Morgunblaðið - 26.08.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
_________ERLENT_______
Gengið til kosninga
í Serbíu í nóvember?
Belgrad. Reuters, AP.
SAMSTEYPUSTJÓRN vinstri afl-
anna í Serbíu hefur ákveðið að
skipuleggja sveitarstjómarkosn-
ingar sem halda á 7. nóvember og
verða almennar þingkosningar
haldnar sama dag ef stjórnarand-
stöðuöflin fallast á tillögu þess efn-
is, að því er fram kom í frétt
serbneska dagblaðsins Blic í gær.
Taldi blaðið sig hafa heimildir fyrir
þessu frá háttsettum manni í
stjórninni sem sagði jafnframt að
ekki yrði kosið í Kosovo-héraði
vegna „tímabundinnar stjómar
Sameinuðu þjóðanna þar“.
Ivica Dacic, talsmaður Slobod-
ans Milosevics Júgóslavíuforseta,
sagði í gær að ríkisstjórn Milos-
evics væri reiðubúin til að ganga
snemma til kosninga en vísaði
fréttum Blic á bug. „Til þessa hef-
ur enginn tekið frumkvæðið að
skjótum kosningum," sagði Dacic í
gær. „Við teljum að það séu mikil-
vægari mál á dagskrá, en ef aðrir
JAAK Gabriels, landbúnaðar-
ráðherra Belgíu, (t.h.) og Joyce
Quinn, aðstoðarutanríkisráðherra
Bretlands (t.v.), umkringd frétta-
mönnum er þau snæddu hádegis-
verð í Brussel í gær, þar sem
brezkt nautakjöt var í fyrsta sinn
á borðum frá því Evrópusam-
bandið setti bann við útflutningi
þess fyrir þremur árum, vegna
hættunnar á kúariðusmiti sem
valdið getur heilarýrnunarsjúk-
dómnum Creutzfeldt-Jakob í
mönnum.
Þau 48 kíló brezks úrvalsnauta-
kjöts sem framreitt var í máls-
verðinum, sem var í boði samtaka
vilja kosningar, þá er það ekkert
vandamál.“
í frétt blaðsins segir að þing-
menn Sósíalistaflokks Milosevics,
ný-kommúnistar og þjóðernissinn-
ar hafi fallist á tillöguna um kosn-
ingar 7. nóvember og telji stuðn-
ingsmenn stjórnarinnar víst að
stjómarflokkamir hljóti meirihluta
hinna 250 þingsæta á serbneska
þinginu.
Stjórnarandstaðan klofín
Stjórnarandstæðingar em marg-
klofnir í afstöðu sinni til kosninga
þar sem Vuk Draskovic, leiðtogi
Endurreisnarhreyfingarinnar,
hvetur til réttlátra kosninga en
andstæðingur hans, Zoran Djind-
jic, leiðtogi Lýðræðisflokksins, hef-
ur farið fram á að ekki verði kosið
fyrr en Milosevic hefur horfið frá
völdum og þá undir alþjóðlegu eft-
irliti.
Ólíkt Djindjic telur Draskovic að
brezkra kjötútflyljenda, kom frá
kjötiðnaðarstöð í Norður-Wales,
sem er sú eina sem eins og sakir
standa hefur uppfyllt alla þá
ströngu gæðastaðla sem ESB hef-
ur sett sem skilyrði fyrir því að
helja megi útflutninginn á ný.
Aður en „kúariðufárið“ varð til
þess að nautakjötsútflutningur
frá Bretlandi var stöðvaður í
marz 1996 hafði hann skilað
brezkum kjötiðnaði um 60 millj-
örðum íslenzkra króna árlega.
Brezk þingnefnd hefur áætlað að
kúariðufárið hafi fram að þessu
kostað brezkan efnahag samtals
um 500 milljarða króna.
kosningai’ séu eina leiðin til að fá
Milosevic til að hverfa úr valdastóli
og hefur hann sakað Djindjic um
að reyna að efna til borgarastyrj-
aldar fyrir skoðanir sínar.
Draskovic hefur hins vegar ekki
komið fram með tillögur um hvem-
ig Sósíalistaflokkur Milosevics fáist
til þess að efna til réttlátra kosn-
inga. Blic heldur því fram í frétt
sinni að ríkisstjórnin hafi ákveðið
að losa um tök sín á fjölmiðlum í
Serbíu og bjóða erlendum fulltrú-
um að fylgjast með kosningunum.
-------»-M-------
Atökin í Dagestan
Of snemmt
að fagna
sigri
Moskvu. Reuters.
YFIRVÖLD hernaðarmála í
Moskvu sögðu í gær að Rússar
hefðu náð fjallaþorpum Kákasus-
héraðsins Dagestan á sitt vald eftir
að múslímskir uppreisnarmenn,
sem undanfarnar vikur hafa átt í
hörðum bardögum við rússneska
herinn, flúðu af svæðinu. Talsmenn
hersins sögðu of snemmt að fagna
sigri jafnvel þótt útlit væri fyrir að
mestu átökum rússneska hersins
frá lokum stríðsins í Tsjetsjníu
1994-1996 sé lokið.
Talmaður rússneska hersins,
staddur í Makhachkala, höfuðborg
héraðsins, las upp siguryfirlýsingu
símleiðis til Moskvu þess efnis að
uppreisnarmenn hefðu hörfað að
fullu frá Dagestan og haldið áleiðis
til Tsjetsjníu í litlum hópum.
ígor Sergejev, varnamálaráð-
herra Rússlands, var að sögn frétta-
manns Reuters augsýnlega mjög
létt við fréttimar en sagði það hins
vegar of snemmt að fagna sigri yfir
uppreisnarmönnum. „Eg tel það
versta í Boltikh-sýslu (í Vestur-
Dagestan) yfirstaðið," sagði hann
en það er enn hætta á að uppreisn-
armenn snúi aftur í hefndarhug og
fremji frekari hryðjuverk í hérað-
inu.“
Talsmaður rússneska hersins
sagði herinn hafa misst 59 manns
og að um 210 hefðu særst í átökun-
um. Samkvæmt heimildum varnar-
málaráðuneytisins féllu um þúsund
uppreisnarmenn. Sjálfkjörinn for-
sætisráðherra uppreisnarmanna
tjáði hins vegar Reuters að her
þeirra hefði aðeins misst 37 manns
og 68 væru særðir. Taldi hann
mannfall rússneska hersins vera á
annað þúsund. Ummælin fengust
hvorug staðfest í gær.
Reuters
Brezkt nautakjöt
á borðum í Brussel
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 25
i
Tilgangur námsins er að undirbúa þátttakendur undir árangursrikt framhalds- og háskóla-
nám með nýrri tækni. Farið er vandlega yfir öll mikilvægustu atriðin í námsefni framhalds-
skólans og nemendum kennt að leysa verkefni og dæmi með tölvu- og stærðfræðiforriti.
Sérstök áhersla er lögð á myndræna framsetningu og lausn á hverskyns jöfnum.
Tfmi: 2.-28. september, 72 kennslustundir
Vönduð námsgögn á íslensku - Vei menntaðir kennarar
Vertu með og tryggðu þér forskot
Nánari upplýsingar og skráning í SÍma 552 7200
Stærðfræði- og tölvuþjónustan
Brautarholti 4, Reykjavík.
. Ef þú ætlar að leggja lartd
undir fót er góður kostur
að leigja NMT síma til að
hafa með. NMT farsímakerfið
hefur mjög mikla útbreiðslu. Þú ert
í öruggu sambandi með hina frábæru
Benefon Sigma eða Benefon Delta í
farteskinu. Á kortinu getur þú séð hversu víða
NMT kerfið nær.
Allar frekari upplýsingar færðu hjá Símanum í
Ármúla, en þú getur einnig leitað upplýsinga í
netfanginu: NMTleiga@simi.is
Ljósa svæðið er útbreiðsla NMT á íslandi, WW W. S Í TYl Í.ÍS
sjá nánar í símaskránni bls. 15
LÍMMIÐAPRENT
Þegar þig vantar límmiða
Skemmuvegi 14,200 Kópovogi. S. 587 0980. Fox 557 4243
úrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía
Stjörnuspá á Netinu
vhómbl.is
_/KLLTAf= GITTHVAÐ A/ÝTT
hjólaðu í nýtt hjól
Hjólaðu í nýtt hjól fráTrek,Gary Fisher eða Klein.
Topphjól með vönduðum búnaði og ævilangri
ábyrgð á stelli og gaffli. Hjól fyrir alla aldurshópa.
VISA
camsHier c« klein cateye suimnna*