Morgunblaðið - 28.08.1999, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/S. Vald.
Július Óskarsson með 27 punda hænginn úr Merkjapolli.
27 punda tröll tír
Laxá í Aðaldal
Stærsti lax sumarsins veiddist í
Laxá í Aðaldal í vikunni. Það var 27
punda hængur sem Júlíus Oskars-
son veiddi á svartan Tóbíspón í
Merkjapolli sem er á mörkum
Knútsstaða og Tjama, en veiði-
svæðið er jafnan kennt við Nes, Ár-
nes og Núpa. Stefán Skaftason í
Straumnesi sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði skoðað
laxinn og hann hefði verið grútleg-
inn og greiniiegt að hann hefði get-
að verið yfir 30 pund er hann gekk í
ána fyrr í sumar.
Stefán sagði veiði hafa verið
þokkalega í sumar, vikuaflinn hefði
hlaupið á 30 til 50 löxum. „Þetta
hefur oft verið betra og það var
sáralítið af smálaxi, en það var nóg
að gerast hérna til að halda mönn-
um við efnið. Stundum voru skilyrð-
in þó erfið, áin svo glær að við sáum
laxinn langt út í á. Þá var hægt að
sjá viðbrögðin þegar kastað var að
honum. Við þær aðstæður voru við-
brögðin einmitt engin, laxinn lá eins
og steinn og hreyfði sig ekki. Fyrsta
hollið sem kom eftir útlendingana
fékk átta laxa, skilyrðin voru erfið.
Nú er hins vegar að þykkna eitt-
hvað upp og þá gæti veiðin batnað.
Það er mun minna af laxi nú heldur
en t.d. í fyrra, en það er þó fjarri því
laxlaust," bætti Stefán við. Á þriðja
hundrað laxar hafa verið bókaðir í
veiðibók Ness- og Amessbænda og
á sjötta hundrað laxar í Laxamýrar-
bókinni. Veiði slagar því eitthvað í
900 laxa í það heila og þeir bjart-
sýnustu gera að því skóna að sléttir
þúsund laxar veiðist í sumar.
65.000 laxinn
Þegar hollið sem nú veiðir á
svæðum Laxárfélagsins í Laxá í Að-
aldal byrjaði veiðar eftir hádegi í
gær var ljóst að fyrsti laxinn í holl-
inu yrði lax númer 65.000 frá því að
Laxárfélagið tók svæði sín á leigu
árið 1941. Þegar vertíðin nú hófst
vantaði 529 laxa til að fylla töluna
og því ljóst að áfanganum yrði náð.
Orri Vigfússon, formaður Laxárfé-
lagsins, sagði í vor að grannt yrði
fylgst með því hver veiddi laxinn og
hann, þ.e.a.s. veiðimaðurinn, yrði
heiðraður sérstaklega. „Þeir höm-
uðust eins og vitlausir menn í holl-
inu á undan og reyndu að ná laxin-
um, misstu einn síðasta kvöldið og
svo vom allir komnir út fyrir allar
aldir í morgun, en þá veiddi enginn
neitt,“ sagði Orri í samtali við
Morgunblaðið í gærdag.
Á umræddu tímabili hafa aðeins
þrír menn veitt Laxárfélaginu for-
stöðu, Kristinn Stefánsson
1941-1967, Sigurður Samúelsson
1968-1984 og svo Orri sem hefur
verið formaður fi"á árinu 1985. Á
þessum ámm hefur veiðin á svæð-
um félagsins sveiflast frá tölunni
211 árið 1945 upp í 2.152 árið 1978.
Fréttir héðan
og þaðan
Það er farið að veiðast á Laugar-
bökkum að sögn Áma Erlingsson-
ar, kennara á Selfossi, en hann
fylgist grannt með gangi mála á
svæðinu. Hann sagði ástandið í
Hvítá og Olfusá hafa haft slæm
áhrif á veiðina, en þó væri ástandið
miklu mun betra heldur en þegar
hlaup kom úr Hagavatni árið 1980.
„Það er þó komið nokkuð eðlilegt
ástand og það er farið að veiðast.
Einn sem var fyrir skömmu kominn
með einn lax og tvo væna sjóbirt-
inga fyrir hádegi og fleiri hafa feng-
ið afla, einkum þó sjóbirting. Ann-
ars er svæðið að komast í eðlilegt
horf á réttum tíma, því samkvæmt
reynslu minni er nú einmitt að fara í
hönd besti laxveiðitíminn á svæð-
inu,“ sagði Árni.
Fyrr í vikunni vora komnir átta
laxar úr Geirlandsá og slangur af
bleikju. Sjóbirtingur hefur lítið sést
enn, en það er varla að marka því ár
á þessum slóðum era orðnar afar
vatnslitlar og sumar „nánast brand-
ari“ eins og veiðimaður einn sem
var á svæðinu lýsti Hörgsá á Síðu.
Sami maður sagðist ekki örvænta
um birtinginn, hann biði eflaust ró-
legur í Skaftá uns vatnsborð
bergvatnsáa hækkaði.
Stórir urriðar úr Ytri Rangá
Nýlega var greint frá úvenju stúrum silungum sem
menn voru að veiða í Ytri Rangá. Hér eru stoltir
veiðimenn með þá stærstu sem á land komu, annars
vegar er enski kastkennarinn Michael Evans, með
bindi og derhúfu, með 11 punda staðbundinn urriða
úr Skeiðvaliakvísl, en á hinni myndinni er Henry
Phillips með 13,5 punda sjúbirting sem hann veiddi í
Húsabakka.
Dagur símenntunar víða um land
Lífíð er
rétti tíminn
til að læra
IDAG er dagur sí-
menntunar um allt
land. Menntamála-
ráðuneytið hefur einu
sinni áður staðið fyrir
degi símenntunar, það
var 24. febrúar 1996 - á
evrópsku ári símenntun-
ar. Guðný Helgadóttir,
starfsmaður mennta-
málaráðuneytis, starfar
með verkefnisstjórn um
símenntun sem mennta-
málaráðherra hefur skip-
að. Hún var spurð hver
væri tilgangurinn með
þessum degi símenntun-
ar?
„Tilgangurinn er að
efla og hafa áhrif á við-
horf fólks til menntunar -
menntunar sem ævi-
verks; upplýsa fólk um það
nám og þau námskeið sem eru í
boði hjá hinum ýmsu aðilum;
gefa fólki kost á að fá ráðgjöf um
námsval."
- Var mikil þátttaka í degi sí-
menntunar fyrir þremur árum?
„Já, það var mikil þátttaka
þrátt fyrir ekki sérlega hagstætt
veður. Þá var dagskrá hjá hinum
ýmsu aðilum í Reykjavík og víða
um land - það var sem sagt opið
hús hjá hinum ýmsu fræðsluaðil-
um. Fólk gat þá komið inn í
kennslustundir og þannig kynnst
því sem var í boði.“
- Nú eru skólar rétt að byrja,
hvers vegna er þessi dagur svona
snemma núna?
„Hann er valinn vegna þess að
á þessum tíma eru ýmis nám-
skeið og skólar að fara að stað og
því er þetta mjög hentugur tími
til þess að upplýsa fólk um hvað
er í boði og fýrir aðila að kynna
það sem þeir eru með. Fram-
haldsskólar era komnir af stað en
fýrst og fremst er þó verið að
„stfla“ upp á ýmis konar nám-
skeið. Vonandi er fólk svo vel
mótttækilegt eftir gott sumar-
frí.“
-Hvað má ætla að sé vinsæl-
ast á þessum degi símenntunar
að kynna sér?
„Tungumáianámskeið og
tölvunámskeið eru vinsæl, svo og
Guðný Helgadóttir
►Guðný Helgadúttir fæddist
1947 í Reykjavík. Hún lauk kenn-
araprúfi 1968 og stúdentsprúfi
1969 frá Kennaraskúla fslands.
MA-prúfi í hagnýtum skúlarann-
súknum lauk hún frá háskúlan-
um í East Anglia 1978. Guðný
hefur unnið í menntamálaráðu-
neytinu meira og minna frá 1969
en var 1981 til 1989 í starfi á
skrifstofu Norrænu ráðherra-
nefndarinnar í Kaupmannahöfn.
Nú er Guðný starfandi í mennta-
málaráðuneytinu í framhalds-
skúla- og fullorðinsfræðsludeild.
Forseti íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, setur dag-
skrána klukkan 10.00 í Viðskipta-
háskólanum í Reykjavík. Síðan
mun menntamálaráðherra Björn
Bjarnason flytja ræðu um sí-
menntun á 21. öldinni. Hægt er
að hlusta á þessa dagskrárliði
víða um land gegnum fjarfunda-
búnað. Á klukkustundar fresti,
milli klukkan 10.00 og 17.00,
verða svo fyrirlestrar í þremur
sölum í Viðskiptaháskólanum og
Verslunarskóla íslands. Fjöl-
margir aðilar kynna starfsemi
sína á svokölluðu markaðstorgi,
þar verður hægt að fá upplýsing-
ar um þann aragrúa af námskeið-
um og námsleiðum sem verða í
boði í vetur. Námsráðgjafar
ýmis önnur starfstengd námskeið verða líka á staðnum. Kennsla
og svo margvísleg námskeið sem verður í gangi í mörgum kennslu-
telja má uppbætandi fyrir líkama
og sál. “
- Er fólk duglegt að endurnýja
menntun sína?
„Já, fólk er mjög duglegt við
það eins og nýleg könnun hjá Fé-
lagsvísindastofnun gefur til
kynna en samkvæmt henni sótti
rúmlega 50% af fólki á aldrinum
18 til 75 ára einhvers konar nám
utan skólakerfisins á tólf mánaða
tímabili 1997-98. Nú - svo eru það
allir sem eru í námi innan skóla-
kerfisins, t.d. í framhalds- og há-
skólanámi. Nokkuð al- _________
gengt er að fólk taki
sér hlé, fari í starf og
komi svo aftur til
náms. Það er raun- _____
veruleg símenntun,
orðið felur í sér að menntun þurfí
sí og æ að eiga sér stað, fólk þarf
að nema allt lífið. Orðið símennt-
un gefur því frekar til kynna við-
horf til menntunar en er ekki
heiti á neinum einstökum þáttum
menntunar.“
-Hvemig mun svo dagur sí-
menntunar ganga fyrir sig?
„Það verður fjölbreytt dagskrá
á um 30 stöðum víða um land.
Menntun þarf
sí og æ að
eiga sér stað
stofum á staðnum. Fólki gefst
þannig kostur á að fá forsmekk-
inn af mörgum námskeiðum sem
hægt er að sækja í vetur og jafn-
vel skrá sig á einhver þeirra.
Víða úti á landi er ekki síður
metnaðarfull dagskrá í boði.
Áhuginn og gróskan er mikil alls-
staðar og óhemju vakning í þess-
um efnum í öllum landshlutum.
Nokkrar símenntunarmiðstöðvar
hafa þegar tekið til starfa og
þrjár verða formlega stofnaðar í
dag. Fólki er bent á að kynna sér
_________ dagskrána á hverjum
stað.“
- Hafa margir
komið að undirbún-
ingi á þessum degi sí-
menntunar?
„Fjölmargir hafa lagt hönd á
plóginn og unnið gott starf. Við
skulum vera minnug þess að
menntun er eina fjárfestingin
sem enginn getur tekið frá
manni. „Lífið er rétti tíminn til að
læra,“ var slagorðið á degi sí-
menntunar 1996 - það á svo sann-
arlega einnig við nú. Það er lík-
lega of seint að læra þegar lífinu
er lokið.“