Morgunblaðið - 26.08.1999, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999 59'.
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Fríkirkjuhátíð
í Skálholti
tímamótagijðsþjónusta í
íslenskri kirkjusögu verður haldin í
Skálholtskii-kju hinn 29. ágúst
næstkomandi, síðasta sunnudaginn
í ágúst, kl. 14. Um er að ræða sam-
eiginlega guðsþjónustu Fríkirkj-
unnar í Reykjavík, Óháða safnaðar-
ins og Fríkirkjunnar í Hafnarfirði.
Að lokinni guðsþjónustu verður
boðið upp á fjölskyldudagskrá í
Skálholti sem allir þrír söfnuðimir
munu standa að. Verður þetta í
fyrsta sinn sem þessir þrír frí-
kirkjusöfnuðir halda sameiginlega
guðsþjónustu.
Til gamans má geta þess að þessir
þrír söfnuðir sem játa nákvæmlega
sömu evangelísku lúthersku trúna
og ríkiskirlqan gerir, telja til sam-
ans u.þ.b. 10.000 manns, sem er
nokkur stór hluti íslensku þjóðar-
innar.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
er evangelískur lútherskur en óháð-
ur ríki og er sem shToir langstærsti
trúarsöfnuðurinn á íslandi.
Tilefni þessarar tímamótaguðs-
þjónustu er 100 ára afmæli Frí-
kirkjusafnaðarins í Reykjavík sem
bæði Óháði söfnuðurinn og Frí-
kirkjan í Hafnarfírði tengjast en
með ólíkum hætti þó.
ímynd Fríkirkjunnar í Reykjavík
hefur ekki alltaf verið björt né hef-
ur hún alltaf vitnað um jákvæða og
kristna lífssýn. Til að trúarsamfélag
teljist trúverðugt verður það að
kannast við og viðurkenna fortíð
sína. Það sama gildir í öllum mann-
legum samskiptum. Fríkirkjuhátíð-
inni er ætlað að vitna einmitt um
það.
Nú undanfama mánuði hafa
hundmð nýrra félaga bæst við í
söfnuð Fríkirkjunnar í Reykjavík.
Nýir félagar hafa bæst við á þeirri
forsendu að Fríkirkjan sé trúar-
samfélag sem er að ganga í gegnum
Pantaðu núna
0 555 2866
Kays - Argos - Panduro
B.Magnússon
Fax 565 2866 • bm@vortex.is
Nuddnám
hefst 1. sept. nk.
Nuddnámið tekur eitt og
hálft ár. Útskriftarheiti er
nuddfræðingur.
Námið er viðurkennt af
menntamálaráðuneytinu og
Félagi íslenskra nudd-
fræðinga.
Upplýsingar í sima 567 8921
virka daga kl. 13-17.
Hægt er að sækja um f síma,
á staðnum eða fá sent um-
sóknareyðubiað.
Nuddskóli
Guömundar
endurýjun jafnt hið innra sem ytra
og að allir geti tekið þátt í því upp-
byggingar- og mótunarstarfí sem
framundan er.
Þegar söfnuðurinn var stofnaður
fyrir einni öld, merkti það, að þetta
tiltekna kirkjusamfélag leitaðist við
að vera laust undan slævandi áhrif-
um ríkisvaldsins, eins og það birtist
í þá daga. Stofnun Fríkirkjunnar í
Reykjavík fyiir rétt tæpum hund-
rað ámm, einkenndist af mikilli trú-
ardjörfung og athafnaþrótti ís-
lenskrar alþýðu.
í dag er Fríkirkjan í Reykjarík
er ekki ríkisrekin stofnun, ekki fé-
lag um þjóðlegar hefðir og forna
kristna siði. Hún er ekki og má
aldrei vera hagsmunafélag fárra
sjálfskipaðra kirkjueigenda. Hún
er ekki gróðafyrirtæki, ekki klúbb-
ur eða átthagafélag, heldur samfé-
lag íslensks fólks um trú á Guð.
Fríldrkjan i Reykjavík er vett-
vangur fólks sem safnast saman
um andlega lífssýn, kristilegt upp-
eldi og heilbrigð lífsgildi.
Hvað merkir þetta „frí“ for-
skeyti? Jú, það merkir að þessi til-
tekna kirkja er sérlega meðvituð
um að vera laus við, eða „frí - und-
an“, öllu því sem getur hindrað
hana í því að ná því marld sem er
mikilvægast af öllu; að ganga á
Guðs vegum og lifa í sátt við sköp-
unina og hann sem er höfúndur lífs-
ins.
Skálholtsferðin markar upphaf
vetrarstarfs safnaðarins og mildð
veltur á að góð þátttaka náist bæði í
ferðina sem og í starfið sem
framundan er.
Fólksflutningabílar munu leggja
af stað frá Fríkirkjunni í Reykjavík
kl. 12 á hádegi. Einnig eru þeir
sem tök eiga á hvattir til að fara á
eigin bílum.
Þátttaka tilkynnist sem fyrst á r
skrifstofu safnaðarins í síma
552 7270 alla virka daga frá kl.
10-13.
Er fríkirkjufólk sem fríkirkju-
vinir á öllum aldri jafnt hinir eldri
sem yngri hvattir til þátttöku og þá
ekki síst fjölskyldufólk sem vill
samtengja holla skemmtun og
kristlegt uppeldi.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
Hallgrímskirkja. Orgeltónlist kl.
12-12.30. ^
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 21.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl.
6.45. Kyrrðarstund kl. 12. Gunnar
Gunnarsson leikur á orgel. Að bæn
og altarisgöngu lokinni er léttur
málsverður á vægu verði í safnaðar-
heimilinu. Prestur sr. Bjarni Karls-
son.
Kópavogskirkja. Kyrrðar- og
bænastund í dag kl. 18. Fyrirbæna-
efnum má koma til prests eða
kirkjuvarðar.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 22. Kaffi eftir athöfn. Bibl-
íulestur kl. 21.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl.
14.30 helgistund á Sjúkrahúsinu, í
setustofu á annarri hæð. Allir vel-r
komnir. Kl. 20.30 unga fólkið í Eyj-
um hittist í opnu húsi í KFUM&K-
húsnu.
Akraneskirkja. Fyrirbænastund kl.
18.30.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20.30 vitnis-
burðarsamkoma. Fjölbreytt dag-
skrá. Allir hjartanlega velkomnir.
Eru rimlagardínurnar óhreinar!
Vifc hreinsum:
Rimla, strimla, plíseruS og sólargluggatjöld.
Setjum afrafmagnandi bónhúö.
Sækjum og sendum ef óskaó er.
fjýja
tsékmhreinsunin
Sólhetmar 35 • Simi: 533 3634 • GSM: 897 3634
Sjálfstæðismenn
í Reykjavík
efm til siiinnúírfiátíðíjír í
••
HEreiytOKK (Hjalladal) surrLid. 29. á^úst kl. 14-17
Ávarp Sólveigar Pétursdóttur,
dóms- & kirkjumálaráðherra.
\ \
V 11
•flf
• Fjörugur fótboltaleikur
• Ratleikur
• Reiptog milli austur- og vesttJrbæjarS
g Æí % \
• Leikir og blöðrur fyrir börnin og farið á hestbak
• Grillaðar pylsur, gos og kaffi
• Óvæntar uppákomur
• Verðlaunaafhending ofl. ofl.
Leiðin í W)ú\[(k\ú\ verður vel merkt frá
H&uðlnéium 6<j VífilsstúidúLúifle^^jArúL.
Veður engin ftfrirstúLða,
stért tjald verður reist & svóeðiru.
Sumtnuid<Á(jUir\nn 29. áqúst verdmr
qéður dUqur í Heiðmnörk.
Vörður - Fulltrúaráð
sjálfstæðisfclaganna ■ Reylcjavík
Forritun og
kerfisfrœði
-
Tveggja anna nám
Markmiðið með náminu er að svara vaxandi
Jjörf atviimulífsins fyrir starfsfólk til að vinna
við forritun og kerfisfræöi.
Námið er 396 klst. (594 kennslustundir).
Helstu námsgreinar:
Kcrftsgroining
Gagnagrunnsfræði
Pascal forritun
HTML forritun
Delphi forritun
Lotus Notes forritun I
Lotus Notes forritun II
Lotus Notes kerflsstjórnun
Java forritun
Hlutbundin hönnun (Select)
Áfangapróf og lokaverkcfni
Rakel Guðmundsdóttir
Kerfisfrœðingur
Eftir að ég lauk forritunar- og
kerfisfræðinánii hjá NTV fékk ég
vinnu í hugbúnaðardeild Nýherja.
Mér fannst námið hnitmiðað,
árangursríkt og skemmtilegt og það
hefur vissulega skapað mér spennandi
starfsvettvang.
Upplýsingar og innritun í sima 555 4980
ntv
Nýi tölvu- &
viðskiptaskölinn
Hólshrauni 2 - 220 Hafnarfirði - Simi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hlíðasmára 9- 200 Kópavogi - Sími: 544 4500 - Fax: 544 4501
Tölvupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasíða: www.ntv.is