Morgunblaðið - 26.08.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
FÓLK í FRÉTTUM
i
fastri tónlist sem
hann kryddar svo með hinum og
•. þessum hjóðum og hljóðfærum.
* Honum tekst að kalla fram því-
- líkt samansafn ólíkra tilfínn-
inga í einu lagi að margir
mættu vera ánægðir ef þeir
næðu því á öllum ferlinum.
Fyrsta sólóplata
kappans, Maxinquaye (Is-
land Records, 1995), er
með bestu „debut“-plöt-
um sem um getur, enn
ein rós í hnappagat
Bristol-borgar og þess
tónlistararfs sem þar
er. Henni íylgdi hann
eftir með plötunni
Pre-Millenium
Tension (Island
Records, 1996), sem
var á mjög svipuðum
nótum. í millitíðinni
gaf hann einnig út
plötu undir nafninu
Nearly God (Island
; Records, 1996) og þar var
sem hin myrku öfl færu
virkilega að láta að sér kveða.
TRYLLT
AF GLEÐI
MÁLTÆKIÐ segir að aðlaðandi sé konan ánægð, og víst fínnst
flestum konum og körlum líka gaman að vita að útlit þeirra gleðji
augu umheimsins. Peir sem írekari staðfestingu vilja fá á fegurð
sinni taka gjaraa þátt í fegurðarsamkeppnum þar sem dómnefnd
kveður upp úrskurð um glæsileika keppendanna. Ashley M.
Coleman frá Delaware í Bandaríkjunum tók þátt í keppninni um
hver væri fegursta unglingsstúlka Bandaríkjanna og eins og sjá
má af meðfylgjandi mynd trylltist hún af gleði þegar í ljós kom að
hún bar sigurorð af hinum keppendunum.
Þriðja sólóplatan undir nafninu
Tricky var svo Angels With Dirty
Faces (Island Records, 1998), en
sú plata var hvað tormeltust af
þeim öllum. Hún var mjög myrk og
þung og var sem Tricky væri hald-
inn ofsóknaræði á háu stigi, sumir
gengu meira að segja svo langt að
segja að með henni hefði hann riðið
ferli sínum að fullu og ætti sér ekki
viðreisnar von inn á almennan
markað. Juxtapose er mun að-
gengilegri þótt hann hafi ekki tap-
að sér í neinni gleðivímu, langt því
frá!
Tricky hefur ávallt verið ötull við
að fá aðra listamenn til að
vinna með sér, nægir að nefna
listamenn á borð við P. J. Har-
vey, Howie B., Neneh Cherry,
Björk og einnig Röggu Gísla.
Martina Topley-Bird er sú söng-
kona sem hvað mest hefur unnið
með honum en hin kalda og jafn-
framt dúnmjúka rödd hennar er
mjög gott mótvægi við hvæsið frá
honum sjálfum. Þó að nærveru
hennar sé sárt saknað hér á þess-
ari plötu er hann samt með frítt
föruneyti og er platan til að mynda
titluð: „Tricky with DJ Muggs and
Grease“. Hvað DJ Muggs og Grea-
se varðar hefur DJ Muggs unnið
með Cypress Hill, House of Pain
og Ice Cube á meðan Grease hefur
t.a.m. unnið með Ma$e. Einnig eru
nöfn á borð við D’NA, Kioka og
Bob Khaleel að finna á þessari
plötu. Þrátt fyrir mikið samansafn
tónlistarfólks á þessari plötu eru
það hans áhrif sem skila sér hvað
best í gegn svo það er auðheyrt
hver hefur haldið um taumana.
Vissulega hefur þessi nýjasta
plata mun léttara yfirbragð en síð-
asta breiðskífa Tricky, það er samt
af og frá að eitthvert glimmerpopp
sé hér á ferðinni. Þessi plata ber
einkennum Tricky glöggt vitni, sá
harði, þungi og svarti undirtónn
sem á það til að fæla hlustandann
frá við fyrstu kynni. Persónulegur
stíll Trickys er allt í senn þungur,
hrár, ljúfur, kraftmikill og fullur
ástríðu. For real er íyrsta lag plöt-
unnar og íyrsta lagið af henni til að
fara í almenna spilun í útvarpi. Þar
virðist hann eitthvað efins um það
líf sem fylgir tónlistariðnaðinum,
„all I do is rhyme“ er hans svar og
er því eins og hann átti sig ekki á
öllu fárinu í kringum þetta allt
saman. Önnur lög sem standa hvað
mest upp úr eru Wash My Soul
ERLENDA R
MYRKRAHÖFÐINGINN er
kominn á kreik aftur með enn eitt
meistaraverkið. Juxtapose er
fjórða sólóbreiðskífan sem Adrian
Thaws gefur út undir nafninu
Tricky en hann hefur einnig gefið
út undir nafninu Nearly God ásamt
mörgum samstarfsverkefnum, þar
á meðal með Massive Attack. Ég
held að mér sé óhætt að segja að
hér sé á ferðinni eitt af undrum
tónlistarsögunnar. Honum tekst á
einhvem óskýranlegan hátt að
hræra saman tilfinningum af
ólíkum toga og fá úr því graut
af myrkri, ögrandi og takt-
00000«
Jóhannes Erlingsson,
heimspeki- og
tölvufræðinemi,
skrifar um Juxtapose,
nýjustu plötu Tricky.
sem undirrituðum finnst hátindur
plötunnar, þetta eina lag er næg
sönnun fyrir snilligáfu Trickys og
réttlæting á tilvist hans í tónlistar-
heiminum. Einnig eru lögin Call
Me og Scrappy love dæmi um lög
sem hrein unun er að hlusta á.
Þessi lög eru öll dæmigerð Tricky-
lög, hæg, þung og ögrandi, með
þeim sannar hann enn og aftur
hvar hans rætur liggja. Inni á milli
eru svo lög á borð við Hot Like
Sauna og I Like Giris en í þeim er
hann að fara inn á nýjar brautir og
hefur sér til halds og trausts rapp-
arann Mad Dog. Þessi nýja stefna
hans brýtur upp heildarsvip plöt-
unnar og léttir hana einnig mikið,
nokkuð sem mörgum finnst kostur
en þó alls ekki öllum.
Þessi plata virðist benda til þess
að sem tónlistarmaður sé hann orð-
inn þroskaðri og betur meðvitandi
um hvað hann er að fást við. Hann
heldur áfram að fara inn á nýjar
brautir án þess að tapa eigin sér-
kennum og er það vel. Eitt er víst
að næstu plötu verður beðið með
óþreyju, hvað það verður veit nú
enginn, vandi er um slíkt að spá!
Myrkrahöfðinginn
’ 'nn á kreik