Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 26.08.1999, Blaðsíða 54
MORGUNBLAÐIÐ * 54 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 SÝNING HUNDARÆKTARFÉLAGS ÍSLANDS TVÆR nýjar hundateg- undir voru syndar á af- mælissýningu Hunda- ræktarfélags íslands um síðustu helgi, kínverskur crested- hundur, sem stundum er nefndur faxhundur og basenji-hundur, sem sumir kalla búskhund. Ennfremur voru sýndir tveir japanskir chin- hundar, en þeir hafa ekki sést á ís- lenskri hundasýningu í mörg ár. „Basenji-hundar eru afar falleg- ir og skemmtilegir. Þeir eru sér- stakir að því leyti að þeir kunna ekki að gelta,“ segir Emilía Sigur- steinsdóttir sýningarstjóri. Kín- verskur crested-hundur, sem sýndur var, vakti nokkra athygli, enda er skrokkurinn hárlaus. „Eðli málsins samkvæmt fara crested- hundar ekki úr hárum, en með- höndla þarf húð þeirra á sérstakan hátt,“ upplýsir Emilía.“ Hundar samkvæmt ræktunarstaðli Á hundasýningum gefa dómarar hundum einkunnir í samræmi við ræktunarstaðal viðkomandi teg- undar. „Hundaræktarfélög í upp- runalandi hverrar tegundar gefa út staðal um tegundina, þar sem meðal annars eru nákvæmar upp- lýsingar um vaxtarlag, skapgerð, vöðvabyggingu, hreyfíngar, tenn- , ur, feld og fleira. Markmið í hundarækt er að rækta hunda sem eru eins nálægt þessum staðli og mögulegt er og góð einkunn á hundasýningu er vísbending um að það hafi tekist,“ segir Emilía. „Þyki dómara hundur vera fram- úrskarandi fulltrúi sinnar tegund- ar getur hann sæmt hann íslensku meistarastigi. Hundur sem fengið hefur þrjú íslensk meistarastig hjá þremur mismunandi dómurum öðlast titihnn íslenskur meistari. « Ennfremur geta dómarar sæmt hunda alþjóðlegu meistarastigi, svokölluðu CACIB-stigi, en það merkir að hundur sé framúrskar- andi á alþjóðlegan mælikvarða. Til að verða alþjóðlegur meistari þarf hundur að fá fjögur alþjóðleg stig hjá fjórum ólíkum dómurum og þurfa vinnu- og veiðihundar jafn- framt að fá góða einkunn á skap- gerðarprófi. Hér á landi hafa yfir 20 hundar öðlast alþjóðlegan meistaratitil og fjöldi íslenskra meistara skiptir nú hundruðum." Sækjast eftir að dæma á Islandi t Sex dómarar dæmdu á sýning- unni og segir Emilía að allir hafi þeir langa reynslu og séu mjög virtir hundadómarar. „Við erum svo lánsöm að gott orðspor fer af sýningum okkar. Við fáum því einatt mjög góða og virta dómara til okkar og þeir sækjast eftir að dæma á sýningum hjá okkur. Is- lenskar sýningar þykja mjög glæsilegar og vel skipulagðar og dómurum finnst gott að vinna hér. Þótt þeir séu bókaðir mörg ár fram í tímann, gefa þeir sér nær undantekningarlaust tíma til að koma á sýningar hjá okkur, séu þeir beðnir um það.“ Emilía segir að vaxandi áhugi sé '' á hundarækt hér á landi og sér- staklega sé áberandi áhugi á smá- hundum og veiðihundum. „Dómar- ar sem voru hér fyrir nokkrum ár- um segjast sjá mikinn mun á hundum okkar núna. Ræktunin batnar ár frá ári og þeir eru sam- mála um að hér sé óvenju mikið af fallegum hundum. Þeir eru enn- fremur hrifnir af því hversu vel eigendur sýna hunda sína, enda leggja margir mikið á sig við und- irþúning sýninga. Þeir æfa sig og hirða feld hunda sinna af mikilli . natni.“ Unglingar á heimsmælikvarða Hluti af hundasýningum er til- einkaður ungum sýnendum, þar sem 10-17 ára unglingar sýna hunda. Þá eru metin samskipti hunds og sýnanda, hæfni til að Islenskur hestur og íslenskur fjárhundur, ásamt uppáklæddum eigend- um, settu svip á lokahluta afmælissýningar Hundaræktarfélags Islands. Ræktunin á réttri leið / Fiðrildahundurinn Yrar-Baron Katrovius þótti bera af tæplega 240 hundum sem tóku þátt í sýningu Hundaræktarfélags Islands um síðustu helgi. Brynja Tomer fylgdist með og sá glæsilega hunda af yfír 40 tegundum. Hún ræddi við Emilíu Sigursteinsdóttur sýningarstjóra, sem segir dómara hafa verið afar ánægða með skipulag sýningarinnar og ekki síður með mikinn fjölda fallegra hunda. Malteser-hundur í skoðun hjá sænska dómaranum Kenneth Edh. sýna hund og þekking sýnanda á eiginleikum viðkomandi hundateg- undar. Emilía segir að dómarar hafi verið sérstaklega hrifnir af ungum sýnendum að þessu sinni, þar væru á ferðinni unglingar sem gætu allir sómt sér vel á hinni virtu alþjóðlegu Crufts-sýningu. „Þessi ummæli eru afar hvetjandi og koma áreiðanlega til með að efla enn frekar áhuga unglinga á góðum samskiptum við hunda og almenna þekkingu á ólíkum hundategundum." Besti hundur sýningar að þessu sinni, papillon-hundurinn Yrar- Morgunblaðið/Jón Svavarsson Besti hundur sýningar var papillon-hundurinn sem hér sést ásamt eigendum sínum Sveinbirni Nikulássyni og Sólveigu Þórarinsddttur. Besti hvolpur sýningar var sex mánaða boxer-tík, Bjarkeyjar-Snilld, sem hér er ásamt Ingu B. Gunnarsdóttur, ræktanda og eiganda sínum, og norska dómaranum Helge Lie. Baron Katrovius, er tæplega fjög- urra ára og hefur þegar öðlast ís- lenskan meistaratitil. I öðru sæti var boxer-hundurinn Bjarkeyjar- Patrick Joe, sem er tæplega tveggja ára og í þriðja sæti var þriggja ára írsk setter-tík að nafni Yrar-Aida Kasmir. Fjórði besti hundur sýningar var Snælukku- Kátur, 4 ára gamall íslenskur fjár- hundur. Besti hvolpur sýningar var box- er-tíkin Bjarkeyjar-Snilld, sem er sex mánaða. í öðru sæti var ís- lenska fjárhundatíkin Sindra- Espa, sem er sjö mánaða og í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.