Morgunblaðið - 22.08.1999, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ
34 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999
T ________________________
SKOÐUN
UMHVERFISMAT A
FLJÓTSDALSVIRKJUN í
ALÞJÓÐLEGU SAMHENGI
UNDANFARNA mánuði hefur
' mikið verið rætt og ritað um fyrir-
hugaða Fijótsdalsvirkjun. Meðal
annars hefur verið tekist á um það
hvort fram eigi að fara lögformlegt
mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdarinnar. Lítið hefur hins
vegar verið fjallað um stöðu máls-
ins í alþjóðlegu samhengi, þ.e á
hvem hátt aðild Islands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu (EES) eða
öðrum alþjóðlegum stofnunum og
samningum getur haft áhrif á nið-
urstöðu málsins. í gildandi lögum
nr. 63/1993 um mat á umhverfisá-
hrifum er bráðabirgðaákvæði sem
segir að framkvæmdir samkvæmt
leyfum útgefnum fyrir 1. maí 1994
séu ekki háðar mati á umhverfisá-
hrifum samkvæmt lögunum. Petta
ákvæði er ekki tímabundið, þannig
að samkvæmt orðanna hljóðan gild-
ir það þó að viðkomandi fram-
kvæmd hefjist ekki fyrr en áratug-
um síðar. Lögin um mat á umhverf-
isáhrifum öðluðust gildi 27. maí
1993.
Með tilskipun Evrópusambands-
ins nr. 97/U/EC frá 3. mars 1997
voru gerðar all verulegar breyting-
ar á fyrri tilskipun sambandsins um
mat á umhverfisáhrifum. I sam-
. ræmi við 3. grein tilskipunarinnar
ber stjómvöldum í aðildarríkjum
Evrópusambandsins og Evrópska
efnahagssvæðisins skylda til að
breyta löggjöf sinni þannig að
breytingamar taki gildi í viðkom-
andi ríkjum í síðasta lagi 14. mars
1999. Islensk stjórnvöld bmgðust
þessari skyldu, þar sem fmmvarp
til nýrra laga um umhverfismat eða
Orka
Ljóst er, segir Stefán
Gíslason, að nauðsyn-
legt er að líta til alþjóð-
legra skuldbindinga
áður en framtíð áætl-
ana um Fljótsdals-
virkjun verður
endanlega ráðin.
til breytinga á lögunum frá 1993
hefur ekki enn komið til kasta Al-
þingis.
I Evróputilskipuninni frá 1997
em ekki skýr ákvæði um niðurfell-
ingu bráðabirgðaákvæða sem und-
anskiija framkvæmdir með eldri
framkvæmdaleyfi frá mati. Sé hins
vegar um að ræða breytingu eða út-
víkkun á þeirri upphaflegu áætlun
sem lá tO gmndvallar leyfisveitingu
skal framkvæmdin hlíta mati á um-
hverfisáhrifum, skv. tilskipuninni.
Slík tilvik falla undir viðauka II,
sem þýðir að aðildarríkin þurfa
sjálf að ákveða hvort matið skuli
framkvæmt. Slíka ákvörðun þarf
annaðhvort að taka fyrir hvert til-
vik um sig eða byggja hana á
þröskuldagildum eða forsendum
sem viðkomandi ríki ákveða. Hvor
leiðin sem er valin þarf ákvörðunin
að taka mið af forsendum í viðauka
III við tilskipunina. Þar er m.a.
tekið fram að hafa skuli
hliðsjón af eðli verkefn-
isins, þar með talinni
stærð þess og notkun á
náttúraauðlindum.
Einnig ber að taka tillit
til þess hversu við-
kvæmt umrætt svæði
er frá vistfræðilegu
sjónarmiði, svo sem
hvort náttúruauðlindir
svæðisins séu sjaldgæf-
ar og þess hversu end-
umýjanlegar þær era.
Hver er þá staða ís-
lenskra stjómvalda
varðandi mat á um-
hverfisáhrifum Fljóts-
dalsvirkjunar?
Virkjunarleyfi Fljótsdalsvirkjun-
ar var gefið út af iðnaðarráðherra
24. apríl 1991, þ.e.a.s. áður en lögin
um mat á umhverfisáhrifum tóku
gildi. Þegar staða leyfisins er skoð-
uð út frá ákvæðum Evróputilskip-
unarinnar frá 1997 þarf því að at-
huga hvort framkvæmdin eigi að
fylgja sömu hönnunaráætlun og
leyfið byggðist á eða hvort ætlunin
sé að útvíkka áætlunina eða gera á
henni breytingar. Telja verður lík-
legt að um breytingar verði að
ræða, þar sem forsendur varðandi
hönnun og fleiri þætti hafa að öllum
líkindum breyst frá árinu 1991.
Samvæmt því fellur verkefnið undir
viðauka II og þarf því að hlíta mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt til-
skipuninni ef íslensk stjómvöld
ákveða svo að teknu tillti til for-
sendna í viðauka III.
Samkvæmt framanskráðu virð-
ast íslensk stjórnvöld
hafa lokaorðið varð-
andi það hvort Fljóts-
dalsvirkjun skuli fara í
lögformlegt umhverf-
ismat. Sé um breyt-
ingar að ræða frá upp-
haflegri virkjunar-
hönnun liggur þetta
vald hjá stjórnvöldum
skv. íyrrnefndum
ákvæðum Evróputil-
skipunarinnar (sbr.
viðauka II). Sé hins
vegar ekki um breyt-
ingar að ræða frá upp-
haflegri áætlun liggur
valdið hjá Alþingi sem
getur t.d. ákveðið að
breyta lögunum um mat á umhverf-
isáhrifum með þeim hætti að und-
anþágan í bráðabirgðaákvæðinu
verði tímabundin, þannig að fram-
kvæmdir sem hafa leyfi frá því fyrir
1. maí 1994 þurfi að hefjast innan
tiltekins tíma til að vera undan-
þegnar mati. I vinnutillögu nefndar
sem vann að endurskoðun laganna
á síðasta vetri var einmitt gert ráð
fyrir slíkri breytingu, en eins og
fyrr segir kom málið ekki til kasta
þingsins. Alþingi getur einnig
ákveðið að breyta heimildarlögun-
um um Fljótsdalsvirkjun sem sam-
þykkt vom 1981.
Enn er þá eftir að íhuga hugsan-
legt hlutverk Evrópudómstólsins
hvað þetta varðar. Þegar hefur
dómstóllinn fengist við nokkur mál
sem varða framfylgd stjómvalda á
Evróputilskipunum um mat á um-
hverfisáhrifum. Með hliðsjón af
Stefán
Gíslason
lyktum þeirra mála er ekki hægt að
útiloka að dómstóllinn (eða EFTA-
dómstóllinn sem ætlað er að dæma
á sömu forsendum) myndi hnekkja
ákvörðunum íslenskra stjórnvalda í
málefnum Fljótsdalsvirkjunar. I
máli Evrópudómstólsins nr. C-
81/96 var fjallað um hafnarsvæði í
Hollandi sem er matsskylt skv.
ákvæðum upphaflegu Evróputil-
skipunarinnar um mat á umhverfis-
áhrifum (nr. 85/337/EEC), en var
skipulagt og heimilað fyrh gildis-
töku hennar. Framkvæmdir voru
hins vegar ekki hafnar. Þegar síðan
þurfti nýja leyfisveitingu eftir gild-
istöku tilskipunarinnar reis ágrein-
ingur um hvort fram yrði að fara
mat á umhverfisáhrifum. I úrskurði
dómsins frá 18. júní 1998 segir að
túlka beri tilskipunina þannig að
hún leyfi aðildarríkjum ekki að
víkja frá kröfum um mat á um-
hverfisáhrifum framkvæmda sem
taldar eru upp í viðauka I og eru
alltaf matsskyldar, þó að gefin hafi
verið út leyfi vegna framkvæmd-
anna áður en tilskipunin átti að
hafa tekið gildi í viðkomandi ríki, ef
mat á umhverfisáhrifum var ekki
undanfari leyfisveitingarinnar og
nýtt leyfisveitingaferli hófst eftir
gildistöku tilskipunarinnar. Tekið
er fram að önnur niðurstaða myndi
stangast á við meginreglu tilskip-
unarinnar og draga úr vh’kni henn-
ar.
Hugsanlegt er að áform um
Fljótsdalsvirkjun verði talin stang-
ast á við aðrar Evróputilskipanir en
þær sem hér hafa verið nefndar eða
við aðra alþjóðlega samninga. Slíkt
gæti leitt til þess að málið yrði tek-
ið upp hjá öðrum dómstólum eða
eftirlits- og úrskurðarstofnunum.
I þessu samhengi má loks benda
á orðalag Ríó-yfirlýsingarinnar um
umhverfi og þróun sem samþykkt
var á heimsþingi Sameinuðu þjóð-
anna í Ríó 1992. Þar em tilgreindar
27 meginreglur sem þjóðum heims
ber að hafa í heiðri í stefnumótun
sinni og lagasetningu. Fjórar þess-
ara meginreglna hafa sérstakt vægi
í málefnum Fljótsdalsvirkjunar.
Þar ber fyrst að nefna meginreglu
nr. 17, sem segir að mat á umhverf-
isáhrifum skuli fara fram þegar um
er að ræða fyrirhugaða starfsemi
sem líkleg er tO að hafa veruleg
skaðleg áhrif á umhverfíð og háð er
HEKLA
fyrir öKumann og farþega •Fjarstýrðar
samlæsingar »abs hemlakerfi •Rafdrifnar rúðuvindur með slysavörn
•Rafhitun íframsætum •Rafstýrðir upphitaðir útispeglar •Vindskeið o.m.fl.
MfTSUBJSHI LANCER kostarfra kr.
1.425.GOO
-íj'onjsíu á tnjrri öltl l
Aukabúnaðurá mynd:Alfelgurá Lanœrkr. 60.000
II
i