Morgunblaðið - 26.08.1999, Side 24

Morgunblaðið - 26.08.1999, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Javlinský og Stepashín hefja samstarf Línur skýrast í rússneskum stjórnmálum Moskvu. Reuters. ENN skýrast línur í rússneskum stjómmálum fyrir komandi þing- kosningar í landinu en á þriðju- dagskvöld var tilkynnt myndun kosningabandalags stjómarand- stöðuflokks hins frjálslynda hag- fræðings Grígorís Javlinskýs og Sergejs Stepashíns, sem Borís Jeltsín Rússlandsforseti rak ný- lega úr embætti forsætisráðherra. Komu þessi tíðindi nokkuð á óvart því í síðustu viku tilkynnti Javl- inský að ekkert yrði af fyrirhuguðu samstarfi þar sem of mikil hætta væri á að Jeltsín beitti Stepashín þrýstingi. „Við emm sammála um nauðsyn þess að stemma stigu við spillingu í Rússlandi. Við stöndum sameinaðir í þeirri afstöðu okkar að vilja spoma við þeim klíkuskap og flokkadráttum sem ráða ríkjum við stjórn landsins," sagði Javlinský, sem er leiðtogi Jabloko-flokksins, á fréttamannafundi á þriðjudags- kvöld. Fréttaskýrendur segja kosn- ingabandalag þetta geta orðið öfl- uga blöndu því bakgrunnur Stepashíns er í leyniþjónustunni, en hann er fyrrverandi hershöfð- ingi og innanríkisráðherra. Javl- inský nýtur aftur á móti virðingar sem umbótasinnaður hagfræðing- ur. Bakgrunnur Stepashíns í mál- efnum er tengjast lögum og reglu gæti t.a.m. hjálpað til við að skilja á milli þeirra Javlinskýs og Stepashíns annars vegar og hins vegar kosningabandalags nokk- urra ungra umbótasinna, sem einnig var tilkynnt á þriðjudag, en þeim síðarnefndu hefur oft verið kennt um spillingu þá og óreiðu sem einkennt hafa tilraunir til markaðsumbóta í Rússlandi frá 1991. Jeltsín rak Stepashín óvænt og án útskýringa úr embætti forsætis- ráðherra fyrr í þessum mánuði og tilnefndi Vladímír Pútín, fyrrver- andi KGB-njósnara, í hans stað. Virtist sem forsetinn hefði orðið óánægður með að Stepashín skyldi ekki takast að koma í veg fyrir myndun kosningabandalags milli erkióvinar síns, Júrís Lúzhkovs, borgarstjóra í Moskvu, og Jev- genís Prímakovs, fyrrverandi for- sætisráðherra, en bandalag þeirra og ýmissa héraðsstjóra virðist sig- urstranglegt í þingkosningunum í desember. Arlegur tómataslagur TALIÐ er að þrjátíu þúsund manns hafi tekið þátt í „tómataslag" í Bunol í austurhluta Spánar í gær en um árlegan viðburð er að ræða. Kepptust gestir og gangandi við að kasta tómötum í hvern annan á meðan á slagnum stóð og þykir ekki ósennilegt að rúmlega 125 tonnum af tómötum hafi verið sólundað með þessum hætti í gær. Reuters Brezkir þingmenn draga umbótavilja stjórnsýslu Evrópusambandsins í efa Prodi ítrekar umbótastefnu Skólavörubúðin Sérverslun fyrir alla fróðleiksfúsa Skólavörubúðin Laugavegi 166 • 105 Reykjavík Sími 552 8088 • Símbréf: 562 4137 • Víð bjóðum einnig upp á sérpöntunarþjónustu • Verið velkomin í Skólavörubúðina, sérverslun með námsgögn og kennslutœki. • Við hlökkum til að þjónustaykkur. tjjá okkurfærðu: Kennshffonrit Námsbækur Kennslutœki Sérkennslugögn Tómstundavörur Ritföng Skólatqflur Kortabrautakerfi Hyndvarpa ogsegulbönd Landakort oji. ojt.... Brussel. Reuters. ROMANO Prodi, sem í september mun taka við sem forseti fram- kvæmdastjómar Evrópusambands- ins (ESB), sagðist í gær staðráðinn í að sjá til þess að gerðar yrðu rót- tækar umbætur á stjómsýslu sam- bandsins. „Eg kæri mig ekki um að tjá mig um fráfarandi framkvæmdastjóm en það er fjarri því að ég láti mér þörfma á róttækum umbótum hjá framkvæmdastjóminni í léttu rúmi liggja," sagði Prodi í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kjölfar þess að hópur brezkra þingmanna birti skýrslu þar sem þeir drógu umbóta- vilja ESB-stjómsýslunnar í efa. Gallarnir fullljósir „Mér em gallamir á fram- kvæmdastjóminni fullljósir og ég er staðráðinn í að hrinda í framkvæmd umbótum sem ná til allra þátta starfsemi hennar, svo að bæta megi úr þeim,“ sagði Prodi. Áhrifamikil nefnd brezkra þing- manna birti í gær skýrslu þar sem hún sakaði ESB-stjórnsýsluna um að sýna lítil merki þess að vilja taka þær ákvarðanir sem nauðsynlegar væra til að bæta úr vanköntum á fjármálaeftirliti framkvæmda- stjómarinnar og gera aðgerðir til vamar svikum skflvirkari. Bretinn Neil Kinnock, sem Prodi hefur falið að hafa yfiramsjón með umbótastarfi innan framkvæmda- stjórnarinnar næstu árin, hét því í útvarpsviðtali í gær að starfshættir stofnunarinnar myndu breytast veralega, meðal annars með því að tekið yrði upp nýtt þjálfunarkerfi fyrir nýja starfsmenn. En hann við- urkenndi að verkefnið - að gera rót- tækar umbætur á hinu 42 ára gamla stjómsýslukerfi ESB - væri „gríð- arstórt" og sjáanlegs árangurs væri ekki að vænta í einu vetfangi. Fríkirkjan í Reykjavík Sunnudaginn 29. ágúst verður Fríkirkjuhátíð í Skálholti. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00 og fjölskyldudagskrá á eftir. Óháði söfn- uðurinn og Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði taka einnig þátt og munu prestar safnaðanna, sr. Einar Eyjólfsson, sr. Hjörtur Magni Jóhannsson og sr. Pétur Þorsteinsson, sameiginlega annast messuhald. Organisti verður Kári Þormar og blandaður Fríkirkjukór leiðir sönginn. Fríkirkjufólk á öllum aldri er hvatt til þátttöku og ekki síst fjölskyldufólk sem vill samtengja holla skemmtun og kristilegt uppeldi. Hópferðabílar leggja af stað frá Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 12.00 og er fólk á einkabílum hvatt til að vera í samfloti með þeim. Komið verður til baka milli kl. 18.00 og 19.00. Allir hjartanlega velkomnir. Þátttaka tilkynnist í sima 552 7270 milli kl. 10.00 og 13.00 virka daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.