Morgunblaðið - 26.08.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
<■
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 49
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, - Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
(S. Kr. Pétursson.)
Gengin er á Guðs vald góð og
mæt vinkona og náinn samstarfs-
maður, Guðlaug Ragnarsdóttir.
Okkar fyrstu fundir voru er hún
kom á vinnustað minn ásamt dóttur
sinni, Guðlaugu Helgu. Voru þær að
huga að undirbúningi fæðingar
fyrsta bamabarns hennar. Mikil
eftirvænting og gleði einkenndi
þessa samverustund okkar, kær-
leikur, birta og ylur streymdi frá
þeim mæðgum, sem ég hef notið
ríkulegá síðan. Næstu jól á eftir
fékk ég jólakort, góðar óskir og
mynd af Einari Daða, sem síðan
hefur verið á vinnuborði mínu. Á
þessum tíma hefur okkur sjálfsagt
ekki komið í hug náið samstarf og
góð vinátta. Á hátíðarstund í fjöl-
skyldu minni skírði séra Guðlaug
Helga barnabarn mitt. Með þessu
áttu bamabömin hug og hjörtu
okkar beggja. Er ljóst var að sjúk-
dómurinn sem hún barðist við var
að taka völdin voru það barnabömin
sem henni voru efst í huga, að geta
ekki séð þau vaxa úr grasi, en
Drottinn vakir, Drottinn vakir
daga og nætur yfír þeim.
Á liðnum áram eftir að hún varð
öldranarfulltrái í Fella- og Hóla-
kirkju sá hún m.a. um vikulegar
helgistundir í félagsstarfinu í
Gerðubergi ásamt starfsfólki þar.
Er okkur öllum sem þar hafa komið
og starfað efst í huga á kveðjustund
gleði, birta og ylur frá glæsilegri
konu með opinn faðm, þar sem
pláss var fyrir alla, og þakklæti fyr-
ir hvað hún umvafði okkur af ein-
lægu ástríki sem einkenndi hana.
Senn er leiðin á enda,
sumarið horfín tíð.
Mun þó helkuldann lifa
minningin skær og blíð.
(Helgi Sæmundsson.)
Minningin um Guðlaugu okkar
eins og við töluðum um hana er
skær og blíð og mun lifa með okkur,
sem henni kynntumst. Einlægar
samúðarkveðjur til allra ástvina
hennar.
Guðrún Jónsdóttir.
Nú hefur elskuleg vinkona mín
Guðlaug Ragnarsdótth’ lokið ævi-
göngu sinni. Eins og svo oft áður er
erfitt að skfija leyndardóma lífs og
dauða. Lulla fékk alla þá bestu eig-
inleika sem hægt er að öðlast í
vöggugjöf. Hún hafði góðar gáfur,
mikla ástúð, mildi og kærleik sem
að hún gaf af sér til allra sem ná-
lægt henni voru. Lulla vann ötul-
lega við að hugga og styrkja þá sem
til hennar leituðu með trá sinni og
hjartahlýju. Því spyr ég: Hvar er
meiri þörf fyrir hana en hér á jörð?
Héðan er hennar sárt saknað af öll-
um sem hana þekktu. Eitt er víst að
þeir era heppnir sem fá að njóta
hennar í nýjum heimkynnum.
Minningarnar hrannast upp um
vináttu sem aldrei hefur borið
skugga á í fimmtíu og eitt ár. Okkar
kynni hófust 1948: Ég er ný í hverf-
inu og þekki ekki sálu. Það er hópur
barna að leik og ég geng í átt til
þeirra. Sú fyrsta sem ég tek eftir er
stelpa á mínum aldri, 7-8 ára, með
síðar fléttur eins og ég. Það er eitt-
hvað kunnuglegt við hana sem
dregur mig að henni. Ég geng til
hennar og spyr hvað hún heiti. Ég
heiti Lulla, svarar hún að bragði.
Ég spyi’ aftur hvort hún vilji vera
með mér. Já, já, var svarið. Upp frá
þessu voram við óaðskiljanlegar
þrátt fyrir að værum í raun afskap-
lega ólíkai’. Hún var lóðið á mína
vogarskál og ekki veitti af. Ég var
alltaf tilbúin í prakkarastrik og
hamagang en vinkona mín tók ekki
þátt í slíku. Þegai' hún sá að ég ætl-
aði að taka þátt í hasarnum horfði
hún á mig alvarlegum augum og
sagði einbeitt á svip: „Þú skalt ekki
gera þetta, Guð sér til þín.“ Oftar en
ekki hætti ég þá við en þó kom fyrir
að ég hélt mínu striki. Þá gekk
Lulla burtu en fljótlega var ég kom-
in á eftir henni og allt var gleymt.
Ég vai’ð brátt heimagangur hjá
Lullu. Lauga mamma hennar var
ákveðin kona og lét mig strax vita
hvað mátti og hvað mátti ekki en
hún var mjög hjartahlý og raungóð.
Ég hálföfundaði vinkonu mína af því
að vera sama sem einbirni. Hanna
systir hennar var gift og flutt að
heiman svo að í mínum huga var
hún einbirni og hvílíkur lúxus. Ég
veit nú reyndar að hún var ekld
sammála mér um þetta.
Lulla var strax sem bam mjög
tráuð. Það leið aldrei svo sunnudag-
ur að ekki væri farið í guðsþjónustu.
Strax þá hafði hún þann þroska að
hlusta á allt sem sagt var og hugsa
um það. Þetta mótaði hana mjög
snemma. Auðvitað fór ég með - ann-
að kom ekki til greina. Við gengum í
bamakór Hallgrímskirkju. Það stóð
yfir í tvö ár. Næst lá leið okkar í
sunnudagaskóla Mössu og Maju. Það
var fyrir hádegi en eftir hádegi var
farið í KFUK. Síðan var það bama-
kór Sólskinsdeildarinnar. Þar naut
söngi'ödd Lullu sín vel, há og tær.
Þegar ég vildi stríða vinkonu minni á
þessum árum kallaði ég hana „Lullu
guðsbam". Ég vissi ekki þá, sem mér
lærðist seinna, að hún var sannkallað
guðsbam. En það þýddi ekki að
Lulla vinkona væri alltaf alvöragefin.
Hún var ein af þeim hláturmildustu
manneskjum sem ég hef þekkt. Allt
framundir það síðasta var hægt að fá
hana til að hlæja og sjá það skoplega
í tilverunni. Hún hafði einstakt jafn-
vægi sálar og tók örlögum sínum af
innri ró.
Árin liðu og við fóram sín í hvora
áttina; áhugamálin ólík en vináttan
alltaf sú sama. Við töluðum saman
með reglulegu millibili, bárum sam-
an bækur okkar og fylgdumst vel
hvor með annarri. Vináttustrengur-
inn á milli okkar slitnaði aldrei.
Þegar Lulla var 16 ára komst hún á
samning við að læra hárgreiðslu.
Henni fannst það vera mikil heppni
fyrir sig en ég tel það hafa verið
mikla heppni fyrir meistarann að fá
jafn yndislega stúlku sem var bæði
samviskusöm, vandvirk og ekki síð-
ur hjartahlý og gefandi. Hún varð
mjög eftirsótt á stofunni og sáu þær
mjög mikið eftir henni þegar hún
hætti. Lulla var mikil húsmóðir,
samviskusöm og vandvirk. Ég
stríddi henni oft með því að hún
hefði fengið erfðasjúkdóminn úr
móðurætt, „tuskusótt“. Það var allt
skúrað, skrábbað, fægt og bónað.
Hún bar mikla virðingu fyrir heimil-
inu. Dætram sínum var hún yndis-
leg móðir. Hún umvafði þær kærleik
og umhyggju alla tíð. „Þú uppskerð
eins og þú sáir,“ það sannast á dætr-
um Lullu. Þær hafa allar helgað sig
trúnni. Guðlaug Helga er prestur,
Ragnhildur er djákni og kennari og
Steinunn er félagsráðgjafi.
Lulla fór ekki varhluta af sorg og
erfiðleikum. Árið 1980 gekk hún í
gegnum hjónaskilnað sem olli henni
mikilli sorg. Stuttu seinna fékk hún
krabbamein og fóru þá erfiðir tímar
í hönd. Stór aðgerð og allt sem því
fylgdi. En tráin var fyrir
hendi.“Tráin flytur fjöll.“ Lulla lét
aldrei bugast. Hún dreif sig út á
vinnumarkaðinn og fór að vinna í
Landsbankanum. Það er ekki auð-
velt að byrja að vinna utan heimilis
eftir að hafa eingöngu helgað sig
fjölskyldunni í 20 ár. Þetta gerði
Lulla og leysti vel af hendi. Stuttu
seinna dreif hún sig í öldungadeild
Hamrahlíðarskóla. Þar naut hún sín
vel. Foreldrar Lullu, Ragnar og
Lauga, reyndust henni einstaklega
vel og studdu vel við bakið á henni í
erfiðleikunum. Lulla og móðir
hennar vora mjög samrýndar alla
tíð. Það var Lullu því mikið áfall
þegar Lauga fékk heilablæðingu og
dó fyrirvaralaust. Ragnar faðir
Lullu var óhuggandi og kom það nú
í hennar hlut að hugga föður sinn
og hjálpa honum að komast í gegn-
um sorgina. Það vora erfið þrjú ár
sem á eftir komu en þá fékk Ragnar
ósk sína uppfyllta - hann fékk að
fara til Laugu sinnar eftir erfið
veikindi. Þennan tíma hætti Lulla
námi en tók aftur upp þráðinn og
fór þá í Fjölbraut í Breiðholti og
lauk stúdentsprófi þar. Undanfarin
ár hefur Lulla unnið í Fella- og
Hólakirkju við öldranarstarf.
Fannst henni það mjög gefandi og
fjölbreytt starf og ég veit að henn-
ar er sárt saknað þar. Ef ekki hefðu
tekið sig upp veikindin frá árinu
1995, og þau síðan ágerst, hefði hún
farið í frekara nám. Ég er viss um
að hún hefði valið eitthvað innan
guðfræðinnar. Ég sé hana fyrir mér
sem djákna á himnum úr því að
henni entist ekki tími til þess hér.
Fyrir aðeins tveimur áram flutti
Lulla heimili sitt í Safamýri 77. Þar
var allt endurgert eftir hennar
smekk. Mikil alúð var lögð í nýju
hýbýlin og árangurinn var glæsilegt
en jafnframt hlýlegt heimili.
Stærstan þátt í þeirri vinnu átti
Láras tengdasonur Lullu. Hann
nýtti allan sinn frítíma í að aðstoða
tengdamóður sína í hvívetna. Þökk
sé þér, Láras. Vinir og vandamenn
lögðu líka sitt af mörkum eftir bestu
getu. Það er ekki ofsögum sagt að
Lulla átti yndislegar dætur og ekki
vora tengdasynir hennar síðri. Það
vora hennar mestu sælustundir þeg-
ar þau vora í návist hennar, svo að
ég tali nú ekki um ömmubörnin sem
orðin era níu talsins.
Það era margir sem eiga um sárt
að binda við fráfall Lullu. Reynir
minn, ég veit að erfiður tími fer nú í
hönd hjá þér. Þú hefur misst þinn
besta vin. Falleg minning um sam-
vera ykkar mun hugga þig þegar
frá líður. Elsku Ragnhildur og
Andrés, Guðlaug Helga og Lárus,
Steinunn mín og Tommy, þið hafið
ekki bara misst móður og tengda-
móður, heldur líka ykkar besta vin.
En fögur minning um hana sem
aldrei bar skugga á er dýrmæt eign
sem mun hugga þegar frá líður.
Elsku litlu ömmuböm, það er sárt
til þess að vita að amma með stóra,
hlýja faðminn og fallega brosið er
ekki lengur í Safamýrinni til að
taka á móti ykkur en eitt getið þið
verið viss um; að hún er nú engill
sem vakir yfir ykkur öllum og
verndar. Systurfjölskyldu hennar,
sem býr í Kanada, sendi ég mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Við hlæjum ekki meira saman í
bili, Lulla mín. Ég hlakka til endur-
fundanna. Hvfldu í friði og hafðu
þökk fyi’ir allt. Innilegar samúðar-
kveðjur frá fjölskyldu minni.
Þín æskuvinkona,
Sigurhanna.
HANNA BJORG
PÉTURSDÓTTIR *
+ Hanna Björg
Pétursdóttir
fæddist í Reykjavík
11. september 1981.
Hún lést á heimili
sínu 16. ágúst síð-
astliðinn og fór út-
för hennar fram frá
Fossvogskirkju 23.
ágúst.
Á sólríkum sumar-
dögum er svo auðvelt
að gleyma vandamál-
um hversdagsins og
ímynda sér að öllum
hljóti að líða vel þegar bjartar næt-
ur ráða ríkjum og hlýir vindar
strjúka kinn. Þó era því miður ein-
staklingar meðal okkar sem sjá
ekki lífið á þann hátt og geta ekki
notið þess að finna angan af
haustinu sem nálgast. I þeirra hópi
var ung vinkona okkar, hún Hanna
Björg, sem við trúðum alltaf að
gæti sigrað heiminn með brosinu
einu saman, svo elskuleg og blíð
stúlka var hún. Hún bauð af sér
góðan þokka, var hæglát en þó
ákveðin og allt sem hún tók sér
fyrir hendur var gert með aðdáun-
arverðri vandvirkni. Arnar Logi
átti enga frænku líka þér, elsku
Hanna Björg, svo ótrúlega þolin-
móð og alltaf til í að leika smá, þótt
þú værir löngu vaxin upp úr því.
Hann kveikir á kerti fyrir þig á
kvöldin og biður Guð að passa þig á
himnum, hann saknar þín mjög
mikið. Þú gafst honum svo mikið af
þér og að því á hann eftir að búa
um ókomna framtíð. Það er erfitt
að tráa því að þú sért farin. Það
var svo gott að umgangast þig því
þú varst svo róleg að öllum leið vel
í kringum þig og því er sárt að
hugsa til þess að þér hafi sjálfri lið-
ið illa. Það er sárara en orð fá lýst
að kveðja unga vinkonu sem allir
tráðu að ætti bjarta framtíð fyrir
sér. En minningin um yndislega
stúlku mun lifa með okkur alla tíð
og við erum þakklát fyrir þær góðu
stundir sem við áttum saman og þá
umhyggju sem þú ávallt sýndir
Arnari Loga. Við vonum af öllu
hjarta að þér líði betur á þeim stað
sem þú dvelur núna. Elsku Gurra,
Pétur, Guðný Eva og
Kolla, við sendum
ykkur okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur
og biðjum að góður
Guð styrki ykkur í
sorginni.
Sunna og
Arnar Logi.
Það er enn svo erfitt
að tráa því að húsv-,
Hanna Björg sé farin
frá okkur.
Ég hef þekkt Hönnu
Björgu frá því ég fyrst
man eftir sjálfri mér. Við voram
saman í bekk alla okkar grann-
skólagöngu og Hanna Björg var
ein af þeim sem tóku við fullorðins-
mannatölunni með mér á ferming-
ardeginum okkar. Ekki voram við
mörg sem vorum saman í bekk
þannig að við gátum ávallt stutt
hvert annað í gegnum súrt og sætt
og hún Hanna var sú sem maður
gat ávallt leitað til þegar eitthvað
bjátaði á, hún var ávallt til staðar
og reiðubúin að hlusta.
Rétt fyrir Verslunarmannahelg^*
ina hittumst við allar gömlu bekkj-
arsysturnar hjá einni okkar, grill-
uðum og spjölluðum saman um allt
milli himins og jarðar. Það var svo
gaman að rifja upp liðnar stundir.
Því þegar upp á menntaskólastigið
kemur fjarlægjast menns og hver
fer í sína átt.
Þessari kvöldstund mun ég
aldrei gleyma og ég mun ávallt
varðveita hana í hjarta mínu. Þetta
var hið síðasta sinn sem ég sá
Hönnu Björgu. Unga stúlku serrí*
var í blóma lífsins og átti alla fram-
tíðina fyrir sér.-
Hanna Björg var gáfuð og skyn-
söm stúlka og gekk henni ávallt vel
í skóla og útskrifaðist úr Klébergs-
skóla með sóma.
Ég mun ávallt sakna Hönnu
Bjargar og varðveiti minninguna
um fallega og góða stúlku eins og
hún var.
Ég vil biðja góðan guð að styrkja
foreldra, systur og aðra aðstand-
endur í þessari miklu sorg.
Bergrún Ósk Ólafsdóttir.
GUÐMUNDUR
MARGEIR
GUÐMUNDSSON
+ Guðmundur Margeir Guð-
mundsson fæddist á fsafírði
3. desember 1923. Hann lést á
heimili sínu 17. ágúst síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Fossvogskirkju 25. ágúst.
Nokkram áram eftir vera mína í
Miðtúni fékk ég að dvelja hjá Guð-
mundi með börnin mín tvö, Guð-
mund og Margréti, en Margrét ber
nafn Margrétar heitinnar systur
Guðmundar, þannig að bæði börn
Mig langar að minnast Guð-
mundar í fáeinum orðum. Vorið
1971 var ég spurð hvort ég vildi
taka að mér heimili þar sem hús-
móðirin hafði látist fyrir fáeinum
vikum. Á heimilinu voru maður
hennar og mágur hans og tveir
fóstursynir. Ég og sonur minn, þá
3ja ára, ákváðum að taka þetta að
okkur. I Miðtúni tók á móti okkur
myndarlegur, rólegur maður og
tveir eins strákar. Okkur leist vel á
þá og þennan rólega mann. Seinna
tókst með okkur og þeim sérstök
vinátta sem varir enn þótt mörg ár
hafi liðið á milli heimsókna. Guð-
mundur var einstaklega barngóð-
ur, börn sáu fljótt að þetta var vin-
ur þeirra. Það kom mér ekki á
óvart að tvíburarnir Skúli og Ingvi
væru hrifnir af frænda eins og þeir
kölluðu Guðmund ætíð, hann um-
vafði þá mikilli hlýju, þá sýndi
hann mér og syni mínum mikla vin-
semd og sonur minn kunni vel að
meta þessa ástúð.
3lómabúðir\
öa^skom
v/ 1-ossvogskirkjwgarð
Sími: 554 0500
311111IXIIXXlIXiy
H
H
H
H
H
H
H
H
H
H
Erfisdrykkjur
P E R L A N
Sími 562 0200
fclriTX iiiixxiiiini
H
H
H
H
mín fengu að njóta ástúðar hans ojf^"
umhyggju. Það var mér dýrmæt
reynsla að kynnast þessum hljóð-
láta manni með stóra hjartað, hann
bað ekki um mikið fyrir sjálfan sig
en gaf öðram því meira. Núna ertu
búinn að kveðja og ég vil þakka þér
fyrir allt, Guðmundur minn.
Ingi minn og Skúli, við börn mín
vottum ykkur og öðrum nákomn-
um samhug og það er gott að minn-
ast.
Þórdís Ólafsdóttir,
Guðmundur og Margrét.
KisSCiSftiífsÉiSÍíiliSf
r
LEGSTEINAR
-—___^
Guðmundur
Jónsson
F. 14.11.1807
D. 21. 3.1865
Graníf
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707 FAX: 565 262'
HEIMASÍÐA: www.granit.is
í