Morgunblaðið - 26.08.1999, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ
52 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
- Sempervivum
ÉG VERÐ að játa að ég varð hálf-
hvumsa við þegar lærifaðir minn í
garðræktinni sagði við mig fyrir
margt löngu að hann ætti ýmsar
gerðir af húslauk og hann
blómstraði reglulega skemmti-
lega. Ég vissi ekki til að hann
ræktaði aðrar tegundir af græn-
meti en kartöflur uppi
í Skammadal og
rabarbara hjá safn-
kassanum, en lauk,
sem blómstraði og
þess þá heldur marg-
ar gerðir, nú var mér
allri lokið. Síðan þetta
gerðist hefur mikið
vatn runnið til sjávar
og ég veit núna að
laukur og laukur get-
ur verið svo margt.
Matarlauk - þennan
með gula hýðið - er
auðvelt að rækta úti í
garði og hann, eins og
flestir aðrir laukar,
getur myndað
skemmtileg blóm.
Húslaukur er hins vegar alls
óskyldur matarlauknum, sem til-
heyrir Allium-ættkvíslinni. Lat-
neska nafnið á húslauknum,
Sempervivum, er dregið af orðum
sem tákna alltaf og lifandi og
hann ætti því frekast að kallast
Eilífur á íslensku. Á Norðurlönd-
unum og Englandi og sjálfsagt
víðar gengur hann samt líka undir
húslauksnafninu og það á sér
skýringu eins og svo margt annað.
Húslaukur var brunavörn fyrri
aldar manna, og ætti því líklegast
að heyra beint undir brunamála-
stjóra. Laukurinn var gróðursett-
ur í stráþökum og menn trúðu að
eldingu lysti ekki niður í þak með
húslauk í eða að í því kviknaði.
Þessa hugsun yfirfærðum við á
burnirótina íslensku og gróður-
settum hana í torfþökum. Hug-
myndin er ekki alveg fjarstæðu-
kennd, því húslaukurinn og
burnirótin eru bæði þykkblöðung-
ar. Blöð þeirra eru mjög safamikil
með þykkri yfirhúð, sem dregur
úr uppgufun. Blöð húslauksins
eru heilrennd og oft
töluvert hærð og
mynda mjög þéttar
blaðhvirfingar, sem
stækka með aldrinum.
Húslaukurinn fjölgar
sér auðveldlega með
því að stönglar vaxa
út úr neðstu blaðöxl-
unum og á enda
þeirra myndast nýjar
blaðhvirfingar sem
festa auðveldlega ræt-
ur. Þannig verður
fljótlega til falleg
breiða. Eins er unnt
að sá til húslauks.
25-30 tegundir til-
heyra húslauksætt-
kvíslinni en þær
mynda auðveldlega fjölbreytilega
blendinga og afbrigði, sem sagt
skemmtOegt leikfang fyrir blóma-
framleiðandann. FjölbreytOeikinn
í útliti blaðhvirfinganna er ótrú-
legur. Sumar eru gulgrænar, aðr-
ar grágrænar, þá eru til rauðar
hvirfingar, grænai’ með rauðum
jöðrum, rauðar með grænum jöðr-
um. Eins eru þær mismunandi
hærðar og köngulóarlaukurinn,
sem þrífst ágætlega hérlendis, er
svo loðinn, að löngu hvítu hárin
mynda líkt og vef milli blaðodd-
anna. Mörgum finnast blóm hús-
lauksins hreint aukaatriði, enda
er lífið stutt gaman skemmtilegt
hjá húslauknum eftir blómgun.
Þegar blaðhvirfingin hefur náð
fullri stærð, sem er mjög breyti-
BLOM
VIKUNMR
417. þáttur
IJmsjúii Sigríð-
ur Hjartar
HÚSLAUKUR
Kalkhúslaukur - Sempervivum cakareum ‘Sir William Lawrence.
leg eftir tegundum, allt frá örfá-
um sentímetrum upp í meira en
20, vex upp úr henni stöngull með
dreifðum, smáum blöðum og á
endanum situr blómskúfurinn
með stjörnulaga blómum með
stórum og áberandi fræflum.
Fjöldi blómanna er mismunandi,
frá því að vera 5-6 talsins upp í
20-30. Blómin eru ýmist rauð, rós-
rauð eða gulleit, en þó eru til af-
brigði með hvítum blómum. Að
lokinni blómgun deyr svo blað-
hvirfingin, en hliðarhvirfingar
taka þá við og þannig má segja að
húslaukurinn sé eilífur, samanber
latneska nafnið.
Húslaukurinn er fjallaplanta, er
villtur á breiðu belti allt frá Pyr-
eneafjöllum í vestri, Alpafjöllum,
Kákasusfjöllum og alveg tO Iran.
Einu kröfur hans til jarðvegs eru
að hann sé vel framræstur, því
ekki vOl hann fótraka. Sólrík
steinhleðsla er alveg kjörlendi en
hann er skemmtOegur og mjög
vinsæll í kerum, ýmist einn eða
með öðrum smáplöntum. Hvernig
væri að þeir, sem hafa gaman af
blómum á svölum, prófi húslauk í
keri eða potti, það er alveg óþarfi
að rækta fyrst og fremst sumar-
blóm á svölunum.
Húslaukurinn þolir mjög vel
þurrk, þar sem hann geymir í sér
mikinn raka. Hann er sígrænn en
þolir vel bæði frost og umhleyp-
inga. Húslaukurinn hefur verið
lengi í ræktun, bæði köngulóar-
laukur, kalkhúslaukur, fjallahús-
laukur og ýmsar gerðir þekju-
lauks.
FRÉTTIR
Söngheimar
- nýr
söngskóli
ÁRNI Sighvatsson, baritónsöngvari
og söngkennari, hefur stofnað söng-
skólann Söngheima, Dyngjuvegi 12,
Reykjavík og tekur hann tO starfa
3. september nk.
Kennt verður í einkatímum og er
miðað við 1 klst. í viku, hálfan eða
heOan tíma í senn. Hluti af hverjum
tíma verður notaður fyrir tónfræði
eftir því sem við á og fyrir lengra
komna verða tímar með píanóleik-
ai-a. Kennt verður á haust- og vor-
önn. Aðalkennari og skólastjóri er
Árni Sighvatsson.
I fréttatökynningu segir að þetta
sé kjörið tækifæri fyrir fólk á öllum
aldri tO þess að láta drauminn ræt-
ast og hressa upp á röddina.
Árni stundaði söngnám hér
heima í mörg ár og var síðan tvö ár í
framhaldsnámi í Mflanó á Italíu.
Hann söng lengi með Þjóðleik-
húskórnum og um tíma með Is-
lensku óperunni. Hann hefur sungið
og verið einsöngvari hér heima og
erlendis með Árnesingakórnum í
Reykjavík í mörg ár. Árni hefur
verið söngkennari við Tónlistarskól-
ann í Keflavík frá árinu 1985 og
einnig kennt við Tónlistarskólann á
Akranesi og víðar.
---------------
Ný blómaversl-
un í Kópavogi
BLÓM er list er ný blómaverslun í
Núpalind 1, Kópavogi. Eigendur
verslunarinnar eru Ragnheiður
Helga Jónsdóttir skreytingahönn-
uður og Benedikt Níels Óskarsson.
Boðið er upp á blóm, gjafavörur
og alla almenna skreytingaþjónustu
og sendingarþjónustu.
TIL SÖLU
Ein af betri lúgusjoppum
bæjarins!
Vorum að fá á skrá mjög öflugan og góðan
söluturn með bílalúgumtil sölu. Fyrirtækið
er með mikla og góða framlegð, selur mikið
af grillmat, pylsum og ís. Góðar tekjur eru af
auglýsingum utanhúss ásamt öðrum umboðs-
tekjum. Húseigandi ertilbúinn að gera 10 ára
leigusamning um hið leigða með forleigurétti.
Staðsetning fyrirtækisins er í austurbæ Reykj-
avíkur. Þarna er á ferðinni gott atvinnutækifæri
fyrir fjársterka aðila.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Hóll-Fyrirtækjasala,
Skipholti 50b,
sími 551 9400.
KEIVIIMSL.A
VMA
Útvegssvið á Dalvík
Innritun stendur yfir
á eftirtaldar brautir:
'Fiskvinnslubraut 2. ár.
Fiskvinnslubraut 3. ár (hefst um áramót).
Sjávarútvegsbraut 1. ár.
Skipstjórnarbraut 1. stig (ef næg þátttaka fæst).
Heimavist á staðnum.
Upplýsingar hjá kennslustjóra í síma 466 1083
,-og heima 466 1860 og 862 8082.
Söngskólinn i Reykjavík
Inntökupróf í Söngskólann
í Reykjavík
Unglingadeild/14—16 ára.
Grunndeild/byrjendur eldri en 16 ára.
Almenn deild/að 8. stigi.
Söngkennaradeild.
Inntökupróf fara fram 1. sept.
Kvöldnámskeid/Undirbúningsnámskeid
fyrir alla aldurshópa. Kennt er utan venju-
legs vinnutíma.
Innritun stendur vfir.
Upplýsingar á skrifstofu skólans, Hverfisgötu
45, sími 552 7366 daglega frá kl. 10.00—16.00.
Skólastjóri.
TILKYNNIISIGAR
Auglýsing
um deiliskipulag í Svartárbotnum,
Biskupstungum
Samkvæmt 25. gr. laga nr. 73/1997, er hér með
lýst eftir athugasemdum við deiliskipulag
svæðis fyrir fjallasel í Svartárbotnum, Biskups-
tungum. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi
aðstaða, sem er skilgreind sem fjallasel, verði
flutt til norðurs sem nemur 1.200 m og gistiað-
staðan stækkuð.
Skipulagstillögurnar liggjaframmi á skrifstofu
Biskupstungnahrepps, Aratungu, 801 Selfossi,
frá 27. ágústtil 24. september 1999 á skrifstofu-
tíma. Fresturtil að skila inn athugasemdum
ertil 8. október 1999. Skriflegum athugasemd-
um skal skila á skrifstofu Biskupstungna-
hrepps. Þeir, sem ekki gera skriflegar athuga-
semdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir
tillögunni.
F.h. Biskupstungnahrepps,
Ragnar Sær Ragnarsson, sveitarstjóri.
vg> mbl.is
€=i~nrHWUD iMVTT