Morgunblaðið - 28.08.1999, Page 25

Morgunblaðið - 28.08.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ UR VERINU LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1999 25 Snorri Snorrason Valur SH afhentur ÓSEY hf. í Hafnarfirði afhenti á dögunum Lárusi Guðmundssyni þriðja raðsmíðaskip sitt. Bátur- inn hefur fengið nafnið Valur SH. Lárus hefur verið í útgerð í tvo áratugi og er Valur, sem er tæpir 16 metrar á lengd, 5 metra breiður og 29,9 brúttólestir á stærð, þrettándi báturinn sem hann gerir út. Valur er útbúinn til dragnótaveiða auk línu- og netaveiða og er sams konar bát- ur og Esjar SH og Svanborg SH sem voru afhentir fyrr árinu. Skipa- og vélatækni í Keflavík hannaði bátana. Stefnt að sameiningu Ljósavíkur og Fiskiðjusamlags Húsavíkur Fyrirtækin falla vel saman og mynda sterkari einingu KAUP Ljósavíkur hf. á 20% hlut í Fiskiðjusamlagi Húsavíkur eru gerð með það fyrir augum að fyrirtækin sameinist, að sögn Guðmundar Baldurssonar, framkvæmdastjóra Ljósavíkur. Hann segir fyrirtækin falla vel saman og mynda öfluga ein- ingu. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu er stefnt að samein- ingu félaganna undir nafni Fiskiðju- samlags Húsavíkur og að megin- starfsemi þess verði á Húsavík. Guð- mundur segir miðað við að af sam- einingunni gæti orðið 1. september. Ljósavík hf. gerir út tvö skip á ís- landsmiðum, Ask ÁR og Gissur ÁR. Félagið á ennfremur 67% hlut í rækjuvinnslunni Pólum á Siglufirði og hafa skipin síðustu ár landað afla sínum þar. Ljósavík á þar að auki hlut í sjávarútvegsfyrirtæki í Færeyjum sem gerir út einn togara og er með veiðiheimildir á Sval- barðasvæðinu, í Barentshafi og á Flæmingj agrunni. Guðmundur segir að með samein- ingunni verði til sterkari eining á breiðari grunni. „Það hefur verið ákveðin lægð í rækjuveiðum en við trúum því að nú sé botninum náð. Við viljum með sameiningu búa til sterkara sjávarútvegsfyrirtæki sem getur vaxið og dafnað. Fiskiðjusam- lag Húsavíkur er auk þess álitlegur fjárfestingarkostur. Okkar skip hafa verið eingöngu á rækjuveiðum síð- ustu ár og því falla þessi fyrirtæki ágætlega saman,“ segir Guðmundur. Þorlákshöfn Nýtt frysti- og kæli- vöruhús I DAG verður nýja frysti- og kæli- vöruhúsinu í Þorlákshöfn gefið nafn við stutta athöfn, sem hefst kl. 14. Nýja húsið, sem er 29 þúsund rúmmetrar að stærð, annast geymslu frysti- og kælivöru. Það er rúmlega tvö þúsund fermetrar að grunnflatar- máli og 17 metra hátt. Pláss er fyrir 2.000 bretti í frystigeymslu og 800 bretti í kæligeymslu. Stutt er í að húsið taki til starfa og er byrjað að kæla frystigeymsluna niður, en það tekur rúmar þrjár vikur að ná jöfnu 26 gráðu frosti. Ljóst er að nýja frysti- og kæli- vöruhúsið mun hafa mikil áhrif í Þor- lákshöfn, jafnt á atvinnulífið sem bæjarmyndina. Það mun þjóna mat- vælaframleiðendum um allt land og jafnframt innlendum sem erlendum fiskiskipum sem safna frystum afurð- um saman til flutnings á erlenda markaði. Fastar siglingar eru á þriggja vikna fresti milli Þorláks- hafnar, Noregs, Spánar og Portúgals á vegum portúgalska skipafélagsins Port-Line. Isfélag Þorlákshafnar ótti frum- kvæðið að byggingu frysti- og kæli- vöruhússins, en stjómarformaður fyrirtækisins er Hafsteinn V. Ás- geirsson, framkvæmdastjóri Skipa- þjónustu Suðurlands. Nýja frysti- og kælivöruhúsið í Þorlákshöfn er fullkomnasta hús sinnar tegundar í heiminum. Þar ráða mestu tækninýjungar, umhverf- isvænn kælimiðill og öflugt af- greiðslukerfi. Til dæmis má nefna að viðskiptavinir geta skoðað birgða- stöðu sína beint á Netinu, ráðstafað vömm og prentað út vottorð um geymslutíma, hitastig og tilfærslur á brettum. Vinna við byggingu hússins hófst síðastliðið vor. Það er stálgrindarhús og sá Istak um byggingu þess. Kæli- búnaður er frá Kælismiðjunni Frost og birgðastjórnunarkerfi frá Tölvu- myndum. Arkitektastofan ehf. sá um hönnun hússins. -------+++------- Jökull selur skip og kvóta JÖKULL hf. á Raufarhöfn hefur selt útgerðarfélaginu Hólmsteini Helga- syni ehf. á Raufarhöfn innfjarðar- rækjubátana Öxamúp ÞH og Reist- arnúp ÞH ásamt rækjukvóta félags- ins í Öxarfirði. Auk þess hefur Brimnir, ehf., sem er dótturfélag Jökuls, selt togarann Brimi ÞH úr landi. Söluverðmætið er samtals um 277 milljónir króna. Rekstur Öxarnúps og Reistarnúps hefur gengið vel en sömu sögu er ekki að segja af rekstri Brimis og er sala eignanna liður í að lækka skuldir Jökuls og einfalda reksturinn. Vegna sölunnar og niðurfærslu á bókfærð- um innfjarðarrækjukvóta í Skjálf- andaflóa verður bókfært tap um 120 milljónir en að teknu tilliti til hlut- deildar minnihluta í tapi Brimnis verður tap samstæðu Jökuls um 90 milljónir króna. Síðasti laugardagur verður áreiðanlega lengi í minnum hafður hjá hjónum sem áttu brúðkaupsafmæli þann dag. Dagurinn var hinn ánægjulegasti - en það sem kórónaði hann var að þau fengu allar tölur réttar í Jókemum um kvöldið sem þýddi 1.000.000 fef. Fyrr um daginn hafði eiginmaðurinn keypt Lottómiða og ákvað þá að taka Jókerinn með svona upp á grín - hafði aldrei gert það áður. '’SfyldW’ Væri ekki skynsamlegt að taka Jókerinn með næst þegar þú kaupir Lottómiða? Hann gæti fært þér milljón - óskipta. ORP/p yztjjiíA'f* Mundu eftlr J ókernum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.