Morgunblaðið - 26.08.1999, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 53*.
FRÉTTIR
Yfírlýsing frá
borgarstjóra um
Laugardalinn
Aðalfundur
Náttúru-
verndar-
samtaka
Austurlands
AÐALFUNDUR Náttúruverndar-
samtaka Austurlands verður haldinn
að Hótel Svartaskógi í Jökulsárhlíð
dagana 28. og 29. ágúst. Fundurinn
hefst um kl. 14 á laugardaginn. Lagt
verður af stað með rútu frá Hótel
Svartaskógi kl. 15 í skoðunarferð um
Hróarstungu undir leiðsögn Arnar
Þorleifssonar, bónda í Húsey. Um kl.
20.30 verður svo kvöldvaka á Hótel
Svartaskógi: Þórður Júlíusson, líf-
fræðingur á Skorrastað, flytur erindi
og Hjörleifur Guttormsson sýnir lit-
myndir.
Sunnudaginn 29. ágúst hefst fund-
ur um kl. 10. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa verður rædd tillaga
stjórnar NAUST um stofnun þjóð-
garðs á Snæfellsöræfum.
Allt áhugafólk um náttúruvemd er
hvatt til að mæta. Nýir félagar vel-
komnir, segir í fréttatilkynningu.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra vegna yf-
irlýsingar sem forsvarsmenn sam-
takanna „Vemdum Laugardalinn"
sendu frá sér og birt var í Morgun-
blaðinu á þriðjudag.
„í gær barst mér í hendur
fréttatilkynning frá samtökunum
„Verndum Laugardalinn", undir-
rituð af Árdísi Þórðardóttur, þar
sem gerð er athugasemd við um-
mæli mín á Stöð 2 hinn 22. þ.m.
Fréttatilkynningin byggir að meg-
inhluta til á rangfærslum og þykir
mér rétt að svara því sem þar kem-
ur fram í bréfi til samtakanna.
1. Það er mikill misskilningur að
ég hafi látið svo um mælt að „borg-
aryfirvöld komi til með að láta fara
fram almenna atkvæðagreiðslu
um fyrirhuguð byggingaráform
Landssímans og Jóns Ólafssonar í
Laugardal ef 25% atkvæðisbærra
borgarbúa fara skriflega fram á
það.“ í umræddri frétt kemur bein-
línis fram að ég sé ekki hlynnt því
að framkvæmdirnar í Laugardaln-
um fari í almenna atkvæðagreiðslu.
Þetta er mál sem borgaryfirvöld
eiga að afgreiða að lokinni form-
legri kynningu og lýðræðislegri
umræðu.
2. Fullyrðing um að ég hafi í um-
ræddu viðtali við Stöð 2 valið mal-
bik og steinsteypu í Laugardalinn í
stað grænna svæða fyrir almenn-
ing á sér enga stoð í ráunveruleik-
anum. Staðreynd er að umrætt
svæði hefur um langt árabil verið
byggingarsvæði í skipulagningu
Reykjavíkur og var hvorki ágrein-
ingur um það á sínum tíma að
þarna skyldi rísa tónlistarhús né
var ágreiningur um það í mars sl. í
borgarráði að byggja á þessu
svæði. Það er mitt mat og margra
annarra að metnaðarfullar bygg-
ingar á þessu svæði geti fallið vel
að starfsemi Laugardalsins og
styrkt hann sem miðstöð útivistar
og afþreyingar. Ég hef hins vegar
aldrei sagt að ég vilji malbik og
steinsteypu fremur en græn svæði
í Laugardalinn og fráleitt að hægt
sé að finna því stoð í fréttaviðtölum
við mig.
3. Varðandi fjölda undirskrifta
hef ég aðeins sagt það að núver-
andi meirihluti muni ekki hundsa
sjónarmið borgarbúa eins og
Sjálfstæðisflokkurinn gerði í Ráð-
húsmálinu á sínum tíma. Enn-
fremur hef ég bent á að í sam-
þykktum okkar sé gert ráð fyrir
að ef um fjórðungur atkvæðis-
bærra Reykvíkinga óski eftir því
að tiltekin framkvæmd sé borin
undir atkvæði borgarbúa, skuli
það gert. Að öðru leyti hef ég
undirstrikað að ekki sé hægt að
gefa neina uppskrift að því
hvenær mótmæli séu nægilega
mikil til að borgaryfirvöld verði
við þeim. Það hlýtur ávallt að ráð-
ast ef efni máls og þeim rökum
sem fram koma, með og á móti.
Það er hlutverk borgaryfirvalda
að meta þær röksemdir og það '
munum við gera.
4. I þriðja lagi halda samtökin
því fram að í fréttaviðtalinu hafi ég
sagt að „almenn umræða og mót-
mæli dugi ekki heldur verði þetta
að vera formlegt." Hvergi í viðtal-
inu kemur þetta sjónarmið fram,
sbr. lið 2 hér að ofan. Þvert á móti
segi ég orðrétt í viðtalinu: „Skipu-
lagið í Laugai’dalnum gerði ráð
fyrir því að þarna yrði byggt og við
erum komin fram með skipulagstil-
lögu í samræmi við það og hún er
til umfjöllunar og við munum að 1
sjálfsögðu taka þátt í umræðum við
borgarbúa um þetta mál.“
Þarna byggir fréttatilkynning
samtakanna „Verndum Laugardal-
inn“ frá 23/8 alfarið á rangfærslum
sem verða augljósar þegar viðtalið
við mig er skoðað. Eg harma að
einstakir talsmenn samtakanna
grípi til þess ráðs að rangtúlka orð
mín og leggja mér í munn orð sem
hafa aldrei frá mér komið. Slík
vinnubrögð eru ekki til þess fallin
að vinna málstað þeirra gagn.“
Töðugjöld í Snæfellsbæ
ÍBÚAR í sunnanverðum Snæfells-
bæ hafa sameinast um að halda
töðugjöld helgina 28. og 29. ágúst.
Tilefnið er að fagna uppskerulokum
og njóta þeirra með öðrum.
Boðið verður upp á ýmislegt til
dægrastyttingar svo sem gönguferð
um Búðahraun undir leiðsögn
Ragnhildar Sigurðardóttur um-
hverfisfræðings, hægt er að fara í
selaskoðun, veiðileyfi í silung og lax
fást á vatnasvæðum Lýsu og í
Vatnsholtsvötnum og eru silungs-
veiðileyfin í síðasttöldu vötnunum á
fjölskylduvænu verði. Hestaleiga er
á Lýsuhóli og á sunnudeginum er
hin árlega bændaglíma Golfklúbbs
Staðarsveitar á Görðum.
Sveitamarkaður verður á
Brekkubæ, Hellnum, þar sem boðið
verður upp á ýmiss konar handverk,
heimagerðar sultur, garðuppskeru,
rúnakerti og margt fleira.
Kaffiveitingar verða á Görðum og
í Fjöruhúsinu á Hellnum og ýmsir
þjóðlegir réttir verða á matseðlin-
um hjá Snjófelli, Amarstapa. Hægt
er að fá gistingu í Ytri-Tungu, á
Görðum, Lýsuhóli og Búðum í Stað-
arsveit, hjá Snjófelli á Arnarstapa
og Ferðaþjónustunni Brekkubæ og
Gíslabæ á Hellnum. Á nokkrum
þessara staða eru tjaldstæði í boði.
„I Snæfellsbæ er stórkostleg
náttúrufegurð og margt frábærra
staða til að skoða. Landið tengist
Eyrbyggju, Bárðar sögu Snæfells-
áss og Víglundarsögu og ótal stað-
amöfn má rekja til landnáms á
svæðinu. Þá er þar að finna gott
berjaland og fallegar gönguleiðir,
segir í fréttatilkynningu.
á óskalista
mest selda heimilisvélin í 50 ár!
• 5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu,
rauðu eða gráu
• Fjöldi aukahluta
• íslensk handbók með uppskriftum fylgir
I • Lágiær og þrælsterk - endist kynslóðir
1 B • Sérstök brúðkaupsgjöf: Öll brúðhjón
fá glæsilega svuntu með ísaumuðum
nöfnum sínum og brúðkaupsdegi.
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf!
KitchenAid einkaumboð á íslandi
Einar Farestveit &Cahf.
BORGARTUN 28 - S: 562 2900 & 562 2901
íþróttir á Netinu
<§>mb l.i
ALLTAf= £ITTH\/AÐ NÝn
Fréttir á Netinu
|j|mbl l.i is
ALLTAf= e/TTH\SA£3 TJÝTl