Morgunblaðið - 26.08.1999, Page 12
12 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Fíkniefni og þýfi
fundust á Akranesi
LÖGREGLAN á Akranesi fann tals-
vert af flkniefnum við húsleit í gisti-
heimili í bænum í fyrrakvöld. Að
sögn lögreglu fannst nokkuð af am-
fetamíni eða um 20 grömm og lítil-
ræði af hassi og voru fjórir hand-
teknir í kjölfarið.
Auk fíkniefnanna fannst mikið
magn af alls konar munum sem tald-
ir eru vera þýfi úr mörgum innbrot-
um, að sögn lögreglu. Um er að ræða
skartgripi, tölvur, myndavélabúnað,
hljómtæki, talstöðvar og fleira. Þrír
hinna handteknu hafa verið látnir
lausir en einn er enn í haldi.
Fíkniefni og þýfí í Garðabæ
Fíkniefni og þýfí fundust einnig við
húsleit í Garðabæ laust eftir mið-
nætti aðfaranótt miðvikudags. Að
sögn lögreglunnar í Hafnarfirði var
ekki um mikið magn fíkniefna að
ræða og líklegt að þau hafí einungis
verið til einkaneyslu. Töluvert þýfi
fannst hinvegar og þykir líklegt að
það sé afrakstur nokkurra innbrota.
Tíu menn voru handteknir í
tengslum við fíkniefna- og þýfisfund-
inn og hafa þeir verið í haldi lög-
reglu, en fengið að fara einn af öðr-
um að lokinni yfirheyrslu.
------------------
Tilraun til innbrots
GERÐ var tilraun til að brjótast inn
í söluturninn Spesíuna við Iðnbúð 2 í
Garðabæ í fyrrinótt. Lögreglunni
barst tilkynning um grunsamlegar
mannaferðir rétt fyrir klukkan sex á
miðvikudagsmorguninn og er hún
kom á staðinn kom í ljós að verið var
að reyna að brjótast inn. Einn maður
var handtekinn en talið er að fleiri
hafi verið viðriðnir tilraunina.
FRÉTTIR
Finnur Beck, formaður Stúd-
entaráðs, og Páll Skúlason, rekt-
or Háskóla Islands, takast í hend-
ur um samstarfið. Skúli Mogen-
sen, forstjóri Oz, fylgist með.
Morgunblaðið/Golli
Hugarfóstur
háskólanema
Hjörleifur Guttormsson um Fljótsdalsvirkjun
Heimildarlög en ekki leyfi
HJÖRLEIFUR Guttormsson,
fyrrverandi alþingismaður og iðn-
aðarráðherra, óskaði eftir að koma
á framfæri í framhaldi af viðtali við
Halldór Ásgrímsson, formann
Framsóknarflokksins, í blaðinu á
þriðjudag að hann hefði ekki í ráð-
herratíð sinni gefið út virkjana-
leyfi fyrir Fljótsdalsvirkjun. Sam-
þykkt hefðu verið heimildarlög á
Alþingi árið 1981 fyrir ýmsum
virkjanakostum en virkjanaleyfi
fyrir Fljótsdalsvirkjun hefði verið
gefið út árið 1991 af þáverandi iðn-
aðarráðherra, Jóni Sigurðssyni.
Hjörleifur segir að gera verði
skýran greinarmun á heimildar-
lögum og virkjanaleyfi. Með sam-
þykkt Alþingis væri veitt almenn
heimild fyrir ákveðna virkjana-
kosti en til þess að framkvæmd
einstakra virkjana mætti hefjast
yrði að koma til virkjanaleyfi sem
framkvæmdavaldið, í þessu tilviki
iðnaðarráðherra, gæfi út. I ráð-
herratíð sinni hefðu heimildarlög
verið samþykkt árið 1981 og inni í
þeim m.a. verið Fljótsdalsvirkjun.
Heimildarlög þýddu hins vegar
ekki endilega að til framkvæmda
kæmi. Hjörleifur sagði því ljóst í
tilviki Fljótsdalsvirkjunar að þar
sem Jón Sigurðsson, þáverandi
iðnaðarráðherra, hefði á sínum
tíma gefið út virkjanaleyfíð hefði
iðnaðarráðherra á hverjum tíma
vald til að afturkalla leyfið. Því
þyrfti ekki endilega að koma til
kasta Alþingis þótt það væri aftur-
kallað og eftir atvikum sett ný skil-
yrði, svo sem um mat á umhverfis-
áhrifum.
INTERNETFYRIRTÆKIÐ Oz
mun styrkja sex nemendur Há-
skóla Islands við gerð lokaverk-
efnis sem tengist Netinu, net-
samfélögum, samskiptum á Net-
inu og/eða samruna Netsins við
aðra samskiptamáta út frá sem
viðustum skilningi hugtakanna.
Verkefnið ber nafnið Hugarfóst-
ur og var kynnt á blaðamanna-
fundi á þriðjudag.
„Þetta er viðurkenning á því
starfí sem Háskólinn vinnur og á
því hugviti sem þar býr,“ sagði
Breki Karlsson, markaðsfulltrúi
Oz, í samtali við Morgunblaðið.
Hver styrkur nemur hálfri
milljón króna og ef vel tekst til
verður styrkveitingin að árleg-
um viðburði. Breki segir Oz
munu gera samning við nemend-
urna um hugsanlega nýtingu á
niðurstöðum verkefnanna en
gerð þeirra verði algerlega í
höndum nemenda. „Við teljum
að undir þeim kringumstæðum
vinni þeir best og það eru fjöl-
breytilegustu og frjóustu hug-
myndirnar sem koma út úr því.“
Nefnd skipuð fulltrúa Há-
skólaráðs, fulltrúa Stúdentaráðs
og fulltrúa Oz fer yfír umsóknir
og gerir tillögu um val á styrk-
þegum en endanleg ákvörðun er
í höndum Oz. Tilkynnt verður
um væntanlegan styrkhafa í
byrjun desember en umsóknar-
frestur er til 25. október og skal
umsóknum skilað á skrifstofu
Stúdentaráðs.
Komdu á rýmingarsölu Sportkringlunnar og
gerðu betri kaup en nokkru sinni fyrr.
Vörur með allt að 70% afslætti!
Komdu fyrr en seinna ef þú vilt ekkí
missa af stóra tækífærínu.