Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Greiðslur úr Atvinnu-
leysistryggingasjóði
Stefnir í
300 millj-
öna króna
sparnað
LÍKLEGT er að greiðslur úr At-
vinnuleysistryggingasjóði á yfir-
standandi ári verði yfir 300 milljón-
um króna undir þeirri upphæð sem
sjóðnum er ætlað í fjárlögum.
Gangi það eftir hafa greiðslur úr
sjóðnum lækkað um 650 milljónir á
síðustu tveimur árum, en atvinnu-
leysi á landinu hefur minnkað mik-
ið á síðustu árum.
Heildarútgjöld Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs eru, að sögn Sig-
urðar P. Sigmundssonar, fjármála-
stjóra sjóðsins, 2.656 milljónir á
þessu ári og þar af er reiknað með
að 2.050 millj. króna fari í atvinnu-
leysisbætur. Það sem ber á milli
fer m.a. í átaksverkefni.
Miklir fjármunir sparast
„Okkar spá núna er að greiðslur
úr sjóðnum vegna atvinnuleysis-
bóta verði um 1.700 tO 1.750 millj-
ónir króna, eða 300-350 millj. lægri
en gert var ráð fyrir í fjárlögum.
Þarna eru því að sparast heilmiklir
fjármunir," segir Sigurður.
Sigurður segir að á fyrra ári
hafi sparast, miðað við fjárlög, um
350 milljónir króna vegna at-
vinnuleysisbóta. Þá hafi verið
reiknað með 2.461 milljón í fjár-
lögum til þeirra en greiddar voru
út 2.114 milljónir. Heildarfjárlög
hafi þá verið 2.910 millj. en heild-
arútgjöld 2.589 millj. kr.
Leigubíl-
stjórar
í golfi
Flugleiðir hækka
fargjöld fyrir jólin
LEIGUBÍLSTJÓRAR sem sækja
farþega á Keflavíkurflugvöll
þurfa oft að bíða lengi eftir far-
þegum. Nokkrir ráðagóðir
áhugamenn um golf í hópi bíl-
stjóranna hafa fundið leið til að
nýta tímann og hafa komið sér
upp 9 holu „golfvelli" framan við
flugstöðina. Eins og sjá má er
keppnin hörð en ekki er þó vitað
til þess að farþegar hafi verið
látnir bíða meðan keppendur
ljúka við að pútta.
Breytingar í samræmi við hækkanir
hjá öðrum fyrirtækjum
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að hækka fargjöld sín erlendis hingað til lands
frá því í fyrra, á tímabilinu 17. desember til 31. desember, eða um sama
leyti og íslendingar sem búsettir eru erlendis ferðast gjarnan hingað til
lands. Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður forstjóra Flugleiða, segir að þessar
hækkanir stafi af verðgjaldahækkunum flugfélaga sem eru markaðsráðandi
ytra, t.d. SAS á Norðurlöndunum. Þannig hækkar til að mynda verð flug-
miða frá Kaupmannahöfn á þessum tíma um 500 krónur danskar, eða rúm-
ar 5.000 krónur íslenskar.
Morgunblaðið/Golli
Aukinni eftirspurn spáð
„Hækkanir geta virst meiri, en
þá er yfirleitt um að ræða að fólk
sé að fara á milli fargjaldaflokka.
Fólk hefur þá oft ferðast á öðrum
degi í fyrra eða lent á öðrum skil-
málum. Lunginn af jólafluginu er
þó fyrir þennan tíma,“ segir
hann.
„Það er hækkun frá flestum
áfangastöðum okkar erlendis yfir
jólin og við erum að fylgja for-
dæmi heimafélagsins á hverjum
stað. Þau leiða þessar hækkanir
og tengist það þessum 2000-alda-
mótum. Menn eru almennt að spá
aukinni eftirspurn í flugi og kem-
ur það fram í almennri fargjalda-
hækkun.
Við hækkum ekki upp á okkar
eindæmi á þessum mörkuðum,
heldur fylgjumst með því sem
markaðurinn er að gera og þetta er
að gerast á Norðurlöndunum og
víðast hvar annars staðar. Hækk-
unin kemur á farmiða sem flogið er
með eftir 17. desember og til 31.
desember," segir Einar.
Aðspurður hvort Flugleiðir hafi
ekki séð sóknarfæri í að halda far-
gjöldum óbreyttum og vinna þá
fremur farþega af öðrum flugfélög-
um, segir Einar ekki við því að bú-
ast að það hefði haft mikil áhrif á
farþegafjölda á þeim árstíma sem
um ræðir. „Þetta er hluti af far-
gjalda- og tekjustýringu á hverjum
tíma. Við höfum ekki verið að
græða þau ósköp á milli ára að af-
gangur sé mikill og vísum nú oftast
til þess í umræðunni um fargjöld,"
segir Einar.
Hjón sluppu ómeidd er vatnshitari sprakk í sumarhúsi
Hálft gólfið hvarf
KRISTINN Kristinsson og eigin-
kona hans hrósa happi yfír því
að sprenging sem varð í sumar-
bústað þeirra sl. helgi olli ekki
slysum á fólki.
Árla morguns sl. sunnudag
sprakk rafmagnsvatnskútur í
sumarhúsi þeirra í Kiðjabergi í
Grímsnesi. Að sögn Kristins
varð mikill hvellur sem fólk í
næstu bústöðum og á næstu
jörðum heyrðu glöggt. Hjónin
vöknuðu ekki strax við spreng-
inguna og telur Kristinn að þau
hafi misst meðvitund fyrst um
sinn.
„Þegar við rönkuðum við okk-
ur var húsið fullt af gufu og
reykskynjarinn vælandi. Manni
flaug í hug að stóri Suðurlands-
skjálftinn væri kominn, en við
áttuðum okkur ekki á því hvað
hafði gerst. Við rukum úr rúm-
inu og þegar við komum fram
var allt í braki þar og gólfið
vantaði til hálfs. Rúður voru
brotnar og hurðir sprungnar
þversum. Það var allt í rúst og
eini staðurinn sem virtist
þokkalega óskaddaður var sá
hluti svefnherbergisins þar sem
við vorum. Fataskápurinn sem
var í svefnherberginu fór einnig
í spað, einungis rúmið slapp. Við
vorum heppin að vera aðeins
þarna tvö en vanalega er húsið
fullt af fólki,“ segir Kristinn en
bústaðurinn er mikið skemmdur
og nánast í „fokheldu“ ástandi
að sögn Kristins.
1700-faIdur þrýstingur
myndaðist
Ketillinn sem sprakk er um
120 lítra vatnsketill sem hitaður
er upp með rafmagni og notaður
til þess að hita húsið. Kristinn
segir að í raun sé ketillinn eins
og risastór hraðsuðuketill sem
eigi að siökkva á sér þegar 60
gráða hita er náð. Hitastillirinn
hafi greinilega bilað og vatnið
haldið áfram að hitna þar til það
fór að sjóða. Þá hafi öryggis-
ventill sem losa á um þrýsting-
inn, ef þetta gerist, líka staðið á
sér og á endanum hafi ketillinn
sprungið.
Að sögn Kristins myndaðist
gífurlegur þrýstingur og var
hann á við 1700-falt magn sem í
katlinum var. Kristinn kveðst
hafa notað ketilinn í sjö ár og
skilst á tryggingarfélaginu að
hann muni fá tjónið bætt. Hann
brýnir fyrir öðrum sumarhúsa-
eigendum sem eru með kynd-
ingu af þessu tagi að láta yfír-
fara hana af löggiltum fag-
meisturum reglulega svo koma
megi í veg fyrir óhöpp af þessu
tagi.
Viðskiptaráðherra telur að leita þurfí
orsaka fyrir vanda RÚV
Hlutafélagavæðing
RUV engin lausn
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra segir að það að stofna hlutafé-
lag um rekstur Ríkisútvarpsins, eins
og Björn Bjarnason menntamálaráð-
herra hefur lagt til, sé í sjálfu sér
engin lausn á meintum vanda stofn-
unarinnar.
Björn sagði í ræðu á þingi SUS sl.
laugardag, að RÚV væri í vaxandi
tilvistarkreppu, og að einkarekstrar-
sjónarmið þyrftu að koma meira inn
í ákvarðanatöku innan stofnunarinn-
ar, án þess þó að endilega kæmi til
einkavæðingar hennar.
Finnur segist telja að hægt sé að
gera nauðsynlegar breytingar á
RÚV innan þess fyrirkomulags sem
er á stofnuninni í dag.
„Ef það er rétt hjá Birni, að Ríkis-
útvarpið sé í tilvistarkreppu, þá
verðum við fyrst að átta okkur á því
af hverju hún stafar. Getur verið að
hún sé að einhverju leyti ásköpuð,
það er að segja að einhverju leyti til-
komin vegna þeirra laga sem Ríkis-
útvarpið býr við, eða vegna þeirra
stjómunarhátta sem þar eru? Sé um
tilvistarkreppu að ræða, sem ég vil
ekkert fullyrða um, skiptir það höf-
uðmáli í mínum huga að leita orsaka
vandans. Þegar það hefur verið gert
skulum við fara að velta því fyrir
okkur hvort við þurfum að gera ein-
hverjar breytingar á rekstrarform-
inu. Ég hef ekki verið talsmaður
þess að breyta Ríkisútvarpinu í
hlutafélag. Ég er hins vegar þeirrar
skoðunar að við getum gert Ríkisút-
varpið mjög hagkvæmt í rekstri, að
það geti verið mjög öflugur fjölmið-
ill á markaðnum, að það geti verið í
samkeppni við einkaaðila, án þess
þó að njóta óeðlilegra réttinda fram
yfir þá.“
Sérblöð í dag
-rnmmm
Valdimar Grímsson frá æfingum
til áramóta / C1
Dvorák sigraði örugglega i
tugþrautinni / C5
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
Sérblað um viðskipti/atvinnulíf
www.mbl.is