Morgunblaðið - 26.08.1999, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Olíusöluskála í húsnæði KEA á Grenivík lokað
Starfsemi KEA
í yfír 80 ár lokið
GrjHjibakkahreppi. Morgunblaðið.
ÞJONUSTUSTARFSEMI Kaup-
félags Eyfirðinga verður með öllu
lokið á Grenivík um næstu helgi. Þá
verður olíuskála í húsnæði KEA á
Grenivík lokað en verið er að koma
upp sjálfsala fyrir eldsneyti þar
sem áður voru hefðbundnar af-
greiðsludælur.
Guðný Sverrisdóttir, sveitar-
stjóri Grýtubakkahrepps og stjórn-
armaður í Kaupfélagi Eyfirðinga,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
auðvitað kæmi þessi staða illa við
íbúa hreppsins, auk þess sem eitt
starf í sveitarfélaginu legðist af.
„Það er alltaf slæmt þegar þjónusta
tapast en þó er ljós í myrkrinu að
með tilkomu sjálfsalanna verður
hægt að kaupa bensín og olíu allan
sólarhringinn sem er aukin þjón-
usta frá því sem er í dag.“
Síðustu mánuði hefur verslunar-
svið KEA rekið olíusöluskálann,
eða allt frá því að byggingavöru-
deild KEA sameinaðist Húsasmiðj-
unni en áður var starfsemin á
Grenvík rekin til fjölda ára sem úti-
bú frá byggingavörudeildinni. St-
arfsemi útibúsins á Grenivík hefur
verið afar þýðingarmikil fyrir íbúa
Grýtubakkahrepps og þá ekki síst
Grenvíkinga.
Reksturinn stendur
ekki undir sér
Með auknum ferðamannastraumi
um sveitarfélagið verður bagalegt
fyrir þá ferðamenn sem sækja stað-
inn að njóta ekki þeirrar sjálfsögðu
þjónustu sem veitt er á slíkum stöð-
um. Næsti hefðbundni þjónustu- og
afgreiðslustaður olíuvara er á
Akureyri, í rúmlega 40 km fjar-
lægð.
Guðný sagði að olíuvörur yrðu
áfram seldar í tengslum við mat-
vöruverslunina og að rekstraraðili
hennar myndi jafnframt hafa um-
sjón með sjálfsölunum. „Hin hliðin
á málinu er að það þýðir ekki að
halda úti rekstri sem ekki stendur
undir sér, hvort sem það er á veg-
um KEA eða annarra aðila. Við
eigum ekki neinar gullnámur í
kaupfélaginu sem við getum leitað
í,“ sagði Guðný. Hún sagði að al-
mennt væri atvinnuástandið gott í
sveitarfélaginu.
Með lokuninni um helgina er 84
ára þjónustu Kaupfélags Eyfirð-
inga lokið á Grenivík en starfsem-
in þar hófst árið 1915, er byggt
var sláturhús og þar slátrað í um
65 ár. Starfsmaður KEA á Greni-
vík síðustu ár hefur verið Örn
Árnason.
Lokadjasstónleikar á Heitum fímmtudegi í Deiglunni
Helena Eyjólfsdóttir söng-
kona með fríðu föruneyti
Á NÍUNDU og lokatónleikum Jazz-
klúbbs Akureyrai' á Heitum
fimmtudegi í Deiglunni á Akureyri
kl. 21.30 í kvöld kemur Helena Eyj-
ólfsdóttir söngkona fram ásamt
fríðu og leiknu föruneyti.
Auk Helenu leikur kvartett skip-
aður þeim Sigurði Flosasyni á saxó-
fón, Gunnari Gunnarssyni á píanó,
Jóni Rafnssyni á kontrabassa og
Pétri Grétarssyni á trommur. Efn-
isskráin samanstendur af síungum
kunningjum úr djassefnisskrá
heimsins, m.a. eftir Jerome Kem,
Gershwin, Cole Porter og fleiri. Að-
sókn að djassinum á Heitum
fimmtudögum í sumar hefur verið
mjög góð og Deiglan alltaf fullsetin.
Fjörutíu ára
söngferill Helenu
Helena Eyjólfsdóttir hefur á
fjörutíu ára söngferli sínum sungið
sig inn í hug og hjarta landsmanna.
Fyrstu hljómsveitina sem hún söng
með leiddi spænski klarinettuleik-
arinn Jose Riba. Síðan fór Helena
norður og söng með Atlantic-kvar-
tettinum í gamla AJþýðuhúsinu. En
lengst af söngferli sínum var hún
með Eydalsbræðrum, Finni eigin-
manni sínum og Ingimari. Hún er
enn að syngja með eigin hljómsveit
en fyrst kom hún fram sem barna-
stjarna 9 ára gömul og söng bæði
opinberlega og í útvarpi.
Morgunblaðið/Kristján
Evrópukeppnin í knattspyrnu
Stórleikur á
Akureyrarvelli
LEIKMENN og fylgdarlið
belgíska stórliðsins Anderlecht
komu til Akureyrar um miðjan
dag í gær, með nýrri og glæsi-
legri þotu Islandsflugs. Ander-
lecht mætir Leiftri frá Ólafsfírði
í dag kl. 17.30 í Evrópukeppninni
í knattspyrnu og fer leikurinn
fram á Akureyrarvellinum.
Anderlecht vann fyrri leikinn
sem fram fór í Belgíu á dögun-
um, 6:1, en leikmenn Leifturs eru
staðráðnir í að sýna hvað í þeim
býr. Það má búast við fjörugum
leik milli þessara liða og eru
Norðlendingar hvattir til þess að
mæta á völlinn og hvetja Leift-
ursmenn til dáða. Myndin var
tekin er leikmenn Anderlecht
stigu út úr þotu Islandsflugs.
Fyrirlestur
Sunitha
Gandhi
DR. SUNITHA Gandhi frá Indlandi
heldur fyrirlestur í Háskólanum á
Akureyri fimmtudaginn 26. ágúst kl.
16:30 og fer hann fram í stofu 14 í
Þingvallastræti. Dr. Sunitha Gandhi
mun þar tala um kennslulíkanið
CGE.
Kennslulíkan CGE byggist m.a. á
vii-kri siðfræðikennslu og öflugu og
vel mótuðu samstarfi heimilis og
skóla. Markmið menntunarinnar er
heildstæð menntun sem miðast að
því að gera börnin bæði „fróð og
góð“. Þetta kennslulíkan hefur verið
reynt og þróað við CMS-skólann á
Indlandi og hefur verið í stöðugri
þróun síðan árið 1959.
Dr. Sunitha Gandhi er meðal
fyrstu nemenda CMS og eftir brott-
fararpróf hélt hún til Englands. Hún
lauk þar doktorsprófi í eðlisfræði frá
háskólanum í Cambridge. Hún starf-
aði um átta ára skeið við Alþjóða-
bankann við góðan orðstír en sagði
starfi sínu lausu til að geta ferðast
um heiminn og kynnt CGE-kennslu-
líkanið.
Fyrirlesturinn er á vegum kenn-
aradeildar Háskólans á Akureyri og
er öllum opinn.
--------------
Söngvaka
I KVÖLD, fimmtudagskvöld, verður
ein af síðustu söngvökum sumarsins
í Minjasafnskirkjunni á Akureyri.
Rósa Kristín Baldursdóttir og Hjör-
leifur Hjartarson flytja sýnishorn úr
íslenskri tónlistarsögu í tónum og
tali. Dagskráin hefst kl. 21 og er
miðaverð 700 kr., innifalinn er að-
gangur að Minjasafninu sem er opið
sama kvöld kl. 20-23.
Vetrardagskrá Leikfélags Akureyrar verður sérstaklega fjölbreytt
Nýtt leikrit eftir
Arnmund Back-
mann frumsýnt
LEIKFÉLAG Akureyrar kynnti í
gær vetrardagskrá sína fyrir leik-
árið 1999-2000. Þar ber einna hæst
frumflutning nýs leikrits eftir Arn-
mund Bachmann en það ber nafnið
Blessuð jólin. Einnig vakti Sigurð-
ur Hróarsson leikhússtjóri athygli
á því að líklega hafa aldrei eins
margar sýningar verið settar upp
hér á Akureyri eins og verður í vet-
ur. LA setur upp þrjár sýningar en
auk þess verða sýndar þrjár sýn-
ingar í samvinnu við aðra aðila, auk
einhverra gestasýninga og einþátt-
unga. Um helgina verður gestasýn-
ing frá Þjóðleikhúsinu, en það er
leikritið Maður í mislitum sokkum
eftir Ammund Bachmann. Fyrsta
leikritið sem LA frumsýnir er
Klukkustrengir eftir Jökul Jakobs-
son, en það verður frumsýnt 1.
október.
Bæjarlífið, jólin og kreppan
Jökull samdi Klukkustrengi fyr-
ir LA árið 1973 en það var síðan
einnig sýnt í Þjóðleikhúsinu vetur-
inn eftir. Leikritið þykir lýsa
mannlífi við Pollinn á skemmtileg-
an hátt. Ókunnugur maður veldur
mikium usla í bæjarlífínu og rask-
ar ró góðborgaranna. Leikarar í
sýningunni eru Sigurður Karls-
son, Sunna Borg, Aðalsteinn
Bergdal, María Pálsdóttir, sem
nýlega var fastráðin við LA, Ingi-
björg Stefánsdóttir, Ari Matthías-
son og Árni Pétur Reynisson.
Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð og
Vignir Jóhannson hannar leik-
mynd og búninga.
Jólaleiki'it LA er Blessuð jólin,
eftir Arnmund Bachmann. Þar er
jólastressi á aðfangadagskvöld lýst
í spéspegli. Hver óvænt uppákom-
an rekur aðra í jólahaldi íslenskrar
fjölskyldu og endinn sér víst eng-
inn fyrir. Leikstjóri er Hlín Agn-
arsdóttir.
Síðasta leikrit leikársins sem LA
frumsýnir er Tóbakströð eða
„Tobacco Road“, eftir skáldsögu
Erskine Caldwell í þýðingu Jökuls
Jakobssonar. Leikritið gerist í
Suðurríkjum Bandaríkjanna á
kreppuárunum og fjallar um Lest-
er-fjölskylduna. Leikritið var sýnt í
Iðnó fyrir tæpum 30 árum og naut
þá mikilla vinsælda. Leikstjóri er
Viðar Eggertsson og verður leik-
ritið frumsýnt fyrir páska.
Samstarfssýningar
Auk þessara þriggja sýninga
Morgunblaðið/Kristj án
Starfsfólk Leikfélags Akureyrar á blaðamannafundinum í gær.
Ingibjörg Stefánsdóttir og Val-
geir Skagfjörð æfa nýtt lag fyr-
ir leikritið Klukkustrengi eftir
Jökul Jakobsson.
verða sýndar aðrar þrjár í sam-
vinnu við aðra aðila. I samstarfí
við Draumasmiðjuna í Reykjavík
verður sýnt í nóvember Baneitrað
samband á Njálsgötunni, eftir
Auði Haralds í leikstjórn Gunnars
Guðsteinssonar. Brúðuleikhússýn-
ingin Gosi, eftir Helgu Arnalds
verður sett upp í samstarfi við Tíu
fíngur í febrúar. Að lokum verður
leikritið Stjörnur á morgunhimni,
eftir Alexander Galín í þýðingu
Árna Bergmanns sýnt einhvern
tímann eftir áramótin. Þetta er
samstarfsverkefni LA og Leikfé-
lags Islands í Iðnó og það er
Magnús Geir Þórðarson sem leik-
stýrir.
Af öðru efni má nefna sviðsetn-
ingu á verðlauna-einþáttungum úr
samkeppni LA og Menor og ein-
leikinn Skækjurnar ganga fyrst-
ar, eftir José Luis Martin
Descalso í samstarfi við Sögu
Jónsdóttur.