Morgunblaðið - 21.08.1999, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Mótmæla áformum
Viðbrögð Belgrad-stjórnarinnar við fjöldamótmælafundi
Filippseyj afor seta
Manila. AFP.
TUGIR þúsunda mótmælenda
komu saman í Manila á Filipps-
eyjum í gær og sökuðu Joseph
Estrada forseta um að hafa látið
viðgangast að einveldi Ferdin-
ands Marcosar kæmist á í land-
inu. Fyrrverandi forseti, Corazon
Aquino, og erkibiskupinn í
Manila, Jaime Sin, fóru fyrir
mótmælendunum og fullyrtu að
„Marcosarhópurinn" svonefndi,
nánustu aðstoðarmenn Estradas,
stæði fyrir umdeildum áætlunum
um að breyta stjórnarskránni.
Þetta eru fjölmennustu mót-
mælin gegn Estrada frá því hann
tók við völdum í júní í fyrra.
„Þeir sem silja að völdum í dag
eru hinir sömu og fólkið hafnaði í
gær,“ sagði Aquino á útifundi og
skírskotaði til uppreisnarinnar
1986 þegar Marcos hrökklaðist
frá völdum.
Estrada bar af sér ásakanir um
að hafa verið greiðvikinn við erf-
ingja og virktavini Marcosar. Á
enn fjölmennari útifundi í Manila
í gær sagði hann að stjórnar-
skrárbreytingarnar vörðuðu ein-
ungis efnahagslega þætti og mið-
uðu að því að auðvelda erlenda
fjárfestingu í landinu.
Úrhellisrigning skall á í Manila
þegar útifundur mótmælendanna
stóð yfír í fjármálahverfinu. Á
spjaldi eins mótmælandans má
sjá andmæli gegn fyrirhugaðri
stj órnarskrárbreytingu.
Fundurinn sagður
hafa verið „mistök“
Belgrad. AFP, AP.
LITIÐ var gert úr fjölmennum mótmælafundi stjórnarandstöðuafl-
anna í Belgrad í gær í þeim fjölmiðlum er hallir eru undir Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseta og ríkisstjórn hans. Var fundurinn kallað-
ur „mistök“ og sagt að hann hafi valdið stuðningsmönnum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) vonbrigðum. Á fundinum sem haldinn var síð-
degis á fimmtudag safnaðist um 150.000 manns saman og krafðist
þess að Milosevic hyrfi frá völdum. Stjórnarandstöðuöflin er stóðu að
fundinum lýstu yfir ánægju sinni með þátttöku almennings en hafa
menn þó enn af því áhyggjur að lítil samstaða virðist ríkja meðal
helstu stjórnarandstöðuleiðtoga. „Misheppnaður stuðningsfundur
NATO“ stóð í fyrirsögn hins ríkisrekna dagblaðs Politika. Fullyi-ti
blaðið að aðeins 25.000 manns hefðu tekið þátt í mótmælaaðgerðunum.
Reuters
„Ekki er ljóst hverjir hafa orðið
iyrir mestum vonbrigðum, skipu-
leggjendurnir, þátttakendurnir eða
forystumenn NATO,“ sagði í frétt
serbneska ríkissjónvarpsins eftir að
fundurinn fór fram.
Á fundinum ítrekuðu sumir ræðu-
haldarar kröfur sínar um að Milos-
evie segði skilyrðislaust af sér emb-
ætti og höfnuðu tilboðum ríkis-
stjórnarinnar um kosningar innan
skamms tíma. „Serbneska þjóðin vill
að Slobodan Milosevic hverfi frá og
hún vill engar málamiðlanir eða
samninga við stjórnina,“ sagði Vlad-
an Bacic, einn leiðtoga Breytinga-
bandalagsins, samtaka nokkuira
stj órnarandstöðuflokka.
Ótti um að mál kunni
að þæfast í innbyrðis deilum
Misvísandi ræður stjórnarand-
stæðinga virtust hins vegar rugla
almenning sem hlýddi á í ríminu og
undirstrikuðu þá óeiningu sem ríkir
um næstu skref stjórnarandstöð-
unnar og hver eigi að leiða þau öfl í
baráttunni gegn veldi Milosevics.
Margir fundarmenn hrópuðu
ókvæðisorð að Vuk Draskovic, leið-
toga Endurreisnarbandalagsins, er
hann sagði að Milosevic mætti sitja
að völdum uns fram færu kosningar
í nóvember nk. „Láttu þig hverfa,
Vuk!,“ „Farðu og fáðu þér kaffi hjá
Miru [Miru Markovic, eiginkonu
Milosevics]," og „Svikari," var meðal
þess sem heyrðist á meðan á ræðu
Draskovics stóð.
Höfuðandstæðingur Draskovics í
liði stjórnarandstæðinga, Zoran Dj-
indjic, leiðtogi Lýðræðisflokksins,
tók upp mun dýpra í árinni og gaf
Milosevic fimmtán daga frest til að
hverfa úr embætti.
Ræða Djindjics vakti ánægju
meðal fundargesta en margir óttuð-
ust að tilraunir til að koma Milosevic
frá völdum myndu þæfast í innbyrð-
is deilum stjórnarandstöðuaflanna.
„Eg er afar vonsvikinn," sagði Zor-
an Gavrilovic, einn þeirra er mættu
á fundinn. „Þeir geta ekki komið sér
saman um neitt, eins og böm, á
meðan enginn hugsar um hvað geti
gerst á morgun.“
Fresturinn
til 21. september
í gær sagði Djindjic í viðtali við
AFP að Milosevic yrði gefinn frest-
ur fram til 21. september að víkja úr
embætti. Aðrir stjórnai’andstæðing-
ar sögðu að fundurinn á fimmtudag
hafi sent stjórnvöldum skýr skilaboð
um vilja til breytinga. Djindjic sagði
ennfremur að þátttaka Draskovics í
mótmælunum hafi verið ákjósanleg
og að ekki væri rígur þeirra í milli.
„Þetta var smátt skref í átt að vilja
fólksins um að stjórnarandstaðan
vinni saman.“
Milan Dinkic, skipuleggjandi mót-
mælafundarins og forsvarsmaður G-
17 hópsins, sagði í gær að hann
myndi hætta að reyna að eiga frum-
kvæði að því að koma á einingu með-
al stjórnarandstöðuaflanna ef þau
kæmu sér ekki brátt saman um
næstu skref.
Finnar
heita túlk-
un á þýzku
ÞJÓÐVERJAR og Austurríkis-
menn hyggjast hætta að snið-
ganga óformlega fundi ráð-
herraráðs Evrópusambandsins
(ESB), eftir að Finnar, sem
fara með forsæti í ráðherraráð-
inu þetta misserið, lofuðu að á
sumum þeirra yrði ekki aðeins
boðið upp á túlkun á ensku,
frönsku og finnsku - tungu for-
mennskuþjóðarinnar - heldur
einnig á þýzku.
Finnar tóku við formennsk-
unni í ESB 1. júlí og fulltrúar
beggja þýzkumælandi þjóðanna
í ESB hafa vegna tungumála-
deilunnar ekki mætt á þá tvo
óformlegu ráðherrafundi sem
búið er að halda síðan. Tveir
slíkir óformlegir fundir eru fyr-
irhugaðir áður en Finnar láta
af formennskunni um næstu
áramót, og hafa þeir reyndar
sagt að ekki verði boðið upp á
þýzkar þýðingar nema á öðrum
þeirra.
Segjast talsmenn finnsku
stjórnarinnar ekki hafa beygt
sig undir þýzkan þrýsting í
deilunni, en ________
Finnum var
farið að finnast
súrt í broti að
dagskrá for-
mennskutíðar
þéirra félli í
skuggann af
deilum um ekki
veigameira mál en þetta.
Á formlegum ráðherrafund-
um er túlkað á allar ellefu tung-
ur aðildarþjóðanna.
Meint misferli Romanos Prodis
Rannsókn hafín á ný
The Daily Telegraph, Reuters.
YFIRVÖLD á Italíu hafa á ný hafið rannsókn á
meintu misferli Romanos Prodis, væntanlegs for-
seta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins
(ESB), aðeins hálfum mánuði áður en Evrópu-
þingið í Brussel staðfestir útnefningu hans.
Rannsóknin beinist að ráðgjafariyrirtæki í
Bologna, sem er í eigu Prodis og eiginkonu hans,
Analisi e Studi Economici (ASE), en það mun hafa
fengið sem svarar tæplega 160 milljónum króna í
ráðgjafarlaun í byrjun níunda áratugarins, þegar
Prodi gegndi opinberu embætti. Sagt er að hann
hafi látið undir höfuð leggjast að tilkynna um
tengsl sín við fyrirtækið þegar hann var yfirmað-
ur stærsta eignarhaldsfélags ítalska ríkisins.
Kann þetta að stangast á við reglugerðir um
breytni opinberra embættismanna á Ítalíu.
Saksóknari í Bologna til-
kynnti í vikunni að hafin væri
ný rannsókn á fyrirtækinu í
kjölfar írétta í breska blaðinu
The Daily Telegraph. Prodi
sagði þetta koma sér óþægi-
lega á óvart, en hann vænti
þess að verða hreinsaður af öll-
um grun fljótlega. „Prodi er
sallarólegur yfir þessari rann-
sókn,“ sagði talsmaður hans í
gær. „Þetta er eldgömul saga.“
Fyrirtækið var rannsakað af embætti saksókn-
ara í Bologna 1996 í kjölfar fjölmiðlafregna um
hugsanlegt misferli. Ekkert athugavert fannst við
framferði Prodis þá.
Romano Prodi
Svíar taki ákörðun um
EMU-aðild sem fyrst
EVROPA^
Stokkhólmi. Reuters.
SÆNSKI Jafnaðarmannaflokkurinn, sem nú situr
í ríkisstjórn landsins, varð fyrir auknum þrýstingi
í lok vikunnar í þá veru að dagsetja þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem haldin verður um aðild lands-
ins að Myntbandalagi Evrópu
(EMU) eftir að einn forystu-
manna í flokknum lýsti þeirri
skoðun sinni að afar mikilvægt
væri að Ijúka málinu sem fyrst.
Pierre Schori, fyrrverandi
ráðherra sem situr á Evrópu-
þinginu fyrir hönd sænskra
jafnaðarmanna, sagði á föstu-
dag að hann myndi hvetja miðstjórn flokksins til
að taka ákvörðun sem fyrst í þessu pólitíska hita-
máli.
„Ræða verður þjóðaratkvæðagreiðsluna sem
fyrst. Spurningunni verður að svara fljótlega,"
sagði Schori. Sagði hann að á meðan hagkerfið
væri óðum að hnattvæðast yrðu Svíar að taka upp
sameiginlega mynt Evrópusambandsins. Það
myndi veita landinu mikilvæga kjölfestu.
Sænsk stjórnvöld kusu að standa utan Mynt-
bandalagsins vegna neikvæðrar afstöðu almenn-
ings en lýstu því yfir að síðar yrði þjóðin látin
ráða, helst í þjóðaratkvæðagreiðslu. Jafnaðar-
mannaflokkurinn hefur stefnt að því að taka
ákvörðun um málið á flokksþingi í mars nk. en
sumir óttast að ákvörðuninni verði frestað.
1 Danmörku, sem einnig er utan EMU, er
stefnt að því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðild fyrir marsmánuð 2002.
Niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar sem
Gallup birti í gær sýndu að andstaða við aðild er
enn sterk í Svíþjóð. 38% aðspurðra sögðust
andsnúin henni en svipaður fjöldi var fylgjandi.
Blair-stjórnin
segir Ihalds-
flokkinn á valdi
öfgasinna
Lopdon. Reuter>.
RIKISSTJORN breska Verkamannaflokksins
lét í gær til skarar skríða gegn viðhorfi stjórnar-
andstöðu Ihaldsflokksins til Evrópumála og
sagði öfgamenn hafa náð tangarhaldi á Ihalds-
flokknum og toguðu hann sífellt lengra til
hægri.
Geoff Hoon Evrópumálaráðherra sagði við
fylgismenn Verkamannaflokksins í kjördæmi
sínu í gær að íhaldsmenn stefndu á „útidyr Evr-
ópusambandsins“ og að það myndi kosta millj-
ónir starfa.
Sagði Hoon að William Hague, leiðtogi
Ihaldsflokksins, ætti að gera afstöðu flokksins
skýra. „Flokkur hans stefnir á afstöðu til Evr-
ópu sem myndi þrefalda atvinnuleysi svo að
segja á augabragði,“ sagði Hoon.
Fréttaskýrendur telja að orð Hoons bendi til
þess að stjórnin sé orðin ákveðnari í að vekja
máls á Evrópusamstarfinu sem málaflokki í
fyrsta sinn síðan hún beið afhroð í kosningunum
til Evrópuþingsins í júní, þegar Ihaldsflokkur-
inn vann sigur.
Segja Evrópustefnuna
óbreytta
Talsmaður íhaldsflokksins í Evrópumálum,
Archie Norman, fullyrti að stefna Hagues er
varðaði Evrópusamstarf væri óbreytt og sagði
Hoon vera „ógagnrýninn Evrópudýrkanda“ sem
væri staðráðinn í að selja öll ráð í hendur yfir-
mönnum Evrópusambandsins.
„Það er móðgun við Breta að segja að stuðn-
ingur þeirra við stefnu [Hagues] geri þá að
öfgasinnum," sagði Norman. „Þetta er hefð-
bundin stefna og það var hún sem hjálpaði okk-
ur til sigurs í Evrópuþingkosningunum."