Morgunblaðið - 22.08.1999, Page 1

Morgunblaðið - 22.08.1999, Page 1
STOFNAÐ 1913 188. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Enn fínnst fólk á lífí Hætt verði að skrá börn í heri Islamabad. Reuters. SAMEINUÐU þjóðimar hafa hvatt stríð- andi fylkingar í Afganistan til að hætta að skrá böm í heri sína. Starfsmenn Barna- hjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, telja að sifellt fleiri drengir undir 18 ára aldri, allt niður í 14 ára, taki þátt í bardög- um Talebanahreyfingarinnar, sem er við völd í landinu, og uppreisnarmanna sem hliðhollir em Ahmad Shah Masood hers- höfðingja. Átök bmtust út fyrir þrem vikum, þegar sveitir Talebana hófu stórsókn gegn her Masoods, sem var hershöfðingi í ríkis- sljórninni sem Talebanahreyfingin hrakti frá völdum 1996, og ræður nú um tíu af hundraði lands í Afganistan. Starfsmenn UNICEF sögðu fréttamönnum að Taleban- ar og stjórnarandstaðan bæm ábyrgð á velferð um eitt hundrað þúsund manns sem hrakist hefðu frá heimilum sínum vegna átakanna. Undanfarnar tvær vikur hefðu fulltrúar Talebana heimsótt trúarskóla í Pakistan og tekist að skrá og senda til Afganistans 2.000 til 2.500 afganska og pakistanska nemendur. Það var í slfkum trúarskólum sem hreyfíng Talebana átti upptök sín, og þeir segjast ætla að stofna heimsins hrein- asta ríki íslams þegar þeir hafi sigrað Ma- sood. ■ Stolin æska/12 „Eg er leið- inlegur“ HINN kunni bandaríski blaðamaður Bob Woodward náði ekki að komast á síður nýs tímarits, Talk, sem gefið var út með mikilli viðhöfn nýlega. Ritsijórinn, Tina Brown, fékk Woodward til að setjast niður með einum af kunnari pennum tímaritsins, George Stephanopoulos, og vera í hlut- verki viðtalsefnisins, að því er The Wash- ington Post greindi frá. Hlutverkunum var þama víxlað, því Woodward tók mörg viðtöl við Steph- anopoulos fyrir bók sína um forsetatíð Bills Clintons, The Agenda. Woodward féllst á að veita viðtel, en varaði Brown ritstjóra við því að hann yrði kannski ekki mjög spennandi. Stephanopoulos hefði hins vegar verið „mjög vel undirbúinn. Hann yfirheyrði mig í fjóra eða fimm tíma.“ Viku seinna hringdi Stephanopoulos f Woodward og tjáði honum að Brown rit- sljóri hefði ákveðið að birta ekki viðtalið. Woodward sagði Brown ritstjóra hafa komist að því sem hann og kona hans hafi vitað: „Ég er leiðinlegur." Stephanopoulos sagði: „Kannski er hann betri fréttamaður en heimildamaður og kannski ég sé betri heimildamaður en fréttamaður.“ Yalova, Ismit. Reuters. BJÖRGUNARSVEITIR í bænum Yalova í Tyrklandi fundu í gær 95 ára gamla konu á lífi djúpt í húsarústum, fjórum dögum eftir að gíf- urlegur jarðskjálfti, er mældist 7,4 á Richter, varð að minnsta kosti 11 þúsund manns að bana í norðvesturhluta landsins. Talsmaður austurríska hersins greindi frá þessu í gær, og hafði eftir konunni, sem var illa á sig komin, að fleiri væru enn grafnir þar sem hún hafði verið. „Við vonuðum að við fyndum fleiri þarna, en líkurnar eru litlar," sagði talsmaður- inn. Konan fannst í rústum sumarhúsa við strönd Marmarahafsins, en bæir við austur- enda þess urðu illa úti í skjálftanum. Sam- einuðu þjóðirnar tilkynntu á föstudag, að bú- ist væri við að endanleg tala látinna yrði um 40 þúsund. Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN greindi frá því í gærmorgun að í bæn- um Golcuk hefðu tveir fundist á lífi í húsa- rústum. Alls hefðu sjö manns fundist á lífi skömmu eftir hádegi í gær, að sögn CNN. Ellefu ára gömul stúlka fannst á lífi rúst- um fimm hæða íbúðablokkar í Yalova, að því er tyrkneskir og franskir björgunarmenn greindu frá. Systir stúlkunnar var látin. Myndavél og hljóðnema hafði verið stungið niður um holu í rústunum og námu veika rödd stúlkunnar. Einn frönsku björgunar- mannanna sagði að börn ættu meiri mögu- leika en fullorðnir á að lifa grafin í rústun- um, þar eð þau þyrftu minna súrefni og minni vökva. Víða í þeim landshlutum sem urðu verst úti í skjálftanum eyddu tugir þúsunda Tyrkja nóttinni undir berum himni af ótta við að hí- býli þeirra þyldu ekki eftirskjálfta, sem óttast er að dynji yfír. Fréttastofan Anatolian greindi frá því að fimm eftirskjálftar hefðu orðið á fostudag, og styrkleiki þeirra verið á bilinu 4,3 til 4,6 á Richter. Sum tyrknesk dagblöð hafa gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir slælega frammi- stöðu við björgunaraðgerðir og segja þau ekki hafa staðið sig jafn vel og tyrkneskir og al- þjóðlegir sjálfboðaliðar. „Þegiðu og gerðu eitthvað," sagði blaðið Radikal við embættis- mann í heilbrigðismálaráðuneytinu sem blað- ið sagði að hefði gagnrýnt alþjóðlega sjálf- boðaliða. Slökkviliðsmönnum tókst að ráða niðurlög- um elds sem geisað hafði í stærstu olíuhreins- unarstöð landsins frá því jarðskjálftinn varð, að því er framkvæmdastjóri stöðvarinnar tjáði fréttamönnum í gær. Síðdegis í gær greindi CNN hins vegar frá þvi að eldur væri á ný kominn upp í hreinsistöðinni. SHIRAN Franco, tíu ára ísraelsk stúlka, bjargaðist lifandi úr húsarústum í bænum Cinarcik í gærmorgun. Yitzhak Ashkenazi, foringi í ísraelska hernum og yfirmaður ísraelskra björgunarmanna í Tyrklandi, þvær hér andlit stúlkunnar með vatni. Hún hafði verið graf- in í rústunum í tæpar 100 klukkustundir. Shiran þjáðist af vökvatapi, en liðan hennar var að öðru leyti góð. Móður hennar hafði tekist að komast af sjálfsdáðum úr rústunum, eftir að hafa verið grafín í 30 klukkutíma, og neitaði að gefa upp vonina um að fleiri fjölskyldu- meðlimir fyndust á lífi. Tvíburabróðir Shirans fannst látinn, en fóður hennar og afa og ömmu er enn saknað. Reuters Björgun í Tyrklandi um a cmm hcilsu löiMMim omwJM 30

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.