar í Tungum STÖLLURNAR Tina Nörby frá Danmörku og Sandra Sieber frá Sviss voru í útreiðartúr í Hauka- dal í Biskupstungum á vegum ís- hesta og leituðu hófanna f Beiná til að kæla fætur reiðskjótanna. Þúsundir útlendinga koma til Is- lands til þess að fara á hestbak og ekki dregur bh'ðviðrið úr þeim ásetningi. Burðarás eykur hlut sinn í Sfldar- vinnslunni BURÐARÁS, eignarhaldsfélag Eimskipafélags íslands, hefur keypt hlutabréf í Síldarvinnslunni hf. í Neskaupstað að nafnvirði 57 milljónir króna, en um er að ræða 6,4% hlut í Síldarvinnslunm. Að sögn Friðriks Jóhannssonar, fram- kvæmdastjóra Burðaráss, er kaup- verð bréfanna 245 milljónir króna. Burðarás átti fyrir 17,5% hlut í Síldarvinnslunni og er hlutur fé- ; ^gsins nú 23,9%. Friðrik sagði að- : ^^jurður að kaupin væru gerð vegna þess að Burðarás hefði mikla trú á Síldarvinnslunni, en þau stæðu í engu sambandi við þau átök sem nú standa yfir um yfirráð yfir útgerðarfélaginu Skagstrendingi, sem hófust í kjöl- far kaupa Samherja hf. á rúmlega hlut Sfldarvinnslunnar í fyrir- tækinu. Davíð Oddsson forsætisráðherra telur lagabreytingar koma til greina til að tryggja dreifða eignaraðild að fjármálakerfínu hér á landi Hefur áhrif á hugmyndir um sölu á öörum bönkum DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, telur að til greina komi að gera breytingar á lögum til þess að tryggja dreifða eignaraðild að fjár- málakerfinu hér á landi. Jafnframt segir hann að það sem virðist vera að gerast varðandi Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hljóti að hafa áhrif á framtíðarhugmynd ríkisstjórnarinn- ar varðandi sölu á öðram bönkum. Þetta kom fram í fréttum Ríkis- sjónvarpsins og Stöðvar 2 í gær- kvöldi. „Það má vel vera að staðan sé sú að sú aðferð okkar að reyna að koma út með dreifðum hætti haldi ekki til lengdar og þá þarf kannski að kanna hvort aðrar lagaforsendur þurfi að vera fyrir hendi sem tryggi hreinlega að eignaraðild að fjármála- kerfinu í þessu landi sé dreifð. Is- lenska þjóðríkið er þannig vaxið að það er ekki hollt fyrir það að vera í höndunum á mjög fáum aðilum," sagði Davíð meðal annars í fréttum Ríkissjónvarpsins. í fréttum Stöðvar 2 sagði Davíð að hugsunin væri sú að ef einhverjir eignaraðilar væra mjög stórir í slík- um kerfum eins og bönkunum væri hætt við því að þeir tækju ákvarðan- ir sem þjónuðu ekki endilega alltaf bankanum heldur jafnvel hagsmun- um hins stóra sem skaðaði þá hags- muni hins litla sem eiganda í bank- anum. Davíð benti ennfremur á að það væra í gildi lög hvað varðaði þak á eignaraðild á kvóta og það væri hugsanlegt að hafa þak í þessum efn- um líka. Hann sagðist þegar hafa rætt það innan ríkisstjórnarinnar að það sem virtist vera að gerast hérna hlyti að hafa áhrif á framtíðarhug- mynd ríkisstjórnarinnar varðandi sölu á öðrum bönkum. Fara sér hægar fyrir vikið Hvað varðaði sölu á hlut ríkisins í FBA, sagði Davíð: „Heimildin er fyr- ir hendi að selja. Það hefur ekki ver- ið tekin ákvörðun um að selja, endanleg ákvörðun, og þá ekki held- ur um fyrirkomulagið. Auðvitað munu menn hafa hliðsjón af þessum atburðum þegar menn ákveða það fyrirkomulag," sagði Davíð. I fréttum Ríkissjónvarpsins sagði Davíð einnig að FBA virtist vera miklu meira virði samkvæmt þessum tölum en þegar þeir sem vildu kaupa bankann fyrst hefðu boðist til að greiða fyrir hann átta milljarða króna, en þá hefði verið sagt að það væri hærri upphæð heldur en menn gætu vænst að fá fyrir bankann. Auðvitað muni þetta hafa áhrif þegar einkavæðing Búnaðarbanka og Landsbanka fari fram, sem stefnt hafi verið að. „Menn munu fara sér hægar fyrir vikið og huga mjög vel að öllum skrefum,“ sagði forsætis- ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.