Morgunblaðið - 22.08.1999, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913
188. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Enn fínnst fólk á lífí
Hætt verði
að skrá
börn í heri
Islamabad. Reuters.
SAMEINUÐU þjóðimar hafa hvatt stríð-
andi fylkingar í Afganistan til að hætta að
skrá böm í heri sína. Starfsmenn Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF,
telja að sifellt fleiri drengir undir 18 ára
aldri, allt niður í 14 ára, taki þátt í bardög-
um Talebanahreyfingarinnar, sem er við
völd í landinu, og uppreisnarmanna sem
hliðhollir em Ahmad Shah Masood hers-
höfðingja.
Átök bmtust út fyrir þrem vikum, þegar
sveitir Talebana hófu stórsókn gegn her
Masoods, sem var hershöfðingi í ríkis-
sljórninni sem Talebanahreyfingin hrakti
frá völdum 1996, og ræður nú um tíu af
hundraði lands í Afganistan. Starfsmenn
UNICEF sögðu fréttamönnum að Taleban-
ar og stjórnarandstaðan bæm ábyrgð á
velferð um eitt hundrað þúsund manns
sem hrakist hefðu frá heimilum sínum
vegna átakanna.
Undanfarnar tvær vikur hefðu fulltrúar
Talebana heimsótt trúarskóla í Pakistan
og tekist að skrá og senda til Afganistans
2.000 til 2.500 afganska og pakistanska
nemendur. Það var í slfkum trúarskólum
sem hreyfíng Talebana átti upptök sín, og
þeir segjast ætla að stofna heimsins hrein-
asta ríki íslams þegar þeir hafi sigrað Ma-
sood.
■ Stolin æska/12
„Eg er leið-
inlegur“
HINN kunni bandaríski blaðamaður Bob
Woodward náði ekki að komast á síður
nýs tímarits, Talk, sem gefið var út með
mikilli viðhöfn nýlega. Ritsijórinn, Tina
Brown, fékk Woodward til að setjast niður
með einum af kunnari pennum tímaritsins,
George Stephanopoulos, og vera í hlut-
verki viðtalsefnisins, að því er The Wash-
ington Post greindi frá.
Hlutverkunum var þama víxlað, því
Woodward tók mörg viðtöl við Steph-
anopoulos fyrir bók sína um forsetatíð
Bills Clintons, The Agenda. Woodward
féllst á að veita viðtel, en varaði Brown
ritstjóra við því að hann yrði kannski ekki
mjög spennandi. Stephanopoulos hefði
hins vegar verið „mjög vel undirbúinn.
Hann yfirheyrði mig í fjóra eða fimm
tíma.“
Viku seinna hringdi Stephanopoulos f
Woodward og tjáði honum að Brown rit-
sljóri hefði ákveðið að birta ekki viðtalið.
Woodward sagði Brown ritstjóra hafa
komist að því sem hann og kona hans hafi
vitað: „Ég er leiðinlegur." Stephanopoulos
sagði: „Kannski er hann betri fréttamaður
en heimildamaður og kannski ég sé betri
heimildamaður en fréttamaður.“
Yalova, Ismit. Reuters.
BJÖRGUNARSVEITIR í bænum Yalova í
Tyrklandi fundu í gær 95 ára gamla konu á lífi
djúpt í húsarústum, fjórum dögum eftir að gíf-
urlegur jarðskjálfti, er mældist 7,4 á Richter,
varð að minnsta kosti 11 þúsund manns að
bana í norðvesturhluta landsins. Talsmaður
austurríska hersins greindi frá þessu í gær, og
hafði eftir konunni, sem var illa á sig komin,
að fleiri væru enn grafnir þar sem hún hafði
verið. „Við vonuðum að við fyndum fleiri
þarna, en líkurnar eru litlar," sagði talsmaður-
inn.
Konan fannst í rústum sumarhúsa við
strönd Marmarahafsins, en bæir við austur-
enda þess urðu illa úti í skjálftanum. Sam-
einuðu þjóðirnar tilkynntu á föstudag, að bú-
ist væri við að endanleg tala látinna yrði um
40 þúsund. Bandaríska sjónvarpsstöðin
CNN greindi frá því í gærmorgun að í bæn-
um Golcuk hefðu tveir fundist á lífi í húsa-
rústum. Alls hefðu sjö manns fundist á lífi
skömmu eftir hádegi í gær, að sögn CNN.
Ellefu ára gömul stúlka fannst á lífi rúst-
um fimm hæða íbúðablokkar í Yalova, að því
er tyrkneskir og franskir björgunarmenn
greindu frá. Systir stúlkunnar var látin.
Myndavél og hljóðnema hafði verið stungið
niður um holu í rústunum og námu veika
rödd stúlkunnar. Einn frönsku björgunar-
mannanna sagði að börn ættu meiri mögu-
leika en fullorðnir á að lifa grafin í rústun-
um, þar eð þau þyrftu minna súrefni og
minni vökva.
Víða í þeim landshlutum sem urðu verst úti
í skjálftanum eyddu tugir þúsunda Tyrkja
nóttinni undir berum himni af ótta við að hí-
býli þeirra þyldu ekki eftirskjálfta, sem óttast
er að dynji yfír. Fréttastofan Anatolian
greindi frá því að fimm eftirskjálftar hefðu
orðið á fostudag, og styrkleiki þeirra verið á
bilinu 4,3 til 4,6 á Richter.
Sum tyrknesk dagblöð hafa gagnrýnt
stjórnvöld harðlega fyrir slælega frammi-
stöðu við björgunaraðgerðir og segja þau ekki
hafa staðið sig jafn vel og tyrkneskir og al-
þjóðlegir sjálfboðaliðar. „Þegiðu og gerðu
eitthvað," sagði blaðið Radikal við embættis-
mann í heilbrigðismálaráðuneytinu sem blað-
ið sagði að hefði gagnrýnt alþjóðlega sjálf-
boðaliða.
Slökkviliðsmönnum tókst að ráða niðurlög-
um elds sem geisað hafði í stærstu olíuhreins-
unarstöð landsins frá því jarðskjálftinn varð,
að því er framkvæmdastjóri stöðvarinnar tjáði
fréttamönnum í gær. Síðdegis í gær greindi
CNN hins vegar frá þvi að eldur væri á ný
kominn upp í hreinsistöðinni.
SHIRAN Franco, tíu ára ísraelsk stúlka, bjargaðist lifandi úr húsarústum í bænum Cinarcik í gærmorgun. Yitzhak Ashkenazi, foringi
í ísraelska hernum og yfirmaður ísraelskra björgunarmanna í Tyrklandi, þvær hér andlit stúlkunnar með vatni. Hún hafði verið graf-
in í rústunum í tæpar 100 klukkustundir. Shiran þjáðist af vökvatapi, en liðan hennar var að öðru leyti góð. Móður hennar hafði tekist
að komast af sjálfsdáðum úr rústunum, eftir að hafa verið grafín í 30 klukkutíma, og neitaði að gefa upp vonina um að fleiri fjölskyldu-
meðlimir fyndust á lífi. Tvíburabróðir Shirans fannst látinn, en fóður hennar og afa og ömmu er enn saknað.
Reuters
Björgun í Tyrklandi
um
a cmm
hcilsu
löiMMim
omwJM 30