Morgunblaðið - 17.08.1999, Qupperneq 54
■^54 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
KÍNAFERÐ LÖGFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ
PÖSTUDAGINN 23. apríl keyrð-
um við að Badaling-hluta Kínam-
úrsins. I Badaling er Kínamúrinn
hæstur og eins er þessi hluti
múrsins á hernaðarlega mikilvæg-
um stað.
Sagt er að Kínamúrinn sé eina
mannvirkið á jörðinni sem sjáan-
legt er berum augum frá tunglinu.
Leiðsögumenn okkar sögðu frá
■•fc’því að nýlega hefðu egypsku
pýramídarnir og hollensku flóð-
varnargarðamir þó einnig sést.
Erfitt er hins vegar að finna ör-
uggar heimildir um hve mörg
mannvirki á jörðinni hafi sést utan
úr geimnum, hver sá þau og
hvenær.
Á kínversku nefnist Kínamúr-
inn Wan Li Chang Cheng, þ.e.
múr hinna 10.000 li, en li er mæli-
eining er samsvarar 500 metrum.
Wan er kínverska orðið yfir
10.000, tákn ólýsanlegrar stærðar,
enda byggingarsögulegt afrek að
menn skuli hafa reist jafnlanga
byggingu. Stundum er Kínamúr-
inn einfaldlega nefndur Chang
Cheng eða „Langi múr“. Kínam-
úrinn, sem er 6.400 km að lengd,
að meðaltali 8 m að hæð og 7 m að
breidd, liggur að því er virðist í
endalausum sveigjum og snúning-
um frá Gula hafinu, í gegnum 5
héruð og 2 sjálfstjórnarsvæði í
Kína og gegnum Gobi-eyðimörk-
ina. Elsti hluti múrsins er frá 5.
öld f. Kr. en talið er að fyrsti keis-
arinn í Kína, Qin, hafi þegar árið
220 f. Kr. ákveðið hvar múrinn
^skyldi liggja. Hermenn og bænd-
ur, frá öllum héruðum Kína, unnu
þá nauðungarvinnu sem bygging
múrsins var og eyddu í það mörg-
um árum ævi sinnar. Flytja varð
mörg hundruð kílógramma stein-
blokkir upp snarbrattar hlíðar og
kostaði það mörg mannslíf.
Tilgangurinn með byggingu
múrsins var að byggja sjáanleg
landamæri og jafnframt varnar-
virki til að halda barbörunum úr
vestri og öðrum óvinum frá Kína.
Kínamúrinn hefur ekki gegnt því
hlutverki sínu. Kínamúrinn var t.d
engin hindrun fyrir Manehu-her-
sveitir er gjörsigruðu Kína á tím-
um Mingkeisara-
veldisins, árið
1644.
Á friðartímum
var múrinn eftir-
látinn veðrum og
vindum og grotn-
aði hann smátt og
smátt niður.
Bændur sáu í múr-
num ágætis bygg-
ingarefni og á dög-
um Menningar-
byltingarinnar
(1966-1976)
byggðu hersveitir
heilu herskálana úr
múrnum. Nú hefur
hins vegar verið
hafist handa um að
viðhalda og varð-
veita Kínamúrinn.
Maó Tze Tung
sagði eitt sinn að
menn væru ekki
hetjur íyrr en þeir
hefðu komið á
Kínamúrinn. Þenn-
an fostudag, í apríl-
mánuði síðasta árs
aldarinnar, bættust
Islendingum 80
hetjur. Við klifum
öll Kínamúrinn.
Eftir nokkra göngu
upp múrinn rann
upp fyrir manni
hvað Maó átti við
með hetjuumsögn
sinni. Það var bara nokkuð bratt á
köflum en þegar upp var komið
blasti við fagurt útsýni yfir
fjöll... og meira af Kínamúrnum.
Þegar niður var komið var verzlað
í minjagripasölubúðum á staðnum.
Kínversk höfuðföt með áfastri
fléttu og sönnunargögn eins og
Islenskir Kínafarar, í ferð Lögfræðingafélags íslands, á Kínamúmum, eina mannvirki jarðar
sem sést bemm augum frá tunglinu.
Islenskir lögfræðingar í heimsókn í Hæstarétti Kína.
Himnahofið.
bolir með áritunum um að viðkom-
andi hefði klifið Kínamúrinn voru
einn vinsælasti vamingurinn.
Fundir með ráðamönnum
I ferðinni voru haldnir fundir
með ráðamönnum í Kína, forseta
Steingrímur Gautur Kristjánsson og leirherinn í Xian.
ACLA (All China Lawyers Associ-
ation), Ren Jisheng og öðrum
framámönnum Lögfræðingafélags
Kína, Gao Changli, dómsmálaráð-
herra Kína, Liang Guoquing, vara-
ríkissaksóknara Kína, og Cao Zhi,
varaforseta kínverska þingsins.
t\\Tt
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
Dómsmálaráðherra Kína upp-
lýsti okkur m.a. um að kínverska
þjóðin nyti mestu mannréttinda í
heiminum. Jafnframt kom fram í
máli dómsmálaráðherra að aðbún-
aður fanga í kínverskum fangels-
um væri til fyrirmyndar og Vest-
urlandabúar hefðu mjög brenglaða
mynd af fangelsismálum í Kína og
létu ekki sannfærast fyrr en þeir
sæju fangelsin með eigin augum.
Þess má geta að við fengum ekki
að sjá kínverskt fangelsi.
Hjá vararíkissaksóknara voru
m.a. dauðarefsingar til umræðu.
Sökum mikils mannfjölda í Kína,
en þar búa 1200 milljónir manna,
eru dauðarefsingar við lýði, vegna
varnaðaráhrifa þeirra. Liang Gu-
oqing sagði að farið væri varfærn-
islega í að beita þeim og þeim væri
einungis beitt er nauðsyn bæri til.
Fram kom að sökunautar væru
teknir af lífi 2 árum eftir Ufláts-
dóm. Vararíkissaksóknarinn sagði
að möguleiki væri að breyta lííláts-
dómi í lífstíðarfangelsi ef hinn seki
bryti ekki af sér á tveggja ára
tímabilinu. Samkvæmt lögum þarf
þó samþykki Hæstaréttar til þess
að breyta líflátsdómum í lífstíðar-
fangelsi. Frægasta dæmi um líf-
látsdóm, sem breytt var í lífstíðar-
fangelsi, er líklega dómurinn yfir
Jiang Qing, eiginkonu Maós, ein-
um meðlima fjórmenningaklíkunn-
_ Allt lagakerfí
Kína er að
breytast
Mjög fróðlegt var að fá innsýn í störf
einkarekinnar lögmannastofu í Kína, segir
^ Ragnheiður Jónsdóttir í síðari grein sinni.
Stofan endurspeglar vel hve hratt allt laga-
kerfí og -umhverfí í Kína er að breytast.