Morgunblaðið - 28.08.1999, Síða 18

Morgunblaðið - 28.08.1999, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Rekstur Snæfells hf. í Hrfsey til skoðunar Urg'ur og hræðsla meðal starfsfólks Kyrrðarrjóður í Kjarna skógi vekur athygli KYRRÐARRJÓÐUR, sem séra Bolli Gústavsson, vígslubiskup á Hólum í Hjaltadal, vígði á fjöl- skylduhátíð kirkjunnar í Kjarna- skógi í siðasta mánuði, hefur vakið verðskuldaða athygli og verið vel sótt, að sögn Hallgríms Indriðasonar, framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga. „Þetta er virkilega fallegur staður og okkur virðist hann vel sóttur. Þegar ákveðið var að halda kristnitökuhátíð i Kjarna- skógi og reyndar miklu fyrr, var farið að tala um að viðeigandi væri að einhvers staðar í skógin- um væri sérstakur kyrrðarstaður, þar sem fólk gæti verið eitt með sjálfu sér,“ sagði Hallgrímur. I þessu kyrrðarijóðri er stór og mikill steinn, sem ber nafnið Kirkjusteinn og sagði Hallgrímur að skógræktarmenn hafi lagt gönguleið að honum en einnig hafi kristnitökunefnd komið að málinu. Á myndinni er Hallgrím- ur að ræða við Málfríði Kristian- sen úr Kópavogi við Kirkjustein- inn en hún var að ná sér í svolít- inn sumarauka fýrir norðan. GUÐMUNDUR Gíslason fram- leiðslustjóri Snæfells hf. í Hrísey hefúr sagt starfi sínu lausu og þá er mikill urgur og hræðsla meðal ann- ars starfsfólk vegna óvissu með framtíð rekstursins í eynni. Tæplega 50 manns vinna í frystihúsi félagsins í Hrísey, við pökkun og frystingu og reykingu á laxi og regnbogasilungi. Guðmundur sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa sagt upp vegna óánægju og að hann hafi ekki fundið fyrir nægilegum stuðningi frá for- svarsmönnum fyrirtækisins við starfsemina í Hrísey. Magnús Gauti Gautason framkvæmdastjóri Snæ- fells hefur boðað koma sína út í eyju eftir helgi, þar sem hann mun halda fund með starsfólki. Ýmislegt til skoðunar Magnús Gauti sagði að verið væri að skoða ýmsa möguleika til hagræð- ingar í rekstri fyrirtækisins og hann reiknaði með því að málið skýrðist í næstu viku. „Endanleg ákvörðun liggur ekki fyrir en starfsfólki í Hrís- ey verður tilkynnt fyrst um breyt- ingar ef þær snerta það.“ Guðmundur sagði að Hríseyingar væru áhyggjufullir yfir framtíð starfseminnar og hefðu helstar áhyggjur af því að pökkunin legðist af en við hana starfa 13 manns að jafnaði og er pakkað upp undir 1.000 tonnum á ári. Guðmundur sagði að kvótastaða Snæfells væri mjög veik gagnvart þeim þremur landvinnslum sem fyrirtækið rekur, í Hrísey, á Dalvík og Stöðvarfirði. Hann sagði að rekstur frystingarinnar hefði ver- ið erfiður og það mætti sjá hringinn í kringum landið að fyrirtæki sem ekki ættu kvóta, lentu helst í vand- ræðum. Og ekki hefði komið byggða- kvóti til staðarins. „Við erum aðallega að vinna við pökkun og auðvitað er hægt að færa rök fyrir því bæði að vera með slíka starfsemi hér og ekki. En yfirleitt hafa menn talið betra að vera með fullvinnslu og pökkun á einum og sama staðnum." Guðmundur sagði þó að ekki væri algjört svartnætti framundan en vissulega mætti upplýsingastreymi milli stjórnenda og starfsfólks vera meira. „Það hefur ekki verið gefið út að pökkunin verði aflögð en það eina sem við höfum fengið að heyra er að við fáum fréttir í næstu viku.“ Reiðhjólaslys á Akureyri LAUST eftir klukkan eitt eftir há- degi í gær var ekið á tólf ára dreng á reiðhjóli á mótum Glerárgötu og Grænugötu á Akureyri. Þær upplýsingar fengust hjá lög- reglunni á Akureyri að drengurinn hugðist hjóla yfir Glerárgötu á gangbraut, sem er án umferðar- ljósa. Bifreið sem þar kom að stopp- aði fyrir drengnum og hann hjólaði af stað. í sömu svifum kom önnur bifreið fram hjá þeirri kyrrstæðu með þeim afleiðingum að ekið var á drenginn. Ekki var kunnugt um hversu al- varleg meiðsli drengsins voru en hann kvartaði yfir eymslum í fótum og baki þegar hann var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. ---------------------- Garðveisla í Minjasafns- garðinum Á MORGUN, sunnudaginn 29. ágúst, verður haldin garðveisla í til- efni af 100 ára afmæli Minjasafns- garðsins á Akureyri en hann er fyrsta trjáræktarstöð landsins. Dag- skráin stendur frá kl. 14-16 og er öll- um opin. I garðveislunni flytja Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Bjöm Jósef Amviðarson ávörp og Tómas Ingi Olrich alþingismaður rekur sögu garðsins. Auk þess fræð- ir Hallgrímur Indriðason, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags Ey- firðinga, veislugesti um einstök tré í garðinum. Þá verða afhentar viðurkenningar fyrir garða og umhverfi á Akureyri og veislugestum boðið upp á veiting- ar. Að garðveislunni standa Minja- safnið á Akureyri, Skógræktarfélag Eyfirðinga, umhverfisdeild Akureyr- arbæjar og umhverfisnefnd. Kirkjustarf AKURE YRARKIRK JA: Kvöldguðsþjónusta kl. 21 sunnudaginn 29. ágúst, sr. Svavar A. Jónsson messar. Morgunbæn þriðjudag kl. 9 og kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 fimmtudaginn 2. september, hefst með orgelleik. GLERÁRPRESTAKALL: Kvöldguðsþjónusta sunnudag- inn 29. ágúst kl. 21, sr. Gunn- laugur Garðarsson. HVITASUNNUKIRKJAN: Sunnudaginn 29. ágúst kl. 11:30 „sunnudagaskóli fjöl- skyldunnar“, fyrir alla aldurs- hópa. Vakningasamkoma kl. 20 sama kvöld, Snorri Óskarsson í Betel predikar. Fyrirbæna- þjónusta. HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæn sunnudaginn 29. ágúst kl. 19:30 og almenn samkoma kl. 20. Morgunblaðið/Kristján Handritasamkeppni Menor og Leikfélags Akureyrar í VETUR fór af stað samkeppni um handrit að einþáttungum á vegum Menor og Leikfélags Akureyrar. Að sögn Ólafs Hall- grímssonar, formanns Menor, rennur skilafrestur ekki út fyrr en 1. október svo áhugasamir hafa enn möguleika á að ganga frá handriti. Fyrir þau handrit sem lenda í þremur fyrstu sætunum eru veitt peningaverðlaun og Enn í fullum gangi verða verkin tekin til flutnings einhvern tímann á næsta ári. Skilyrði til þátttöku er að hand- ritið taki ekki meira en klukku- tíma í flutningi. Þriggja manna dómnefnd mun síðan meta hand- ritin en hún er skipuð þeim Sig- urði Hallmarssyni fyrir hönd Menor, Sigurði Hróarssyni fyrir hönd L.A. og Hannesi Erni Blandon, fyrir hönd Bandalags ís- lenskra leikfélaga. Eins og áður sagði hljóta höf- undar þriggja handrita peninga- verðlaun. Fyrstu verðlaun eru 100.000 krónur, en fyrir þau hand- rit sem lenda í öðru og þriðja sæti eru verðlaunin 70.000 krónur fyrir hvort. Handritum skal skila til Leikfélags Akureyrar, Hafnar- stræti 57, 600 Akureyri. Handrit- in skulu merkt með dulnefni en nafni höfundar ásamt heimilis- fangi skal skilað með í lokuðu um- slagi. AKUREYRARBÆR Skóladeild Glerárgötu 26, II. hæð, 600 Akureyri FRÁ GRUNNSKOLUM AKUREYRAR Nemendur skulu koma í skólana miðvikudaqinn 1. september nk. sem hér segir: Nemendur í 2., 3. og 4. bekk klukkan 9.00. Nemendur í 5., 6. og 7. bekk klukkan 10.30. Nemendur í 8., 9. og 10. bekk klukkan 13.00. Haft verður samband við heimili þeirra barna sem eiga að fara í 1. bekk og þau og aðstandendur þeirra boðuð til viðtals í skólunum. í Lundarskóla og Oddeyrarskóla verða 1 .-9. bekkir og nemendur 10. bekkja í skólahverfum Lundarskóla og Oddeyrarskóla verða í Brekkuskóla. f Giljaskóla verða 1.-6. bekkir. í Brekkuskóla, Glerárskóla og Síðuskóla verða 1.-10. bekkir. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnum sínum fyrsta skóladaginn. Nemendur Brekkuskóla mæti 1. september á sal skólans í Gagnfræðaskólahúsinu. Skólastjórar Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi: Furulundur/Hrísalundur Akurgerði Munkaþverárstræti Melasíða/Múlasíða Huldugil Blaðburðúr verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. . I Morgunblaðið f | Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendurn sinum vandaðar og áreiðanlegar frettir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á Íslandí sem er í upplagseftirliti og éru seld að meðaltali rumlega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöövar Morgunblaðsins eru i Krínglunni 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. A Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunbiaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Arvakur hf. er útgefandi Morgunbiaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.