Morgunblaðið - 17.08.1999, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Ihaldsmenn hvattir
til að hafna skoð-
unum Thatchers
London. Kcutcrs, The Daily Telegraph.
BRESKI Verkamannaflokkurinn
og frjálslyndir demókratar gagn-
rýndu í gær harðlega afstöðu
Ihaldsflokksins í Evrópumálum en
breskir fjölmiðlar höfðu greint frá
því um helgina að Margaret
Thatcher, fyrrverandi leiðtogi
flokksins, hefði hvatt til þess að
Bretland dragi sig út úr Evrópu-
sambandinu. Lýstu þeir Robin
Cook, utanríkisráðherra Bretlands,
og Menzies Campbell, talsmaður
frjálslyndra í utanríkismálum, í
sameiginlegri yflrlýsingu óánægju
með að William Hague, leiðtogi
íhaldsmanna, skyldi ekki þegar hafa
lýst sig ósammála Thatcher.
I fréttum breskra dagblaða um
helgina var greint frá því að
Thatcher, sem var forsætisráðherra
Bretlands 1979-1990, hefði verið
spurð að því í kvöldverðarboði hvort
hún væri hlynnt því að Bretland
drægi sig út úr ESB. „Auðvitað er
ég það. Aðild okkar hefur verið al-
gjört slys,“ er fullyrt að Thatcher
hafí sagt.
Talsmaður Thatchers gerði lítið
úr málinu í gær og sagði að ef ,járn-
frúin“ vildi lýsa skoðunum sínum í
Evrópumálum myndi það ekki ger-
ast í kvöldverðarboði. Engu að síður
olli fréttin uppnámi enda eru um-
mælin talsvert á skjön við þá var-
káru stefnu sem Hague hefur mótað
í Evrópumálum undir kjörorðinu „í
Evrópu en ekki stjómað af Evr-
ópu“.
Hugmyndir um að Bretland eigi
að ganga úr ESB hafa hins vegar
ekki verið til umræðu fyrr en ný-
lega var greint frá því að nokkrir
þingmenn íhaldsflokksins væru því
hlynntir. Yfirlýsingar þingmanna
flokksins, og nú Thatchers, hafa
valdið Hague miklum ama og
reyndu Cook og Campbell í gær að
þjarma að honum vegna málsins.
Sögðu þeir að Hague og Michael
Ancram, flokksformaður íhalds-
manna, hefðu báðir verið beðnir um
að lýsa því yfir að þeir höfnuðu orð-
um Thatchers en að þeir hefðu ekki
orðið við þeim tOmælum. Kröfðust
Cook og Campbell þess nú að
Ihaldsflokkurinn gerði hreint fyrir
sínum dyrum í Evrópumálunum.
„Kastið fomum fordómum lafði
Thatcher og lýsið því yfir í eitt
skipti fyrir öll að ekkert pláss sé
fyrir þá í forystu breskra stjóm-
mála sem telja að Bretland eigi að
draga sig út úr ESB,“ sögðu þeir
Cook og Campbell í yfirlýsingu
sinni.
Forsætis-
ráðherra
Dana í
EMU-klípu
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
POUL Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, vill hvorki
gefa skýr svör um hvort og
hvenær haldin verði þjóðarat-
kvæðagreiðsla um aðild Dana að
Efnahags- og myntbandalagi Evr-
ópu, EMU, né hvort greitt verði
þjóðaratkvæði um aðrar danskar
undanþágur frá Maastricht-sátt-
mála Evrópusambandsins (ESB).
Róttæki vinstriflokkurinn, sem
er í stjórn með flokki forsætisráð-
herrans, jafnaðarmönnum, hefur
reynt að þrýsta á um að fá Nyrup
til að ákveða EMU-atkvæða-
greiðslu, en fyrir helgi sagði Nyr-
up að EMU-aðild yrði ekki tekin
fyrir í flokknum fyrr en næsta
haust. Pernille Frahm, Evrópu-
þingmaður Sósíalíska þjóðar-
flokksins, segir það hugleysi hjá
Nyi-up að vilja ekki taka málið upp
fyrr.
Klípa Nymps er sú, að Jafnað-
annannaflokkurinn er klofinn í af-
stöðunni til EMU, en hins vegar
þrýstir Marianne Jelved, efna-
hagsráðherra og leiðtogi Róttæka
þjóðarflokksins, á um ákvörðun.
Hún og flokkur hennar eru mjög
höll undir aðild. Sjálfur fer Nyrup
ekki dult með að hann telur hag
Dana best borgið með EMU-aðild,
en um helmingur flokksmanna er
talinn andstæður aðild.
Marianne Jelved hefur margoft
lýst þeirri skoðun sinni að best sé
fyrir Dani að gerast aðilar að
EMU. Hún hefur meðal annars
lýst áhyggjum sínum af minnkandi
áhrifum Dana í efnahagsmálum
þegar stefnir í að EMU-löndin ell-
efu innan ESB ráði ráðum sínum
fyrir luktum dyrum. Opinberlega
hefur hún verið þolinmóð um at-
kvæðagreiðslu, en svo virðist sem
þolinmæði hennar fari nú minnk-
andi. Nú þegar stjórnmálalífið er
að vakna af sumardvalanum er
EMU-aðild eitt það fyrsta, sem
kemur upp.
Biðin hefur valdið
margvíslegum titringi
Nyrup hefur ekki viljað segja
fullum fetum hvenær þjóðarat-
kvæðagreiðsla um EMU kæmi til
greina, en fyrir helgi sagði hann að
málið yrði tekið fyrir á flokksþing-
inu að ári. Hins vegar sagði hann
að nauðsynlegt væri að ræða sjálfa
aðildina, ekki bara dagsetningar
hugsanlegrar atkvæðagreiðslu.
Eftir þessi ummæli er ljóst að at-
kvæðagreiðsla kemur tæplega til
greina fyrr en í fyrsta lagi næsta
haust.
Biðin eftir ákveðnum ummælum
hefur valdið margvíslegum pólí-r
tískum taugatitringi. Pernille Fra-
hm, Evrópuþingmaður Sósíalíska
þjóðarflokksins, sakar Nyrup um
hugleysi. Hann vilji draga umræð-
ur í lengstu lög vegna aðstæðna
innan flokksins, þótt Nyrup hafi
margoft haldið því á lofti hve nauð-
sjmlegt sé að ræða málin lengi og
vel. Borgaralegu flokkarnir, sem
styðja EMU-aðild, kvarta yfir því
að með því að víkja sér undan að
ákveða þjóðaratkvæðagreiðslu
drepi Nyrup málið í dróma.
Umræðurnar undanfarna daga
sýna að meðan engin dagsetning
atkvæðagreiðslu kemur fram
munu EMU-deilur fyrst og fremst
verða reiptog um dagsetningar,
ekki málefni.
20'
70
a f s I á 11 u r
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Eyjaslóð 7 Reykjavík simi 511 2200