Morgunblaðið - 28.08.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 25
Snorri Snorrason
Valur SH afhentur
ÓSEY hf. í Hafnarfirði afhenti á
dögunum Lárusi Guðmundssyni
þriðja raðsmíðaskip sitt. Bátur-
inn hefur fengið nafnið Valur
SH. Lárus hefur verið í útgerð í
tvo áratugi og er Valur, sem er
tæpir 16 metrar á lengd, 5 metra
breiður og 29,9 brúttólestir á
stærð, þrettándi báturinn sem
hann gerir út. Valur er útbúinn
til dragnótaveiða auk línu- og
netaveiða og er sams konar bát-
ur og Esjar SH og Svanborg SH
sem voru afhentir fyrr árinu.
Skipa- og vélatækni í Keflavík
hannaði bátana.
Stefnt að sameiningu Ljósavíkur og Fiskiðjusamlags Húsavíkur
Fyrirtækin falla vel saman
og mynda sterkari einingu
KAUP Ljósavíkur hf. á 20% hlut í
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur eru gerð
með það fyrir augum að fyrirtækin
sameinist, að sögn Guðmundar
Baldurssonar, framkvæmdastjóra
Ljósavíkur. Hann segir fyrirtækin
falla vel saman og mynda öfluga ein-
ingu.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu er stefnt að samein-
ingu félaganna undir nafni Fiskiðju-
samlags Húsavíkur og að megin-
starfsemi þess verði á Húsavík. Guð-
mundur segir miðað við að af sam-
einingunni gæti orðið 1. september.
Ljósavík hf. gerir út tvö skip á ís-
landsmiðum, Ask ÁR og Gissur ÁR.
Félagið á ennfremur 67% hlut í
rækjuvinnslunni Pólum á Siglufirði
og hafa skipin síðustu ár landað afla
sínum þar. Ljósavík á þar að auki
hlut í sjávarútvegsfyrirtæki í
Færeyjum sem gerir út einn togara
og er með veiðiheimildir á Sval-
barðasvæðinu, í Barentshafi og á
Flæmingj agrunni.
Guðmundur segir að með samein-
ingunni verði til sterkari eining á
breiðari grunni. „Það hefur verið
ákveðin lægð í rækjuveiðum en við
trúum því að nú sé botninum náð.
Við viljum með sameiningu búa til
sterkara sjávarútvegsfyrirtæki sem
getur vaxið og dafnað. Fiskiðjusam-
lag Húsavíkur er auk þess álitlegur
fjárfestingarkostur. Okkar skip hafa
verið eingöngu á rækjuveiðum síð-
ustu ár og því falla þessi fyrirtæki
ágætlega saman,“ segir Guðmundur.
Þorlákshöfn
Nýtt frysti-
og kæli-
vöruhús
I DAG verður nýja frysti- og kæli-
vöruhúsinu í Þorlákshöfn gefið nafn
við stutta athöfn, sem hefst kl. 14.
Nýja húsið, sem er 29 þúsund
rúmmetrar að stærð, annast geymslu
frysti- og kælivöru. Það er rúmlega
tvö þúsund fermetrar að grunnflatar-
máli og 17 metra hátt. Pláss er fyrir
2.000 bretti í frystigeymslu og 800
bretti í kæligeymslu. Stutt er í að
húsið taki til starfa og er byrjað að
kæla frystigeymsluna niður, en það
tekur rúmar þrjár vikur að ná jöfnu
26 gráðu frosti.
Ljóst er að nýja frysti- og kæli-
vöruhúsið mun hafa mikil áhrif í Þor-
lákshöfn, jafnt á atvinnulífið sem
bæjarmyndina. Það mun þjóna mat-
vælaframleiðendum um allt land og
jafnframt innlendum sem erlendum
fiskiskipum sem safna frystum afurð-
um saman til flutnings á erlenda
markaði. Fastar siglingar eru á
þriggja vikna fresti milli Þorláks-
hafnar, Noregs, Spánar og Portúgals
á vegum portúgalska skipafélagsins
Port-Line.
Isfélag Þorlákshafnar ótti frum-
kvæðið að byggingu frysti- og kæli-
vöruhússins, en stjómarformaður
fyrirtækisins er Hafsteinn V. Ás-
geirsson, framkvæmdastjóri Skipa-
þjónustu Suðurlands.
Nýja frysti- og kælivöruhúsið í
Þorlákshöfn er fullkomnasta hús
sinnar tegundar í heiminum. Þar
ráða mestu tækninýjungar, umhverf-
isvænn kælimiðill og öflugt af-
greiðslukerfi. Til dæmis má nefna að
viðskiptavinir geta skoðað birgða-
stöðu sína beint á Netinu, ráðstafað
vömm og prentað út vottorð um
geymslutíma, hitastig og tilfærslur á
brettum.
Vinna við byggingu hússins hófst
síðastliðið vor. Það er stálgrindarhús
og sá Istak um byggingu þess. Kæli-
búnaður er frá Kælismiðjunni Frost
og birgðastjórnunarkerfi frá Tölvu-
myndum. Arkitektastofan ehf. sá um
hönnun hússins.
-------+++-------
Jökull selur
skip og kvóta
JÖKULL hf. á Raufarhöfn hefur selt
útgerðarfélaginu Hólmsteini Helga-
syni ehf. á Raufarhöfn innfjarðar-
rækjubátana Öxamúp ÞH og Reist-
arnúp ÞH ásamt rækjukvóta félags-
ins í Öxarfirði. Auk þess hefur
Brimnir, ehf., sem er dótturfélag
Jökuls, selt togarann Brimi ÞH úr
landi. Söluverðmætið er samtals um
277 milljónir króna.
Rekstur Öxarnúps og Reistarnúps
hefur gengið vel en sömu sögu er
ekki að segja af rekstri Brimis og er
sala eignanna liður í að lækka skuldir
Jökuls og einfalda reksturinn. Vegna
sölunnar og niðurfærslu á bókfærð-
um innfjarðarrækjukvóta í Skjálf-
andaflóa verður bókfært tap um 120
milljónir en að teknu tilliti til hlut-
deildar minnihluta í tapi Brimnis
verður tap samstæðu Jökuls um 90
milljónir króna.
Síðasti laugardagur verður áreiðanlega lengi í minnum hafður hjá hjónum sem áttu
brúðkaupsafmæli þann dag. Dagurinn var hinn ánægjulegasti - en það sem kórónaði
hann var að þau fengu allar tölur réttar í Jókemum um kvöldið sem þýddi
1.000.000 fef.
Fyrr um daginn hafði eiginmaðurinn keypt Lottómiða og ákvað
þá að taka Jókerinn með svona upp á grín - hafði aldrei gert það áður.
'’SfyldW’
Væri ekki skynsamlegt að taka Jókerinn með
næst þegar þú kaupir Lottómiða?
Hann gæti fært þér milljón - óskipta.
ORP/p yztjjiíA'f*
Mundu eftlr J ókernum.