Morgunblaðið - 17.08.1999, Page 20
1 §0 ÞRrtlJUBAGUTt fr.'ÁGÚHTIOih)
VIÐSKIPTI
MORGUNRLAUIÐ
Hlutafjárútboð íslenska
hugbúnaðarsjóðsins hf.
Stefnt að skráningu
á Vaxtarlista VÞI
Gefla hf. kaupir rækjuverksmiðjuna á Kópaskeri
Kaupverð 180 milljónir
GEFLA hf., nýstofnað hlutafélag,
hefur keypt rækjuverksmiðju Fisk-
iðjusamlags Húsavikur hf. á Kópa-
skeri fyrir 180 milljónir. Stofnhlutáfé
er rúmar 53 milljónir og stofnhluthaf-
ar eru 34 talsins. Að félaginu standa
Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf., Öxar-
fjarðarhreppur, Hólmsteinn Helga-
son hf. á Raufarhöfn, með 15 milljónir
hver aðili, auk einstaklinga á Kópa-
skeri og Raufarhöfn. Rekstur hefst
hjá Geflu hf. á Kópaskeri 1. septem-
ber en fram að þeim tíma mun Fisk-
iðjusamlagið starfrækja verksmiðj-
una. Jafnframt tilkynnti Fiskiðjusam-
lagið um sölu á 60% af Netagerðinni
Höfða, m.a. til Langaness hf., Geira
Péturs ehf. og GPG fiskverkunar ehf.
á Húsavík.
Að sögn Einars Svanssonar, fram-
kvæmdastjóra Fiskiðjusamlags
Húsavíkur og stjómarformanns
Geflu hf., hefur markmiðum Fiskiðju-
samlagsins um endurskipulagningu
verið náð, án þess þó að til lokunar
rækjuverksmiðjunnar þurfí að koma.
„Við teljum þetta mjög farsæla lausn
fyrir alla aðila, þarna eru heimaaðilar
við stjómvölinn en við emm tengdir
fyrirtækinu áfram. Okkar markmið-
um er raunvemlega náð með þessu,
við emm áfram aðilar að rekstri á
Kópaskeri sem við teljum jákvætt
fyrir okkur sem leiðandi rækjufyrir-
tæki í greininni. Við náum fram hag-
ræðingu í rekstri og lækkun skulda í
leiðinni.“
Við eignasöluna lækka skuldir
Fiskiðjusamlags Húsavikur hf. um
228 milljónir. Sölutap eignanna er um
27 milljónir. Velta rækjuverksmiðj-
unnar á Kópaskeri hefur verið nálægt
400 milljónum á ári og velta netagerð-
arinnar um 100 milljónir á ári.
Steindór Sigurðsson, sveitarstjóri
í Öxarfírði, segir samninginn hafa
mikla þýðingu fyrir atvinnulíf á
Kópaskeri. „Þegar mest er að gera
vinna um 50% af vinnufæm fólki í
þessari grein.“ Steindór segir fjár-
festinguna tvímælalaust arðvænlega
og rekstraráætlun til nokkurra ára
sé mjög raunhæf. .Auðunn Bene-
diktsson, útgerðarmaður hér, hafði
forystu um að rekstrarmöguleikar
yrðu athugaðir. Þó svo hann sé ekki
hluthafi getur það vonandi orðið.
Enn er óselt um 25 milljóna króna
hlutafé, svo það er pláss fyrir fleiri,"
segir Steindór.
Færeyskt fyrirtæki kaupir Matthildi
FÆREYSKA fjölmiðlafyrirtækið
Atlantic Radio hefur fest kaup á öll-
um hlutabréfum í Islenska fjöl-
miðlafélaginu ehf., sem rekur út-
varpsstöðina Matthildi FM 88,5.
Atlantic Radio er fyrsta frjálsa
útvarpsstöðin í Færeyjum og hóf
hún útsendingar í maí síðastliðnum,
og hefur það náð 60-80% hlustun í
Færeyjum. Fram kemur í fréttatil-
kynningu að félagið ráðgeri að opna
aðra útvarpsstöð í Færeyjum á
þessi ári og það hafí sótt um leyfi til
sjónvarpsútsendinga þar.
Einnig kemur fram að Islenska
fjölmiðlafélagið ehf. hyggist innan
skamms hefja útsendingar á tveim-
ur nýjum útvarpsrásum hér á landi.
Nýr framkvæmdastjóri og útvarps-
stjóri félagsins verður fyrst í stað
Lárus Arason.
íslensk tónlist og
færeyskar fréttir
Lárus Arason segir í samtali við
Morgunblaðið að ætlunin sé að
hefja útsendingar á nýrri útvarps-
rás innan 3^1 vikna, sem bera mun
nafnið „Utvarp Island“ og mun hún
eingöngu spila íslenska tónlist.
Einnig segir Lárus að tvær
áhugaverðir möguleikar að nýrri út-
varpsrás séu í skoðun, en engar
ákvarðanir hafí verið teknar þar
um. Hann segir að litlar breytingar
verði á Utvarpi Matthildi, aðrar en
að hugsanlegt sé að útvarpað verði
færeyskum fréttum frá Atlantic
Radio í Færeyjum, en mjög stór
hópur Færeyinga búi á íslandi.
Hann segir að Atlantic Radio sé
með áætlanir um samskonar endur-
útvörpun í Kaupmannahöfn.
Lárus segir ástæðu j)ess að Atl-
antic Radio hafi keypt Islenska fjöl-
miðlafélagið ehf. vera viðskiptalegs
eðlis, þar sem trú þeirra sé að um
arðbært tækifæri sé að ræða.
HLUTAFJÁRÚTBOÐ íslenska hug-
búnaðarsjóðsins hf. stendur nú yfir
og eru hlutabréf boðin til sölu fyrir
allt að 265 milljónir króna að nafn-
verði í hlutafjáraukningu, en fyrir var
nafnverð hlutafjár sjóðsins um 117,4
milljónir. Sjóðurinn kynnti í gær út-
boðið fyrir fjárfestum og kom fram í
máli Bjarnar Snæs Guðbrandssonar,
forstöðumanns verðbréfamiðlunar
Landsbanka Islands, sem annast
hlutafjárútboðið, að forgangsréttar-
tímabili lyki 19. ágúst, en þau hluta-
bréf sem ekki seljast þá verða seld
dagana 23.-26. ágúst á genginu 2,49.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbanka íslands, bauð gesti
velkomna og sagði m.a. að það væri
framtíðarsýn bankans að eftir tiltölu-
lega stutt árabil verði verulegur hluti
íslensks atvinnulífs í vaxtargreinum,
og vilji Landsbankinn taka þátt í
fjármögnun í þeim geira.
Gunnar V. Engilbertsson, sjóðs-
stjóri Islenska hugbúnaðarsjóðsins,
sagði að bókfærð eign sjóðsins væri
um 383,8 milljónir króna meðan
markaðsvirði eignarinnar væri var-
lega metið á um 638,3 milljónir króna.
Hann benti þó á að talsverð áhætta
gæti verið fólgin í fjárfestingu í hug-
búnaðarfyrirtækjum.
Ólafur Daðason, framkvæmda-
stjóri Hugvits hf. og stjómarformað-
ur Islenska hugbúnaðarsjóðsins,
sagði að hugbúnaðariðnaðurinn hefði
velt 7,5 milljörðum króna árið 1998 og
hafi velta hans aukist um 74% sein-
ustu tvö ár, og virðast stærri hugbún-
aðarfyrirtækja ætla að vaxa um 30%
til 150% á þessu ári.
Eftir fundinn kynntu þau hugbún-
aðarfyrirtæki sem Islenski hugbún-
aðarsjóðurinn hf. hefur fjárfest mest í
starfsemi sína. Þessi fyrirtæki eru
Gagarín ehf. sem framleiðir marg-
miðlunarefni og hyggst leggja
áherslu á þróun efnis tH starfsþjálfun-
ar í atvinnulífínu.
Hugvit hf. þróar og selur GoPro
skjalavistunar- og samskiptakerfi og
WebpagePro vefútgáfukerfi fyrir
Lotus Notes-hópvinnuumhverfi.
Hugvakinn ehf. þróar hugbúnað sem
býr til hljóð sem ætlað er að auðvelda
fólki að bæta árangur og losna við
streitu og kvíða.
Landsteinar International sem
þróar og selur lausnir fyrir Navision
Financials-hugbúnaðinn, þar sem
áhersla er á kerfi fyrir verslanir.
Menn og mýs ehf. þróar og selur m.a.
hugbúnað fyrir þá aðila sem annast
tengingu tölvukerfis fyrirtækja við
Netið.
Teymi hf. býður tölvu- og hugbún-
aðarlausnir á ýmsum sviðum atvinnu-
lífsins, auk þess að þróa eigin lausnir
fyrir Concorde-hugbúnaðinn. Þróun
ehf. þróar kerfi til að reka Netverslun
sem samofin er Axapta-hugbúnaði, á
einfaldari hátt en hingað til.
Meó einu
handtaki býróu
til boró í
miðaftursætinu.
Einnig fáanlegt
meó kæliboxi.
4 loftpúóar:
bílstjóri, farþegi
í framsæti
og hlióarpúóar.
Tvö hólf í gólfi fyrir
framan aftursæti.
,Flugsætisboró“
Renault Mégane var valinn öruggasti bíll ársins í sínum flokki í Evrópu 1 998.
Fjarstýró
hljómtæki meó
geislaspilara,
stjórnaó úr stýri.
Mikió
farangursrými sem
hægt er aó stækka
enn meira.
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Alhþetiamméí Mé<jone Scénk
Aukabúnaóur á mynd: Álfelgur