Morgunblaðið - 26.08.1999, Síða 66
-4)6 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
...það skiptir engu máli...
hve oft þú skoðar málið. Þú kemst ekkiframhjá staðreyndum...
!>■■* Ef þú ert á vinnumarkaðinum og ert að huga að
endurmenntun, þá eru mikil afköst við lestur nauðsynleg
undirstaða til að ná árangri á öllum öðrum námskeiðum.
"■■► Ef þú ert í námi og vilt ná frábærum árangri, þá eru
mikil afköst við iestur nauðsynleg undirstaða.
Byrjaðu á undirstöðunni! Margfaidaðu lestrarhraðann.
Lestrarhraði þátttakenda fjórfaldast að jafnaði. Næsta námskeið
hefst 31. ágúst. Við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
Skráning er í síma 565 9500
HR AÐLESTRA RS KÓLINN
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn
íþróttir á Netinu
^mbl.is
FÓLK í FRÉTTUM
ELÍSABET Taylor er nýkomin heim af sjúkrahúsi eftir að
gert var að beinbroti í baki. Leikkonan, sem er 67 ára,
datt á heimili sínu í Bel Air fyrir viku en nú hvílist hún á
heimili sínu og samkvæmt yfírlýsingu frá talsmanni henn-
ar verður hún rúman mánuð að jafna sig til fulls. Elísabet
hefur verið heilsuveil allt frá því að hún féll af hestbaki
árið 1945 þegar hún var við tökur á myndinni „National
Velvet“.
Síminn býður viðskiptavinum sínum upp á nýja og þægilega þjónustu.
Um leið og þú færð upplýsingar um símanúmer í 118 geturðu fengið beint
samband við viðkomandi númer og þarft því ekki að leggja á og hringja aftur.
118 er því eina símanúmerið sem þú þarft að muna ...
í kynningarskyni er þjónustan gjaldfrjáls út ágúst en frá og með 1. september verður tekið 33 kr.
gjald fyrir að gefa beint samband. Notaðu tækifærið og kynntu þér þægilega þjónustu 118.
SÍMINN
www.simi.is
' EKKI ER HÆGT AÐ TENGJA BEINT ÚR ÖLLUM SÍMANÚMERUM, T.D. EKKI BF HRINGT BR ÚR SJÁLFSÖLUM, ÚR FRBLSI FRÁ SÍMANUM GSM BÐA SÍMANÚMBRUM TALS.
MYNDBÖND
Verulega
léleg
Hlustandinn
(The Night Caller)_
Spennumynd
‘/2
Leikstjóri: Bob Malefant. Aðalhlut-
verk: Shanna Reed og Tracy Nelson.
(90 mín.) Bandaríkin. Skífan, ágúst
1999. Bönnuð innan 16 ára.
í ÞESSARI fremur dæmigerðu
sálfræðiskotnu sjónvarpsspennu-
mynd fylgjumst við með sturlunar-
ferli ungrar og
ólánsamrar stúlku
sem alist hefur upp við
erfíðar aðstæður. Fað-
ir hennar dó með svip-
legum hætti og lang-
veik móðirin drepur
sjálfsálit stúlkunnar
markvisst niður. Þeg-
ar hún kemst í kynni
við útvarpssálfræðing fer þó sjálfs-
virðing stúlkunnar batnandi og tekur
hún upp á því að myrða hvem þann
sem stendur í vegi fyrir hamingjunni.
Eins og gruna má er þetta bjána-
leg kvikmynd með afleitri sögufléttu
og heimskulegri persónusköpun.
Ung leikkona að nafni Tracy Nelson
túlkar hina sinnissjúku aðalpersónu
af mikilli innlifun og slakar þar
hvergi á tilþrifunum. Leikstíll hennar
verður allt að því hlægilega ýktur og
því ekki ósennilegt að Nelson gæti
orðið ágætis gamanleikkona. En
þessi spennumynd er verulega léleg.
Heiða Jóhannsdóttir.
Tóm leiðindi
Á ystu nöf
(If-Dog-Rabbit)_____________
Glæpamynd
★ '/2
Handrit og leiksfjórn: Matthew Modi-
ne. Aðalhlutverk: Matthew Modine,
David Keith og John Hurt. 104 mín.
Bandarísk. Sam-inyndbönd, júlí 1999.
Aldurstakmark: 16 ár
MÉR hefur alltaf fundist Matthew
Modine tilgerðarlegur og vondur
leikari og eftir þessa frumraun hans
sem handritshöfundar
og leikstjóra finnst
mér hann tilgerðarleg-
ur og vondur kvik-
myndagerðarmaður
líka. Það er ákveðið
virðingarvert sam-
ræmi þarna á milli, en
ekki góð undirstaða
fyrir kvikmynd, enda
er hún tilgerðarleg og vond. Modine
hefur reyndar á að skipa góðum hópi
leikara sem ná að klóra svolítið í
bakkann. Persónurnar sem þeir leika
eru hinsvegar illa skrifaðar og sagan
eiginlega alveg út í hött. Tilraun til
að ná fram dramatískri dýpt með
átökum milli feðga fer alveg út um
þúfur, rétt eins og myndin í heild.
Þetta er kvikmynd sem sæmir sér
best óhreyfð í hillunni úti á leigu.
Guðmundur Ásgeirsson.