Morgunblaðið - 28.08.1999, Side 2
2 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjármálaráðherra vonast eftir góðum lánsfjárafeangi
Stefnir í að verða að
minnsta kosti 17 milljarðar
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra kveðst í sam-
tali við Morgunblaðið gera sér vonir um að láns-
fjárafgangur ríkissjóðs í ár verði ekki minni en í
fyrra eða um 17 miiljarðar króna. Stefnt verður
að því að nota þessa peninga til að greiða niður
erlendar og innlendai- skuldir en ekki liggur fyrir
að hve miklu leyti skuldir verða greiddar niður á
árinu fyrr en í árslok.
Geir leggur á hinn bóginn áherslu á að endan-
legur lánsfjárafgangur liggi ekki fyrir fyrr en um
áramótin þar sem ýmsir þættir séu enn í óvissu
svo sem hvort 51% hlutur ríkisins í Fjárfesting-
arbanka atvmnulífsins (FBA) verði seldur í ár.
Lífeyrisskuldbindingar
hækka um 8 milljarða í ár
Verði af sölunni, segir ráðherra, má gera ráð
fyrir því að lánsfjárafgangur verði mun meiri en
17 milljarðar. Til samanburðar má geta þess að
lánsfjárafgangur var tæpir þrír milljarðar árið
1997, að því er fram kemur í ríkisreikningi fyrir
árið 1998.
Inntur eftir því hvort gert hafi verið ráð fyrir
lífeyrisskuldbindingum ríkisins í fjárlögum þessa
árs segir ráðherra að svo hafi verið. Þær séu um
8 milljarðar króna. „Og okkur sýnist það muni
duga,“ segir hann.
STUTT
Tvær bil-
veltur á
rúmri
klukkustund
TVÆR bflveltur urðu í um-
dæmi lögreglunnar í Borgar-
nesi með rúmlega klukku-
stundar millibili í gær.
Klukkan 18 missti ökumaður
stjórn á bifreið sinni í grófri
möl við Hítará á Ólafsvíkur-
vegi með þeim afieiðingum
að bfliinn valt. í bflnum voru
kona og lítið barn, hún í bíl-
belti og barnið í bflstól.
Sluppu þau ómeidd en bíllinn
var töluvert mikið skemmd-
ur.
Valt í Hvítársíðu
Rúmum klukkutíma síðar
misstu erlendir ferðamenn
stjórn á bifreið sinni er þeir
lentu í lausamöl í Hvítársíðu
í Borgarfirði. Bíllinn fór
þrjár veltur og voru ökumað-
ur og farþegi fluttir með
sjúkrabfl á sjúkrahúsið á
Ákranesi til rannsóknar. Að
sögn lögreglunnar í Borgar-
nesi var ekki talið að þeir
væru alvarlega slösuð en bfll-
inn er ónýtur.
Þrír slasaðir
eftir árekstur
ÞRÍR voru fluttir á slysa-
deild eftir árekstur tveggja
bfla á mótum Flétturima,
Langarima og Grasarima í
Grafarvogi á sjötta tímanum
í gær. Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu var enginn
þeirra talinn vera alvarlega
slasaður.
Bílarnir rákust saman á
Morgunblaðið/Ásdís
Danskennarar og nemendur sýndu dans ársins í gær við lagið Mambo N° 5 en dansinn er þeim kostum gæddur að vera einfaldur og skemmtilegur.
Fréttaritara-
vefur opnaður
FRÉTTARITARAVEFUR
Morgunblaðsins hefur verið
opnaður á Netinu. Á vefnum eru
upplýsingar um fréttaritara og
unnt að skoða ljósmyndasýn-
ingu.
Morgunblaðið hefur um 100
fréttaritara á landsbyggðinni.
Fólk sem vill koma upplýsingum
á framfæri við þá eða setja sig í
samband við einhvern fréttarit-
ara getur fengið nauðsynlegar
upplýsingar á fréttaritaravefn-
um, meðal annars um heimilis-
föng, símanúmer og netföng. Þá
er á vefnum unnt að skoða ljós-
myndir úr Ijósmyndasamkeppni
fréttaritara Morgunblaðsins.
Á síðum sem fréttaritarar
Morgunblaðsins einir komast á
með lykilorði er miðláð upplýs-
ingum til fréttaritaranna og
skapaðir möguleikar á ýmsum
samskiptum milli þeirra, félags-
ins Okkar manna og Morgun-
blaðsins.
Slóð fréttaritaravefjarins er:
www.mbl.is/frettaritarar
Einnig er unnt að komast inn
á vefinn með því að nota sér-
stakan hnapp á forsíðu frétta-
vefjar Morgunblaðsins, mbl.is.
Auðveldur dans
sem hentar öllum
DANSRÁÐ íslands kynnti dans
ársins í gær. Er þetta í fyrsta
sinn sem dans ársins er valinn
hérlendis en að sögn Heiðars
Ástvaldssonar, forseta DÍ,
tíðkast þessi siður víða. Dans
ársins er ónefndur dans við iagið
Mambo N° 5 og er upprunninn í
Hollandi.
Dans ársins er valinn úr til-
búnum fslenskum sem erlendum
dönsum af dómnefnd. Dansinn
þarf að vera bæði skemmtilegur
og auðveldur svo allir geti dans-
að hann, að sögn Heiðars, en til-
gangurinn með vali á dansi árs-
ins er að auka vinsældir dans al-
mennt. Heiðar kveðst vonast til
þess að val á dansi ársins veki at-
hygli fólks og hvetji það til að
dansa meira. „Ekki væri verra ef
hann yrði næsta „æði“ eins og
„Macarena“ -dansinn varð fyrir
nokkrum árum,“ segir Heiðar og
bætir við: „en það var dans sem
bókstaflega allir lærðu að
dansa.“
Danskennarar landsins búa sig
nú undir lærdómsríkan dansvet-
ur, að sögn Heiðars, þvx nemend-
ur sem stunda dansnám verða
fleiri í vetur en nokkni sinni
fyrr. Stafar það meðal annars af
því að dans hefur verið inniimað-
ur í námskrá grunnskólanna og
með því öðlast samþykki sem
skyldugrein í grunnskólum. I
framtíðinni munu því allir nem-
endur á aldrinum 6-16 ára læra
dans í skólanum.
gatnamótunum og lentu síð-
an báðir á grindverki. Þeir
sem slösuðust voru öku-
mennirnir og farþegi í öðrum
bflnum. Þeir voru allir í belt-
um. Bílarnir voru báðir flutt-
ir burt með kranabfl.
Féll niður
af háalofti
TVEGGJA ára drengur féll
um tvo og hálfan metra ofan
af háalofti í húsi í Grafarvogi
á sjöunda tímanum í gær-
kvöld.
Drengurinn lenti á púða
og samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var ekki talið að
hann hefði slasast mikið.
Hann var þó meðvitundar-
laus um skeið eftir fallið og
var fluttur á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Ekki tókst að fá nánari upp-
lýsingar um líðan hans í gær-
kvöld.
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
LLöDl>l\
Með Morgun-
blaðinu í dag
er dreift
blaði frá
Hreyfingu,
„Frábær
hreyfing“.
Blaðinu er
dreift í
Reykjavík,
Kópavogi og
Garðabæ.
Setur KR aðra höndina á
Íslandsbikarinn?/B3
Körfubolti
DHL-deildin
Kærkominn sigur Víkinga /B2 \;
www.mbl.is