Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐ JUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 21 VIÐSKIPTI Afkoma Þormóðs ramma- Sæbergs á fyrri hluta ársins Hagnaður 183 milljónir Þormóður rammi - Sæberg hf. -—I L Arshlutareikningur 1999 ikhwá jan.-júní jan.-júní Rekstrarreikningur Miiijómr króna 1999 1998 Breyting\ Rekstrartekjur 1.895 1.768 7,2% Rekstrargjöld (1.4891 (1.444) 3.1% Hagnaður fyrir afskriftir og fjárm.liði 406 324 25,3% Afskriftir (179) (169) 5,9% Fjármagnsliðir 17 7 142.9% Hagn. af reglulegri starfsemi f.skatta 244 162 50,6% Aðrar tekjur og gjöld 5 16 -68,8% Hagnaður tímabilsins 183 127 44,1% Efnahagsreikningur 30. júní 1999 1998 Breyting | Eignir: | Milljónir króna Veltuf jármunir Fastafjármunir Eignir samtals 895 4.791 1.246 4.350 -28,2% 10,1% 5.686 5.596 1,6% I Skuidir oa eigið tó: | Eigið fé 2.665 2.401 11,0% Skuldbindingar 253 163 55,2% Langtímaskuldir 2.031 1.894 7,2% Skammtímaskuldir 737 1.138 -35,2% Skuldir og eigið fé samtals 5.686 5.596 1.6% Kennitölur 1999 1998 Eiginfjárhlutfall Veltufjárhlutfall 47% 1,2 43% 1,1 Veltufé frá rekstri Milljónir króna 365 274 +33,2% HAGNAÐUR Þormóðs ramma-Sæ- bergs hf. nam 183 milljónum króna eftir reiknaða skatta á fyrstu sex mánuðum þessa árs en var 127 millj- ónir króna á sama tímabili í fyrra. Rekstrartekjur á fyrri helmingi árs- ins voru 1.895 milljónir króna sam- anborið við 1.768 milljónir á sama tímabili í fyrra. Eigið fé var 2.665 milljónir í lok júlí síðastliðins og hef- ur aukist um rúmlega 260 milljónir milli ára en nettó skuldir félagsins voru 2.126 milljónir króna á fyrri hluta þessa árs. Eiginfjárhlutfallið var á sama tímabili 47% en var 43% í fyrra. Veltufé frá rekstri nam 365 milljónum en var 274 milljónir fyrri hluta síðasta árs. Ólafur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma-Sæ- bergs, segir að ástæður fyrir betri afkomu á fyrri hluta ársins miðað við sama tímabil í fyrra megi að stórum hluta rekja til þess að félagið seldi á síðasta ári eignir sem ekki skiluðu arði. Að auki hafi síðasta ár verið erfitt vegna samdráttar í rækjuveiðum. „Nú erum við búin að laga reksturinn að breyttum að- stæðum í rækjuvinnslunni og af- koman er ívið betri en áætlanir okk- ar gerðu ráð fyrir,“ segir Ólafur. ,Að vísu má segja að það sé sérstakt við reksturinn á fyrri hluta þessa árs að fjáimagnsliðir eru jákvæðir um 17 milljónir. Ekki er hægt að reikna með að sama verði uppi á teningnum á seinni hluta ársins.“ Endurskipulagning borið árangur Þorsteinn Víglundsson, yfirmað- ur greiningardeildar Kaupþings, segir að afkoma Þormóðs ramma- Sæbergs sé betri en menn hafi al- mennt gert ráð fyrir en í takt við af- komu annarra sjávarútvegsfyrir- tækja það sem af er árinu. „Félagið brást við samdrætti í rækjuvinnsl- unni með því að endurskipuleggja rekstur og það virðist hafa borið ár- angur. Stjómendur hafa sýnt að þeir kunna að bregðast hratt og ör- ugglega við þeim breytingum sem hafa orðið á ytri skilyrðum rekstr- arins undanfarin misseri,“ segir Þorsteinn. Hann segir flest benda til að af- koma félagsins verði einnig góð á seinni hluta ársins, enda þótt af- urðaverð hafi farið lítillega lækk- andi upp á síðkastið. Þormóður rammi-Sæberg keypti í júní fram- virkt 10% hlut í Hraðfrystihúsinu- Gunnvöru hf. á Isafirði og var kaup- verðið 310 milljónir króna. Einnig keypti félagið nýlega 60% hlut í Siglfirðingi ehf. á Siglufirði og segir Ólafur Marteinsson að ástæðan fyr- ir þessum fjárfestingum sé einkum það mat forráðamanna félagsins að um góðar fjárfestingar sé að ræða. Viðskipti með hlutabréf í Þormóði ramma-Sæbergi á Verðbréfaþingi Islands í gær námu um 12,5 milljón- um og fór gengið hæst í 5,3. Þriggja punkta öryggisbelti meó strekkjurum og höggdempurum fyrir alla farþega bílsins, líka aftur í Veró 1.678.000 y Góó lesljós í farþegarými, leslampi yfir framsaetum, Ijós í farangursrými. Þaó er líkt og Renault Mégane Scénic stækki þegar þú sest inn í hann, enda er hann fyrsti fjölnota- bíllinn í flokki bíla í millistærd. Segja má að Scénic sé í raun þrfr bflar, fjölskyldubíll, feróabfll og sendibfll. Hann er aðeins 4,23 m á lengd en hugmyndarík hönnun og mikið innanrými gerir hann ótrúlega notadrjúgan og hagkvæman fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Það er því engin furða þó hann hafi umsvifalaust verið valinn bíll ársins aföllum helstu bílatímaritum í Evrópu þegar hann var kynntur. Hér á landi hefur hann þegar fengið ffábærar viðtökur. 5 i Fossháls B&L S Hcstháls l««»»,Grjótháls ÁA \t^n\— VestuHandsvegur * Samþjöppun eignarhalds í gasiðnaði Linde gerir tilboð í AGA Stokkhólniur. Reuters. ÞÝSKA fyrirtækið Linde AG hefur gert tilboð í sænska gasfyrirtækið AGA AB. Tilboðið hljóðar upp á 30,9 milljarða sænskra króna eða rúmlega 270 milljarða íslenskra króna. Við samrunann yrði til ann- að stærsta gasframleiðslufyrirtæki í Evrópu og það fjórða stærsta í heimi. Tilboð Linde kemur í kjölfar annarra samruna í iðnaðinum en Air Liquide og U.S. Air Products yfirtóku BOC í Bretlandi fyrir skömmu. Gerhard Full, forstjóri Linde, segir samruna fyrirtækjanna æski- legan fyrir þær sakir að Linde fengi ný markaðstækifæri og sam- legðaráhrif yrðu töluverð. Tilboðið er fjármagnað með láni frá Deutsche Bank. Það hljóðar m.a. upp á að Linde greiði 141 sænska krónu á hvern hlut í AGA en gengi bréfanna var 132 krónur á föstu- dag. Linde á 12,83% í AGA og hef- ur nú þegar gert samninga við aðra hluthafa, sem ráða alls yfir 62,5% hlutafjár. Tilboðið krefst ekki samþykkis hluthafa Linde en það mun aftur á móti þarfnast samþykkis viðeigandi samkeppnisyfirvalda. Linde hefur sterka markaðs- stöðu á þýskumælandi svæði Evr- ópu og Áustur-Evrópu. AGA hefur sterka stöðu á Norðurlöndunum og einnig í Ameríku. Mégane Scénic stækkar þegar þú sest inn i hann: Rýmió kemur á óvart, þú situr hátt og hefur því frábært útsýni. $ RENAULT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.