Morgunblaðið - 22.08.1999, Page 26

Morgunblaðið - 22.08.1999, Page 26
26 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ OTTI VIÐ TANN- LÆKNA NAGAR TÍUNDA HLUTA ÞJÓÐARINNAR Veturinn 1972-73 gerði dr. Þórður Eydal Magnússon könnun á tannheilsu, tann-, bein- og vaxtarþroska barna. Jón Ásgeir Sigurvinsson spjallaði við Þórð sem 22 árum seinna gerði könnun ásamt samstarfsfólki sínu á tannheilsu þeirra sem þátt tóku í rannsókninni sem börn, ótta þeirra við tannlækna o.fl. i-i 41 31 PUIiORDINSTENNUR --- barnatennur Komutimi bamatanna og upphaf tannþroskastiga meðal íslendinga DOKTOR Þórður Eydal Magnússon, prófessor emeritus við tannlækna- deild Háskóla íslands (THÍ), er að ýmsu leyti frumkvöðull í tannlækningum á Islandi. Hann lauk tannlæknaprófí 1956 og varð fyrsti viðurkenndi sérfræðingurinn í tannlækningum hér á landi þegar hann öðlaðist réttindi sem sérfræð- ingur í tannréttingum 1964. Braut- ryðjandastarf Þórðar má meðal annars greina af því að 15 ár liðu þar til næstu íslensku sérfræðing- arnir hlutu viðurkenningu innan tannlækninga. Framhaldsnám í sér- grein sinni stundaði hann í Kaup- mannahöfn við Danmarks Tandlæ- geskole 1956-58 undir handleiðslu dr. Ame Björk prófessors, sem varð leiðandi á sínu sviði í heiminum fyr- ir rannsóknir sínar á vexti andlits og höfuðbeina, og í Ósló 1958-59 undir handleiðslu dr. Káre Reitan, sérfræðings í tannréttingum, sem á sama hátt öðlaðist heimsathygli fyr- ir rannsóknir sínar á þeim breyting- um sem verða í beini og mjúkum vefjum við tannfærslu og þær ábendingar sem hann gaf um notk- un veikra krafta við tannfærslu. Eftir heimkomu sina frá námi kom Þórður því til leiðar að Tann- læknafélag Islands leitaði eftir þeirri breytingu á lögum um tann- lækningar að tannlæknar gætu öðl- ast sérfræðingsviðurkenningu frá heilbrigðisráðuneytinu, sem fékkst, og vann hann síðan í sérfræðinefnd að samningu reglugerðar þar að lút- andi. Þannig urðu íslenskir tann- læknar fyrstir tannlækna á Norður- löndunum til þess að öðlast sérfræð- ingsviðurkenningu heilbrigðisyfir- valda, þar sem sérfræðingsviður- kenning á hinum Norðurlöndunum var á þessum tíma einungis í hönd- um tannlæknafélaganna. Síðan féll það Þórði einnig í skaut að stofna og verða fyrsti formaður Tannrétt- ingafélags íslands og Félags sér- menntaðra tannlækna. Þórður hóf rekstur tannláekn- ingastofu í Reykjavík 1959 og rak hana til ársins 1995 og einskorðaði starfsemina frá fyrsta degi við sér- grein sína, tannréttingar. Auk al- mennra tannréttinga annaðist hann sérhæfða tannréttingameðferð hol- gómasjúklinga og annarra með meðfædd tann- eða andlitslýti og oft í samvinnu við Árna Bjömsson lýta- lækni. Ennfremur annaðist hann, fyrstu 15-20 árin eftir heimkomu frá sémámi, meðferð kjálkabrota og aðra slysameðferð ýmist á sjúkra- húsunum eða stofu sinni þar til tannlæknar, sérmenntaðir í skurð- lækningum munns og kjálka, höfðu menntast, komið heim frá sérnámi og hafíð störf. Þórður segist hafa notið þeirra forréttinda að koma að kennslu í tannlæknadeild 1962, þá vanþróaðri stofnun undir yfirstjóm læknadeild- ar, í gluggalitlu þröngu húsnæði í kjallara Landspítalans. Aðstæður vom svo bágar í kjallaranum að heilbrigðisyfirvöld hótuðu ítrekað lokun deildarinnar í þessu bráða- birgðahúsnæði, sem vera átti tO 5 ára, en stóð deildinni fyrir þrifum í um 25 ár, þar til flutt var í það ágæta, rúmgóða húsnæði sem deild- in nú hefur yfir að ráða og búið er prýðilegustu tækjum til kennslu og smám saman einnig til rannsókna eftir því sem þarfir kennara, sér- fræðinga skólans, hafa kallað á. St- arfið í deildinni gaf því mikil tæki- færi til alhliða baráttu fyrir bættri aðstöðu til kennslu og rannsókna, að sögn Þórðar. Kenndi í nær 37 ár Frá 1962 til 1970 var Þórður stundakennari í tannréttingum við læknadeild Háskóla íslands, eða þar til hann var skipaður prófessoy í tannréttingum við læknadeild HI í ársbyrjun 1971. Þegar tannlækna- deild varð sjálfstæð deild í byrjun árs 1972 færðist prófessorsembætt- ið sjálfkrafa yfir í hina nýju deild og gegndi Þórður því til 1. september 1998 er hann hafði gert starfsloka- samning við THÍ sem tryggir hon- um áfram rannsóknaraðstöðu sína við deildina og deildinni starfs- krafta hans til sjötugs. Þórður hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum við tannlækna- deildina í nær 37 ára starfi sínu við háskólann. Hann vann ásamt öðmm kennurum THI að faglegum kröf- um, skipulagi og hönnun tann- læknadeildarhúss frá 1964 til 1972 og var skipaður af rektor í hönnun- amefnd THÍ frá upphafí hennar 1973 til starfsloka hennar 1983 og var jafnframt sama tíma skipaður af ráðherra í YMÁL, yfirstjórn bygg- ingamála á Landspítalalóð, sem fór með allan undirbúning varðandi byggingu Læknagarðs, sem hýsir tannlæknadeild og hluta lækna- deildar. Stærstan hluta starfstíma síns við tannlæknadeiid hefur Þórð- ur tekið mjög virkan þátt í stjórn hennar, verið deildarforseti og varadeildarforseti nær helming starfstímans og setið jafnframt í há- skólaráði sem fulltrúi deildar sinn- ar, auk þess að vinna fjölda annarra stjómunar- og nefndarstarfa á veg- um hennar. Þórður var jafnframt aðalhvatamaður að því að tann- læknadeild tók upp doktorsnám 1995 og er nú leiðbeinandi fyrsta og eina formlega doktorsnema tann- læknadeildar. Doktorsneminn, Berglind Jóhannsdóttir, tannlæknir og sérfræðingur í tannréttingum, hefur sýnt afburðadugnað, að sögn Þórðar, og er nú langt komin með doktorsverkefni sitt. Með Þórði og Berglindi vinnur einnig eftirmaður Þórðar í starfi, Ami Þórðarson, lektor og sérfræðingur í tannrétt- ingum. Fyrsta doktorsvörnin Þórður varð fyrstur tannlækna, sem menntast höfðu við Háskóla Is- lands, til að veija doktorsritgerð sína við skólann árið 1979 og er enn 20 árum síðar eini tannlæknirinn sem það hefur gert í 54 ára sögu tannlæknakennslunnar. Dr. Pálmi heitinn Möller tannlæknir og pró- fessor við tannlæknaskólann í Burmingham, Alabama, lauk dokt- orsprófi við Háskóla Islands 1971 fyrstur tannlækna. Þórður kveður rannsóknavirkni meðal íslenskra tannlækna hafa aukist mjög í takt við sérmenntun þeirra, eins og best verður séð af því að verulegur hluti sérfræðinga hefur lokið námi sínu erlendis með meistaraprófí og tveir með doktorsprófí. Fyrir utan Þórð og Pálma, hafa dr. Sigurður Rúnar Sæmundsson, sérfræðingur í barna- og félagstannlækningum, og dr. Margrét Rósa Grímsdóttir lokið námi með doktorsprófi. Sigurður varð árið 1995 þriðji íslenski tann- læknirinn til þess að ljúka doktors- prófi og fyrstur til þess að vinna það verk á erlendri grand, en hann nam við bandarískan háskóla, en Mar- grét Rósa, sem varð fjórða í röðinni, varði doktorsritgerð sína 1998 við Óslóarháskóla. Nokkur fjöldi ís- lenskra tannlækna vinnur nú að doktorsverkefnum sínum bæði heima og erlendis, svo mikil gróska er nú á vísindasviðinu í hópi þeirra. Þórður segir að rannsóknavirkni í tannlæknadeild sé nú orðin mikil og fjölþætt og fjölmargir kennarar deildarinnar séu vel virkir í rann- sóknum svo á komandi áram megi vænta nokkurra nýrra doktora frá THI, deildinni til mikils sóma. Fór í alla grannskóla í Reykjavík Doktorsrit sitt, „Maturation and Malocclusion in Iceland: An Epidemiological Study of Ma- locclusion and of Dental, Skeletal and Sexual Maturation in Icelandic School Children", byggði Þórður á rannsóknum sem hann gerði vetur- inn 1972-1973 meðal bama og ung- linga, 6-16 ára að aldri í öllum bama- og gagnfræðaskólum Reykjavíkur. Með faraldsfræðOegri greiningu var könnuð tíðni tann- skekkju hjá börnunum sem og tann- , bein- og kynþroski þeirra og aldur stúlkubama við fyrstu blæðingar. Engir þessara þátta höfðu fyrr ver- ið greindir hér á landi. Upplýsingar um tann- og beinþroska barna og kynþroska stúlkna (fyrstu tíðir) era mikilvægar vísbendingar um hvar böm era stödd í þroska, en þessir þættir þroska reyndust hér mjög svipaðir og á hinum Norðurlöndun- um, þar sem sambærilegar upplýs- ingar vora tíl. Því er Ijóst að ís- lenskir sérfræðingar í tannrétting- um geta nýtt sér þessar upplýsing- ar um bein- og kynþroska sjúklinga sinna við val á heppilegasta timan- um tO tannréttinga sem fer eftir vandamálum sjúklingsins og geta ýmist verið að nýta sér mesta vaxt- arskeiðið tO tannréttinga ellegar að tryggja sér að öllum vexti sé lokið eins og gera þarf í þeim töfellum, þegar senda þarf sjúkling í kjálka- skurðaðgerð tO kjálkafærslu. Upp- lýsingar um meðalaldur stúlkna við fyrstu tíðir, sem reyndist vera við 13 ára og þriggja mánaða aldur, og staðalfrávik þeirra era að sjálfsögðu ekki síður nauðsynlegar fyrir ýmsa heilbrigðisstarfsmenn, sem og ís- lenskar stúlkur og uppalendur þeirra. Einstakt yfirlit yfir komutíma tanna „Næsta stóra rannsóknarverk- efni mitt eftir doktorsverkefnið,“ segir Þórður, „var rannsókn á tann- og bitskekkjum barnatanna og á komutíma þeirra, allt unnið með sömu rannsóknaraðferðum og fyrra verkefnið. Rannsóknaraðferðimar voru hannaðar af hópi kennara við tannlæknaskólann í Kaupmanna- höfn og era enn í dag undirstaðan í Tafla yfir komutíma barna- og fullorðinstanna, sem nýtast á bæði tannlæknum og þeim sem koma að réttarfræðilegum rann- sóknum. Greint er á milli drengja og stúlkna og gefinn meðaltalskomutími og tvö stað- aifrávik í sitt hvora átt; í 68,3% tiivika koma tennurnar fram á því tímabili sem fyrri staðalfrá- vikin ná yfir og f 95,5% tilvika á tímabilinu sem seinni frávikin ná yfir. Hver tönn er merkt, bæði samkvæmt haderup-kerfinu og WHO-kerfinu. rannsóknaraðferðum WHO, Al- þjóða heilbrigðisstofnunarinnar og hafa því staðist tímans tönn.“ Niðurstöður beggja rannsókn- anna notaði Þórður meðal annars til að útbúa veggspjald er sýnir á skipulegan hátt meðalkomutíma barna- og fullorðinstanna með stað- alfrávikum hverrar tannar. Vegg- spjaldið, sem Tannlæknafélag Is- lands, ásamt Tannverndarsjóði, kostaði útgáfu á og dreifði meðal fé- lagsmanna sinna, hangir nú hvar- vetna á íslenskum tannlæknastofum og er í þeirri stærð að tannlæknir- inn á að geta nýtt sér þetta hjálpar- gagn úr sæti sínu við tannlækna- stólinn. „Þegar ég sendi veggspjald- ið kollegum mínum,“ segir Þórður, „skrifaði starfsbróðir minn í Kaup- mannahöfn mér að það væri synd hvað þetta kæmi fyrir lítinn hóp. Sérfræðingur í tannréttingum í Gautaborg spurði mig hvort ég gæti ekki snarað þessu yfir á sænsku, hann skyldi hjálpa mér við það, og prófessor í tannlækningum í Ósló sagði við mig: „Þú lætur norska tannlæknafélagið gefa þetta út líka og senda öllum norskum tannlækn- um eins og íslenska tannlæknafé- lagið gerði.“ Fyrst viðbrögðin vora svona fékk ég það á tilfinninguna að þetta væri hlutur sem alla vantaði. Þá fór ég að kanna hvernig við stæðum miðað við niðurstöður ann- arra þjóða en Norðurlandaþjóð- anna, sem ég hafði borið okkur sam- an við og séð að vora svo til þær sömu. Samanburðurinn leiddi í ljós að komutíminn er með litlum frávik- um frá einni þjóð til annarrar, hvort sem það eru hvítir í Bandaríkjun- um, svartir í Bandaríkjunum, pima- indíánar, eskimóar, Kínverjai-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.