Morgunblaðið - 22.08.1999, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.08.1999, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ Reisulegur bær Eiríks rauða og Þjóðhildarkirkja eru nú óðum að komast i endanlegt horf í Brattahlíð við Eiríksfjörð ó Grænlandi. Húsin eru byggð með þeim aðferðum og tækjum, sem talið er að hafi verið notuð fyrir 1000 órum. Byggingarnar eiga að verða minnismerki um byggð norrænna manna ó Grænlandi og er von þeirra sem að þeim standa að þær verði notaðar sem mest.| SIGURJON PALSSON og RAGNAR AXELSSON fóru ó slóðir Eiríks rauða, sem líklegt er að hafi valið sér stað, þar sem útsýnið var fallegast og landkostir góðir. Ýmsir starfsmenn ístaks, sem komið hafa að verkinu og aðstoðað við það á íslandi brugðu sér til Bratta- hlíðar. Eins og sjá má höfðu menn mikinn áhuga á því sem þeir sáu á Grænlandi og augljóst að bærinn verður hinn reisulegasti. Horft yfir Eiríksfjörð. Kenningar eru á lofti um að rétt eins og útsýnið hafði mikil áhrif á að Otto Fredriksen settist að í Brattahlíð við upphaf þessarar aldar, hafi það ekki síður skipt Eirík rauða miklu máli í vali sínu. Víglundur Kristjánsson, torf- og grjóthleðslumeistari, leggur grjót á garðinn umhverfis Þjóðhildarkirkju hina nýju. Horft yfir bæjarstæðið. Endurgerð bæjar Eiríks rauða er komin vel á veg og lýkur að mestu í haust. Bærinn verður svo vígður í miðjum júlí á næsta ári. AÐ ER til marks um hve vel Eiríkur rauði bjó að haust eitt þegar 140 manns komu á skipum i heimsókn til hans, bauð hann þeim öllum að hafa hjá sér vetursetu, sem þeir þáðu. Bærinn er byggður úr timbri og torfi. Endurgerð bæj- arins hófst í byrjun þessa árs með því að timburgrind hússins var smíðuð á íslandi úr sérvöldu timbri frá Noregi og með tækjum og að- ferðum sem talið er líklegt að hafi verið notaðar á tímum Eiríks rauða. Rústir hins eina og sanna bæjar Eiríks rauða eru taldar vera rétt hjá þeim stað sem nýi bærinn stendur á en þar hefur enn enginn fornleifagröftur farið fram. Fyrir- mynd bæjarins er bær undir Sandi í Godthábfirði. Stærðir þessara bæja eru allar mjög svipaðar. Öll framkvæmdin hefur verið gerð í samráði við fornleifafræðinga og sérfræðinga á sviði gamalla húsa. Vinsæll ferðamannastaður Norrænir menn bjuggu í Bratta- hlíð fram á 14. öld en hurfu þá. Enn er hægt að sjá rústir upprunalegra húsa þeirra. Það var svo í upphafi þessarar aldar sem Otto Fredrik- sen fluttist til Brattahlíðar, fyrstur nútímamanna. Útsýni og umhverfi Brattahlíðar er stórfenglegt og hafði mikil áhiif á Otto þegar hann valdi sér stað til búsetu. Það er lík- legt að útsýnið hafi skipt Eirík jafn miklu máli, þegar hann ákvað að flytjast þangað. Sex fjölskyldur búa nú í Brattahlíð eða Qassiarsuk eins og nafnið er á grænlensku. 17 fjöl- skyldur búa svo í nágrenni Bratta- hlíðar. Skóli með 20 nemendum er á svæðinu fyrir nemendur í yngri bekkjum. Á staðnum er lítil verslun og kaffihús sem byggt var sérstak- lega til að þjóna þeim fjölda ferða; manna sem drífur hvaðanæva að. Á staðnum er kirkja sem reist er á sama stað og Þjóðhildarkirkja stóð á sínum tíma. Veturnir eru snjó- þungir og fjörðinn leggur í byrjun nóvember og er hann ísilagður fram í apríl. I góðu veðri á veturna er hægt að keyra á ísnum til Nar- saq sem er þær um 50 km frá Brattahlíð. Bærinn verður nýttur Frumkvöðull að verkefninu er Árni Johnsen alþingismaður, sem er formaður byggingarnefndarinn- ar. Framtakið er til minningar um búsetu norrænna manna á Græn- landi. Árni segir að mikilvægt sé að bærinn og kirkjan verði notuð sem
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.