Morgunblaðið - 22.08.1999, Side 58

Morgunblaðið - 22.08.1999, Side 58
58 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ 0________________________________ FÓLK í FRÉTTUM TRUFLAÐI BRÚÐKAUP STREISAND ► BARBRA Streisand leggur mikla áherslu á Ijölskyldulífið og vill halda því algjörlega fyrir utan Qöhniðla. Síðasta sumar giftist hún leikaranum James Brolin og í kjölfar þess kærði hún þyrluflug- mann sem sveimaði yfir athöfn- inni. Flugmaðurinn heitir Robert Butler og segist hann alls ekki hafa ætlað að trufla athöfnina en var engu síður sektaður um 35 þúsund krónur og þijátíu daga flugbann. Á miðvikudag í síðustu viku var hann auk þess dæmdur til að vinna samfélagsvinnu og fékk skilorðsbundinn dóm til tveggja ára. Hann var handtekinn í febrúar siðastliðnum eftir sjö mánaða rannsókn málsins. ÞEKKING UH32S1 Tölvu- og verkfræðiþjónustan býður mörg spennandi námskeið í allan vetur: Kerfisfræði TV Nýtt tveggja anna diplómnám fyrir umsjónarmenn tölvmála fyrirtækja eða þá sem vilja skipta um starfsvettvang. Stýrikerfi og netfiæði, notendaforrit, gagnagrunnar, fonitun, Intemet, rekstur upplýsingakerfa og lokaverkefiii. Tekin era próf sem veita TÖK réttindi. Einkunn gefin fyrir lokaverkefiii. 380 kennslustj^VAMFiiui Tölvuumsjón í nútímarekstri Námskeið fyrir þá sem vilja verða ferir tölvunotendur með viðtæka þekkingu á sviði upplýsingatækni. Farið er ítarlega í notkun forrita og stýrikerfis sem notuð era í fyriitækjum, skólum og stofiiunum. Stýrikerfi og netumsjón, Word, Excel, Access, PowerPoint, fjölvar, tölvusamskipti, vefsíðugerð og íntemetið. 145 kennslustlIÍS Netumsjón í nútímarekstri Námskeið sem sniðið er að þörfum þeiira sem vilja sérhæfa sig í rekstri tölvuneta í fyrirtælgum eða skapa sér ný tækifæri á vinnumarkaði. Netfræði, netþjónar, búnaður, Windows 95/98 í netum og TCP/IP. Windows NT og Novell netstýrikerfin, Intranet og Intemetið. 120 kennslustÍPi'ÁMjlÍiíul Tölvunámskeið fyrir 9-15 ára Frábær námskeið fyrir hressa krakka sem gefa þeim forskot i skólanum og lífinu. Grannnámskeið og framhaldsnámskeið. Meira en 10 ára reynsla af þessum námskeiðum. 3 mánuðir Almenn námskeið Verð frá 5.990 stgr Windows, Word, Excel, Access, Outlook,Intemetið, vefsíðugerð, PowerPoint, Windows 95 og 98, FileMaker, tölvuteikning og mörg fleiri! Microsoft sérfræðinámskeið Bjóðum nú gott úrval sérfræðinámskeiða fyrir fagfólk í tölvugreininni í samvinnu við breskan tölvuskóla. Nánari upplýsingar á vefimrn. Viðurkennd prófmiðstöð Fyrsti tölvuskólinn á Norðurlöndum til þess að hljóta viðuikenningu % til þess að bjóða MOUS (Microsoft Office User Specialist) próf. Einnig viðurkenning SkýTslutæknifélagsins til þess að halda TÖK próf (European Computer Driving Licence). Tilboð og fréttir í Netklúbbi TV Skráðu þig í netklúbbinn okkar og fáðu send tilboð, fréttir og hagnýt ráð um tölvunotkun. Ókeypis!! http://www.tv.is/netklubbur/ GÓÐAR ÁSTÆÐUR FYRIR ÞVÍ AÐ KOMA Á NÁMSKEIÐIN OKKAR: • Þátttakendur fi aukinn afslátt eftir því sem þeir sækja fleiri námskeið. * Innifalin er símaaðstoð í heilan mánuð eflir að námskeiði lýkur. Tölvu- og verkfræöiþjónustan Grensásvegi 16 • Reykjavík lEURO • Raðgreiðslur • VÍSAl prp. /m ImLvuHWHHIIH 5Mmm\ MbBM'MI R sem auövelt er aö muna Morgunblaðið/Golli Hluti hópsins sem hittist fjórum sinnum í viku við Vesturbæjarlaugina. Ólafur Þorsteinsson, Flosi Kristjánsson, Sif Jónsdóttir, Gísli Ragnarsson, Halldór Pétur Þorsteinsson, Ágúst Kvaran, Gylfi Magn- ússon, Þórarinn Eidjárn, Brynja Guðmundsdóttir og Ólöf Þorsteinsdóttir. Hlaupið um alla borg Sagt er að hlaup veiti vellíðan og í dag munu ungir sem aldnir fá að sannreyna það. Birna Anna Björnsdóttir spjaUaði við hóp fólks sem hittist reglulega og hleypur saman og ætlar að sjálfsögðu að taka þátt í Reykjavík- urmaraþoninu. s IDAG fer Reykjavíkurmaraþon fram í sextánda sinn. Hlaupur- um standa fimm mislangar vegalengdir til boða, maraþon sem er 42 kílómetrar, hálfmaraþon sem er 21 kílómetri, auk þriggja, sjö og tíu kílómetra hlaupa. Þar að auki er boðið upp á nýjung sem er 10 kílómetra hlaup á línuskautum, en að sögn Ágústs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra Reykjavíkur- maraþons, er orðið mjög algengt í stærri maraþonum sem haldin eru úti um heim að einnig sé keppt á línuskautum og þá jafnvel í öllum vegalendum sem boðið er upp á. Ræst verður í maraþonið, hálf- maraþonið og 10 kílómetra hlaupið klukkan 10, 3 og 7 kílómetra hlaupin klukkan 12:30 og línu- skautahlaupið klukkan 9:50. Safna maraþonum Ágúst segir að heildarfjöldi þátttakenda í Reykjavíkurmara- þoninu verði líklega svipaður og hann hefur verið undanfarin ár, eða um 3.000. Hann býst þó við metþátttöku í maraþoninu sjálfu en það hlaupa líklega um 200 manns, þar af 140 erlendir hlauparar. Hann segir að sumir þeirra komi til að reyna að sigra en aðrir séu hlauparar sem fari á milli hlaupa og „safni“ maraþon- um. Það sé þeim kappsmál að hlaupa maraþon í sem flestum löndum og á sem ólíkustum stöð- um. Þeirra á meðal er japanskur hlaupari, Hajimenshi, sem hefur hlaupið maraþon í fjölmörgum löndum og er að skrifa bók um hundrað bestu maraþonhlaupin sín. Annar athyglisverður gestur er Þjóðverjinn Waldimar Ciert- inski sem varð ólympíumeistari í maraþonhlaupi bæði árið 1976 og 1980 og segir Ágúst að fjölmargir aðrir góðir hlauparar verði á með- al keppenda í dag. Hópunnn hefur hlaupið saman í um 15 ár og meðlimir hans hafa margoft tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og ætla einnig að gera það í dag. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ræst verður í Reylqavíkur- maraþonið klukkan tíu 1 dag. Ætla öll að taka þátt Fjórum sinnum í viku hittist hópur fólks við Vesturbæjariaug- ina, hleypur saman og fer svo í heitu pottana. Hópurinn er misstór hverju sinni en „yfirleitt erum við einhvers staðar á bilinu sjö til þijá- tíu“, segir Ólafur Þorsteinsson, for- maður hópsins, en hann er sá eini innan þessa óformlega félagsskap- ar sem gegnir einhvers konar emb- ætti. Þau ætla öll að taka þátt í maraþoninu í dag og í röðum þeirra eru mjög vanir og öflugir hlauparar. Þau hafa hlaupið saman í 15 ár og hafa meðlimir hópsins margoft tekið þátt í Reykjavíkur- maraþoninu. Um fimmtán manns úr hópnum hlupu heilt maraþon í fyrra og segja þau að það verði lík- lega sami fjöldi í ár. Hundrað kflómetra hlaupari Ágúst Kvaran hefur tvisvar sinnum hlaupið hundrað kílómetra hlaup, bæði á Italíu og í Hollandi. Þegar hann er spurður hvernig honum hafi liðið eftir að hafa hlaupið hundrað kílómetra í einni lotu hugsar hann sig um eitt augnablik og segir svo brosandi: „Ég var þreyttur.“ „Skæðar tungur segja að hann muni hlaupa tvöfalt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu,“ segir Ólafur og þau hin grínast með það að hann muni örugglega ekki láta sér nægja að hlaupa einn hring og sé alveg líklegur til að byrja upp á nýtt þegar hann komi í mark. Lýkur maraþoniá afinælisdaginn Þórarinn Eldjárn verður fimm- tugur í dag og ætlar að byrja af- mælisdaginn sinn á því að taka þátt í maraþoninu. Hann segist hins vegar hafa annan hátt á en hinir, hann hlaupi heilt maraþon en skipti því á milli ára. „Ég hljóp fyrri helming í fyrra og hleyp seinni helming núna. Ég hef fengið leyfi til að gera þetta hjá stjórn maraþonsins, hins vegar er smáá- greiningur um tímatökuna. Þeir vilja reikna allt árið þarna á milli með, en ég vil að tímarnir tveir úr hlaupunum verði lagðir saman. Það hefur ekki náðst samkomulag um þetta,“ segir Þórarinn. Þingstaðahlaup Hópurinn hleypur líka ýmis önnur hlaup. Fyrir þremur árum fór hann af stað með svokallað Þingstaðahlaup. Þar er hlaupið frá Lögbergi á Þingvöllum til Álþing- ishússins við Austurvöll og svo í Vesturbæjarlaugina, en þetta eru alls 50 kílómetrar. Fyrsta árið tóku þrír þátt í Þingstaðahlaupinu, annað árið sex, í fyrra tólf og í ár verða því að sjálfsögðu tuttugu og fjórir þátttakendur og stefnt er að því að þetta verði fjöldahlaup á næsta ári. Hlaup veitir vellíðan Þau segja að það sé margt sem geri það að hlaupa svona skemmti- legt. Það að hlaupa í góðum félags- skap sé auðvitað miklu skemmti- legra og að félagslega hliðin sé ekki síður mikilvæg. Maður verði vissulega þreyttur líkamlega eftir svona langhlaup en að andlega líði manni mjög vel. Eftir að hafa hlaupið ákveðið lengi fari líkaminn að framleiða efnið endorfín sem veitir vellíðan og séu það viðbrögð heilans, „við óþægindum", laumar einhver út úr sér og allir í pottin- um skella upp úr að þessari hálf- kaldhæðnislegu staðreynd. En það mun vist vera sagt að hlaup séu upplífgandi fyrir lundina og er jafnvel mælt með þeim gegn þunglyndi. Að minnsta kosti segir hlaupahópurinn í Vesturbæjar- lauginni að það að hlaupa veiti þeim mjög mikla ánægju og það er heldur ekki annað að sjá en að hjá þeim ríki bæði gleði og fjör og hvort öll hlaupin eigi sinn þátt í því er aldrei að vita.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.